Morgunblaðið - 06.10.1992, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1992
Magnús Ver var ekki ánægður með tök sín á Húsafellshellunni,
fannst hann ekki sjá nógu vel fram fyrir sig. En þegar hann
ætlaði að laga tökin missti hann helluna og þar með rann sigur-
inn úr greipum hans.
Sterkasti maður heims
Morgunblaðið/Þorkell
Ted van den Parre fagnar gríðarlega þegar Ijóst var að hann
var sterkasti maður heims 1992.
Mistök kostuðu Magnús sigurinn
MAGNÚS Ver Magnússon varð í 2. sæti I keppninni um titilinn
sterkasti maður heims, sem lauk á Þingvöllum um helgina. Magn-
ús, sem sigraði í keppninni í fyrra, hafði þriggja og hálfs stigs
forskot fyrir síðasta daginn, en þegar upp var staðið varð hann
stigi á eftir Hollendingum Ted van den Parre.
Magnús varð í 7. sæti í fyrstu Fyrir síðustu greinina voru þeir
greininni á laugardaginn, sem jafnir Magnús og Parre. Þá áttu
fólst í því að halda öxi með útrétt-
um örmum, og missti þarmeð af
efsta sætinu. Hann náði því þó
aftur með sigri í næstu grein. Þá
dró hann 14 tonna Fokker frá
Flugleiðum á tæplega 40 sekúnd-
um.
þeir að bera Húsafellshelluna, sem
er 186 kg, eins langt og þeir gátu.
Magnús fór á undan og þegar
hann var hálfnaður í brautinni,
ætlaði hann að hagræða hellunni,
en missti hana og fór því ekki
lengra. Van den Parre þurfti því
aðeins að komast fram fyrir
Magnús og tókst það, þótt ekki
hafði munað miklu.
„Ég ætlaði að laga helluna svo
ég gæti séð hvert ég væri að fara,
en missti hana fram,“ sagði
Magnús. „Ég stóð í þeirri trú að
hann færi á undan, vegna þess
að ég hafði náð betri árangri. En
það var hlutkesti sem réði rásröð-
inni,“ sagði Magnús.
Ted van den Parre sagði að það
hefði engu breytt þótt hann hefði
verið á undan. „Magnús átti í
vandræðum með helluna og ég
hugsa að ég hefði komist lengra."
Van den Parre fékk um 660
þúsund krónur fyrir sigurinn.
Magnús Ver og Jaimee Reeves frá
Bretlandi, sem voru jafnir í 2.
sæti, skiptu hinsvegar með sér
750 þúsundum.
Breska sjónvarpsstöðin BBC
gerði þátt um mótið og verður
hann sýndur í jóladagskrá stöðv-
arinnar og einnig í Ríkissjónvarp-
inu.
Landhelgisgæslan
Þyrla sótti fót-
brotinn fjall-
göngumann
LÖGREGLAN í Skagafirði óskaði
aðstoðar Landhelgisgæslunnar á
laugardag vegna manns sem
hrapað hafði við Trippahymu
sem er í fjallgarðinum milli
Skagafjarðar og Eyjafjarðar. Við
fallið hafði maðurinn fótbrotnað.
Þyrlan, TF-SIF, var send á stað-
inn en aðstæður voru þannig að
ógerlegt var að flytja manninn á
börum af slysstað. Hifði þyrlan
manninn upp og flaug með hann að
sjúkrabíl sem staðsettur var nokkuð
frá staðnum. Það var manninum síð-
an ekið á sjúkrahúsið á Akureyri.
----» ♦ ♦
Þjódleikhúskjallariim
Gestir í bið-
röð útataðir
í málningu
GES'l'lK í biðröð fyrir utan Þjóð-
leikhúskjallarann aðfararnótt
sunnudagsins urðu fyrir barðinu
á þremur tvítugum mönnum sem
útötuðu þá í hvitri málningu. Sjálf-
ir vom hinir tvítugu með málning-
arslettur um sig alla en þeir vom
mjög ölvaðir og fjarlægði lögregl-
an þá af vettvangi. Gistu þeir
fangageymslur lögreglunnar um
nóttina.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar báru mennimir því við í
skýrslutöku daginn eftir að hafa ver-
ið á leið úr veislu í átt að Þjóðleikhú-
skjallaranum er opin málningardós
varð á vegi þeirra rétt við anddyri
Kjallarans. Einn þeirra álpaðist með
annan fótinn beint í dósina og festi
hann þar. Við að reyna að losa sig
sletti hann málningunni á sig og fé-
laga sína. Því næst reyndu þeir inn-
göngu á skemmtistaðinn. Rúss-
skinnsfrakki konu einnar í biðröðinni
skemmdist er málning klessist á
hann og föt fleiri gesta urðu fyrir
málningarslettum, málningarslettur
voru í allt að 2ja metra hæð á vestur-
gafli Þjóðleikhússins og eitthvað mun
hafa borist inn á staðinn á skóm
gesta sem í biðröðinni stóðu.
Landssöfnun Kvennaathvarfs
Ljóst að markmiðinu er náð
— segir Valgerður Jónsdóttir framkvæmdasljóri söfnunarinnar
AFRAKSTUR Landssöfnunar
Kvennaathvarfs vegna kaupa á
nýju húsnæði er nú þegar orðinn
11 mil\jónir og enn á eftir að
bætast við söfnunarfé utan af
landi. Valgerður Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri söfnunarinn-
ar, segir yóst að markmið Sam-
taka um Kvennaathvarf um að
safna 13.-14. miiyónum hafi
náðst. Hún segir að aðstandend-
ur söfnunarinnar séu mjög
ánægðir með afraksturinn og
þakklátir öllum þeim sem lagt
hafi sitt af mörkum.
Valgerður sagði að af þeim 11
milljónum sem komnar væru í hús
væri lítið komið utan af landi. Send
hefði verið 1 tala á hveija 34 íbúa
á 70 stöðum og hefði salan víðast-
hvar gengið mjög vel samkvæmt
upplýsingum samtakanna. Fulltrú-
ar í kvennfélögum ínnan Kvennfé-
lagasambands íslands sáu um
söfnunina útí á landi og vildi Val-
gerður þakka þeim sérstaklega
fyrir gott starf.
Hún sagði að aðstandendur
söfnunarinnar væru mjög ánægðir
yfír því hvemig til hefði tekist,
bæði með söfnunina og þá umfjöll-
un sem Kvennaathvarfið hefði
fengið í tengslum við hana. Dreift
var bæklingum, m.a. um áhrif of-
beldis á böm og yfirliti um starf-
semi athvarfsins, og fjallað um
starfsemi athvarfsins í fjölmiðlum.
Valgerður hrósaði umfjöllun fjöl-
miðla. Hún hefði verið málefnanleg
og haft áhrif á ýmsar ranghug-
myndir fólks um athvarfíð sem á
FÉLAGSFUNDUR í Félagi leik-
stjóra á íslandi haldinn 28. sept-
ember sl. mótrnælir harðlega
öllum áformum íslands um
bókaskatt.
_ I frétt frá leikstjórunum segir:
„íslensk tunga og menning er það
sem nærir Iíf þessarar þjóðar. Nú
þegar samskipti þjóða verða æ
nánari og menningarleg landa-
10 ára afmæli á þessu ári.
Aðspurð sagði Valgerður að
þegar væri búið að velja nýtt hús-
næði og myndi gamla húsnæðið
og íbúð, sem gamall maður ar-
fleiddi samtökin að, ganga upp í
kaupin. Þegar hafa samtökin feng-
ið loforð um vinnuframlög í hús-
inu, arkitekt hefur lofað að aðstoða
við innréttingu þess og smiður við
mæri eru að hverfa er afar brýnt
að standa vörð um listræna frum-
sköpun, fræðistörf og námsgagna-
gerð á íslensku. Með skattlagningu
bóka er vaxtarskilyrðum menning-
ar okkar stefnt í hættu. Fyrirhug-
aður bókaskattur mun leiða til
verðhækkunar á bókum og hafa í
för með sér samdrátt í bóksölu og
koma hvað þyngst niður á skóla-
fólki og heimilum þessa lands.
smíðar. Þess má ennfremur geta
að fjöldi sjálfboðaliða aðstoðaði við
söfnunina.
Valgerður sagði að ekki væri
hægt að segja annað en söfnuninni
hefði verið afar vel tekið af al-
menningi og forsvarsmenn hennar
væru mjög ánægðir með árangur-
inn.
Útgáfa metnaðarfullra bók-
mennta sem seljast á löngum tíma
mun dragast saman eða falla nið-
ur. Fyrirsjáanlegt er að útgáfa
t.a.m. leikrita, ljóða og sígildra
verka muni leggjast af.
Við skorum á alþingismenn og
ríkisstjóm að hverfa frá öllum
hugmyndum um að leggja virðis-
aukaskatt á bóka- og útgáfustarf-
semi.“
Félag' leikstjóra mótmælir
fyrirhuguðum bókaskatti