Morgunblaðið - 06.10.1992, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1992
55
Gassprenging í íbúðarhúsi á Reyðarfirði
Ægilegur hvellur og
íbúðin var í rúst
- segir Vignir Lúðvíksson, einn íbúanna í húsinu
GASSPRENGING lagði neðri
hæðina í íbúðarhúsinu á Hjalla-
vegi 8 á Reyðarfirði í rúst að-
faranótt sunnudagsins. Vignir
Lúðvíksson, einn ibúanna á
Hjallavegi 8, segir að hann
hafí heyrt ægilegan hvell og
síðan séð íbúð sína gersamlega
í rúst. „Sprengingin var svo
mikil að brak og glerbrot úr
íbúðinni dreifðist yfir götuna
og fljúgandi hurðarhúnn braut
glugga I næsta húsi,“ segir
Vignir.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Reyðarfirði er nú
talið öruggt að sprengingin hafi
komið í kjölfar leka á gaskút sem
var í geymsluherbergi á neðri hæð
hússins. í sama herbergi er frysti-
kista og talið að neisti frá mótor
hennar hafi kveikt í gasinu.
Húsið á Hjallavegi 8 er tvær
hæðir og kjallari. Fimm manns
voru í húsinu er sprengingin varð,
allir sofandi utan Vignir sem var
við að festa svefn er hann heyrði
hvellinn. Engin slys urðu á fólkinu
og má telja það hina mestu mildi
miðað við aðkomuna á neðri hæð-
inni. Allar rúður voru brotnar og
allar hurðir kurlaðar utan tvær.
Hlaðnir milliveggir voru sprungn-
ir og úr lagi færðir og sprungur
Gaskúturinn sem olli spreng-
ingunni. Hann var sendur til
rannsóknar í Reykjavík.
í garð sem er hinum megin göt-
unnar og brak skemmdi tvo bfla
sem stóðu við húsið er glerbrot
skullu á þeim.
Stofan á neðri hæðinni eftir sprenginguna.
í steyptu gólfi sem er á milli
hæðanna.
„Það er allt ónýtt í íbúðinni og
tjón okkar því töluvert," segir
Vignir Lúðvíksson. „Fyrir utan
innanstokksmunina eru allir milli-
veggir í íbúðinni brotnir og allar
hurðir, raunar er aðeins hægt að
sjá á tveimur dyrakörmum að þar
hafi yfirleitt verið hurð.“
Við gassprenginguna kom upp
eldur í geymslunni en tveimur
íbúanna tókst að slökkva hann
með teppi. Sem fyrr segir dreifð-
ist brak úr íbúðinni alla leið yfir
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
Vignir Lúðvíksson og bróðir
hans Kristján í einu herbergj-
anna. Eins og sjá má er hlaðinn
milliveggur þar stórskemmdur.
*
Verðlaunum úthlutað úr Minningarsjóði Bjöms Jónssonar
Hugsa mest um að
gera góðar setningar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor (t.h.) afhendir Illuga Jökul-
syni verðlaunin.
— segirlllugi
Jökulsson sem
hlýtur verðlaun-
in að þessu sinni
ILLUGA Jökulssyni, blaða-
manni, voru veitt verðlaun úr
Minningarsjóði Björns Jónsson-
ar í gær. Móðurmálssjóðurinn
var stofnaður árið 1943 til minn-
ingar um Björn Jónsson, rit-
sljóra ísafoldar, og er tilgangur
hans að verðlauna starfandi
blaðamann fyrir góðan stíl og
vandað málfar. Um er að ræða
11. úthlutunina úr sjóðnum frá
upphafi og nema verðlaunin
50.000 kr.
Verðlaunin voru afhent við há-
tíðlega athöfn í Borgartúni 6. Eftir
að Olafur G. Einarsson, mennta-
málaráðherra, hafði boðið gesti
velkoma flutti Sveinn Skorri Hös-
kuldsson prófessor og fulltrúi í
stjóm sjóðsins tölu þar sem hann
minntist Péturs Ólafssonar, bama-
bams Björns Jónssonar og fyrrum
fulltrúa í stjóminni, og peninga-
gjafar bama Péturs og frú Þómnn-
ar Kjaran til sjóðsins. Sveinn vék
í orðum sínum að starfi blaða-
manna og sagði m.a.: „Eins og
blaðamönnum er skylt í starfi sínu
að leita sannleikans um aðra hluti
fram og veita lesendum sínum rétt-
ar upplýsingar, hvílir ekki síður á
þeim sú skylda að vanda búning
þess fróðleiks eða skemmtunar er
þeir veita. Áhrifamáttur nútíma
fjölmiðlunar - tímarita, blaða, út-
varps og sjónvarps - er slíkur í
málsköpun og máluppeldi alls al-
mennings að mér er til efs að sam-
anlagt skólakerfi þjóðarinnar hafi
hann meiri," sagði Sveinn Skorri.
Næstur flutti Illugi Jökulsson
nokkur þakkarorð og hvatti í lokin
ráherra og alla ráðamenn til að
fara afar varlega í öllum spamaða-
raðgerðum í mennntakerfinu.
„...því sé ekki þeim mun gætilegar
farið verður niðurstaðan ekki sú
að peningar sparast, heldur verður
fyrst og fremst spamaður í málvit-
und þjóðarinnar og hugsun ...,“
sagði Illugi.
Hann sagði í samtali við Morg-
unblaðið að það sem hann hugsaði
mest um við skriftir væri að gera
góðar setningar. „Ef setning er góð
felst í því allt annað, vit í innihald-
inu og hugsun í setningunni sjálfri.
Ég reyni líka að mismuna ekki
setningunum, hafa þær allar góð-
ar, sama um hvað þær eru. Þær
eru hvorki merkilegar eða ómerki-
legar,“ sagði lllugi en lét jafnframt
þau orð falla að enda þótt markmið-
ið væri að skrifa góðar setningar
hefði hann auðvitað skrifað hrauk-
ana af galtómum setningum. Hann
sagði að eina ráðið til að þjálfa sig
áfram væri að lesa góðan texta og
mikið af honum. „Þá fer maður að
fá á tilfinninguna hvaða setningar
era góðar og hveijar ekki,“ sagði
Illugi og benti á að ágætt væri að
lesa Laxness öðm hvom, hann
skrifaði aldrei vondar setningar.
Aður hafa eftirtaldir hlotið verð-
laun úr Minningarsjóði Björns
Jónssonar: Karl ísfeld, blaðamaður,
(1946), Loftur Guðmundsson,
blaðamaður, (1949), Helgi Sæ-
mundsson, ritstjóri, (1956), Bjami
Benediktsson, ritstjóri, (1957),
Matthías Johannessen, ritstjóri,
(1960), Indriði G. Þorsteinsson, rit-
stjóri, (1961), Skúli Skúlason,
blaðamaður,(1965), Magnús Kjart-
ansson, ritstjóri, (1967), Eiður
Guðnason, fréttamaður, (1974), og
Guðjón Friðriksson, blaðamaður
(1985).
Stjóm sjóðsins skipa nú: Atli
Magnússon blaðamaður, Höskuld-
ur Þráinsson prófessor, Kristján
Karlsson rithöfúndur, Pétur Bjöm
Pétursson hagfræðingur og Sveinn
Skorri Höskuldsson prófessor.
IMNNMN
FJÖLSKYLDA?
Heildarvinnlngsupphæðin:
117.487.287 kr.
< «. |
40.1
Röðin: X12-11X-11X-X112
13 réttir: 175raöirá
12 réttir: 4.072 raöirá
11 réttir: 42.140 raöirá
10 réttir: 219.141 raöir á
181.260-kr.
4.900 - kr.
500 - kr.
200 - kr.
Um þessa helgi fengu hvorki fleiri né færri en 5.481 röö
vinning hér á íslandi. Viö viljum vekja athygli á því aö
sölukerfi okkar lokar kl 13:00 á laugardaginn. 1X2- ef þú
spllar tll aö vinna
Víterkurog
>3 hagkvæmur
auglýsmgamiðill!
ft'j n - -TT* JSAR ~rr
- ..11. •»
Lx. Sté rhöfð s a 17, við Gull ími 67 48 44 J- Inbrú,