Morgunblaðið - 04.01.1997, Page 2
2 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Brunnurinn
Víti bilaði
BILUN varð í heitasta brunni
Hitaveitu Reykjavíkur í gær en
hann er á homi Kringlumýrar-
brautar og Hamrahlíðar.
Brunnurinn gengur undir
nafninu Víti þar sem vatnið í
honum er 120 gráðu heitt.
Þéttingar við krana brunns-
ins leka en fresta varð viðgerð
þar sem mikinn gufumökk
lagði yfir Kringlumýrarbraut
þegar lúgan á brunninum var
opnuð. „Gufan tefldi bílaum-
ferð í tvísýnu og því verður að
bíða hagstæðari veðurskilyrða,
til dæmis smágjólu svo hægt
verði að gera við brunninn.
Annar möguleiki er að vinna
að næturlagi þegar umferð er
lítil,“ sagði Kristján Örn Jóns-
son verkstjóri hjá Hitaveitu
Reykjavíkur.
Háhitaæð, sem liggur um
brunninn, hefur verið gerð
óvirk meðan á viðgerð stendur,
en að sögn Kristjáns Arnar
kemur það ekki að sök því út-
lit er fyrir áframhaldandi hlý-
indi í Reykjavík.
Morgunblaðið/Þorkell
GUÐNI Skúlason starfsmaður Hitaveitu Reykjavíkur skríður ofan í Víti til að kanna ástandið.
Viðræður um gerð nýrra kjarasamninga fara í gang á ný eftir helgi
Lífeyrisréttindi í brennidepli
FORYSTUMENN launþegasamtaka innan ASÍ
eru þeirrar skoðunar að aukinn mismunur líf-
eyrisréttinda sé að verða eitt af stóru málunum
í kjaraviðræðunum. Breytingar þær sem sam-
þykktar hafa verið á Lífeyrissjóði starfsmanna
ríkisins og nýgert samkomulag um breytingar
á lífeyrisréttindum starfsmanna ríkisbankanna
hafa valdið því að lífeyrismálin eru að verða
eitt af forgangsmálunum í tengslum við end-
umýjun kjarasamninga.
„Opinberir starfsmenn, bankamenn, alþingis-
menn og ráðherrar virðast vera komnir með
sæmilega góð lífeyrisréttindi. Í framleiðslu-
störfum úti í atvinnulífínu, þar sem atvinnuör-
yggi er takmarkað og launahækkanir oft minni
em menn hins vegar ekki tilbúnir að lagfæra
neitt í lífeyrismálum. Þarna er bara verið að
skipta þjóðinni ennfrekar upp í ríka og snauða.
Þetta mál er meðal þeirra sem em í brennidepli
í þessum samningum,“ segir Öm Friðriksson,
formaður Samiðnar.
„Það er engin spuming að þetta hefur áhrif
á samningagerðina. Þetta hljóta að vera skila-
boð til almenna markaðarins, nema menn ætli
að ganga út frá því að það eigi að vera tvær
þjóðir í þessu landi,“ segir Magnús L. Sveins-
son, formaður Verzlunarmannafélags Reykja-
Allir kjarasamningar
stéttarfélaga og vinnuveit-
enda lausir um áramót
víkur. Björn Grétar Sveinsson, formaður Verka-
mannasambandsins, segir að lífeyrismálin hafí
gífurleg áhrif á viðhorf launþegasamtakanna
til kjaramálanna í heild því þar sé nú verið að
auka mismun milli þegna þjóðfélagsins. Hann
segir að Verkamannasambandið vilji einnig
horfa á fleiri mál í þessu samhengi eins og
skattahækkanir og tryggingamál, m.a. vegna
aukinnar greiðsluþátttöku sjúklinga í lyfja-
kostnaði.
Hækkun iðgjalda minnkar svigrúm
til launahækkana
„Áherslan sem við fínnum í þessum kjaravið-
ræðum er á að auka kaupmátt launateknanna
núna en ekki eftir 30 ár,“ segir Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. „Það
kæmi mér mjög á óvart ef að okkur yrði beint
kröfum um aukningu á greiðslum í lífeyrissjóði
því það myndi minnka svigrúm til beinna launa-
hækkana um nákvæmlega jafn mörg prósentu-
brot og svaraði til aukinna á greiðslna til lífeyr-
issjóða," segir Þórarinn.
Ekki bjartsýnn
Gildistíma allra almennra kjarasamninga
lauk um áramót ef undan eru skildir kjarasamn-
ingar starfsmanna sem vinna við Hvalfjarðar-
göng, en þeir taka reyndar mið af þeim launa-
hækkunum sem verða á samningstímanum.
Kjaraviðræður hafa staðið frá því í október um
gerð nýrra samninga og hafa níu hópar vísað
kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara og eru
fundir með deiluaðilum hafnir þar. Viðræðuhlé
var gert fyrir jól og er gert ráð fyrir að viðræð-
ur heijist að nýju eftir helgi.
„Ég er ekki bjartsýnn á að næstu dagar eða
tvær vikur skili mönnum áleiðis. Það ber ein-
faldlega það mikið á milli. Nú þegar fyrir ligg-
ur skattahækkun og sú staðreynd að vinnuveit-
endur og ráðamenn tala um 2'/2-3% kauphækk-
un, í álíka mikilli verðbólgu, þá er bara verið
að bjóða upp á kjaraskerðingu," segir Öm Frið-
riksson. Samiðn hefur einnig átt í viðræðum
við ríkið um samræmdan kjarasamning fyrir
þá starfsmenn aðildarfélaganna sem starfa hjá
ríkinu og segir Örn að þar hafí málum miðað
þokkalega vel áfram í mörgum efnisatriðum.
Líkfundur við Krýsuvíkurveg
Vísbendingar borist
HÓPUR íslendinga sem búsettir eru
í sjávarútvegsbænum Liideritz í
Namibíu hafði íslenska jóla- og ára-
mótasiði í hávegum yfir hátíðirnar.
Létu þeir meðal annars reykja fyrir
sig hamborgarhryggi og hangikjöt
af namibísku sauðfé að séríslensk-
um hætti og steiktu laufabrauð.
Á fímmta tug íslendinga eru um
þessar mundir búsettir í Luderitz.
Gunnar Jörgensen, skipstjóri hjá
Seaflower Whitefísh sjávarútvegs-
fyrirtækinu í Luderitz, segir að Is-
lendingarnir hafi fengið verslunar-
keðju til að reykja fyrir sig kjötið
og tókst það með ágætum. „Það
er ágætis kindakjöt hérna þó það
jafnist ekki á við íslenska kjötið.
Heimamenn þekktu ekki þessa að-
ferð en þeir eru farnir að læra þetta
af okkur og fínnst þetta mjög gott.
Svo komum við saman allir Islend-
ingarnir og vorum með áramóta-
brennu á gamlárskvöld og skutum
upp flugeldum. Það skapaðist mikil
og góð stemmning og var mjög
skemmtilegt. Heimamenn tóku þátt
í þessu og fannst þetta stórsniðugt.
Hér hafa menn ýmislegt fyrir stafni.
Islensku krakkarnir eru til dæmis
með kór og syngja við hvert tæki-
færi,“ segir Gunnar.
Slæm tíð
Slæmt tíðarfar og óvanalega
vindasamt hefur verið við nam-
ibísku ströndina að undanförnu og
því lítið að gera hjá Seaflower.
Töluverð óvissa er hjá fyrirtækinu
en gripið hefur verið til þess ráðs
að selja tvo af fjórum togurum
vegna niðurskurðar á kvóta og bíða
starfsmenn nú þess að nýr fram-
kvæmdastjóri verði ráðinn að fyrir-
tækinu og ákvarðanir teknar um
framhaldið.
RANNSÓKNARLÖG-
REGLA ríkisins sleppti
á mánudagskvöld úr
haldi manni sem var
handtekinn á sunnu-
dag og yfírheyrður
vegna rannsóknar á
voveiflegu andláti
Hlöðvers S. Aðal-
steinssonar er fannst
látinn við Krýsuvikur-
veg síðastliðinn sunnu-
dag.
Maðurinn sem var
yfirheyrður er á þrí-
tugsaldri, búsettur í
Hafnarfirði og höfðu
komið fram vísbend-
ingar um að hann
kynni að búa yfír vitneskju um ferð-
ir hins látna eftir klukkan íjögur
að morgni sunnudags. Aðrir hafa
ekki verið handteknir vegna máls-
ins.
Samkvæmt upplýsingum frá
RLR hafa þegar borist nokkrar
ábendingar um ferðir
bifreiðar hins látna,
Lada Sport UH 748, í
Hafnarfírði snemma á
sunnudagsmorgun.
Samverkandi
orsakir
Hörður Jóhannesson
yfírlögregluþjónn RLR
segir allnokkrar vís-
bendingar hafa borist í
tengslum við málið og
miði rannsókn sæmi-
lega. Of snemmt sé hins
vegar að skýra frekar
frá gangi hennar.
Dánarorsök Hlöð-
vers samkvæmt niður-
stöðum krufningar eru nokkrir
samverkandi þættir, svo sem mikill
blóðmissir vegna skotsárs eftir
haglabyssu á handlegg og lost-
ástand af hans sökum, auk þess
að staðfest hefur verið að hinn látni
var veill fyrir hjarta.
íslendinganýlendan í Liideritz
Reyktu kjöt og voru
með áramótabrennu
Hlöðver S.
Aðalsteinsson
Stóra fíkniefnamálið
Maður sett-
ur í gæslu-
varðhald
LÖGREGLAN handtók tvo karl-
menn á gamlársdag í tengslum við
stóra fíkniefnamálið sem kom upp
um miðjan síðasta mánuð. Gerð var
krafa um gæsluvarðhald yfír báðum
mönnunum. Annar var úrskurðaður
í varðhald til 17. janúar, en gæslu-
varðhaldsúrskurði yfír hinum
manninum var hafnað. Nú eru í
haldi vegna þessa máls hollenskt
par og tveir íslenskir karlmenn.
Að sögn Björns Halldórssonar,
yfírmanns fíkniefnadeildar lögregl-
unnar, hefur lögreglan, í tengslum
við þessa sömu rannsókn, lagt hald
á bifreið sem talið er að notuð hafi
verið til flutnings á fíkniefnum til
landsins í haust.
Rannsókn málsins er mjög um-
fangsmikil og hvergi nærri lokið
að sögn Bjöms.
Léstá
nýársdag
MAÐURINN, sem lést í Sandgerði
að morgni nýársdags, hét Siguijón
Júníusson.
Siguijón heitinn var 32 ára gam-
all, fæddur 23. september árið
1964. Hann var búsettur að
Brekkustíg 12 í Sandgerði.
Siguijón lætur eftir sig sambýlis-
konu, Báru Magnúsdóttur, og son
frá fyrra sambandi, Stefán Henning
Siguijónsson.