Morgunblaðið - 14.05.1988, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.05.1988, Blaðsíða 28
28 • MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988 ----------1____.________________________ Sljórnarmyndun í Danmörku: Jafnaðarmenn áttu fyrsta leikinn í flókinni refskák Árósum, frá Jens Anker Boje, Reportage Gruppen. BARATTAN um ráðherrastólana f Danmörku verður æ reyfarakennd- ari. Þrátt fyrir mikla hægri sveiflu f kosningnnum tókst jafnaðarmönn- um, öllum að óvörum, að vinna fyrstu lotu f stjómarmyndunarviðræðun- um. Poul SchlUter forsætisráðherra náði ekki stuðningi til að stjóraa viðræðum um myndun nýrrar rfkisstjórnar. Flestir eru þó aammála um að þrátt fyrir þokukennt ástand í stjórnmálum eftir kosningarnar verði mynduð ný borgaraleg stjóra f Danmörku. ikale venstre sem hafa óttast að Það var leikflétta fyrir kunnáttu- menn, þegar jafnaðarmenn komu í veg fyrir að Schliiter yrði útnefndur til að mynda nýja stjóm síðastliðinn miðvikudag. Jafnaðarmenn vita sem er að „þungavigtarflokkurinn", Rad- ikale venstre, treystir ekki nýja form- anni þeirra, Svend Auken. Fyrst Auken var annar tveggja sem valið stóð um hefði mátt ætla að Radikale venstre myndi benda á Schluter sem hinn kostinn. Því gerðu jafnaðar- menn það að tillögu sinni að forseti þingsins, Svend Jakobsen, yrði út- neftidur til að hafa forystu í stjómar- myndunarviðræðum. Þessa tillögu gat Radikale venstre sætt sig við. Svend Jakobsen nýtur mestra vin- sælda allra jafnaðarmanna hjá Rad- Schluter vildi aðeins málamyndavið- ræður við jafnaðarmenn og að hann vildi ekki mynda stjóm á breiðum grundvelli. Svend Jakobsen var útnefndur til að kanna stöðuna. Borgaraflokkam- ir, sem eiga samtals 89 þingmenn, vildu að Schluter hefði forystu í stjómarmyndunarviðræðum, 90 þingmenn völdu Jakobsen. Hinn B3 ára gamli þingforseti hefur fengið hlutverk sáttasemjara. Hann mun ræða við alla flokka sem eiga menn á þingi og reynir eftir það að setja saman steftiuskrá sem líkleg er til að hljóta samþykki sem flestra flokka. Þrátt.fyrir að Jakobsen sé jafnaðarmaður á hann nú að takast á við þetta nýja hlutverk án þess að láta skoðanir sínar og hagsmuni flokks síns hafa áhrif á gang mála. Þetta gæti reynst mörgum ill- mögulegt, en Jakobsen er ef til vill eini danski stjómmálamaðurinn sem getur greitt úr þeirri ruglingslegu flækju sem ríkir í dönskum stjóm- málum eftir kosningamar á þriðju- daginn. Hann er ekki maður sem fær menn gegn sér og rólegt fas og norð- ur-jóskur framburður vekur traust. Stjómarmyndunarviðræðumar geta tekið langan tíma. Eftir þær könnunarviðræður, sem nú fara fram, þarf drottning að veita ein- hveijum formlegt umboð. Fæstir trúa á draumsýn Radikale venstre um samsteypustjóm. Dönsku flokkamir skiptast enn f fylkingar og sú stund er ekki mnnin að hægt sé að rffa niður þá hugmyndafræði sem býr að baki skiptingunni. Valið stendur á milli borgaralegrar rfkisstjómar og stjómar jafnaðarmanna. Milli Schlöt- ers og Aukens. Það er óhugsandi að jafnaðarmenn vilji tefla fram öðmm manni en Auken til þess eins að þóknast Radikale venstre. Jafnaðarmenn em komnir í sókn á ný. Þeim hefur tekist að hafa hem- il á Schluter í fyrstu lotu. Nú vilja þeir að samstaða náist um að ein- angra Framfaraflokkinn, sem jók fylgi sitt allra mest f kosningunum, en hann er lengst til hægri af flokk- unum. Þetta styðja radikalar. Þeir em sammála jafnaðarmönnum og Sósfalfska þjóðarflokknum f vamar-, menningar-, umhverfis- og félags- málum. Saman mynda þessir þrír nauman meirihluta á þingi. Fyrmm efuðust radikalir um hæfni vinstri- flokkanna f efnahagssfjómun, en nú er greinilega að verða breyting á því. Margt bendir til þess, á pappímum að minnsta kosti, að þessir þrír flokk- ar nái saman en stóra spumingin er hvort radikalar geti losað sig við vantrúna á Svend Auken. í kosninga- baráttunni hafa þeir margsagt að þeir vilji hann ekki sem forsætisráð- herra. Sé tekið mark á þvf má vænta borgaralegrar ríkissfjómar. Fjögurra flokka stjóm kemur varla til greina á ný. Annars vegar vegna þess að sfðasta rfkisstjóm fjögurra flokka féll vegna innbyrðis deilna. Hins vegar vegna þess að flögurra flokka sfjóm með fulltingi radikala er ekki nægilega sveigjanleg. Af til- Svend Jakobsen. finningalegum ástæðum er einnig nauðsynlegt að sýna fram á, að lagt sé inn á nýja braut. Margir giska á að þetta myrka ástand f dönskum sljómmálum verði leyst með því að mynduð verði minnihlutastjóm Vens- tre, fhaldsmanna og radikala. Sumarbúðirnar Ásaskóla Gnúpverjahreppi Hálfsmánaðar dvöl fyrir börn á aldrinum 7-10 ára. Góð iþrótta- aðstaða, sundlaug, farið á hestbak og margt fleira. Upplýsingar í símum 99-6051 og 91 -651968. Trimmgallarbarna \ frá kr. 590 (fwá Trimmgallar fyrir dömur JMr\ frá kr. 1.290 s Ym/\ Trimmbolír frá kr. 490 Gallabuxur barna / v < ■BHb frá kr. 590 V v' Wijjmrr Sportskór barna^^Sl a v / frá kr. 290 X I T-bolir, hvítír, kr. 190 Sokkar-3 pör-kr.250 ■f Gúmmístígvél \ ■ frá kr. 500 ) \ Herranáttföt kr. 490 Leðugakkar frá kr. 4.900 Leðurskór frá kr. 500 _ IÐnAÐARMAMMAHÖSiriU ■ HALLVEIQARSTÍQ 1 Opið 12—18 vírka daga 10-16 laugardaga Mynd tekin af sjónvarpsskjá þegar japanska sjónvarpið var með beina útsendingu af hátindi Everest. Tólf menn komust á tindinn, en aldrei hafa fleiri verið þar samtfmis. Bein útsending frá Everest-fjalli FYRIR skömmu hittust tveir hóp- ar fjallgöngumanna frá Japan, Kina og Nepal í 8.848 metra hæð á hátindi Everest-fjalls. Höfðu þeir lagt upp samtfmis frá sitt- hvorri hlið fjallsins. Annar hópur- inn kleif tindinn sunnanmegin en hinn norðanmegin, er þetta i fyrsta sinn í sögunni sem tveir hópar taka sig saman um að hitt- ast á tmdinum. Fjallgöngumaður frá Nepal lýsti leiðangrinum sem, „heimsins mesta afreki í fjallgöngu," en leiðangurinn vann ekki aðeins sigur í Qallgöngu heldur var unninn mikill tæknilegur sigur. Þetta er f fyrsta sinn sem sjón- varpsmyndavélar komust á tindinn og f fyrsta sinn sem fólki gefst færi á að sjá í beinni útsendingu klifur- garpa komast á tindinn. Stórbrotna myndatökuna má þakka japanska sjónvarpinu (NTV) og stærsta dagbiaði Japans Yomiuri Shimbun, sem kostuðu leiðangurinn. Þetta er fjölmennasti hópur sem unnið hefur að þvf að sigra fjallið. Yfir 200 manns unnu að undirbún- ingi ferðarinnar og kostnaðurinn nam 12,5 miiljónum dollara (náiægt 490 milljónum íslenskra króna). Leið- angurínn, sem farinn var til að minn- ast þess að 35 ár eru liðin frá því Sir Edmund Hillary og fylgdarmaður hans klifu fyrstir Everest f maí árið 1953, hófst í mars. Undirbúningur fararinnar hófst rúmlega ári áður. Japanskir tæknimenn þurftu að hanna nýjan búnað sem hentaði til fararinnar. Síðastliðið vor var byggð undirstaða undir fimm tonna loft- netsmastur sem komið var fyrir 2800 metrum meðan við hátindinn. Síðar var sett upp stjórnstöð fyrir sjón- varpsútsendingar með tveimur stór- um rafölum í grerind við mastrið. Japanska sjónvarpið sá um hönnun á sérstökurá * gjónvarps- myndavélum, sendum og rafhlöðum sem bæði voru nægilega léttar og sterkar til að henta til fjallaklifurs. Japanskur sjónvarpsmaður hafði slíka vél festa á hjálm sinn og vóg hún innan við 600 grömm. Einn starfsmanna japanska sjónvarpsins hafði á orði að vélin væri með svo flóknum búnaði að yrði hún skilin eftir í Kína bryti það í bága við sam- þykktir vestrænna ríkja um bann við flutningi á hátæknibúnaði til komm- únistaríkja. Tækjabúnaðurinn virkaði óaðfinn- anlega. Mjmdboð bárust frá hátindi Everest til stjómstöðvarinnar fyrir neðan, þaðan voru þau send mót- tökutækjum þvert yfír fjallið til gervihnattar yfir Indlandshafi. Á sjónvarpsskjám víða um heim birtust svo mjmdir frá tindinum sem voru jafn tærar og háfjallaloftið á tindin- um sjálfum. Japanska sjónvarpið sýndi mjmdir frá höfuðstöðvum leið- angursmanna og frá ferð þeirra á tindinn. Þegar garpamir komust á hátindinn fékk almenningur í Japan að taka þátt í gleðilátum þeirra. Jap- anska sjónvarpið leyfði ættingjum mannanna að ræða við þá í beinni útsendingu. Ekki voru allir jafn hrifnir af þessu uppátæki. Margir flallagarpar telja að með því að fara með hátæknibún- að til fialla sé verið að eyðileggja ævintýraljómann sem jafnan hefur stafað af slíkum ferðum. Einn þeirra sem hafa gagnrýnt leiðangurinn er fyrrum fjallgöngumaður frá Nepal. „Það er ekki jafn ögrandi og spenn- andi og áður að klífa fjöll,“ segir hann. Þrátt fyrir þetta er fullbókað fyrir leiðangra á Everest fram til ársins 1990 og fullvíst að gangan á hæsta fjall í heimi mun ekki valda vonbrigðum þeim sem rejma að kiífa tindinn. Byggt & Newaweek
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.