Morgunblaðið - 06.10.1992, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1992
SERIBUÐIRISETBERGSHLI
SYNINGARVIKA
Við eigum enn nokkrar 2 og 4 herbergja íbúðir í
þessu glæsilega húsi á þessum frábæra útsýnis-
stað. Nú er sérstök sýningar- og kynningarvika þar
sem fullbúin séríbúð er til sýnis. Allar frekari
upplýsingar veita sölumenn SH Verktaka og auk
þess er hægt að fá upplýsingar sendar í pósti.
SH VERKTAKAR
STAPAHRAUNI4, HAFNARFIRÐI, SÍMI 652221
a)
FA5T6IGNASALA
VITASTÍG 13
2ja herb.
Þangbakki. Falleg ein-
staklíb. ca 40 fm fm á 7. hæð.
Góð lán óhv. Fallegt ústsýni.
Stórar svalir. Verð 4,5-4,6 millj.
Næfurás. Falleg 2ja herb.
rúmg. rúmg. íb. á 1. hæð ca 80
fm. Góðar svalir. Falleg sameign.
Laus. Verð 6,7 mitlj.
Hraunbær. 2ja herb. falleg
íb. á 2. hæð 55 fm. Nýjar innr.
Suöursv. Fallegt útsýni. V. 5,5 m.
3ja herb.
Kjarrhóimi. 3jaherb. falleg
íb. 75 fm é 1. hæð. Sérþvherb.
í Ib. Suðursv. Góð samaign. Verð
6,3-6,5 miltj.
Eyjabakki. 3ja herb. falleg
íb. á 1. hæð. 60 fm. Góð lán
áhv. Falleg sameign. V. 6,0 m.
Meðaihoit. 3ja herb. góð
íb. á 1. hæð auk herb. í kj. Laus.
Breiðvangur. 3ja herb.
góð íb. á 1. hæð 115 fm auk 25
fm bílsk. Góð lán áhv.
Kleppsvegur. 3ja herb.
falleg ib. 84 fm á 2. hæð í lyftubl.
Suðursv. Parket. Nýl. gler. Verð
7,0 millj.
Seilugrandi. 3ja herb. ib.
á tveimur hæðum 87 fm auk bíl-
skýlis. Stórar svalir. Góð lán áhv.
Austurberg. 3ja herb. fal-
leg Ib. 78 fm á 4. hæð auk bílsk.
Suðursvalir. Góð lán éhv. Verð
7,5 millj.
4ra herb. og stærri
Skaftahlfð. Neðri sérhæð
137 fm auk 25 fm bílsk. Suöursv.
Parket. Verð 10,5 millj.
ilfi
Flókagata. Sérl. falleg sér-
hæð á 1. hæð um 1f5 fm auk
26 fm bfisk. Glæsil. garður. Nýjar
innr.
Hulduland. 5-6 herb. falleg
íb. 120 fm á 2. hæð auk bílsk.
Suðursv. Húsið allt nýviög. Skipti
mögul. á minni íb. í sama hverfi.
Verð 10,5 millj.
Einbýli — raðhús
Langholtsvegur. Fallegt
raðh. é þramur hæðum ca 235
fm rrVinnb. bflsk. Fallegurgarður.
Víðilundur. Einbhúsáeinni
hæð 125 fm auk 40 fm bilsk.
Suðurgarður. Góð lán áhv. Ákv.
sala.
Kársnesbraut. Glæsil.
einbhús á tveimur hæðum 157
fm auk 33 fm bílsk. innr. f sérfl.
Fréb. útsýni. Góö lán áhv.
Jórusel. Einbhús á þremur
hæðum 305 fm auk bilsk. Mögu-
leiki á sérib. á jarðhæð ca 80 fm.
Góð lán áhv.
Hlíðarvegur. Fallegt elnb-
hús é einni og hélfri hæð, 242
fm auk 30 fm bílsk. Fallegt út-
sýni. Suðurgarður. Makaskipti
mögul. á mlnni elgn.
Hæðarsel. Glæsil. einbhús
á tveimur hæðum 221 fm. Falleg-
ar innr. Parket. Arinn í stofu.
Fallegt útsýni. Rúmg. bílsk.
Makaskiptí mögul. á minni eign.
Hjallabrekka. Glæsllegt
2ja íbúða hús 212 fm. Gðð 2ja
herb. íb. ca 60 fm á 1. hæðm.
sórinng. Glæsil. garðstofa á
tveimur hæöum. Fallegt útsýnl.
FÉLAG liFASTEIGNASALA
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fasteignasali, hs. 77410.
Lucia di Lammermoor
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Óperan Lucia di Lammermoor,
eftir Gaetano Donizetti, var frum-
sýnd í íslensku óperunni sl. föstu-
dag og er það 23. verkefni óper-
unnar á rúmum tíu árum en það
fyrsta undir framkvæmdastjórn
Ölafar Kolbrúnar Harðardóttur.
Tónlistin í óperunni Lucia di
Lammermoor er eins konar
samantekt á því lagferli sem ein-
kenndi ítölsku óperuna á fyrri
hluta 19. aldar og þar í flokki
fremstur var Donizetti og síðar
Verdi, sérstaklega í fyrstu óperun-
um. Sexundarstökk og ýmsar
umvendingar á þríhljómnum,
ásamt mikilli notkun krómatískra
víxlnótna á móti einfaldri hljóm-
skipan, einkennir stíl Donizettis,
sem er hreinn og ákaflega vel
gerður til söngs. Bæði Donizetti
og Verdi kunnu þá list að spinna
upp fallegar línur, sem einnig
bjuggu yfir leikrænni merkingu,
þannig að söngvarinn gat, ásamt
því að sýna söngsnilli sína, túlkað
hugarástand persónunnar og leik-
ræna framvindu verksins í gegn-
um sönginn einan og oftlega var
hlutverk hljómsveitarinnar því
varla meira en að styðja þar við
sem þurfti. Margar þessar óperur
eru ekki hvað síst vinsælar fyrir
það, að í túlkun og söng gefst
söngsnillingum stórkostleg tæki-
færi til að sýna snilli sína.
Hlutverk Luciu er mjög erfitt
og þar fer Sigrún Hjálmtýsdóttir
á kostum og vinnur glæsilegan
listasigur. Það sem vantaði á í ein-
staka tóntaki markar svo lítið, að
segja má að hún hafí skilað hlut-
verkinu lýtalausu og ekki aðeins
það, heldur með þvílíkum glæsi-
brag, að hún hefur skipað sér
stöðu, sem ein af bestu söngkonum
okkar íslendinga. Leikurinn, sem
í hlutverki Luciu, skiptist á milli
ástaratriða, átaka við bróðurinn
og síðast birtist í sturlun hennar,
var mjög vel mótaður.
Bergþór Pálsson fór með hlut-
verk hins miskunnarlausa bróður
(Enrico), sem með hatri sínu og
eigingirni hrindir af stað þeim at-
burðum er leiða til dauða elskend-
anna. Bergþór söng hlutverk
Enricos af öryggi en helst til af
of miklum ofsa í upphafi. Bældur
ofsi getur oft verið áhrifameiri en
að hann sé oftúlkaður. Þrátt fyrir
þetta var hatur Enricos sannfær-
andi í túlkun Bergþórs og sérstak-
lega er hann reynir að þvinga
Luciu til að giftast Artúro.
Sá sem endanlega fær Luciu til
að láta undan er presturinn og
sálusorgari Luciu, Raimondo, sem
Sigurður Steingrímsson söng.
Þetta er fyrsta hlutverk Sigurðar
og var söngur hans mjög fallega
framfærður, sérstaklega í atrið-
inu, er honum tekst að sannfæra
Luciu. í upphafi þriðja þáttar, þeg-
ar presturinn kemur inn og til-
kynnir um morðið á Artúro og að
Lucia hafí missti vitið, vantaði
Sigurð það þrumandi raddafl, sem
hefði hæft þessum áhrifamikla
vendipunkti óperunnar. Þrátt fyrir
þetta söng Sigurður mjög fallega
sitt hlutverk. Hann hefur sannar-
lega góða rödd og alla burði til
að verða frábær óperusöngvari,
með aukinni reynslu í átökum við
fleiri hlutverk. Með þessu hlut-
verki hefur hann markað sér
brautina framundan.
Gestur sýningarinnar var Tito
Beltran í hlutverki elskhugans,
Edgardo. Beltran er ungur söngv-
ari og hefur þegar getið sér gott
orð, enda efni í góðan söngvara.
Þrátt fyrir ungan aldur var upp-
færsla hans faglega vel unnin og
auðheyrt að hann hafði fengið
góða skólun hjá Svíum. Hlutverk
Edgardo, eins og Luciu, skiptist í
Gaetano Donizetti
þrennt. Það er fyrst ást hans á ,
Luciu, hefndarheit hans við ætt
hennar, sem blandast saman í síð-
asta þætti við sorg hans, er hann j
fréttir að Lucia sé látin. Söngur
Beltran í síðasta atriði óperunnar
var, ásamt geðveikisatriðinu hjá j
Luciu, einn af hápunktum óper-
unnar og þar sýndi þessi ungi
söngvari, að hann er líklegur til
stórra verka. Leikur hans og túlk-
un var mjög góð og þrátt fyrir að
enn vanti nokkra mýkt í rödd hans,
var söngur hans glæsilegur.
í öðrum hlutverkum voru; Signý
Sæmundsdóttir í hlutverki Alisu,
sem hún skilaði mjög vel, Sigurður
Björnsson sem Artúro og Sigurjón
Jóhannesson sem Normanno, en
þeir stóðu sig þokkalega en ekki
að öllu leyti án smá mistaka, hver i
á sinn hátt. Kórinn var, eins og
ávallt áður, mjög góður en í þess-
ari óperu mæðir mest á karlakóm-
um. Kórstjórinn var að þessu sinni
ungur hljómsveitarstjóri, Gunn-
steinn Ólafsson, sem nýlega hefur
INGA ÞÓREY
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Það er ekki oft sem stærðfræði-
líkingar verða ráðandi þáttur í
verkum myndlistarmanna, enda
oft ranglega litið á stærðfræði sem
raunvísindagrein, sem sé fjarri
daglegu lífí fólks. Þeir eru færri
sem átta sig á möguleikum þessar-
ar huglægu greinar, sem er grund-
völlurinn að flestu því sem snertir
hið daglega líf okkar, jafnt mynd-
listarinnar sem annarra hluta.
Þetta kom upp í hugann þegar
litið var inn á sýningu ungrar lista-
konu, Ingu Þóreyjar Jóhannsdótt-
ur, í Gallerí einn einn við Skóla-
vörðustíg. Inga Þórey sýndi síðast
í FÍM-salnum fyrir rúmum tveimur
árum, og var þar á ferðinni með
stór málverk, unnin út frá náttúr-
unni, en með þungum, uppstilltum
formum, þannig að fyrirmyndirnar
voru einangraðar í umhverfi sínu.
Síðustu sýn-
ingardagar
Sýningu Guðbjargar Lindar í Ný-
höfn, Hafnarstræti 18, lýkur mið-
vikudaginn 7. október. A sýning-
unni eru olíumálverk unnin á síð-
ustu tveimur árum.
Sýningin er opin fyá kl. 12-18.
Fréttatilkynning
Nú er listakonan hins vegar að
takast á við aðra hluti, því hún
hefur gefið þessari sýningu yfír-
skriftina „Totologia" eða málverk
um mengi.
Þó ekki sé rétt að hætta sér
langt inn á þessar brautir í umræð-
unni, þá geta mengi auðvitað náð
yfír fleira en tölur, og þetta not-
færir listakonan sér þegar hún
segir í sýningarskrá: „Pensilfar
sem er saumur sem er textíll sem
er strigi sem er þetta málverk;
þannig er málverkið í raun ekkert
annað en mengi yfir öll þau pensil-
för sem eru lögð í það. Þegar þessi
hugsun hefur verið lögð til grund-
vallar í útfærslu verkanna, fylgir
innihaldið eftir. Þar getur að líta
ýmis stærðfræðitákn, sem er rað-
að saman í mismunandi mynstur
í fletinum í hinum ýmsu verkum.
Listakonan lýsir þessu ferli á
eftirfarandi hátt: „Krossar sem
eru tvö pensilför sem eru tvær lín-
ur sem eru tvö lög sem eru plús
mínus eða margföldun sem er
partur af mengi sem er þetta
málverk. Hér leiðir hvað af öðru,
þar til verkinu er lokið.
Hugmyndin á bak við þessa list-
sýn er þannig góðra gjalda verð,
en því miður hefur ekki reynst
eins auðvelt að útfæra hana á
myndrænan hátt í verkunum sjálf-
um. Táknin eru mynduð úr einföld-
um formum, sem minna um margt
á lyfjahylki, og virðast oft fljóta
tilviljunarkennt ofan á litfletinum,
fremur en að vera þáttur í verk-
inu. Inga Þórey notar mest
kraftmikla liti, t.d. dumbrauða,
Inga Þórey Jóhannsdóttir
gula og bláa. í sumum verkanna
nær hún að byggja með þeim upp
markvissa ímynd, t.d. í „Whattime
is Love (KLF)“ (nr. 3) og í „Án
titils“ (nr. 7), en í öðrum er þetta
ekki eins markvisst.
Það er eðlilegt að ungt listafólk
leyti ýmissa leiða í verkum sinum
og takist á við fjölbreytt viðfangs-
efni út frá mismunandi sjónar-
hornum. Inga Þórey hefur á þess-
ari sýningu og þeirri síðustu tekist
á við ólíka hluti og ólíkar stærðir
í verkum og táknmyndum, og er
eðlilegt að álykta að hún muni
halda því áfram enn um sinn þar
til hún finnur þau viðfangsefni og
það myndmál, sem henni fellur
best. Það þarf kjark til að stunda
myndlist, og ungt listafólk verður
að vera duglegt að sýna verk sín
til að þau nái að þróast áfram.
Sýningu Ingu Þóreyjar Jó-
hannsdóttur í Gallerí einn einn við
Skólavörðustíg lýkur fímmtudag-
inn 8. október.
I