Morgunblaðið - 06.10.1992, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1992
53
Bókmenntir — hátíð,
Frá Frá Sigurði H. Þorsteinssyni:
Ég átti þess kost að heyra og lesa
margt í sambandi við nýafstaðna
bókmenntahátíð. Margt skemmtilegt
og snjallt, en margt samt sem ég
vil helst ekki gefa neitt heiti — og
svo sprakk bomban. Virðisauka-
skattur á menninguna eða hvað það
nú er kallað. Ég ætla ekki að endur-
taka hér allar þær nafngiftir sem
heyrst hafa og sést, en aðeins að tjá
mig um hvað hefír þyrlast um huga
minn af þessu tilefni.
Sú var tíðin að ég naut þess að
kynnast séra Halvard Rieber-Mohn.
Hann var einn af þessum fáu höf-
undum sem ekki var hægt annað
en hrífast af. Allt sem hann skrifaði
og sagði í útvarpi eða sjónvarpi höfð-
aði til mín og ég varð bókstaflega
alæta á verk hans. Hann átti sjálfur
í svo ríkum mæli þá vídd og skarp-
skyggni, orðheppni og hnyttni, sem
hann lýsir ef til vill manna best í
bók sinni „En studie i sivilmot“. Þar
er hann raunar að lýsa friðarsinna,
Carl von Ossietzky. Miklum höf-
undi, sem hafði samfélagsgagnrýn-
ina að leiðarljósi í ritun sinni. Hann
skrifaði í „Die Weltbuhne" í Þýska-
landi millistríðsáranna, en hann var
ritstjóri þess tímarits. Hann taldi
réttarkerfíð þýska vera einhveija
mestu hættu hins unga Weimar-lýð-
veldis. Hann kom upp um yfirmenn
hersins sem byggðu upp her og
„varnir", langt umfram það sem
hafði verið samið um í Versölum.
Hann réðst gegn því að flugherinn
væri byggður upp. Carl var friðar-
sinni, en neitaði ekki herþjónustu,
sem hann hafði gegnt á Vesturvíg-
stöðvunum, í verkfræðingadeildinni.
Það vildi þannig til að skrifstofumað-
ur við verslun föður míns hafði verið
í sömu deild, en fluttist til íslands
eftir hildarleikinn.
Carl von Ossietzky ákvað að hann
ætti erindi við hernaðaröflin, sem
reyndu að ná tökum á Weimarlýð-
veldinu og því fátæklega lýðræði
sem fékk að þróast þar. Hann var
róttækur, en það átti ekkert skylt
við skoðun kommúnista eða þjóð-
legra sósíalista, réttara nefndir nas-
istar. Maðurinn var sú einstæða
manntegund, hægri róttæklingur.
Þetta vakti athygli og það var sagt
að skrif hans væru föðurlandssvik.
En af hveiju datt mér þessi höfund-
ur í hug í umræðunni um bók-
menntahátíð og virðisaukaskatt af
prenti hér uppi á íslandi?
Þessi höfundur átti djörfung og
penna sem hann þorði að beita.
Hann var tekinn og dæmdur í f anga-
búðir, þar sem sprautað var í hann
berklum. Hann var einn af „Mýrar-
hermönnunum“ í Papenburg-Est-
erwegen og vann þar við steinburð
með opna berkla. Thomas Mann,
Albert Einstein og Karl Bart linntu
ekki látum fyrr en hann fékk friðar-
verðlaun Nóbels 1935. Þá upphófst
sýndarmennska sem endaði með því
að hann lést í sjúkrahúsi í Berlín í
maí 1939, 49 ára gamall.
En mál hans var tekið upp á ný.
Pen-klúbburinn bað um endurskoð-
un þess fyrir 60 árum í Þýskalandi,
en dómurinn var upp á eitt og hálft
Fæðingarheimili og
fæðingardeild
Frá Frá Hólmfríði Sigurðardóttur:
í Morgunblaðinu hinn 5. septem-
ber birtist frétt það sem fram kemur
að loka eigi Fæðingarheimili Reykja-
víkur síðustu mánuði ársins.
Sá ótti ijölda kvenna um að Fæð-
ingarheimilinu yrði um síðir lokað
reyndist því ekki ástæðulaus þrátt
fyrir fogur fyrirheit ráðamanna fyrr
á árinu. Framkoma þeirra 1. apríl
þegar fæðingarþjónusta var fyrir-
varalaust stöðvuð á Fæðingarheimil-
inu gaf reyndar smjörþefínn af því
sem koma skyldi.
Hvar eiga þessar 500 fæðingar,
sem verið hafa á Fæðingarheimilinu
á ári, að eiga sér stað? Á að fjölga
fæðingarstofum og breyta aðstöðu
á fæðingardeildinni f öllum niður-
skurðinum eða eiga þær að fara fram
í heimahúsum án þess að heilsu-
gæsluþjónustan sé undir það búin?
Er öryggi mæðra og barna tryggt
ef bæta þarf fleiri fæðingum á
starfsfólk fæðingardeildarinnar, þar
sem álag er þegar of mikið? Er
Drengja-
reiðhjól
hægt að leyfa sér að kasta á giæ
því sérstæða uppbyggingarstarfi og
þeirri reynslu sem starfsfólk Fæð-
ingarheimilisins hefur aflað sér? Nei!
Á síðasta ári voru lagðar 11 millj-
ónir króna f endurbætur á húsnæði
Fæðingarheimilisins. Það er ótrúlegt
á niðurskurðartímum að loka eigi
stofnun sem fengið hefur slíka and-
litslyftingu. Hvað er orðið um alla
hagsýnina, eru 11 milljónir ekki neitt
í augum ráðamanna?
Það hljóta flestir að gera sér grein
fyrir því að bæði Fæðingarheimiiið
og fæðingardeildin eiga rétt á sér.
Það hlýtur að vera hægt að finna
hagkvæma lausn án þess að leggja
Fæðingarheimilið niður. Er það ekki
hagur foreldra og starfsfólks beggja
staðanna að rekstur Fæðingarheim-
ilisins sé tryggður?
Meðganga og fæðing eru enginn
sjúkdómur. Fjöldi kvenna á lands-
byggðinni fæðir til dæmis börn sín
fjarri hátæknisjúkrahúsi. Tilheyra
konur á Reykjavíkursvæðinu virki-
lega það miklum áhættuhópi að þær
verði allar að fæða á hátæknisjúkra-
húsi?
HÓLMFRÍÐUR
SIGURÐARDÓTTIR,
Suðurvangi 17, Hafnarfírði.
Frá Svo til nýtt drengjareiðhjól er
í óskilum í Hlíðahverfi. Upplýsingar
eru gefnar í síma 16880.
LEIÐRÉTTING
—— - —
Hákon vantaði
í frétt Morgunblaðsins um ráð-
herraheimsókn menntamálaráð-
herra, Ólafs G. Einarssonar, á
Laugarvatn, datt niður nafn Há-
kons Torfasonar, deildarstjóra
byggingadeildar menntamálaráðu-
neyti í myndatexta.
Föðurnafn mis-
ritaðist
Föðurnafn brúðguma misritaðist
undir brúðkaupsmynd frá ísafirði í
blaðinu um helgina. Brúðhjónin
voru Guðfínna Siguijónsdóttir og
Máni Freysteinsson. Hlutaðeigend-
ur eru beðnir velvirðingar á þessu.
FJCHJDI
VINNINGSHAFA
UPPHÆÐAHVERN
VINNINGSHAFA
1. 5al5
3.436.240
2. 4a^«
92.686
169
7.568
3al5
6.088
490
Heildarvinningsupphaeð þessa viku:
11.876.080 kr.
eða hvað?
ár í fangabúðum. Án árangurs. Ann-
ar Pen-klúbbur, sá norski, bað um
upptöku málsins árið 1991 með þeim
árangri að núverandi dómarar skoð-
uðu málið að nýju. Þeir neituðu hins-
vegar að breyta nokkru. „Það liggja
ekki fyrir nein ný gögn eða atriði í
málinu.“ Þannig stendur dómurinn
óbreyttur um alla framtíð. Dóttir
hans tók þátt í að reyna að fá dómn-
um breytt á þeim forsendum að það
hafi ekki verið hann sem var sekur
um föðurlandssvik, heldur mennimir
sem hann skrifaði um og tóku hann
svo og dæmdu. Þetta reyndist ekki
vera nýtt atriði í málinu sem helg-
aði endurupptöku og nýjan dóm.
Dettur nokkrum. í hug, að komist
það í lög, jafnvel ekki nema reglu-
gerð, að ekki sé talað um fjárlög,
að taka skuli virðisaukaskatt af hug-
verkum íslenskra rithöfunda, þá
verði það aftur tekið.
SIGURÐUR H.
ÞORSTEINSSON
Klúkuskóla, Laugarhóli,
Bjamarfírði.
Það sem er svo skemmtilegt við Lundby hornséfann
er hvað hann er fallegur og þægilegur og hentar vel fyrir
barnmargar fjölskyldur því hann er klæddur sterku vel
vörðu leðri á slitflötum og svo er hann tU afgreiðslu strax
í hvorki meira né minna en 13 leðurlitum svo allir ættu að
fá þann lit sem hentar best hverjum og einum.
Góð greiðslukjör. Visa Éuró raðgreiðslur eða Munalánsgreiðslur.
Einnig gefum við vænan staðgreiðsluafslátt.
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199
Vinsælar ljósasamstæður
á fjallabíla og jeppa
Mikið birtusvið
Ótrúlegt langdrægi
0
HEKLA
TRAUST
FYRIRTÆKI
BÍLAVARAHLUTIR
BRAUTARH0LTI 33 SÍMI 695650 695500