Morgunblaðið - 14.05.1988, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 14.05.1988, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988 63 KNATTSPYRNA Atll EAvaldsson afþakkaði tveggja ára samning við Bayer Uerdingen. Hann verður löglegur með Val í 6. umferð gegn Víkingum. Atla boðinn tveggja ára samningur Þjálfari Bayer Uerdingen kom að máli við Atla Eðvaldsson í gær og bauð honum tveggja ára samning við félagið. Hann bað Atla afsökunnar á því að hafa ekki talað við hann fyrr. Sagðist hafa verið of upp- tekinn við gengi liðsins að undanfömu. Atli afþakkaði og sagðist vera ákveðinn í að fara heim til íslands og leika með Val í sumar. Hann sagðist þó hins vegar hafa hug á að koma aftur til Þýskalands og leika þá með öðru liði en Uerdingen. Atli spilar sinn síðasta leik með Uerdingen gegn Waldhof Mann- heim í dag. Hann verður því lögleg- ur með Val gegn Víkingum í 6. umferð 19. júní. Frá Jóhannilnga Gunnarssyni i Þýskalandi KNATTSPYRNA / 1. DEILD Flautað til leiks um helgina Fyrsta umferð hefst á morgun með þremur leikjum Á morgun klukkan 17 hefjast þrír fyrstu leikirnir f fyrstu deild karla íknattspyrnu. Fjórði lelkurinn verður á mánudagskvöld, en viðureign KA og Þórs hefur verið fre- staðtil 16. júní. Reykjavíkurmeistarar KR eiga heimaleik gegn nýliðum Víkings. Pyrsti innbyrðis leikur liðanna í 1. deild var 15. júní 1955, KR vann 7:0 og Hörður Felixson var fyrstur til að gera þrennu í fyrstu deildar leik. Á morgun verður ekki leikið á heimavelli KR heldur á gervigras- inu. „Það er slæmur kostur fyrir leikmenn, dómara og áhorfendur, en við því er ekkert að gera. Maraþonið er rétt að byija og vonandi verður keppnin drengileg og laus við látbragðsleik, sem er öllum til ama og gerir starf dóm- aranna mun erfíðara," sagði Ian Ross, þjálfari KR. Keflavík, sem sigraði í Litlu bikar- keppninni á dögunum, tekur á móti Völsungum á morgun og verður leikið á malarvellinum i Keflavík. „Annað stendur ekki til boða og því skiptir það ekki máli — það er leikurinn, sem er aðaiat- riðið. Ég vona að tímabilið verði ánægjulegt fyrir alla og fram- farimar haldi áfram," sagði Frank Upton, þjálfari ÍBK. Nýliðar Leifturs fá Skagamenn í heimsókn á morgun. „Samkvæmt spá flestra eigum við að falla með sæmd, en það er enginn uppgjaf- artónn í okkur. Við erum tilbúnir í slaginn og það er gott að byija gegn svo sterku liði sem Skaga- menn tefla fram, því þá áttum við okkur betur á hveiju við eigum von á í surnar," sagði óskar Ingi- mundarsoii, þjálfari Leifturs. Fyreti heimaleikur bikarmeistara Fram verður gegn íslandsmeist- urum Vals á gervigrasinu á mánu- dagskvöldið klukkan 20, en tiu ár em liðin slðan liðin léku saman í fyretu umferð. Þá vann Valur 3:0 og settu Atli Eðvaldsson, Al- bert Guðmundsson og Ingi Bjöm Alberts8on mörkin. „Við fómm illa að ráði okkar í meistarakeppn- inni og látum mistökin okkur að kenningu verða. Það var margt jákvætt í þeim leik og við stefnum að sigri á mánudaginn eins og ávallt," sagði Ásgeir Eliasson, þjálfari Fram. KNATTSPYRNA / NOREGUR Stóll Teits orðinn heitur Þrjú töp í röð og Brann eitt og yfirgefið á botninum ÞRIÐJA umferð í norsku 1. deildinnl fór fram á f immtudag- inn. Brann sótti Sogndal heim og mátti þola þriðja tapið í röð. Dagblöð I Noregi gera því skóna að stóll Teits Þórðarson- ar só orðinn heitur. Ifyrri hálfleik hjá Brann og Sögdnal var fátt um fína drætti — mikið þóf og skipulagsleysi f leik beggja liða. f sfðari hálfleik lifnaði yfír leik Sogndal og á 75. mín. skoraði Lasse Opleth. Þrem- ur mínútum síðan bætti Knud Christ- iansen við öðm marki Sogndal beint Frá JóniÓttari Karissyni iNoregi úr homspymu. Bjami var að- þrengdur en hefði átt að geta bægt hættunni frá. Flest stærri dagblöð í Noregi nefna þá örðugleika sem Teitur Þórðarson hefur við að glfma eftir þijá tap- leiki. Dagbladed segir m.a. :„Teitur Þórðareon veit að dagar hans sem þjálfara Brann em senn taldir ef fram heldur sem horfír." Teitur sagði eftir leikinn að leikmenn sfnir þyrðu ekki að taka neina áhættu og því væri ekki mikils að vænta. Jafnt hjá Moss Moss lék heima gegn Bryne og geiði jafíitefli, 1:1. Eins og svo oft áður HANDKNATTLEIKUR Kristján Arason skrifaði undir eins árs samning við Tecca Með þeim fyrirvara að félagið fái leik- mennina Mats Olson og Melo til liðs við sig KRISTJÁN Arason hefur skrif- aö undir eins árs samning viö spánska 1. deildarfólagið Tecca. Hann mun fara til Spánar strax eftir Ólympíu- leikana í Seoul, en 1. deildar- keppnin á Spáni hefst 26. október. Eins og hefur komið fram í Morgunblaðirm, þá gerði Tecca Kristjáni mjög gott tilboð, sem togaði í og hann átti erfítt með að hafna. „Eftir að ég hafði kannað aðstæður og rætt við for- ráðamenn félagsins hér í Santand- er, þá ákvað ég að slá til. Það er alltaf skemmtilegt að reyna eitt- hvað nýtt. Þetta verður spennandi verkefni," sagði Kristján í viðtali við Morgunblaðið, stuttu eftir að hann skrifaði undir samninginn við Tecca á fimmtudaginn. Olsen og IMeio til Tecca „Ég skrifaði undir samninginn með þeim fyrirvara að tveir sterk- ir leikmenn komi einnig Tecca. Spánski landsliðsmaðurinn Melo og sænski landsliðsmarkvöiður- inn Mats Olsen, sem leikur með Kristján Arason hefur ákveðið að leika með Tecca í spönsku 1. deildinni næsta vetur. Lugi, en hann hefur sagt já við tilboðinu frá Tecca. Lugi er þó ekki enn tilbúið að láta Olsen fara. Ef þessir leikmenn koma ekki, þá er ég ekki bundinn samningnum frekar en ég vil,“ sagði Kristján. Tecca er með herbúðir sina í Sant- ander, sem er 200 þús. íbúa borg vestan við Bilbao á Norður-Spáni. Þar er mikill áhugi fyrir hand- knattleik. Fyrirtækið Tecca, sem framleiðir eldhúsinnréttingar á Spáni, fjármagnar liðið. „Það var tekið n\jög vel á móti mér hér og forráðamenn félagsins sögðu að þeir stefhdu á, að Tecca gerði stóra hluti næsta keppnistímanil," sagði Kristján. Fjórir íslenskir landsliðsmenn hafa áður leikið með félagsliðum á Spáni. Viggó Sigurðsson reið á vaðið og lék um tíma með Barcel- ona, en sfðan léku þeir Einar Þor- vaiðarsson, Hans Guðmundsson og Sigurður Gunnareson með lið- um á Spáni. Þess má geta að Magnús Bergs, landsliðsmaður í knattspyrnu, lék með Racing Santander í knatt- spyrnu fyrir fjórum árum. byijaði Moss vel og fyrsta hálftfmann gekk liðið sem smuið vél. Bæði hvað varðar spil og marktækifæri. Á 31. mín. skoraði Moss sjálfsmark og taugaspenna og óöryggi geiðu vart við sig. í seinni hluta síðari hálfleiks vöknuðu leikmenn Moss til lífe á ný ogsóttu hart að marki Bryne. Einni mínútu fyrir leikslok náði Gjermund Haugeneset að jafna fyrir Moss með hörkuskoti. Gunnar Gfslason lék n\jög vel og var besti leikmaður Moss ásamt Haugeneset ogJohnsen. önnurúralit Strömmen - Tromsö______________....... 1:1 Valeringen - Djerrv 1919...........2:1 Kongsvinger- Roeenborg.............l;l Molde - Lilleström_____________ 0:0 FRJALSAR Pétur þrjá sentimetra frá óiympíu- lágmarkinu í kúluvarpi - varpaði 19,97 metra PÉTUR Guðmundsson, frjáls- iþróttamaður úr HSK, varpaði kúlunni 19,97 metra á innanfó- lagsmóti ÍR á Valbjarnarvelli á fimmtudaginn. Hann er þvf aö- eins þrjá sm frá ÓL-lágmark- inu. Pétur hefur bætt sig verulega frá því í fyrra. Hann varpaði kúlunni 19,32 metra á móti í Port- úgal í febrúar og nú bætti hann sig um 65 sm. Hann er því til alls lfkleg- ur í sumar. Þetta er þriðji besti árangur íslendings frá upphafí. Hreinn Halldórsson á íslandsmetið, 21,09 metra, sem sett var 1979. Óskar Jakobsson á næst lengsta kastið, 20,61 metra, sem var sett 1982. Pétur hefur veri að kasta yfír 20 metra á æfingum. Hann tekur þátt í Vormóti ÍR í næstu viku. GOLF Öldungamót í Grindavík Hjá Landsamtökum eldri kylfinga eru mörg mót á skrá í sumar, enda mikil þátt- taka og leikgleði f þessum flokki. Fyrata öldungamót sumarains fer fram f dag, laugardag, á golfvellinum við Grindavík. Ræst veiður út frá kl 10-14 og keppt verður bæði með og án forgjafar, bæði f kvennaflokki (yfír 60 ára) og karlaflokki (yfír 55 ára). Með tilliti til ástands á golfvöllum núna, verður keppn- isgjaldi stillt f hóf, þó er þess að geta, að Grindavíkurvöllurinn kemur betur undan vetri en flestir aðrir vellir hér á suðvest- urhominu. Hefur orðið að fresta mótum, sem ákveðin voru snemma f maf og er ástæðan veðurfarið og óvenju mikill klaki í jörðu. FRJALSAR VomtótÍR Vormót ÍR í ftjálsum íþrótt- um fer fram á Laugardals- velli 17. maí og hefst kl. 18.30. Keppt verður í 100 m hlaupi meyja og pilta, 100, 400 og 3.000 m hlaupi karla, kúluvarpi og langstökki karla. Einnig verður keppt í sleggjukasti, en þar hefst keppni kl. 17.30. í kvennaflokki verður keppt f 100, 400 og 1.600 m hlaupi, kringiu- kasti, spjótkasti og langstökki. KNATTSPYRNA Skuldir KRÍ frá 1985 og 1986 Halldór Jónsson, fyrrum form- aður Knattspymuráðs ísa- §arðar, vill koma þvf á framfæri, vegna fréttar Morgunblaðsins á fimmtudaginn um að skuldir ráðs- ins væru að mestu frá 1082 og 1983, að þær væru frá því 1985 og 1986. Leiðréttist það hér með. Halldór sagði að rekstur Knatt- spymunáðs ísafjarðar hafí gengið n\jög vel á 1. deildarárunum. Handknattleiksþjálfari Ungmennafélag Selfoss óskar að ráða þjálfara fyrir meistaraflokk og 2. fl. karla fyrir næsta keppn- istímabil. Upplýsingar gefur Sigurður Rúnar Elíasson, sími 99-1144 eða 99-2217 á kvöldin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.