Morgunblaðið - 01.07.1997, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Stendur ekki til að borgin
hækki framlög til LR
Morgunblaðið/Golli
„LEIKFELAG Reykjavíkur tók enga fjárhagslega áhættu með Leikfélagi Islands i uppfærslunni á
Stone Free í Borgarleikhúsinu," segir Breki Karlsson hjá LÍ og bætir við að það hafi heldur eng-
inn unnið kauplaust við uppfærsluna eins og Þórhildur segir að oftast sé gert í leikhópum sem
hafa verið aðilar að samstarfsverkefnum í Borgarleikhúsinu. Myndin er af sýningu á Stone Free.
Hörð viðbrögð eru við
ummælum Þórhildar
Þorleifsdóttur í viðtali
við Morgunblaðið síð-
astliðinn föstudag.
Þröstur Helgason
leitaði svara við ákalli
Þórhildar um meirí
styrki hjá borgaryfir-
völdum og viðbragða við
ummælum hennar um
samstarfsverkefni í
Borgarleikhúsinu og
Loftkastalann.
EKKI stendur til að borgaryfirvöld
hækki framlag til Leikfélags
Reykjavíkur á næsta ári frá því
sem það var á síðasta leikári en
eins og Þórhildur Þorleifsdóttir
sagði í samtali við Morgunblaðið á
föstudaginn stefnir í stórfelldar
uppsagnir og samdrátt hjá leikfé-
laginu komi ekki til meiri styrkir
frá borgaryfirvöldum til þess.
Að sögn Péturs Jónssonar, borg-
arfulltrúa R-listans og varafor-
manns borgarráðs, var framlag til
LR skorið niður um fimmtán millj-
ónir á fjárhagsáætlun borgarinnar
1997. „En síðan var fengin auka-
fjárveiting til leikfélagsins og
framlag til þess hækkað í 140
milljónir eins og það hafði verið
árið áður. Það eru aftur á móti
engar áætlanir uppi um meiri
styrki til LR í ár. Einnig var gerð
breyting varðandi sértekjur félags-
ins af rekstri Borgarleikhússins.
Áður var það svo að þessar sértekj-
ur komu til lækkunar á styrk borg-
arinnar til félagsins en svo er ekki
nú. Hvatinn til að nota Borgarleik-
húsið til annarra hluta en leiksýn-
inga félagsins var ekki fyrir hendi,
en svo er nú; allar sértekjur félags-
ins renna óskiptar til reksturs þess.
Áætlanir um aðrar breytingar hvað
snertir LR eru ekki fyrir hendi að
svo komnu máli.“
Pétur ságði að ekki hefði verið
rætt um mál LR í borgarráði ný-
lega. „Og ég veit ekki hver er vilji
fólks til þess að borga meira til
þessa leikhúss. Það er held ég
hvorki á stefnuskrá meirihlutans
né minnihlutans að greiða meira
til LR. Ef beiðni kemur um hærra
framlag verður hún hins vegar
tekin fyrir. Ég á þó ekki von á því
að hlaupið verði til og greiddar
einhver hundruð milljóna meira til
starfsemi leikfélagsins,“ sagði Pét-
ur.
Sigurður Karlsson, formaður
LR, sagðist í samtali við Morgun-
blaðið ekkert vilja láta hafa eftir
sér um ummæli Þórhildar Þorleifs-
dóttur í Morgunblaðinu á föstudag.
Samstarfsverkefni eru
leigusamningar
Leikfélag íslands setti upp leik-
ritið Stone Free eftir Jim Cartwr-
ight í Borgarleikhúsinu í fyrra og
var sú sýning samstarfsverkefni
en í viðtalinu á föstudag sagði
Þórhildur að engin samstarfsverk-
efni verði framar í Borgarleikhús-
inu, að minnsta kosti ekki með
sama sniði og verið hefur. Frekar
verði farin sú leið að leigja húsið
út til frjálsra leikhópa. Þórhildur
segir ástæðuna fyrir þessu vera
að LR hafi borið kostnað af sam-
starfsverkefnum í gegnum tíðina
og látið leikhópum í té aðstöðu og
vinnuafi nánast endurgjaldslaust.
Þórhildur segir að með þessu hafi
LR tekið fjárhagslega áhættu með
leikhópunum. Ennfremur segir
Þórhildur að starfsemi fijálsu leik-
hópanna sem hafi verið með sam-
starfsverkefni innan Borgarleik-
hússins byggist mikið til á ókeypis
vinnuframlagi sem sé annað en
tíðkist hjá LR og sökum þessa
skapist togstreita í húsinu á milli
þeirra sem hafa föst laun og þeirra
sem hafa engin laun.
Breki Karlsson, framkvæmda-
stjóri Leikfélags íslands, segir að
við uppfærsluna á Stone Free hefði
enginn unnið kauplaust. „Allir
fengu full laun borguð fyrir störf
sín og í flestum tilfellum meira en
það. Og ég þykist vita að það sama
hafi verið uppi á teningnum í öðr-
um samstarfsverkefnum, Svanin-
um, Konur skelfa og BarPar, sem
reyndar gengu öll einstaklega vel.
Það stenst heldur ekki hjá Þór-
hildi að samstarfsverkefni séu að
nota starfskrafta Borgarleikhúss-
ins launalaust því að samstarfs-
samningurinn sem er gerður er
leigusamningur, samstarfsverk-
efnin felast í því að við gerum
leigusamning við húsið og innifalin
í honum er samnýting á starfs-
krafti. Á meðan sumarfrí voru hjá
LR greiddum við öll laun starfs-
manna í Borgarleikhúsinu og þeg-
ar sumarfríum lauk og við fengum
til liðs við okkur starfsfólk LR
hækkaði leigan sem því nam. Og
öll yfirvinna starfsmanna Borgar-
leikhússins vegna uppsetningar
okkar var borguð af okkur. Leikfé-
lag Reykjavíkur tók heldur enga
fjárhagslega áhættu með okkur í
uppfærslunni á Stone Free, við
tókum alla fjárhagslega áhættu
sjálfir.
Okkur þykir mjög miður að
Borgarleikhúsið skuli standa nán-
ast autt í allt sumar en við sóttum
um að fá að setja upp annað verk
á þessum sömu forsendum í sumar
en það var ekki ljáð máls á því.
Þessu var hafnað án þess að það
hefði verið skoðað, þrátt fyrir að
Stone Free hafi skilað LR hagnaði
í fyrra og álíka margir gestir sótt
þá sýningu og allar sýningar LR
til samans. Þess má geta að Leikfé-
lag Reykjavíkur fékk ákveðið hlut-
fall af söluandvirði hvers miða í
sinn hlut. Eftir að hafa verið neit-
að hjá Borgarleikhúsinu höfum við
hins vegar gert samning við Loftk-
astalann um tiltekna uppsetningu.
Okkur þykir miður að þessi viðhorf
til samstarfsverkefna skuli vera
komin upp í Borgarleikhúsinu því
að við áttum mjög gott samstarf
við húsið í fyrra.“
Breki sagði að það þyrfti að
skoða það nánar hvort borgaryfir-
völd þyrftu ekki að hafa meiri völd
innan Borgarleikhússins fyrst þau
leggja svo mikla peninga til starf-
semi LR. „Það eru hins vegar mjög
skiptar skoðanir á því innan leik-
húsheimsins hvort rétt sé að borg-
in leggi svo mikla peninga til starf-
semi eins leikfélags og hún gerir;
sumir segja að nauðsynlegt sé að
hafa eitt sterkt leikfélag, aðrir
segja að peningarnir myndu nýtast
betur með því að dreifa þeim á
fleiri leikhópa sem fengju þá að
hafa aðstöðu í Borgarleikhúsinu.
Þórhildur skjóti ruslinu
eitthvert annað
Baltasar Kormákur, einn af eig-
endum Loftkastalans, segir að ef
Þórhildur Þorleifsdóttir þurfi að
skjóta ruslinu út úr Borgarleikhús-
inu þá ætti hún að beina því eitt-
hvert annað en að Loftkastalanum.
Þórhildur sagði i viðtalinu á
föstudag að starfsemi Borgarleik-
hússins og Loftkastalans væri ekki
sambærileg. Loftkastalinn hafi
ekki sett upp eina einustu sýningu
sjálfur á síðasta leikári, Á sama
tíma að ári og Sirkus Skara skrípó
hafí verið frumsýndar í fyrrasumar
og teljist því gamlar sýningar. Auk
þess væri þar einungis um að ræða
eins og tveggja manna sýningar.
Slíka starfsemi sagði Þórhildur
ekki hægt að bera saman við Borg-
arleikhúsið sem væri með fastráð-
inn hóp leikara og annarra starfs-
manna sem það hefði skyldur
gegn.
Baltasar segir að það sé ekki
rétt hjá Þórhildi að Loftkastalinn
hafi ekki sett upp eina einustu
sýningu sjálfur á síðasta leikári
heldur verið með tvær gamlar upp-
færslur. „Leikárið hjá okkur hefst
á sumrin, þá höfum við alltaf frum-
sýnt. Það þýðir hins vegar ekki að
sýningarnar okkar séu orðnar
gamlar þegar komið er fram á
vetur. Þar að auki vorum við líka
aðilar að barnaleikritinu Áfram
Latibær ásamt Magnúsi Scheving
en það var frumsýnt á miðjum
vetri.
Þórhildur hefur heldur greini-
lega ekki komið að sjá Skara skrípó
því að það er ekki eins manns sýn-
ing eins og hún heldur fram heldur
tíu manna.
Ég ber ekki á móti því að Loft-
kastalinn og Borgarleikhúsið eru
ólík fyrirtæki og að ýmsu leyti
ekki hægt að bera þau saman. En
hvort tveggja eru þetta leikhús og
bæði hafa þau ákveðnar skyldur
gagnvart áhorfendum sínum sem
Þórhildur virðist horfa fram hjá.
Þórhildur ætti kannski að skoða
hvers vegna okkur gengur jafn vel
og raun ber vitni, hvers vegna
aðsóknin að okkar sýningum er
svona mikil en aðsóknin hjá henni
hefur hrapað. Við getum líka bent
á að það er ekki hægt að bera
saman þessi tvö leikhús að því leyti
að við fáum enga opinbera styrki.
Við myndum að sjálfsögðu fegnir
vilja fá þessar 140 milljónir til að
moða úr og myndum geta gert
ótrúlega góða hluti með þeim.“
Aðspurður sagðist Baltasar ekki
vilja gagnrýna verkefnaval LR.
„En það segir sig sjálft að ef fólk
kemur ekki á sýningarnar er eitt-
hvað að verkefnavalinu. Og það
er alveg ljóst að Leikfélag Reykja-
víkur hefur ekki verið að vinna
neina stóra listræna sigra með
sýningum sínum undanfarin ár.
Það er því ódýr lausn hjá Þórhildi
að kenna öllum öðrum um en sjálf-
um sér þegar aðsókn minnkar og
allt stefnir í óefni.“
Söngtón-
leikar á Sel-
tjarnarnesi
SÖNGHUÓMLEIKAR verða
haldnir í Seltjarnarneskirkju
miðvikudagskvöldið 2. júlí.
Þar flytja þær Sigrún Val-
gerður Gestsdóttir söngkona
og Jónína Gísladóttir píanó-
leikari kirkjuleg og veraldleg
lög eftir Karl 0. Runólfsson,
Sigursvein D. Kristinsson, Jór-
unni Viðar, Hjálmar H. Ragn-
arsson, Árna Thorsteinsson,
Gabriel Faurée, Franz Schu-
bert og Felix Mendelssohn.
Einnig flytja þær nokkra
negrasálma.
Hljómleikarnir hefjast kl.
20.30.
Suðræna
svingsveitin
til Noregs
SUÐRÆNA svingsveitin úr
Tónlistarskóla Garðabæjar
hefur verið boðið til Noregs í
tilefni af árlegu þingi nor-
rænna tónlistarkennara sem
haldið verður í Tromso dagana
27. júní ti! 4. júlí. Sveitin mun
leika tvívegis á þinginu auk
þess að koma fram við fleiri
tækifæri í Tromso og ná-
grenni.
Sveitina skipa Grímur
Helgason, klarínettleikari;
Helgi Skúli Skúlason, víbrafón-
leikari; Rannveig Káradóttir,
píanóleikari; Öm B. Arnarson,
bassaleikari og Dagur Bergs-
son, trommuleikari. Stjórnandi
er Reynir Sigurðsson.
Gítarleikur á
Hvamms-
tanga
GÍTARLEIKARINN Símon H.
ívarsson heldur tónleika á
morgun, miðvikudag kl. 20.30,
á Hótel Seli á Hvammstanga.
Á tónleikunum leikur Símon
flamenco-tónlist og mun hann
kynna einkenni laganna fyrir
áheyrendum.
Flamenco-lögin sem Símon
leikur eru m.a. hinn tilþrifaríki
Bulerias, hið austræna Fand-
ango, tregablandið Soleares
og Colombian, ríkulega litað
af suður-amerískum áhrifum,
segir í kynningu.
Tónleikar á
Húsavík
TRÍÓ Sunnu Gunnlaugsdóttur
heldur tónleika í Safnahúsinu
á Húsavík miðvikudaginn 2.
júlí kl. 20.30.
Á efnisskrá er hefðbundinn
djass með evrópsku ívafi. Tríó-
ið skipa: Sunna Gunnlaugs-
dóttir, píanó, Dan Fabricatore,
bassaleikari, og Scott McLe-
more, trommuleikari. Hafa
þau leikið saman síðustu tvö
ár en þau kynntust í William
Paterson College í New Jersey
er þau stunduðu þar tónlist-
arnám.