Morgunblaðið - 14.05.1988, Síða 62

Morgunblaðið - 14.05.1988, Síða 62
62 Á NÆSTU SHELLSTÖÐ Blue Coral Super Wax er sannkallað ofurbón. Bónið er boriö á og slðan þurrkað yfir með hreinum klút. Ekkert nudd, ekkert puð, tekur enga stund. Samt er árangurinn jafnvel betri en með venjulegu puöbóni. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988 7 i / KNATTSPYRNA / MEISTARAKEPPNI KSI Góð uppskrfft fyrir áhorfendur Tíu Valsmenn höfðu beturgegn Frömurum í skemmtilegum leik -Jón Gunnar Bergs og Pétur Ormslev gerðu þrjú mörk hvor Morgunblaöiö/Júlíus Ánægður fyrirliði Valsmenn hafa sigrað þrisvar í meistarakeppni KSÍ, sem hefur farið fram 20 sinnum. Hér heldur Þorgrímur Þráins- son, fyrirliði Vals, á bikarnum, sem knattspymudeild KR gaf til minningar um Sigurð Halldórsson. ÚRVALS ÁBURÐUR í hentugum neytendapakkningum KÁLKORN TRJÁKORN GRASKORN SKELJAKALK Tilbúinn áburður fyrir matjurtagarða. Bætir upp það næringargildi sem á vantar. Einnig tilvalinn fyrir sumarblóm. Fáanlegur í 5 og 10 kg. pokum. Tilbúinn áburður sérstaklega hentugur fyrir tré og runna. Stuðlar að góðum vexti og bætir útlit. Fáanlegur í 5 kg. pokum. Sérstaklega blandaður áburður fyrir grasflatir. Heldur jarðveginum næringarríkum. Fáanlegur í 5 og 10 kg. pokum. Áburður fyrir allan garðinn. Sérlega kalkríkur og hentar vel íslenskum jarðvegi. Fáanlegur í 5 kg. pokum. a AíKjMiw^f nknMuiA nKiSWS (©> AMOnMtVUVCJMifUA MJKC1N3 >' MwnnAnvöwsMtaiA(Ukisins ; ÁBURÐARVERKSMIÐJA Mg RÍKISINS S: 673200 VALSMENN unnu Fram 4:3 eftirframlengdan leik í meist- arakeppni KSÍ á fimmtudaginn. Viðureignin var skemmtileg á að horfa, alltaf eitthvað að ger- ast, mikiíl hraði. Leikmenn voru fastir fyrir, en stundum of gróf- ir, góðu spili brá fyrir og það ánægjulegasta var að yngstu strákarnir skiluðu sínu vel, einkum Einar Páll Tómasson hjáVal. Ahorfendur vilja sjá mörk og þeim varð heldur betur að ósk sinni. Sjö sinnum lá boltinn í net- inu, þrisvar eftir vítaspymur, eitt ■PIM skallamark sá dags- Steinþór ins ljós og þijú mörk Guöbjartsson komu eftir sending- skrifar ar jnn fy^jj. vamim- ar. Sveiflumar vom miklar. Jafnræði var með liðunum fyrsta hálftímann og fátt um færi, en er Framarar virtust vera að ná undirtökunum, skoraði Jón Gunnar Bergs með skalla eftir homspymu á 36. mínútu. Markið skrifast alfarið á Birki Kristinsson markvörð, sem hafði alla möguleika á að verja, en svo sýndist sem hann gerði sér ekki grein fyrir hvort boltinn væri að koma eða fara. Pétur Ormslev jafnaði úr vítaspymu tveimur mínútum síðar. Hilmar Sig- hvatsson kom Val aftur yfír á 62. mínútu, er hann skoraði úr víta- spymu. Honum var vikið af velli skömmu síðar og enn jafnaði Pétur úr vítaspymu. Fjórum mínútum fyrir leikslok blasti sigurinn við Fram eftir að Pétur hafði gert glæsilegasta mark leiksins, en 10 Valsmenn vom ekki á því að gefast upp og Jón Gunnar jafnaði á síðustu mínútu með góðu marki. Hann inn- siglaði síðan sigur íslandsmeistar- anna á 13. mínútu framlengingar- innar og þrátt fyrir þunga Fram- sókn til loka, tókst bikarmeisturun- um ekki að jafna. Hraðinn var mikill á báða bóga, en oft meiri en leikmenn réðu við og er gervigrasinu þar helst um að kenna. Krafturinn sýndi hins vegar að liðin koma vel undirbúin til ís- landsmóts og er það af hinu góða. Björtu hliðamar iljuðu fjölmörgum áhorfendum og þeir áttu því auð- veldara með að líta framhjá mistök- unum. Mikið var um ónákvæmar sendingar, vamarleikurinn var oft óákveðinn og óöruggur, einkum hjá Valsmönnum, og menn hreinlega sofandi. Hvimleitt nöldur sumra leikmanna heyrðist upp í stúku og Guðmundur Haraldsson, sem er okkar besti dómari, lét leikmenn komast upp með of mikið. Víta- spymumar orkuðu tvímælis úr stúkunni séð, en Guðmundur var reyndar vel staðsettur — mun betur en stúkugestir. Brottrekstur Hilm- ars var harður fyrst Pétur Ormslev fékk að halda áfram, því hann átti upptökin, hafði fengið áminningu og skömmu áður mótmælt hann dómi með því að kasta boltanum í Guðmund. Lið Vals: Guðmundur Baldursson, Einar Páll Tómasson, Þorgrlmur Þráinsson, Magni Blöndal Pétursson, Bergþór Magnússon, Ing- var Guðmundsson, Hilmar Sighvatsson (vikið af velli á 67. mfn.), Valur Valsson (Jón Grétar Jónsson vm. á 71. mfn.), Steinar Adolfsson (Gunnlaugur EinarsBon vm. á 104. mfn.), Sig- upón Kristjánsson og Jón Gunnar Bergs. Lið Fram: Birkir Kristinsson, Ormarr örlygs- son, Þorsteinn Þorsteinsson, Jón Sveinsson, Viðar Þorkelsson, Pétur Amþórsson, Pétur Ormslev, Steinn Guðjónsson, Helgi Björgvins- son (Helgi Bjamason vm. á 103. mfn.), Amljót- ur Davfðsson og Guðmundur Steinsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.