Morgunblaðið - 06.10.1992, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1992
Rússland á krossgötum
RJÚKANDIRÚST
eftirÞorvald
Gylfason
Nú, þegar tjaldið er fallið í
kommúnistaríkjunum fyrrverandi
í Austur-Evrópu og efnahags-
ástandið þar blasir við öllum þeim,
sem hafa hug á að kynna sér það,
er fróðlegt að litast um á þessum
slóðum. Hagfræðingar frá Vestur-
löndum flykkjast nú austur á bóg-
inn til að fræðast um ástand og
horfur þar austur frá.
Ég var í Rússlandi og Lettlandi
við fyrirlestrahald part úr síðast-
liðnu sumri vegna væntanlegrar
útkomu bókar, sem ég hef skrifað
ásamt tveim félögum mínum,
norskum prófessor í Ósló og
sænskum prófessor og þingmanni
í Stokkhólmi. Bókin er eins konar
inngangur að hagfræði handa
Austur-Evrópuþjóðum og kemur
út á sex tungumálum í senn:
ensku, lettnesku, litháísku,
norsku, pólsku og rússnesku. Bók-
in kann einnig að eiga erindi við
ýmsa hér heima og kemur út í
íslenzkri þýðingu eftir Helga Skúla
Kjartansson sagnfræðing á næsta
ári.
Hvað um það, í þessari grein
og tveim öðrum að auki langar
mig að segja lesendum Morgun-
blaðsins frá ýmsu af því, sem fyr-
ir augu mín og eyru bar þar eystra,
og frá ástandinu þar.
I. „Við munum grafa ykkur!“
Skoðum forsöguna fyrst. Fyrir
nokkrum árum var það algeng
skoðun meðal hagfræðinga og
annarra á Vesturlöndum, að þjóð-
artekjur á mann í Sovétríkjunum
fyrrverandi væru um það bil helm-
ingur af þjóðartekjum á mann í
Bandaríkjunum. Margir gengu út
frá þessu sem sjálfsögðum hlut.
Tölumar voru sóttar í smiðju
bandarísku leyniþjónustunnar
(CLA) meðal annars og studdust
jafnframt við opinberar hagtölur
Sovétstjómarinnar, auk þess sem
ýmsir hagfræðingar lögðu hönd á
plóg.
Hermálaútgjöld Sovétmanna
vom til dæmis talin vera um helm-
ingi hærra hlutfall af þjóðarfram-
leiðslu þeirra en hermálaútgjöld
Bandaríkjamanna, þannig að
heildarútgjöld til hermála í dollur-
um vom talin vera svipuð í löndun-
um tveim. Af þessu þóttust menn
geta ráðið, að hemaðarstyrkur
stórveldanna tveggja væri sam-
bærilegur og annað eftir því.
Þetta var þó ekki allt, því að
þar að auki var hagvöxtur yfirleitt
talinn vera meiri í Sovétríkjunum
en í Bandaríkjunum. Lærðir menn
spáðu því árið 1975, að Sovétmenn
fæm fram úr Bandaríkjamönnum
í þjóðarframleiðslu skömmu eftir
árið 2000. Það var einmitt þetta,
sem Nikita Krústsjov, aðalritari
Kommúnistaflokksins, átti við,
þegar hann sagði 1956: „Við mun-
um grafa ykkur!“
Um þessa spádóma er hægt að
lesa í ýmsum hagfræðikennslu-
bókum allt fram á síðustu ár.
Þjóðarframleiðsla á mann í Sovét-
ríkjunum 1985 var tæplega helm-
ingur af þjóðarframleiðslu á mann
í Bandaríkjunum samkvæmt opin-
berum hagtölum þá. Margir trúðu
þessu. Munurinn á lífslgörum í
Austur- og Vestur-Evrópu var tal-
inn vera enn minni.
n. Önnur mynd
Og nú er tjaldið fallið, og allt
önnur mynd blasir við. Það er
komið í ljós, að gömlu tölumar,
sem hver át eftir öðrum, voru al-
rangar. Þjóðartekjur á mann í
Sovétríkjunum fyrrverandi em
ekki nema brot af því, sem áður
var talið. Lífskjör almennings þar
era miklu verri en flesta óraði
fyrir.
Framleiðsla hefur að vísu dreg-
izt saman um þriðjung eða þar
um bil í ölduróti síðustu missera,
en sá samdráttur er samt ekki
nema lítill hluti skýringarinnar á
því, hvers vegna efnahagslíf Rúss-
lands og annarra Austur-Evrópu-
landa nú er nánast eins og ijúk-
andi rúst. Það er þvert á móti
bersýnilegt nú, að efnahagslíf
þessara landa hefur verið í niðum-
íðslu áram og áratugum saman.
Ofboðsleg sóun hefur átt sér
stað fyrir tilstilli framstæðra og
heimskulegra hagstjómarhátta,
sem stönguðust á við skynsamlega
hagfræði og heilbrigða skynsemi,
en vora verkfæri í höndum spilltr-
ar valdastéttar, sem makaði krók-
inn á kostnað almennings í krafti
einræðis og lögregluvalds. Þessi
ógegnd hélt áfram að hlaða utan
á sig, þangað til hagkerfíð hrandi
undan eigin þunga. Þetta gat ekki
endað öðravísi.
Hversu miklar era þjóðartekjur
á mann í Rússlandi nú, þegar upp
er staðið? Því er ekki auðvelt að
svara, þar eð engar áreiðanlegar
upplýsingar eru til um það á þessu
stigi. Skynsamlegar ágizkanir
spanna breitt bil. Engum dettur
þó í hug að halda því fram leng-
ur, að Rússar séu hálfdrættingar
á við Bandaríkjamenn; ef svo væri,
væra þjóðartekjur Rússa nálægt
10.000 dolluram á mann á ári.
Margir hagfræðingar telja nær
að halda, að þjóðartekjur Rússa
nú séu sambærilegar við Brasilíu
og Mexíkó eða á bilinu 2.000 til
3.000 dollarar á mann á ári. Rúss-
neskir háskólahagfræðingar, sem
ég hitti í Moskvu, gizka á enn
lægri tekjur eða 1.200 til 1.500
dollara á mann. Ég trúi þeim bezt.
Við eram því ekki að tala um helm-
ing, heldur sextánda part af þjóð-
Þorvaldur Gylfason
„Þessi ógegnd hélt
áfram að hlaða utan á
sig, þangað til hagkerf-
ið hrundi undan eigin
þunga. Þetta gat ekki
endað öðruvísi.“
artekjum á mann í Ameríku og
Evrópu eða þar um bil.
Tökum dæmi. Prófessor í
Moskvu hefur 20 dollara í mánað-
arlaun við núverandi gengi rúbl-
unnar eða tæplega 1.100 íslenzkar
krónur. Genginu kann að vísu að
skeika nokkuð frá réttu lagi, en
þó varla mjög veralega, enda er
nokkum veginn frjáls gjaldeyris-
markaður við lýði í Rússlandi nú.
Tii samanburðar hefur prófess-
or í Kampölu um 50 dollara í
mánaðarlaun og prófessor í Kalk-
úttu 250 dollara. Takið eftir þessu:
jafnvel þótt rétt gengi rúblunnar
væri fímm sinnum hærra en nú-
verandi gengisskráning gefur til
kynna, væri rússneskur prófessor
miðja vegu á milli Úgöndu og Ind-
lands.
III. Magn og gæði
Hér þarf að vísu að hyggja að
því, að prófessorar, læknar, verk-
fræðingar og aðrar langskóla-
gengnar starfsstéttir hafa talsvert
lægri laun en strætisvagnabflstjór-
ar og verkamenn í Rússlandi, en
hinir síðar nefndu búa engu að
síður líka við sultarlaun. Jafnvel
þótt ýmsum launþegum takist að
drýgja mánaðarlaun sín veralega
(sumir læknar aka leigubíl á kvöld-
in til dæmis), búa þeir langflestir
við alvarlegan skort. Maturinn er
afleitur. Þjónusta er lítil og léleg.
Hús og tæki era illa byggð og úr
sér gengin. Níu af hveijum tíu
þorpum og bæjum í Sovétríkjunum
fyrrverandi era án rennandi vatns
og 29 af hveijum 30 án skolpræsa.
Það er að vísu rétt, að verð á
flestum vöram er lágt í Rúss-
landi, margfalt lægra en við eigum
að venjast. En margt af því, sem
Rússar geta fengið fyrir miklu
lægra verð en við, er líka marg-
falt minna og verra, bæði að magni
og gæðum. Þetta á við um mat,
bíla og húsnæði og einnig um
menntun og læknishjálp.
Það er til að mynda ein milljón
hagfræðinga í Rússlandi, en með
því er átt við þá, sem hafa lokið
háskólaprófi í þeirri grein að loknu
fímm ára námi. Það, sem þeir
lærðu, er þó lítils virði og kemur
þeim og öðram að litlu eða engu
haldi í því markaðshagkerfí, sem
Rússar era nú að reyna að reisa
á rústum kommúnismans.
Svipaða sögu er að segja um
marga aðra þætti menntunar í
landinu og einnig um heilbrigðis-
þjónustu. Margir spítalar hafa
hvorki lyf né lffsnauðsynleg tæki;
sumir þeirra hafa ekki einu sinni
rennandi vatn.
Höfundur erprófessor í hagfræði
við Háskóla íslands.
Titringur í Herj ólfi
Helgi Hálfdanarson
Veðurfregnir
Notalega brá mér, þegar ég
heyrði veðurfregnir lesnar í
útvarp í morgun, og blessað
staðarfallið var allt í einu kom-
ið til valda með sinn rammís-
lenzka svip. Veðri var lýst á
hveijum stað þannig að sagt
var: Görðum, Hellu og Hæli,
en ekki með hvumleiðu nefni-
falli: Garðar, Hella og Hæll,
eins og furðu lengi hefur tíðk-
azt.
Þá er það ekki síður fagnað-
areftii að vera laus við það
sérkennilega málbragð að
segja skip statt á sextíu og
tveimur gráðum norður. Þetta
er líkast því að segja að Kefla-
vík sé á fimmtíu og fjórum
kílómetrum frá Reykjavík, sem
allir fínna að nær engri átt.
Keflavík er fimmtíu og fjóra
kílómetra. suður frá Reykjavík
(ef svo mælist). Og eins er
skipið sextíu og tvær gráður
norður frá miðbaug.
Fyrir nokkrum árum hafði
undirritaður orð á þessu í
stuttri blaðagrein, en ekki varð
honum að ósk sinni um breyt-
ingu.
I grein þeirri var höfundur
aldrei þessu vant að senda
þeim tóninn sem öðram fremur
hafa orð fyrir oss á opinberum
vettvangi. Kvartað var undan
því, að þar yrðu þeir öðram til
fyrirmyndar, sem nota fomafn
annarrar persónu, þú, sem
óákveðið fomafn, þeir sem
beita viðbjóðslegri skildagatíð
í staðinn fyrir yndislegan við-
tengingarhátt, þeir sem að
ófyrirsynju hafa eintöluorð í
fleirtölu eða fleirtöluorð í ein-
tölu, þeir sem misþyrma for-
nöfnunum hver, hvor, sinn,
annar, hvortveggi og báðir,
þeir sem setja persónufomafn
í stað afturbeygðs fomafns,
og yfírleitt þeir sem búa til
enskar setningar úr íslenzkum
orðum.
Þar var hins vegar sérstak-
lega til nefndur einn flokkur
manna meðal þeirra sem mjög
væra til fyrirmyndar um mál-
far í fjölmiðlum, og það var
starfsfólk Veðurstofu Islands,
enda talið til tíðinda ef á þeim
bæ heyrðist annað en heilsug-
ott mál, hraustleg og tilgerðar-
laus íslenzka vel búin til allra
veðra. Þeim mun meiri furðu
vekti þessi ágalli á tungutaki
manna þar í sveit. En nú virð-
ist þeirri mæðu af létt góðu
heilli.
Ýmsir kalla þess oftar getið
sem miður fer um íslenzkt
mál. Þeim mun fremur er
ástæða til að fagna því, þegar
þjóðtungan styrkir stöðu sína,
þótt í smáu sé.
eftir Bárð
Hafsteinsson
Vegna fréttar á baksíðu Morgun-
blaðsins sl. fimmtudag um titring í
M/s Heijólfi og umræðu í fjölmiðlum
að undanfömu um skipið, vill Skipa-
tækni hf., til að fyrirbyggja út-
breiddan misskilning, koma eftirfar-
andi á framfæri:
Eftirlit og verkhönnun ekki í
höndum Skipatækni hf.
Eins og áður hefur komið fram,
var Skipatækni hf. falið að hanna
70,5 metra feiju fyrir Heijólf hf.
og gerð smíðalýsingar. Auk þess var
Skipatækni hf. falið að sjá um útboð
á smíði feijunnar. Skipatækni hf.
kom hins vegar aldrei nálægt verk-
hönnun feijunnar né eftirliti með
framkvæmd smíðinnar á smíðatíma
skipsins. Ástæðan er sú, að Skipa-
tækni hf. var að hálfu smíðanefndar
meinað að vinna að verkhönnun feij-
unnar. í fundargerð smíðanefndar-
innar frá 17. mars 1991 segir orð-
rétt: „Staðfest var fyrri afstaða
nefndarmanna sem bókuð er í fund-
argerð 12. fundar, sem er í þá veru
að Skipatækni hf. lyki við smíðalýs-
ingu, en sú skipasmíðastöð, sem
samið yrði við, verkhannaði skipið,
og að óeðlilegt yrði talið að Skipa-
tækni hf. ynni að því verki sem
undirverktaki." Öll verkhönnun feij-
unnar var því í höndum erlendra
aðila og ekkert samráð haft við
Skipatækni hf. um það verk, Smíða-
nefndin réði til sín tvo ráðgjafa, þá
Jón B. Hafsteinsson skipaverkfræð-
ing í Reykjavík og Ólaf Friðriksson
skipatæknifræðing í Vestmannaeyj-
um, og önnuðust þessir aðilar alla
tæknilega ráðgjöf og eftirlit með
framkvæmd verksins á smíðatíman-
um.
Þegar aðalhönnuðir era útilokaðir
frá því að taka að sér verkhönnun
þeirra mannvirkja, sem þeir hafa
hannað og gert lýsingar af, er hætta
á að ýmislegt geti farið úrskeiðis
við verkhönnunina. Það getur hæg-
lega komið fyrir, að þær lausnir sem
fyrir valinu verða fullnægi ekki þeim
kröfum sem lágu að baki ákvæðum
smíðalýsingar. Skipatækni hf. benti
smíðanefnd feijunnar ítrekað á
þessa hættu, en ekkert mark var
tekið á þeim ráðleggingum.
Nú liggur fyrir að vikið hefur
verið frá ýmsum ákvæðum smíða-
lýsingarinnar. Þessi frávik hafa haft
áhrif á eiginleika skipsins og era
afleiðingar þeirra Skipatækni hf.
alls óviðkomandi.
Skipatækni hf. telur ekkert hafa
komið fram, sem gefí tilefni til full-
yrðinga um meint mistök Skipa-
tækni hf. við hönnun skipsins.
Vandamál vegna titrings
Fram hefur komið í fjölmiðlum
að í Heijólfí sé óeðlilegur titringur
í brú og einum farþegasal skipsins.
Skipatækni hf. hefur ekki átt þess
kost að kynna sér málið, né þær
niðurstöður sem nú liggja fyrir eftir
mælingar Siglingamálastofriunar
ríkisins. Þó virðist af fréttum að
dæma að titringur sé meiri en eðli-
legt getur talist.
í útboðsgögnum og smíðalýsingu
Skipatækni hf. fyrir Heijólf eru
ströng ákvæði um titrings- og háv-
aðamörk í skipinu. Einnig eru
ákvæði þess efnis að sérstök titr-
ingsprófun („exciter test“) og mæl-
ingar fari fram á skipinu eftir sjó-
setningu þess og þegar stál- og ál-
uppbyggingu skipsins er að mestu
lokið. Við slíka prófun er notaður
sérstakur búnaður til að framkalla
titring í skipinu yfír ákveðið tíðni-
svið. Mælipunktar eru síðan á víð
og dreif um skipsskrokkinn, þannig
að fram kemur góð mynd af eigin-
Bárður Hafsteinsson
„Þegar aðalhönnuðir
eru útilokaðir frá því
að taka að sér verk-
hönnun þeirra mann-
virkja, sem þeir hafa
hannað og gert lýsingar
af, er hætta á að ýmis-
legt geti farið úrskeiðis
við verkhönnunina.“
tíðni einstakra skipshluta. Ef titr-
ingurinn mælist yfír ákveðnum
mörkum eða er mikill á óæskilegum
stöðum í skipinu, er enn tækifæri
til að koma við sérstökum ráðstöfun-
um í þeim tilgangi að breyta eigin-
tíðni viðkomandi skipshluta. Þrátt
fyrir skýr ákvæði í smíðalýsingu um
slíka prófun var hún aldrei fram-
kvæmd.
Einnig eru ákvæði í smíðalýsingu
4