Morgunblaðið - 06.10.1992, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1992
Heimildarmynd um
Amarfjörð komin út
Bfldudal.
VALDEMAR Ottósson kvikmyndaáhugamaður hefur gefið út heim-
ildarmynd um Arnarfjörð. Myndin fjallar um landnám, sögu og versl-
unarsögu Bíldudals. Einnig eru sagðar draugasögur, þjóðsögur og
sannar sögur úr hverjum dal i Amarfirði frá Kóp út að Sléttanesi.
Handritið er eftir Hafliða Magn-
ússon, rithöfund á Bíldudal. Það er
rúmt ár frá því Valdemar hóf tökur
á myndinni og lauk síðustu tökunni
um miðjan september. „Amarfjörð-
ur“ er 110 mín. löng heimildarmynd.
Valdemar ber allan kostnað af út-
gáfu myndbandsins. Um 40 manns
tóku þátt í að gera myndina í sjálf-
boðavinnu. Tónlistin er eftir Ástvald
Jónsson og þulur er Pétur Bjarnason
fræðslustjóri Vestfjarða. „Viðtök-
umar hafa verið hreint frábærar.
Ég lét fjöifalda 50 eintök og eru þau
öll seld. Nú er verið að fjölfalda 40
eintök til viðbótar, þannig að ég get
ekki annað en verið bjartsýnn,“ sagði
Valdemar í samtali við Morgunblað-
ið.
Þess má geta að Hafliði Magnús-
son gaf út bókina „Arnarfjörður" á
þessu ári og seldist hún upp á stutt-
um tíma. Myndin er gerð út frá
handriti bókarinnar. Myndin er tekin
á Super VHS 707 tökuvél sem
Valdemar á sjálfur. Hann hefur unn-
ið fj'ölmarga samtalsþætti undanfar-
in ár og á um 50 myndbönd af
ýmsum fróðleik. Valdemar hefur
verið fréttaritari ríkissjónvarpsins
frá því að sjónvarp kom til Bíldudals.
R. Schmidt.
Morgunblaðið/Kóbert Schmidt
Valdemar Ottósson gefur mynd-
bandið út sjálfur en um 40 manns
tóku þátt í að gera myndina.
Ný vísnaplata komin út
Á EINU MÁLI heitir ný vísna-
plata með djass- og blús-ívafi sem
útgáfufélagið Dimma hefur sent
frá sér. Flytjendur eru Aðal-
steinn Ásberg Sigurðsson og
Anna Pálína Amadóttir.
Aðalsteinn Ásberg er höfundur
allra textanna utan eins sem er
Maístjaman eftir Halldór Laxness
sem kemur nú út í fyrsta skipti
með upprunalegu lagi. Á einu máli
inniheldur auk framsamdra laga vel
þekkt vísnalög.
Allar útsetningar vom í höndum
Þóris Baldurssonar en auk hans
önnuðust hljóðfæraleik þeir Tómas
R. Einarsson, Pétur Grétarsson,
Eyjólfur Kristjánsson, Gísli Helga-
son, Reynir Jónasson, Szymon
Kuran, Sigurður Halldórsson og
Eiríkur Örn Pálsson.
Aðalsteinn Ásberg og Anna Pál-
ína hafa um árabil flutt vísnatónlist
bæði hér á landi og erlendis. Á einu
AOAlfTIINN ACIiltO
.li(un>i«m ANNA,AAl.lNA
máli kemur út á geisladiski og
snældu og það er Japis sem annast
dreifingu.
WtÆLW>AUGL YSINGAR
Vélstjóra
og beitingamann
vantar á 180 tonna línubát frá Patreksfirði.
Upplýsingar í símum 94-1546, 985-22323
og á kvöldin í síma 94-1139.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
ÓSKAST KEYPT
Lyftari óskast
ca 2,5-3ja tonna, í skiptum fyrirToyota Lite
Ace árg. 1987, diesel, vel útlítandi.
Upplýsingar í símum 680030 og 31630.
Atvinnuhúsnæði óskast
Atvinnuhúsnæði óskast til leigu. Þarf að vera
á jarðhæð með innkeyrsludyrum.
Æskileg stærð 80-100 fm.
Upplýsingar í símum 650365 og 76365.
72 fm - Eiðistorg
Til leigu er 72 fm skemmtileg skrifstofueining
á 2. hæð í hinum vaxandi þjónustukjarna við
Eiðistorg. Vel búin sameign með lyftu og
góðum bílastæðum.
Upplýsingar í síma 688067 milli kl. 9 og 13
virka daga.
Sumarbústaðaeigendur
ísland Tours er ferðaskrifstofa í eigu íslend-
inga, sem rekur skrifstofur í Þýsklalandi,
Hollandi, Sviss og Austurríki.
Hafið þið áhuga á að leigja út sumarbústað-
inn ykkar í t.d. 3-6 vikur samliggjandi eða
stakar vikur næsta sumar, fyrir erlenda ferða-
menn?
Nánari upplýsingar gefur Guðmundur í síma
658866 7. og 8. októberfrá kl. 10.00-13.00.
Enskunám
Er ekki rétt að bæta við enskukunnáttuna?
Skólinn, English 2000, School of English, í
Bournemouth, býður þig velkominn til náms.
Upplýsingar gefur Páll G. Björnsson,
sími 98-75888, heimasími 98-75889.
Ferðaskrifstofa
Meðeigendur óskast að lítilli ferðaskrifstofu.
Águgasamir sendi fyrirspurn til auglýsinga-
deildar Morgunblaðsins fyrir 9. október
merkta: „Ferð - 9871“.
Byggingarlóð -
2.200 fm hús
Til sölu er byggingarlóð undir skrifstofuhús
við eina af umferðarmestu götum landsins.
Er gert ráð fyrir byggingu 2.200 fer.metra
skrifstofuhúss samkvæmt skipulagi. Á þess-
ari lóð er mjög grunnt niður á fast land.
Allar nánari upplýsingar eru veittar milli
kl. 9 og 16 á daginn í síma 812300.
TILKYNNINGAR
Styrkirtil bifreiðakaupa
Tryggingastofnun ríkisins veitir viðtöku um-
sóknum vegna styrkja, sem veittir eru hreyfi-
hömluðum til bifreiðakaupa.
Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal
vera ótvíræð.
Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1993
fást hjá afgreiðsludeild og uppiýsingadeild
Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi 114,
og hjá umboðsmönnum hennar um land allt.
Umsóknarfrestur er til 15. október.
Tryggingastofnun ríkisins.
Skrifstofuhúsnæði
700-800 fm
Traust fyrirtæki í Reykjavík leitar að hentugu
framtíðarhúsnæði fyrir starfsemi sína. Hús-
næðið getur hvort sem er verið til leigu eða
sölu. Húsnæðið þyrfti helst að vera með
a.m.k. 70-100 fm á jarðhæð, sem mætti
vera meira, og 600-700 fm fyrir skrifstofu-
starfsemi sína.
Þeir, sem hafa húsnæði, er hentað gæti fyr-
ir þetta, eru vinsamlega beðnir um að leggja
inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir föstudaginn
9. október nk. svar sem tilgreini stærðir,
staðsetningu, leigu/söluverð, hvort sé inn-
réttað eða óinnréttað og helst Ijósrit af
grunnflatarteikningu. Svar sé merkt: „Hag-
kvæmt húsnæði - 92“.
Aðalfundur
Fiskifélagsdeild Reykjavíkur, Hafnarfjarðar
og nágrennis heldur aðalfund fimmtudaginn
8. október 1992 kl. 20.30 í húsi Fiskifélags-
ins, Höfn við Ingólfsstræti.
Dagskrá fundarins:
1. Fundarsetning, kosning fundarstjóra og
ritara.
2. Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir
fram.
3. Tillögur að nýjum samþykktum fyrir
deildina.
4. Kosning formanns.
5. Kosnir 4 meðstjórnendur og 4 til vara.
6. Kosnir 2 endurskoðendur og 2 til vara.
7. Kosnir 4 Fiskiþingsfulltrúar og 4 til vara.
8. Ávarp Þorsteins Gíslasonar, fiskimála-
stjóra.
9. Þórður Ásgeirsson, fiskistofustjóri, ræð-
ir um starfsemi Fiskistofu.
10. Málefni til 51. Fiskiþings.
11. Önnur mál.
Stjórnin.
O FJÖLNIR 59921Q0619 I Fjhst
atkv. Frl.
□ EDDA 5992100619 III 2
□ HELGAFELL 5992100619 VI
I.O.O.F. Rb. 4 = 1421068 - 8<A> II
□ Sindri 599206107 - Fj.h.f.
Stokkseyringar!
Aðalfundur
Stokkseyringafélagsins í Reykja-
vík og nágr. verður haldinn I
Fóstbraeðraheimilinu, Lang-
holtsvegi 111, sunnudaginn 11.
október og hefst kl. 15.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffihlaðborð.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Miðvikudagur 7. október
Myndakvöld
Litskyggnu- og mynd-
bandssýning
Fyrsta myndakvöld vetrarins
verður á miövikudagskvöldið 7.
okt. I Sóknarsalnum, Skipholti
50, og hefst það stundvíslega
kl. 20.30. Myndefni: Gönguferð
Ferðafélagsins frá Snæfelli í
Lónsöræfi síðastliðið sumar og
Lónsöræfin þ.á m. eru sýndar
myndir af Lónsöræfaskálanum
nýja, Múlaskála og nágrenni. Við
minnum á greinar sem birtust I
Morgunblaðinu síðastliðinn
föstudag um skálann og göngu-
ferðina. Fyrir hlé verður lit-
skyggnusýning, en eftir hlé verð-
ur sýnt mjög skemmtilegt mynd-
band Hjálmtýs J. Heiödal úr
gönguferðinni. Athugið að
myndbandið verður sýnt á stóru
sýningartjaldi. Góðar kaffiveit-
ingar í hléi. Fjölmennið, jafnt
félagar sem aðrir og kynnist
svæði sem lætur engann ósnort-
inn.
Ferðafélag íslands 65 ára 27. nóv.
í auglýsingu frá Ferðafélaginu
um helgina þar sem minnt var á
65 ára afmæli félagsins urðu þau
mistök að þar sem standa átti
að afmæliö yrði I nóvember stóð
1. nóvember. Ferðafélagiö er
reyndar 65 ára þann 27. nóvem-
ber. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Ferðafélag Islands.
ADKFUK ,
Fyrsta samvera vetrarins verður
í kvöld í Viðeyjarkirkju. Mætið
kl. 19.30 við Sundahöfn.
Verð kr. 1.000,-.
Sumarið kvatt og vetrarstarfi
heilsað. Mætum allar og allir eru
velkomnir.
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • sinii 614330
Um næstu helgi
9. -11. okt. Hrunárkrókur - Lax-
árgljúfur. Gengið niður með
Stóru-Laxá I Hreppum.
10. -11. okt. Fimmvörðuháls.
Gengið upp með Skóga, gist í
Fimmvöröuskála. Á sunnudag
er gengið yfir Hálsinn og niður
I Bása á Goðalandi. Nánari uppl.
og farmiöasala á skrifst.
Útivist.