Morgunblaðið - 01.07.1997, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stefnl ad byggingu kirkju á Hörgaeyri undir Heimakletti: Norðmenn haf a sýnt
f Yrði VÍgð á krístnitöku- áhugaá þátttökuímkefnlnuog'
, 0M mÆmák. a fostudaginn fundaði
atmæiinu ánð 2000 undirbúningsnefndmeð
-Á sama stað reistu SkeggiÁsbjarnarson og og G'rssur bvíti fyrslo sendiherra Norðmanna.
guðshús sem reist var bér á landi í kristni lÍE
ÞAÐ hlaut að koma gott AMEN eftir Sigurðarmálið . . .
112 laxaholl
í Norðurá
Snarpur
jarðskjálfti
undir
Hengli
JARÐSKJÁLFTI sem mældist um
3 á Richter varð undir Hengli kl.
23.28 síðastliðið laugardagskvöld.
Að sögn Sigurðar Rögnvaldssonar,
jarðskjálftafræðings á Veðurstofu
íslands, hefur mikil virkni verið á
Hengilssvæðinu undanfarnar vikur.
„Þetta er svona í nyrðri kantinum
á því sem verið hefur að hreyfast.
Þetta hefur náð alveg út á Mosfells-
heiðina, en ekki mikið þarna að
Henglinum heldur verið mest fyrir
austan hann og suðaustan. Að því
leyti er þetta nýtt,“ sagði Sigurður.
Hann sagði að erfitt væri að spá
um framvindu mála á þessu svæði
en jarðskjálftafræðingar hefðu
hálft í hvoru verið að búast við því
undanfarin ár að jarðhræringunum
á þessu svæði núna lyki með
skjálfta sem gæti orðið um 5,5 á
Richter.
„Á árunum 1952-1955 var mikii
virkni á Hengilssvæðinu og henni
lauk með skjálfta upp á 5,5 norður
af Hveragerði. Á aleinfaldasta lík-
ani af þessu hugsa menn sér að það
geti gerst aftur. Manni sýnist þetta
vera svolítið svipuð atburðarás sem
hefur verið þarna nú,“ sagði Sigurð-
ur.
----♦ ♦ ♦
Mikil ölvun
á Kald-
ármelum
MIKIL ölvun var á fjórðungsmóti
hestamanna á Kaldármelum um
helgina, að sögn lögreglu.
Mótið fór nokkuð friðsamlega
fram, en þó voru nokkrir pústrar
og minniháttar meiðingar. Þurfti
að færa fimm manns í fanga-
geymslur lögreglunnar og voru fjór-
ir teknir fyrir ölvun við akstur.
Einnig þurftu nokkrir að fá húsa-
skjól hjá björgunarsveitum vegna
ölvunar.
RÍFANDI veiði hefur verið í Norð-
urá í Borgarfirði að undanförnu
og hópur sem lauk þriggja daga
veiðitörn á hádegi í gær veiddi 112
laxa. „Við erum stoltur og ham-
ingjusamur hópur, Fjaðrafokið.
Þetta var ógleymanleg veiðiferð
og við slógum metið okkar frá síð-
asta sumri, en þá fengum við 104
laxa á þessum sömu dögum,“ sagði
Ingvi Hrafn Jónsson sem var með-
al veiðimanna við Norðurá. Mikil
ganga er í ána um þessar mundir,
bæði stórlax og smálax, og fiskur
um alla á. Alls voru þá komnir 466
laxar úr Norðurá og er hún afla-
hæsta áin það sem af er sumri.
Nái hún að halda þeim sessi í vert-
íðarlok verður það fimmta sumarið
í röð.
„Frekar rólegt“
„Þetta hefur verið frekar rólegt,
en menn eru þó aðeins að fá’ann
og sjá lax nokkuð víða, sérstaklega
neðanvert í ánni. Veiði hófst á
miðvikudaginn og veiddi fyrsta
hollið 11 laxa. Nú á hádegi var
annar hópur að hætta með 11 laxa
til viðbótar. Þetta er allt stórlax,
10-15 pund, og það er allt í lagi
með vatnsmagnið í ánni ennþá,“
sagði Jón Arnar Guðbrandsson,
kokkur í veiðihúsinu við Laxá í
Dölum, í gærdag.
Gott gengi í Leirvogsá
„Þetta er bara þokkalega gott í
Leirvogsánni. Það voru komnir 30
laxar á land á sunnudagskvöldið
og var það tveggja stanga veiði í
fimm daga. Það kom svo að
minnsta kosti einn í morgun, en
ég hitti aðeins handhafa annars
veiðileyfisins. Þetta er mjög falleg-
ur lax og hálfu pundi þyngri að
jafnaði en á sama tíma I fyrra,“
sagði Skúli Skarphéðinsson, veiði-
vörður við Leirvogsá, í gærdag um
gott gengi veiðimanna fyrstu veiði-
dagana.
Menn sáttir við Selá
Fyrsta hollið í Selá lauk þriggja
og hálfs dags veiði á hádegi í gær
og veiddust 11 laxar að sögn Garð-
ars H. Svavarssonar á Vakursstöð-
um. „Laxinn veiðist víða, allt upp
í Bjarnarhyl og er nær allur stór,
10 til 13 pund.
Veiðin byijaði í Hofsá á föstu-
daginn og gengur mjög hægt. Á
hádegi eru komnir 6 laxar á land,
Qórir 11-15 pund og tveir 8,5 og
4 pund. Menn sjá laxa hér og þar,
en fáa,“ sagði Garðar Svavarsson
ennfremur um fyrstu veiðidaganna
í ánni.
Glæðist í Gljúfurá
Holl í Gljúfurá, sem lauk tveggja
daga veiði á hádegi á föstudag,
veiddi 10 laxa og voru þá komnir
20 laxar á land. Flestir veiddust
laxarnir í Ósnum og að sögn veiði-
manna er enn lítið gengið í efri
hiuta árinnar þótt vatnsmagn sé
alls ekki óhagstætt. Laxarnir eru
flestir 4-6 pund, stærst 10 pund.
Úr ýmsum áttum
Lax er nú farinn að veiðast í
Soginu, einn í Ásgarði og tveir í
Bíldsfelli, þar af annar 21 punds
hængur. Lax hefur sést víðar og
bleikjuveiði að auki verið góð og
fiskur vænn.
Lífleg veiði hefur verið á efsta
svæði Stóru-Laxár síðustu daga,
einn daginn dró t.d. sami veiðimað-
urinn þijá á land, 10-17 punda.
Einna best hefur veiðst á efsta
svæðinu og fiskur er þar víða.
Loks kom skot í Rangárnar sem
hafa byijað þunglega. I gærmorg-
un veiddust átta laxar og voru þá
komnir alls um 25 laxar á land.
Nýverið veiddist 7 punda nýgeng-
inn sjóbirtingur á Neðra-Horni og
ullu upp úr honum laxaseiðin.
Evrópunefnd IMorðurlandaráðs
Ræddu við æðstu
ráðamenn ESB
Siv Friðleifsdóttir
Norðurlanda-,
Nærsvæða- og Evr-
ópunefnd Norður-
landaráðs voru staddar hér
á landi í síðustu viku vegna
funda. Siv Friðleifsdóttir
er varaformaður Evrópu-
nefndarinnar, sem kom
hingað til lands í beinu
framhaldi af heimsókn
nefndarinnar til Brussel.
- Hvað er Evrópnnefnd
Norðurlandaráðs?
„í byijun árs 1996 var
skipulagi Norðurlandaráðs
breytt í kjölfar þess að
þijú Norðurlandanna,
Danmörk, Svíþjóð og Finn-
land höfðu gengið í Evr-
ópusambandið. Þetta voru
erfiðar breytingar og það
lá mikil vinna í þeim en
mönnum fannst tímabært
að endurskoða skipulag og
starfsemi ráðsins til að mæta
breyttum tímum.
Áður starfaði Norðurlandaráð
i fagnefndum, eins og þjóðþingin
gera, og einnig vann hvert land
innan sinnar landadeildar. Nú
starfar það hins vegar í þremur
stórum nefndum í stað allra litlu
fagnefndanna. Þessar nefndir
eru Norðurlandanefnd, Nær-
svæðanefnd og Evrópunefnd.
Norðurlandanefndin fjallar um
Norðurlönd auk þess sem hún fer
með hefðbundin norræn sam-
starfsverkefni, eins og menning-
armái. Nærsvæðanefndin fer
með umhverfismál og samskipti
við nærsvæðin, þar á meðal Eyst-
rasaltsríkin. Evrópunefndin fer
svo með Evrópumál, þ.e. sam-
starf Norðurlandanna gagnvart
Evrópusambandinu og önnur
Evrópumál. Önnur breyting á
ráðinu er sú að í stað þess að
löndin vinni í landadeildum erum
við nú að starfa í pólitískum
flokkahópum.“
- Hvernig starfar Evrópunefnd-
in?
„Við erum búin að vera að
fóta okkur áfram í þessum nýju
vinnubrögðum og sem lið í því
hefur Evrópunefndin gert ýmis-
legt, m.a. haldið tvær ráðstefnur
um ríkjaráðstefnu Evrópusam-
bandsins. Á þessar ráðstefnur
hafa komið utanríkisráðherrar
Norðuriandanna, norrænir þing-
menn á Evrópuþinginu og fólk
sem er í lykilstöðum í Evrópu-
nefndum þjóðþinganna. Þessar
ráðstefnur hafa verið vettvangur
norrænu landanna gagnvart ríkj-
aráðstefnunni þar sem við bæði
fylgjumst með því sem þar er
að gerast og ýtum á eftir mál-
um.“
- Hvað voruð þið að gera í
Brussel?
„Þetta var þriggja daga heim-
sókn og við hittum m.á. Emmu
Bonino frá Ítalíu, Anitu Gradin
frá Svíþjóð, og Erkki Liik-
anen frá Finnlandi, sem
öll eiga sæti í fram-
kvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins og fara þar
með ákveðna málaflokka.
Við hittum þau á sérstök-
um lokuðum fundum og
var þetta því kjörið tækifæri til
að ræða við valdamesta fólkið í
Evrópusambandinu um það sem
Norðurlöndin setja efst á sinn
forgangslista. Ég vil taka það
fram að sjávarútvegsmál voru
ekki rædd við Emmu Bonino
enda stóð það ekki til. Hins veg-
ar kom fram í máli hennar að
nú er tekið meira tillit til neyt-
endamáia innan sambandsins en
►Siv Friðleifsdóttir er fædd i
Ósló árið 1962. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum
í Reykjavík árið 1982 og BS-
prófi ísjúkraþjálfun frá Há-
skóla íslands árið 1986. Hún
starfaði fyrst sem sjúkraþjálf-
ari en var kosin í bæjarstjórn
Seltjarnarness, sem fulltrúi
bæjarmálafélagsins, árið 1990.
Hún var endurkjörin árið 1994
og kosin á þing árið 1995 fyrir
Framsóknarflokkinn á Reykja-
nesi. Siv á sæti í utanríkis-
nefnd, heilbrigðisnefnd og fé-
lagsmálanefnd. Hún á einnig
sæti í Norðurlandaráði þar sem
hún er varaformaður Evrópu-
nefndar. Einnig er hún fulltrúi
Islands í Vestur-Evrópusam-
bandinu.
verið hefur, en hún fer með þau
mál.“
- Hvernig er samstarfi Norður-
landanna og samskiptum við
Evrópusambandið háttað?
„í Brussel áttum við fund með
öllum sendiherrum Norðurland-
anna, sem staðsettir eru í Bruss-
el, þar sem þeir gerðu grein fyr-
ir því hvemig þeir vinna saman
að norrænum málum. Þar kom
m.a. fram að samstarf norrænu
landanna í Brussel er aðallega
óformlegt samstarf bæði á milli
sendiherra og sendiráða. Það era
haldnir fundir á milli fagaðila en
auk þess hringja þeir mjög mikið
sín á milli. Það eru ekki miklar
stofnanir í kring um þetta sam-
starf en sendiherrarnir sögðu það
þó skilvirkt. Einnig kom fram
að íslendingar eru mjög ánægðir
með það upplýsingastreymi sem
þeir fá frá þeim Norðurlöndum
sem eru í Evrópusambandinu.
Þá kom það fram að sumir
sendiherrarnir telja að þegar
fleiri lönd komi inn í Evrópusam-
bandið, sem er fyrirsjáanlegt þó
það verði ekki alveg
á næstunni, muni
Norðurlöndin þurfa
að vinna meira sam-
an innan Evrópu-
sambandsins. I dag
eru 15 lönd í sam-
bandinu og ekki
hægt að tala um neina norræna
blokk innan þess þar sem Norð-
urlöndin hafa talið sterkara að
tala hvert fyrir sig og koma sam-
eiginlegum sjónarmiðum ítrekað
á framfæri. Á næstu árum er
sennilegt að löndum sambands-
ins fjölgi jafnvel upp í 27 og þá
aukast líkur á að Norðurlöndin
þurfi að vinna meira saman til
að rödd þeirra heyrist."
Fáum mikil-
vægar upp-
lýsingar frá
IMorðurlönd-
unum.