Morgunblaðið - 01.07.1997, Side 1
104 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
145. TBL. 85. ÁRG.
ÞRIÐ JUDAGUR 1. JÚLÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Kínverjar taka við völdum f Hong Kong eftir 156 ára nýlendustjórn Breta
Ibúar Hong Kong boðnir vel-
komnir í „faðm föðurlandsins“
Hong Kong. Reuter.
KÍNVERJAR tóku við völdum í Hong Kong á miðnætti í nótt, kl. 16 að ís-
lenskum tíma, og lauk þar með 156 ára yfirráðum Breta í borginni. Karl
Bretaprins sagði Hong Kong-búum að Bretar myndu aldrei gleyma þeim,
áður en hann lét völdin í borginni í hendur Jiang Zemin, forseta Kína, sem
bauð borgarbúa „velkomna í faðm föðurlandsins". Tung Chee-hwa sór að
því búnu embættiseið sem héraðsstjóri Hong Kong en síðasti landstjóri
Breta þar, Chris Patten, hélt þegar í stað heim á leið ásamt Karli prinsi í
Britanniu, skipi Bretadrottningar. Var Patten voteygur er hann lét af emb-
ætti og himnarnir létu ekki sitt eftir liggja því ausandi rigning var í Hong
Kong við valdaskiptin. Er sex klukkustundir voru liðnar af valdatíma Kín-
verja í Hong Kong hélt öflugt herlið þeirra inn í borgina.
Á miðnætti 1. júlí var fáni breska
heimsveldisins dreginn niður og
fáni kínverska alþýðulýðveldisins
og hinn nýi fáni Hong Kong dregnir
að húni. í ræðu sem Karl prins
flutti fyrir hönd Bretadrottningar
sagði hann Breta ekki myndu
gleyma íbúum Hong Kong. „Kín-
verjar taka í kvöld yfir ábyrgðina á
stað og fólki sem er okkur mikils
virði. Við munum ekki gleyma ykk-
ur og við munum fylgjast gi’annt
með þegar þið haldið inn í nýtt
tímabil í hinni merku sögu ykkar,“
sagði Karl.
Jiang Zemin, forseti Kína, sagði
valdaskiptin vera sigur fyrir kín-
versku þjóðina og lofaði íbúum
Hong Kong að þeir myndu halda
frelsi sínu. „1. júlí verður minnst í
sögunni sem dags er verðskuldar
eilífa minningu," sagði forsetinn.
Hunsuðu hátíðahöld Kínverja
Er Bretar höfðu látið Hong Kong
af hendi héldu Karl prins, Tony
Blair forsætisráðherra og Patten til
skips og sigldu heim á leið. Þeir
hunsuðu innsetningarathöfn Tungs
og löggjafarsamkundu Hong Kong í
mótmælaskyni við skipun hennar.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, var í mót-
mælaskyni heldur ekki viðstödd há-
tíðahöld Kínverja.
Hátíðargestir voru um 10.000
auk þess sem talið er að um 100
milljónir manna hafi fylgst með
beinni sjónvarpsútsendingu frá
Hong Kong, en íburðarmikil tón-
listar- og dansatriði tóku við af
ræðuhöldunum. Þá var mikið um að
vera víða í Kína en hápunktur há-
tíðahaldanna utan Hong Kong var á
Tiananmen-torgi í Peking, þar sem
um 100.000 manns fögnuðu endur-
heimt borgarinnar.
Þegar upp úr miðnætti héldu um
500 léttvopnaðir kínverskir her-
CHRIS Patten, síðasti landstjóri í
Hong Kong, var niðurdreginn við
kveðjuathöfn Breta í gær.
Reuter
HERMENN kínverska alþýðuhersins draga fána lands síns að húni í Hong Kong á miðnætti í gær. Þá fóru
fram valdaskipti f borginni er Kínverjar tóku við stjórntaumum úr höndum Breta.
Reuter
TUNG Chee-hwa tók á miðnætti við embætti hér-
aðsstjóra í Hong Kong. Hann var brosleitur er æðstu
embættismenn borgariimar sóru embættiseiða.
menn inn í borgina og að búðum
breska hersins, þar sem þeir drógu
kínverska fánann að húni. Um 4.000
hermenn biðu hins vegar við landa-
mærin og héldu inn í borgina sex
stundum eftir að valdaskiptin höfðu
farið fram. Hafði
hermönnunum verið
uppálagt að sýna
íbúum Hong Kong
kærleik, áður en
þeir héldu inn í
hana. Fjölmenni
fagnaði hermönn-
unum við komuna til
borgarinnar.
Nýskipað þing
Hong Kong kom
þegar saman og
samþykkti formlega
lög, sem sett voru
fyrir valdaskiptin en
þau takmarka rétt
íbúa til mótmæla og
setja skorður við stofnun og starf-
semi stjórnmálaflokka. Fella þau
jafnframt úr gildi lýðræðisumbætur
þær sem Patten stóð fyrir og gerðu
Kínverjum svo gramt í geði. Hins
vegar hefur Tung héraðsstjóri heit-
ið því að kosningar til þingsins
verði haldnar í maí nk.
Lýðræðissinnar stóðu við hótanir
sínar ,um að efna til mótmæla. For-
dæmdi Martin Lee, einn forystu-
manna þeirra, hið nýskipaða þing af
svölum þinghússins og hét harðri
baráttu í'yrir lýðræði í Hong Kong.
Blair þáði heimboð Jiangs
Blair átti stuttan fund með Jiang
Zemin, forseta Kína, áður en valda-
skiptin fóru fram. Var ekki annað
að sjá en að vel færi á með þeim og
bauð Jiang Blair í heimsókn til
Kína, sem forsætisráðherrann þáði.
Báðir lögðu áherslu á nauðsyn þess
að fyrra ósætti þjóðanna væri nú að
baki. Óskaði Blair þess að Hong
Kong yrði „brú en ekki hindrun á
milli Bretlands og Kína“.
■ Sjá umfjöllun á miðopnu.
Mike Tyson biðst afsökunar
Las Vegas. Rcuter.
MIKE Tyson baðst í gærkvöldi
afsökunar á því að hafa bitið
Evander Holyfield í bæði eyrun í
bardaga þeirra um heimsmeist-
aratitilinn í þungavigt hnefaleika í
Las Vegas á laugardagskvöldið.
Tyson var dæmdur úr leik og
Holyfield úrskurðaður sigurvegari
eftir þriðju lotu, eftir að sá fyrr-
nefndi hafði bitið í bæði eyru
heimsmeistarans. Tyson hélt
blaðamannafund í gærkvöldi í Las
Vegas, þar sem hann baðst afsök-
unar á framferði sínu. Hann sagði
m.a.: „Evander, fyrirgefðu mér.
Þú ert meistari og ég tek því.“
Tyson las afsökunarbeiðni sína
af blaði og yfirgaf síðan fundarsal-
inn án þess að svara spurningum
fréttamanna.
íþróttanefnd Nevada-ríkis
kemur saman í dag en hún
ákveður hvernig refsa skuli Ty-
son fyrir athæfið á laugardag.
Hann sagðist í gær eiga von á
harðri refsingu, hann myndi una
úrskurði nefndarinnar en bað
þess að verða ekki dæmdur í lífs-
tíðarbann frá hnefaleikum. Tyson
átti að fá 2,1 milljarð króna fyrir
bardagann, en ekki liggur ljóst
fyrir hve mikið kemur í hans hlut.
Skv. lögum Nevadaiíkis er ekki
hægt að sekta íþróttamenn nema
sem nemur 10% verðlaunafjár,
þannig að hann ætti að fá a.m.k.
1,9 milljarða.
■ Fyrirgefðu/Bl
Stjórn
Yilmaz
tekur við í
Tyrklandi
Ankara. Reuter.
MESUT Yilmaz tók við emb-
ætti forsætisráðherra Tyrk-
lands í gær og lauk þar með
hálfs mánaðar óvissutíð í
stjórnmálum landsins.
Yilmaz, sem er hægrimaður,
sagði í gær að stjórn sín
myndi binda enda á deilur um
hlutverk íslams í opinberu lífí
og þar með myndi hverfa
hættan á að herinn tæki að
hlutast til um stjórn lands-
mála. Markmiðið með mynd-
un stjórnarinnar er að koma í
veg fyrir að múslimar úr
flokki Neemettins Erbakans,
fráfarandi forsætisráðherra,
geti verið áfram við völd.
„Þetta verður stjóm sem
leggur áherslu á borgaraleg,
lýðræðisleg og frelsishvetj-
andi gildi,“ sagði Yilmaz á
fréttamannafundi eftir að Su-
leyman Demirel, forseti
landsins, útnefndi hann til
embættis forsætisráðherra.