Morgunblaðið - 06.10.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1992
37
Dagnr frímerkisins og
ný frímerki 9. okt. nk.
rrmriT>
r ihi
i*r‘r*r'r,>*w 'i
isissfegÉS
.
■rrrrrw *■> »rrrrrr»r w
otrusA »•** <
^ _,at.
■a.fc>.á.ádaAAáá>ááááa.áá.
_________Frímerki______________
Jón Aðalsteinn Jónsson
Nokkuð er umliðið, síðan póst-
stjómin gaf út síðustu frímerki sín
eða tæpir fjórir mánuðir. Nú verður
ekki annað sagt en hún bæti vel um
á Degi frímerkisins, sem verður
næstkomandi föstudag, 9. þ.m. Þann
dag koma sem sé út sex ný frí-
merki. Af þeim hafði hún áður boðað
útkomu sérstakra merkja til þess
með nokkrum hætti að minnast Dags
fnmerkisins. Eru það frímerki, sem
sýna með myndum bifreiðir af þeim
gerðum, sem notaðar voru til póst-
flutninga frá um 1920 og fram yfir
miðja öldina. Þessi frímerki eru að
sjálfsögðu í beinu framhaldi af þeim
frímerkjum, sem komu út fyrir réttu
ári á þessum sama degi, en þá báru
þau myndir af skipum, sem flutt
höfðu póst með ströndum fram og
eins til útlanda. Þau frímerki voru
hin fallegustu, enda eftirsótt af
söfnurum, og svo segir mér hugur
um, að verði einnig með þessi frí-
merki.
í stuttu máli er greint frá því í
tilkynningu póststjómarinnar,
hvemig póstflutningum var háttað á
landi hér á fyrri tíð, en þar kom að
sjálfsögðu þarfasti þjónninn, sem svo
var oft nefndur, hesturinn, helzt við
sögu. Þegar vegabætur hófust að
marki í lok síðustu aldar, komu hest-
vagnar til sögunnar. Um svipað leyti
voru erfiðustu farartálmar Suður-
lands brúaðir, Ölfusá og Þjórsá. Á
þessum árum og fram yfir 1920 komu
hér einkum við sögu við þessa flutn-
ing þeir feðgar, Hannes Hansson
póstur og Hans póstur. Er sá þáttur
þeirra í samgöngum og póstflutning-
um Suðurlands enn mörgum í minni.
Hans póstur • notaði „Gamla Ford
til póstflutninga 1920-26. Snjóbflar
komu til sögunnar 1929 og voru notað-
ir á erfiðustu fjallvegum yfir vetrartím-
ann. Sérstakur póstbfll var tekinn í
notkun árið 1933 og einkum hafður
til póst- og farþegaflutninga milli
Reykjavíkur og Akureyrar. Loks urðu
sérleyfisbifreiðir algengar eftir 1940.
Myndir af þessum gerðum prýða hin
nýju frímerki.
Hönnuður merkjanna er sá hinn
sami og teiknaði skipamerkin í fyrra,
Þröstur Magnússon. Þarf þá ekki að
spyija frekar um handbragðið.
Prentsmiðja og prentunaraðferð er
hin sama og áður. Stærðin er einnig
hin sama. Eins koma frímerkin út í
„smáörk“ eða átta samhangandi.
Þannig má fá fram ýmsar samsetn-
ingar þeirra, ef menn vilja. í fyrra
var gefíð út sérstakt „hefti með
skipamerkjunum" án þess að getið
væri um það fyrirfram. Olli það að
vonum verulegri óánægju meðal
safnara. Enda þótt slíkt hefti sé ekki
heldur boðað að þessu sinni, hef ég
vissu fyrir því, að sú muni samt verða
raunin. Að sjálfsögðu hefði þetta átt
að koma fram í tilkynningunni.
Verðgildi hvers merkis er óbreytt
til almenns burðargjalds, 30 krónur,
innanlands ogtil Norðurlanda. Endur-
speglar þetta þann stöðugleika, sem
hefur verið í Qármálum okkar um
alllangt skeið.
Tvö önnur frímerki fljóta með sama
dag, alveg óvænt, því að ég minnist
þess ekki, að þau hafi áður verið
boðuð. Hér er um tvö frímerki, sem
á er mynd af tveimur brúm, sem
voru miklar samgöngubætur á sinni
tíð. Mun þessi útgáfa vera upphaf
að fleiri frímerkjum með þessu mynd-
efni. Á lægra verðgildinu, 5 kr., er
mynd af Fnjóskárbrú frá 1908, en
hún var mikil samgöngubót fyrir
Norðlendinga á leiðinni austur frá
Akureyri. Þetta var steinbogabrú og
hann talinn hinn lengsti á Norður-
löndum á þeim tíma. - Hitt frímerkið
er 250 kr. Á því er mynd af Ölfusár-
brú, sem smíðuð var 1890-91. Við
þá sögu kom Tryggvi gamli Gunnars-
son mjög, svo sem alkunna er. Brúin
var geysilegt mannvirki á sinni tíð
og að sjálfsögðu mikil samgöngubót.
Sagt var, að brúin ætti að geta borið
1000 meðalmenn í einu eða jám-
brautarlest, en á þeim árum kom ein-
mitt upp sú hugmynd að leggja jám-
braut frá Reykjavík um Suðurland.
Þessi frímerki hefur Helgi Hann-
esson hannað fyrir póststjómina.
Eftir myndum að dæma virðist
myndefnið koma vel til skila. Þessi
frímerki em offset-prentuð í Hol-
landi.
Að venju verða sérstimplar not-
aðir til fyrstadagsstimplunar. Því
miður mun ekki vera von á sérstökum
stimpli, sem minnir á Dag frímerkis-
ins. Munu fleiri en ég sakna hans.
Vel má vera, að póstmönnum þyki
alveg nóg að nota tvo stimpla þenn-
an dag, en vitaskuld em þeir engan
veginn tengdir þessum sérstaka degi,
sem á einmitt að minna almenning
á frímerkin og gildi þeirra, en þó
einkum á frímerkjasöfnun.
Ekki mun því miður verða um
mikil umsvif meðal safnara þennan
dag, svo sem gerist hins vegar á
öðmm Norðurlöndum. í fyrra var
póststjómin með kynningu á nýjum
frímerkjum og sölu í Kringlunni, og
sá Guðni F. Gunnarsson um það
framtak. Tókst það mjög vel. Verður
það endurtekið að þessu sinni þennan
dag og svo haldið áfram fram á helg-
ina. Fer vel á því, að póststjómin
hafi hér fmmkvæðið, en auðvitað
væri æskilegt, að safnarar létu hér
einnig til sín taka.
NORDIA 92
Dagana 8.-11. þ.m. verður haldin
samnorræn frímerlqasýning, NOR-
DLA 92, í Kristiansand í NoregL-
Nokkrir íslenzkir safnarar taka þátt ^
í þessari sýningu, og eins eigum við
menn í dómnefnd hennar. Því miður
gefst ekki tóm til þess hér að segja
nánar frá sýningunni, en ég vænti
þess, að úr verði bætt síðar. Eins
verður þá greint frá nokkmm öðmm
sýningum, sem safnarar héðan hafa
tekið þátt í á undanfömum mánuð-
um.
skólar/námskeið
■iÆf
handavinna
■ Saumur og myndverk.
Lærið að mála á silki, sauma eigin föt,
gera myndverk úr efnisbútum.
Upplýsingar i síma 611614.
Björg Isaksdóttir.
■ Ódýr saumanámskeiö
Aðeins 5 nemendur í hóp. Faglærður
kennari. Upplýsingar í síma 17356.
myndmennt
■ Handmenntaskóli íslands
Bréfaskólanámskeið:
Teikning, litameðferð, listmálun með
myndbandi, bamanámskeiö, skraut-
skrift, hýbýlafræði, innanhússarkitektúr,
garðhúsagerö og hæfdeikapróf.
Fáóu sendar upplýsingar um skól-
ann með því að hringja í síma
627644 allan sólarhringinn.
■ Málun - teiknun
Myndlistamámskeið fyrir byrjendur og
lengra komna. Undirstöðuatriði kennd í
teiknun og meðferð vatns- og olíulita.
Myndbygging.
Upplýsingar og innritun eftir kl. 13.00
alla daga
Kennari: Rúna Gísladóttir, listmálari
súni 611525.
starfsmenntun
■ íslenskunámskeið
1. Stafsetningarnámsk., 20 stundir.
Hentar öllum aldurshópum.
2. íslenskunámsk. f. útlendinga, 20 stund-
ir. Verð 5.500 kr. Reyndir kennarar.
Innritun og uppl. í síma 675564 þri.
kl. 20-21, mið. og fim. kl. 19-20.
tómstundir
■ Nokkur sæti laus í eftirtalin nám-
skeið sem hefjast á næstunni:
Sænska, norska, bókfærsla, teikning,
framhaldshópur, akrýlmálun, undirbún-
ingur fyrir myndlistarnám.
Tómstundaskólinn,
s. 677222.
tónlist
■- Píanókennsla
Tek að mér nemendur í píanóleik.
Anna M. Magnúsdóttir,
Reynimel 74, sfmi 15436.
■ Kontrabassi - rafmagnsbassi
Get tekið að mér nemendur á kontra-
bassa og rafmagnsbassa, tón- og hljóm-
fræði, svo og lestur bókstafahljóma fyrir
þá, sem þess óska.
Upplýsingar í sfmum 76966 og
681108, Einar Sigurðsson.
tungumál
■ Esperanto. Námskeið:
- Fyrir byrjendur.
- Framhaldsnámskeið.
- Les- og samtalshópar.
Upplýsingar í súma 27288 kl. 16-18,
á laugardögum kl. 10-12.
Á kvöldin í síma 42810.
■ Enskuskólinn
Við hjá Enskuskólanum bjóðum upp á
markvissa kennslu í vinalegu umhverfi.
Fjölbreytt námskeið í boði fyrir böm,
fullorðna og fyrirtæki:
Almenn enska með áherslu á talmál þar
sem kennt er á 10 kennslustigum, rituð
enska, viðskiptaenska, umræðu- og krá-
arhópar, bókmenntir, tofel, Gmat- og
gre-námskeið og einkakennsla.
Hámark 10 nemendur í bekk.
Hringið og fáið frekari upplýsingar.
Enskuskólinn hf.,
Túngötu 5,
sími 25330.
Enska málstofan
■ Enskukennsla:
Við bjóðum tíma í ensku í samræðuformi
frá og meó 5. október.
Einkatímar:
Enska. Vióskiptaenska. Stærðfræöi
(á öllum skólastigum).
Allir kennarar em sérmenntaðir í ensku-
kennslu.
Upplýsingar og skráning í síma
620699 milli kl. 10 og 16 virka daga.
■ Fjögurra ára afmælistilboð:
25% afsláttur í október!
FULLORÐINSNÁMSKEIÐIN „byrjun
frá byrjun“ að hefjast: Gmnnur, fram-
hald, talhópar. Enska, íslensk stafsetn-
ing, ísl. f. útlendinga, sænska, danska,
spænska, franska, ítalska, þýska, bók-
hald, reikningur o.fl.
Fullorðinsfræðslan,
Laugavegi 163, sfmi 1-11-70.
ýmisiegt
NÁMSAÐSTQÐ
■ Námsaðstoðviö grunn-, framhalds-
og háskólanema. Flestar námsgreinar.
Einkatímar-hópar.
Reyndir réttindakennarar.
Innritun í síma 79233 kl. 14.30-18.30.
Netnetiáaþjónustan sf.
■ Að rekja ættir sínar
er auðvelt með góðri tilsögn.
Ný námskeið með frábærri aðstöðu til
ættarrannsókna.
Ættfræðiþjónustan,
s. 27100 og 22275.
■ Hraðlestur - námstækni
Nemendum Hraðlestrarskólans ber sam-
an um að skólanám verður miklu auð-
veldara og skemmtilegra eftir þátttöku
á hraðlestramámskeiði. Næsta námskeið
hefst 21. okt. Skráning í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKÓLINN...
námskeið með ábyrgð á árangri!
■ Tungumál - raungreinar
Kennsla fyrir þig.
Skóli sf.,
Hallveigarstíg 8,
sfmi 18520.
■ Ný ættfræðinámskeið,
sem standa ýmist í 4 vikur eða um 2
helgar, hefjast bráðlega (16 kennslust.,
stgrverð kr. 11.400).
Frábær aðstaóa í nýjum húsakynnum.
Ættfræðiþjónustan,
Brautarholti 4, s. 27100,22275.
MATREIÐSLUSKÓLINN
Bkkar
Bæjarhrauni 16,
220 Hafnarfjörður, sími 91-653850.
■ Matreiðsluskólinn okkar
Námskeið haustið 1992
Haustnámskeiðin að hefjast. Skráning á
námskeiðin hefst þriðjudaginn 6. október
á skrifstofu skólans í Bæjarhrauni 16,
Hafnarfirði, sími 91-653850.
Gerbakstur 7.-8. október kl. 19.30-
22.30. Verð: 3.900,-
Sláturgerð 10. október kl. 13.00-
17.00. Verð: 4.500,-
Smurt brauð 14. október kl. 19.30-
22.30. Verð: 3.400,-
Makróbíótískt fæði 15. október kl.
18.00-21.00. Verð: 2.900,-
Almennt grunnnámskeið 21.-22.
október kl. 19.30-22.30. Verð: 4.200,-
Austurlensk matargerð I og II
26.-27. október kl. 19.30-22.30. Verð:
4.500,-
Villibráð 4.-5. nóvember kl. 19.30-
22.30. Verð: 5.200,-
Kökuskreytingar 9. og 10. nóvember
kl. 19.30-22.30 (eitt kvöld hvort). Verð:
2.900,-
Fiskréttir 16.-17. nóvember kl. 19.30-
22.30. Verð: 4.500,-
Smákökubakstur 25.-26. nóvember
og 2.-3. desember kl. 19.30-22.30.
Verð: 3.900,-
Almennt grunnnámskeið II 28. nóv-
ember kl. 12.30-17.30. Verð: 4.200,-
Jólakonfekt 27. og 28. nóvember.
14., 15., 16., 17. og 18. desember (eitt
kvöld hvert námskeið). Verð: 2.900,-
Veislumatur 9.-10. desember kl.
19.30-22.30. Verð: 5.200,-
tölvur
■ Tölvuskóli f fararbroddi
Námskeið sem henta öllum PC notend-
um. Einnig námskeið fyrir Machintosh
notendur. Gott verð. Góð kennsluað-
staða. Reyndir leiðbeinendur.
Fáðu senda námsskrá.
■ EXCEL tölvureiknir
Yfirgripsmikið námskeið fyrir notendur
PC og Macintosh 26.-30. okt. Jón B.
Georgsson leiðbeinir.
■ Ritvinnslunámskeið
Word f. Windows (PC og MAC),
12.-16. okt. kl. 13-16.
AmiPro, 19.-23. okt. kl. 13-16.
Word Perfect f. Windows (ísL útg.),
26.-30. okt. kl. 9-12.
Ragna S. Guðjohnsen leiðbeinir.
■ CorelDraw myndvinnsla
Námskeið 12.-16. okt. kl. 9-12 fyrir
þá sem þurfa að nota grafík í auglýs-
ingu, dreifi- og kynningarritum, eyðu-
blöðum o.fl. Rafn Jónsson leiðbeinir.
■ Samvinnsla forrita undir
Windows - nýtt námskeið
Námskeið 19.-22. okt. kl. 13-16 fyrir
þá sem vilja kynna sér ýmsa ófluga tengi-
möguleika Windows umhverfisins s.s.
OLE og DDE. Baldur Johnsen leiðbeinir.
■ Novelt netstjórnun
26.-30. okt. kl. 13—16. Ámi Gunnars-
son leiðbeinir.
■ Quattro Pro töflureiknir
Námskeið 19.-23. okt. kl. 9-12.
■ Works fyrir Windows
Námskeið 12.-16. okt. kl. 16-19.
■ PageMaker umbrotsnámskeið
26.-30. okt. kl. 9-12. Kristín^Hreins-
dóttir leiöbeinir.
■ Excel framhaldsnámskeið
(PC og MAC) 20.-22. okt. og 10.-12.
nóv. kl. 9-12.
Tölvuskóli Stjórnunarfélags
ísiands og Nýherja.
Símar 621066 og 697768.
stjómun
■ Breyttu áhyggjum
í uppbyggjandi orku!
ITC-námskeiðið markviss málflutningur.
Sfmar: Kristfn 34159, Guðrún
46751 og Vilhjálmur 78996.