Morgunblaðið - 10.02.1995, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1995 23
AÐSENDAR GREIIMAR
Heiður þeim
sem heiður ber
NÚ nýlega var birtur ríkisreikn-
ingur fyrir árið 1993, ásamt athuga-
semdum þingkjörinna yfírskoðunar-
manna. í þeim athugasemdum kom
fram að innheimtuárangur var mjög
misjafn milli hinna einstöku emb-
ætta. Þar voru í hæsta flokki emb-
ætti sýslumannanna í Ólafsfírði,
Akureyri, Borgarnesi, Sauðárkróki
og Vestmannaeyjum svo einhver séu
nefnd. Nú er það svo að slíkrar pró-
sentutölur segja ekki alla söguna,
því engin tvö innheimtuembætti eru
Þess gætir meira að
segja, að skattayfírvöld
haldi áfram að áætla
gjöld á fyrirtæki, segir
Kristján Torfason,
sem illu heilli hafa verið
úrskurðuð gjaldþrota.
eins hvað varðar íbúafjölda, atvinnu-
líf og staðhætti svo einhvað sé nefnt.
í Morgunblaðinu þann 28. janúar
sL var rætt við núverandi sýslumann
í Ólafsfirði vegna góðs árangurs þess
embættis við innheimtu gjalda. Það
vakti athygli mína að ekki var hægt
að lesa út úr því viðtali annað enn
að árangurinn væri fyrst og fremst
að þakka röggsömum aðgerðum þess
sýslumanns við innheimtu og stjóm-
un.
Ríkisreikningur sá, sem til umijöll-
unar hefur verið að undanfómu, er
vegna ársins 1993, en frá 1. ágúst
1989 var Kjartan Þorkelsson bæjar-
fógeti í Ólafsfirði.og síðar sýslumað-
ur þar eftir 1. júlí 1992, þar til hann
var skipaður sýslumaður á Blönduósi
um mitt síðastliðið ár. Sá góði inn-
heimtuárangur er náðist árið 1993 á
Ólafsfirði er því fyrst og fremst hon-
um að þakka og því starfsfólki sem
vann með honum að þessum málum.
Það verður að viðurkennast að sumir
starfsbræður Kjartans dáðust að því
Frá fundi ferðaklúbbsins
Úrvals-fólks.
■ FERÐAKL ÚBB URINN Úrvals-
fólk, ferðaklúbbur Úrvals-Útsýnar
fyrir alla 60 ára og eldri, hélt sinn
fyrsta fund á árinu sunnudaginn 29.
janúar. Fundurinn var haldinn í
Súlnasal, Hótel Sögu, og mættu yfír
500 manns. Da'gskrá var fjölbreytt
og var Ferðaalmanak Úrvals-fólks
kynnt en sífellt fleiri ferðamöguleikar
bjóðast nú eldri borgurum. Eftir að
ferðir höfðu verið kynntar söng kór
eldri borgara, Söngvinir frá Kópa-
vogi, undir stjóm Sigurðar Braga-
sonar. Stjóm sl. árs var þökkuð góð
störf og tveir nýir fulltrúar bættust
í hópinn, annar frá Kópavogi og hinn
frá Keflavík. Eftir kaffíhlé vom
dregnir út ferðavinningar til Mall-
orca, Portúgals og Kanaríeyja. Síðan
sýndu eldri borgarar frá Dansskóla
Sigvalda dans og að endingu var
stiginn dans við dillandi harmoniku-
tónlist þartil fundi lauk um kl. 17.30.
Fundarstjóri var Haukur Helgason
en undirbúning og skipulagningu
annaðist Rebekka Kristjánsdóttir,
fulltrúi Úrvals-fólks hjá Úrvali-
Útsýn, en hún er fararstjóri Úrvals-
fólks á Mallorca í sumar.
einbeitta liði sem hann hafði við hlið
sér við innheimtustörfin og hjálpaði
honum að ná þessum feiknagóða
árangri í innheimtunni. Nú efa ég
ekki að núverandi sýslumaður á Ól-
afsfírði sé dugandi innheimtumaður,
enda alinn upp til margra ára af
Elíasi Elíassyni sýslumanni á Akur-
eyri sem er annálaður fyrir góðan
embættisrekstur og innheimtu.
Sem bæjarfógeti í Vestmannaeyj-
um fékkst ég við innheimtustörf í
tæp nítján ár og mér er það full ljóst
að umfagnsmikilar
breytingar á inn-
heimtuárangri nást
ekki á skömmum tíma.
Hafa ber í huga, eins
og ég veit að starfs-
menn fjármálaráðu-
neytis gera sér vel ljóst,
að mikið átak þarf til
að bæta innheimtuna
um hvert prósentustig
þegar innheimtuárang-
ur nálgast 90%.
Er yfirskoðunar-
menn ríkisreikningsins
fjölluðu um þessi mál-
efni í fréttum sjónvarps
kom fram að þeim óx
mjög í augum afar háar
fjárhæðir sem væru
óinnheimtar af álögðum gjöldum og
töldu það tákn um að innheimtumenn
stæðu sig ekki sem skyldi í störfum
sínum. Þama finnst mér
að ómaklega hafí verið
veist að innheimtu-
mönnum, sem leggja sig
fram við að sinna
skyldustörfum sínum
enda þótt eflaust megi
finna einstök dæmi þess
að ekki hafí málum ver-
ið fylgt fram af nægi-
legri festu. Ég hefði
vænst þess að starfs-
menn fjármálaráðu-
neytisins gerðu opinber-
lega grein fyrir því að
þessar óinnheimtu millj-
ónir stafa að mestu af
því að þar er um að
ræða álagningar á fyrir-
tæki og einstaklinga
sem illu heilli hafa verið úrskurðuð
gjaldþrota. Gætir þess meir að segja,
að skattayfirvöld haldi áfram að
áætla gjöld á fyrirtæki sem löngu
eru orðin gjaldþrota. Gera verður
kröfu til þess að grein sé gerð fyrir
þessum atriðum og hversu háar inn-
heimtanlegar kröfur séu í raun, svo
þjóðin fái ekki þær ranghugmyndir
að unnt sé að bjarga fjárhag ríkis-
sjóðs snarlega með því einu að inn-
heimtumenn ríkissjóðs bæti árangur
viðinnheimtu.
Ég vil óska hinum nýja sýslu-
manni þeirra Ólafsfírðinga þess, að
honum takist að viðhalda þeim góða
innheimtuárangri sem Kjartan Þor-
kelsson náði með góðri samvinnu við
starfsfólk sitt og með því að afla sér
virðingar fyrir góð vinnubrögð hjá
gjaldendunum.
Höfundur er dómstjórí við
Héraðsdóm Suðurlands og þar
áður bæjarfógeti í
Vestmannaeyjum.
Kristján
Tórfason.