Morgunblaðið - 06.10.1992, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1992
27
Reuter.
Lögreglumenn bera litla stúlku inn í félagsmiðstöð í Amsterdam þar sem fólki sem missti heimili sín
var komið í skjól.
Manntjón á jörðu
niðri aldrei meira
Amsterdam. Reuter.
ALLT bendir til að flugslysið í Hollandi á sunnudagskvöld sé það flug-
slys þar sem mest Ijón hefur orðið á fólki á jörðu niðri, þ.e. fólki sem
ekki var í flugvél þeirri sem fórst. Fer hér yfirlit yfir önnur flugslys
þar sem hinir látnu voru ekki farþegar í vélinni.
• 20. júlí 1992 fórust a.m.k. 40, þar
af u.þ.b. 30 á jörðu niðri, er flutn-
ingavél lenti í íbúðarhverfí í Tbilisi,
höfuðborg Georgíu.
• 16. apríl 1992 fórust 55 þegar
flugvél kenýska flughersins lenti á
íbúðarblokkum og sprakk í Kaloleni-
hverfinu í Nairobi. Af þeim sem lét-
ust voru sex á jörðu niðri.
• 21. desember 1988 var Boeing
747 breiðþota Pan Am sprengd í loft
upp yfir bænum Lockerbie á Skot-
landi. Allir um borð, 259 að tölu
fórust, og 11 á jörðu niðri.
• 31. ágúst 1986 rákust saman
DC-9 þota AeroMexico og Piper Arc-
her flugvél nærri flugvellinum í Los
Angeles. 85 létust þ. á m. 18 á jörðu
niðri.
• 18. september 1984 fórst DC-8
þota Aeroservicios Equadorianos
skömmu eftir flugtak á Quito-flug-
velli. Áhöfnin, fjórir menn, fórst og
49 manns á jörðu niðri.
• 9. júlí 1982 brotlenti Boeing 727
þota Pan American á húsaröð
skömmu eftir flugtak frá flugvelli
New Orleans. 153 fórust, þar af
nokkrir er staddir voru í húsunum.
• 25. september 1978 varð árekstur
Boeing 727 þotu Pacific Southeast
Airlines og einkaflugvélar af Cessna-
gerð yfir San Diego-borg í Bandaríkj-
unum. Brak féll niður í íbúðarhverfi
og létust fjórtán sem fyrir þvi urðu.
• 13. október 1976 vai-ð bilun í
hreyfli Boeing 707 flutningavélar
sem flaug fyrir fyrirtæki í Bólivíu.
Flugmaður brá á það ráð að lenda á
aðalgötu borgarinnar Santa Cruz.
Þrír úr áhöfn fórust og rúmlega
hundrað manns á jörðu niðri.
„Flugvélin hrapar“
Fimmtán mínútur liðu frá flugtaki á Schiphol til brotlendingar
Amsterdam. Reuter.
ISAAC Fuchs, flugstjóri ísraelsku þotunnar, barðist í níu mínútur
við að ná heilu og höldnu inn á Schiphol-flugvöllinn áður en hún
brotlenti í íbúðarhverfi. „Hann reyndi að hafa stjórn á henni þar
til yfir lauk. Þá kallaði hann í talstöðina: „Flugvélin hrapar“ sagði
Hanja Maij-Weggen samgönguráðherra við blaðamenn í Amsterdam
í gær. „Þetta var það síðasta sem hann sagði á þessu átakanlega
augnabliki.“
Maj-Weggen vildi ekki geta sér
til um hvað olli brotlendingunni en
sagði að ekki væri talið að skemmd-
arverk hefði átt sér stað. „Ekkert
er útilokað ... en mönnum
fínnst líklegast að vélræn bilun
hafi átt sér stað.“
Atburðarásin frá þvi ísraelska
þotan hóf sigtil flugs klukkan 17:21
að íslenskum tíma og þar til hún
brotlenti á níu hæða íbúðarblokk
stundarfjórðungi síðar, eins og hún
lítur út samkvæmt samtölum flug-
manna við flugturn og upplýsingum
af ratsjám Schiphol-flugvallar:
18:21 - Flugvélin hefur sig á loft
í norðurátt samkvæmt venjulegri
brottflugsleið.
Flugumferðarstjórar segja þot-
una klifra hægt en segja vindátt
og mikla hleðslu hennar valda því.
Flugvélin flýgur í stórum sveig til
austurs í samræmi við brottflugs-
reglur.
18:27 - Um 28 km austur af flug-
vellinum sendir Isaac Fuchs flug-
stjóri frá sér neyðarkall. Segir eld
loga í hreyfli númer þijú (innri
hreyfli á hægri væng) og biður um
heimild fyrir nauðlendingu.
Starfsmenn flugvallarins segja
að þotan hafí látið að stjórn á þessu
augnabliki og þeir úndirbúa nauð-
lendingu á braut 06, sem liggur til
norðausturs, því vindáttir eru hag-
stæðastar fyrir þá braut.
Flugstjórinn segist hins vegar
ráðgera lendingu á braut 27, sem
liggur frá austri til vesturs. Ástæð-
ur þess eru enn óljósar en hann
hefur líklega talið mikinn meðvind
inn á þá braut auðvelda sér að ná
aftur til flugvallarins, að sögn emb-
ættismanna.
Samkvæmt flugreglum hefur
flugstjóri lokaorðið þegar neyð er
á ferðum.
Þegar flugvélin er í um 5.000
feta hæð (1.525 metrum) kallar
flugstjórinn að eldur logi einnig í
hreyfli fjögur, þ.e. ytri hreyfli á
hægri væng. Hann kveðst þurfa að
fljúga hring til þess að lækka flugið.
Síðan segist flugstjórinn ekki
geta brúkað vængbörð og loks seg-
ist hann vera að missa stjórn á
þotunni.
Um 18:33 - „Er að hrapa“ hróp-
ar flugstjórinn hamstola í talstöð-
ina.
18:36 - Israelska þotan brotlend-
ir á íbúðarblokk níu mínútum eftir
að flugstjórinn sendi út neyðarkall.
Israelski flug-
stjórinn glímdi
við hið ógerlega
London. Rcuter.
FLUGSTJÓRI E1 Al-þotunnar sem fórst í Amsterdam glímdi við
neyðaratvik sem á sér ekki hliðstæðu og ekki er talið geta átt sér
stað, en tveir af fjórum hreyflum flugvélarinnar duttu af henni.
Er þrautin verri viðfangs en erfiðustu neyðartilvik sem flugmenn
eru látnir glíma við í flughermum, að sögn manna sem sérfróðir
eru um flugmál.
Rannsóknarmenn reyndu í gær
að gera sér grein fyrir því hvað
leiddi til þess að báðir hreyflar á
hægri væng þotunnar losnuðu frá
og féllu til jarðar. Er það versta
tilhugsun flugmanns.
Helsta kenning breskra flugsér-
fræðinga var að hreyfílbilun hafí
orðið er þotan lyfti sér frá jörðu
með þeim afleiðingum að brot úr
hreyflinum hafí tvístrast og komist
inn í hinn þannig að hann hafí
sömuleiðis tæst í sundur. Hreyfl-
arnir fundust í 15 km fjarlægð frá
íbúðarhverfínu sem þotan kom nið-
ur í.
Mike Wallis, júmbótþotuflug-
stjóri á eftirlaunum, sagði að erfíð-
ustu atvik sem flugmenn glímdu
við er þeir hlytu þjálfun í flughermi
væri að tveir hreyflar biluðu svo
til samstundis en ekki að þeir slitn-
uðu frá vængjunum. Hann sagðist
aldrei hafa heyrt um raunverulegt
atvik þar sem tveir hreyflar biluðu
á júmbóþotu samtímis. „Flugstjór-
inn hefur líklega barist af aflefli
við að hafa stjóm á þotunni," sagði
Wallis. „Munurinn á raunveruleik-
anum og flughermunum er sá að
í þeim sleppur maður alltaf lifandi
frá öllu,“ bætti hann við.
ísraelska flugfélagið E1 A1 er
orðlagt fyrir öryggi en engu að
síður sögðu nokkrir sérfræðingar í
gær, að of snemmt væri að útiloka
að um skemmdarverk hafi verið
að ræða. Heldur væri ekki útilokað
að fuglar hefðu sogast inn í hreyf-
lana en það væri ólíkleg orsök.
David Learmount, einn af sér-
fræðingum flugtímaritsins Flight
Intemational var spurður hvað
gæti verið hæft í því að fullhlaðin
þotan hefði virst fljúga upp á rönd
er hún skall á íbúðarblokkunum.
HUGSANLEG ORSOK
EL AL- SLYSSINS
Hreyflarnir
finnast 15 km
frá slysstað
REUTER
Alllað 170.000 litrarelds-
neylis I vænghölum
Bensínrör
Annar hreyfill
bilar er hreyfilbrot
sogast inn í hann
Hreyfill bilar rétt eftir
flugtak og springur
Boeing 747
Skemmdarverk hefur ekki verið
sem orsök brotlendingar El Al
vöruflutningavélarinnar en
sérfræðingar telja vélar-
bilun þó líklegri skýringu
Þversnið al væng
Sprenging I hreyfli
kann að hafa rifiö gat
á eldsneytistank
„Flugstjórinn kann ef til vill að
hafa reynt að fljúga þotunni frá
blokkunum. Annar möguleiki er að
í glímunni við að halda þotunni á
lofti, ofar blokkunum, hafi þotan
verið komin á of lítinn hraða og
sá vængur sem fyrst dettur er sá
hreyfilslausi."
Állan Winn, ritstjóri Flight Int-
emational, sagði „afar ólíklegt að
óskyld bilun hefði átt sér stað í
báðum hreyflum samtímis. Líkum-
ar eru meiri á að annar hafí bilað
og það leitt til bilunarinnar í hin-
um. Hugsanlegt er að brot úr öðr-
um hafí komist inn í hinn og þeir
báðir splundrast. Aðeins er til ein
önnur skýring á því hvers vegna
hreyflarnir losnuðu af vængnum;
að eldur hafi kviknað í þeim.“
„Það er ekki hægt að útiloka að
um skemmdarverk hafí verið að
ræða, það væri óskynsamlegt að
gera það strax,“ sagði Learmount
en bætti við að öryggismál El Al
væru betri en hjá öðrum eins og
misheppnaðar tilraunir hryðju-
verkamanna til að vinna félaginu
fjón staðfestu.
Btlamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kópavogi, sími
671800
Toyota Corolla XL Touring 4x4 ’89, grár
(tvílitur), 5 g., ek. 53 þ. Gott eintak. V. 960
þús. stgr.
Subaru 1800 DL 4 x 4 station '91, stein
grár, 5 g., ek. 42 þ. Fallegur bíll. V. 1050
þús. stgr.
Honda Civic DX '90, rauöur, 5 g., ek. 50
þ. Fallegur bíll. V. 730 þús., sk. á ód.
Nissan 200 SX turbo Interc. ’89, rauður,
5 g., ek. 48 þ., sóllúga, rafm. í öllu o.fl.
Vinsæll sportbíll. V. 1490 þús., sk. á ód.
MMC Pajero V-6 (USA týpa) ’90, grásans,
sjálfsk., ek. 25 þ., sportfelgur, rafm. í öllu
o.fl. Sem nýr. V. 2.150 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla XL '90, 5 dyra, sjálfsk.,
ek. 48 þ., central, rafm. í rúðum o.fl.
V. 780 þús., sk. á ód.
Plymouth Laser RS Twln Cam 16v ’90,
grásans, 5 g., ek. 33 þ. mílur, rafm. í öllu
o.fl. Sportbíll í sérflokki. V. 1690 þús., sk.
á ód.
MMC Lancer 4x4 hlaðb. '91, rauður, 5
g., ek. 27 þ., rafm. í öllu o.fl. V. 1080
þús. stgr.
Chevrolet Suburban 20 Silverado 6.2
diesel '85, sjálfsk., ek. 94 þ., rafm. í öllu.
372 T.spil o.fl. Gott eintak. V. 1980 þús.,
sk. á ód.
BMW 518i '88, silfurgrár, 5 g., ek. 43 þ.,
álfelgur, rafm. i öllu o.fl. Toppeintak.
V. 1290 þús. stgr., sk. á ód.
MMC Colt GL ’91, 5 g., ek. 26 þ. V. 720
þú6. stgr. \
MMC Lancer GLX '89, sjálfsk., ek. 61 þ.
V. 650 þús. stgr.
Nissan Bluebird 2.0 SLX '89, sjálfsk., ek.
58 þ. V. 790 þús. stgr.
Nissan Douple Cap 4x4 ’88, 5 g., uppt.
vól. V. 780 þús. stgr.
Nissan Terrano 2.4i 4x4 '90, 5 g., ek.
60 þ. V. 1750 þús.
Suzuki Vitara JLXi ’91, talsvert breyttur,
ýmsir aukahl., ek. 40 þús. V. 1470 þús.
stgr.
Willys Wrangler CJ-7 ’87, svartur, 6 cyl.
(4.2), sjálfsk., ek. 93 þ. Toppeintak.
V. 1170 þús., sk. ó ód.
Volvo 240 GL ’87, grár, 5 g., ek. 89 þ,
V. 600 þús. stgr.
Daihatsu Rocky langur '90, 5 g., ek. 63
þ. V. 1350 þús. stgr.