Morgunblaðið - 14.05.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.05.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988 Stjórn Héraðshælisins Blönduósi: F ormaðurinn segir af sér vegna ráðning- ar framkvæmdastjóra JÓN ísberg formaður stjórnar Héraðshælisins á Blönduósi hef- ur sagt af sér formennsku og stjórnarsetu vegna ráðningar framkvæmdastjóra að sjúkra- húsinu. Jón hefur gegnt for- mennsku i stjóminni i hartnær þijátíu ár. Jón studdi Þuriði Hermannsdóttur i stöðuna, en meirihluti sjúkrahússtjómarinn- ar ákvað á fundi í gær að ráða Bolla Ólafsson sem hefur verið framkvæmdastjóri sjúkrahússins á Patreksfirði. Þuriður er frá Blönduósi og hefur gegnt störf- um framkvæmdastjóra sjúkra- hússins undanfarin þijú ár. Flugliðar til ríkis- sáttasemjara Vinnuveitendasamband ís- lands hefur fyrir hönd Flugleiða vísað kjaradeilu félagsins við Félag islenskra atvinnuflug- manna, Flugfreyjufélag íslands og Flugvirkjafélag íslands til ríkissáttasemjara. Flugleiðir hafa átt í beinum við- ræðum við félögin um hríð, en þær ekki skilað neinum árangri. Mikið ber á milli aðila, en samningar hafa verið lausir frá því um áramót. Amarflug er ekki í VSÍ og semur beint við félögin. Stjóm Héraðshælisins á Blöndu- ósi ákvað í gær að ráða Bolla í stöð- una. Fjórir stjómarmanna greiddu honum atkvæði, en einn, Jón ísberg formaður stjómarinnar, greiddi Þuríði atkvæði. Sjö umsækjendur voru um stöð- una, fímm karlar og tvær konur. Nefnd sem mat hæfni umsækjenda dæmdi tvo óhæfa og skipaði Bolla í efsta sæti þeirra sem hæfír vom taldir. Nefndin skipaði Þuríði í ?órða sætið og hina konuna neðsta. nefndinni eiga sæti Jón Ingimars- son, Davíð Á. Gunnarsson og einn heimamaður skipaður af sýslu- nefíid. Jón ísberg sagði í samtali í gær, að hann hefði stutt Þuríði Her- mannsdóttur í starf framkvæmda- stjórans vegna góðrar reynslu af störfum hennar við sjúkrahúsið síðastliðin 14 ár. Síðustu þijú ár hefur hún unnið störf flármálastjóra og að verulegu leyti starfað sem framkvæmdastjóri. „Þetta er ein af fáum sjúkrastoftiunum sem hefur getað starfað innan ramma fjárlaga og það segir sína sögu um að þar sé vel stjómað. Það eru ekki til óánægjuraddir hjá starfsfólkinu. Ég hef verið þama formaður í hart- nær þijá áratugi og ég treysti Þuríði best til að gegna starfí fram- kvæmdastjórans. Eg vil á engan hátt hnjóða í Bolla enda þekki ég hann ekki neitt, en ég veit hvað ég hef, ekki hveiju ég tek við. Þess vegna hætti ég nú og ég tel að við skiljum vel við,“ sagði Jón ísberg. Morgunblaðið/Sverrir Frá setningu aukaþings VMSÍ í gær á Hótel Sögu. Aukaþing Verkamannasambands Islands; Skipulagsbreytingarnar ná ekki fram að ganga nú á skipulagi BREYTINGAR a skipn Vprkamannaaamhftnds lslands munu ekki ná fram að ganga á aukaþingi sambandsins, sem hófst í gær, eins og var fyrir- hugað, þar sem einungis er leyfi- legt að breyta lögum á reglulegu sambandsþingi. Skipulagsbreyt- ingarnar gera ráð fyrir stofnun þriggja atvinnugreinadeilda inn- an VMSÍ, fiskvinnsludeild, deild byggingariðnaðar og mann- virkjagerðar og deild starfs- manna ríkis og sveitarfélaga. Verkamannafélagið Fram á Póstur og sími: Allir starfsmenn Jarðsíma- deildar frá vegua veikinda 100 símnotendur sambandslausir í Hlíðahverfi TÍU simsmiðir og linumenn i Jarðsímadeild Pósts og síma til- kynntu veikindi i gærmorgun og mættu aðeins verkstjórar deild- arinnar til vinnu. Forföllin urðu til þess að ekki hefur enn verið gert við símstreng í Hlíðahverfi í Reykjavík og munu nú um 100 simnotendur vera sambandslaus- ir af þeim sökum, samkvæm upp- lýsingum frá bilanatilkynningum Fréttasigóri Sjónvarps: Bogi Ágústsson meðal um- sækjenda Á FUNDI útvarpsráðs i gær, var lagður fram listi með nöfnum þeirra fimm, sem sækja um stöðu frétta- stjóra Sjónvarpsins. Umsækjendur eru: Helgi H. Jónsson, aðstoðarfrétta- stjóri, dr. Sigrún Stefáns- dóttir, Ögmundur Jónasson fréttamaður, Hallur Hallsson fréttamaður og fímmti um- sækjandinn er Bogi Ágústs- son fréttafulltrúi Flugieiða en hann óskaði eftir nafn- leynd. Aukafundur verður haldinn í útvarpsráði næst- komandi þriðjudag og verður þá gengið frá ráðningu fréttastjóra. Pósts og sima í siðdegis i gær. Talið er víst að forföll simsmið- anna standi i sambandi við það að yfirstjóm stofnunarinnar gaf út á dögunum fyrirmæU um að sækja þyrfti sérstaklega um leyfi til yfirstjórnar stofnunariniiar fyrir yfirvinnu sem unnin er eft- ir klukkan sjö á kvöldin. Ágúst Geirsson símstjóri sagði að óskað hefði verið eftir því við þá starfsmenn sem boðuðu veikindi að þeir framvísi iæknisvottorði. Hann sagði ljóst að allir hefðu starfsmennimir þegar uppfyllt þá lagaskyldu, sem á opinberum starfsmönnum hvílir, að vinna yfír- vinnu sem samsvarar allt að Va hluta hverrar dagvinnuviku. Ágúst sagði engar viðræður hefðu farið fram við starfsmennina enda hefði ekki borist frá þeim kröfugerð. Hann sagði að stofnunin hefði eng- in úrræði til að láta gera við streng- inn fyrr en starfsmenn Jarðsíma- deildar mæti til vinnu að nýju. Hann sagði að ekki hefði verið rætt um að stofnunin breyti þeirri stefnu sinni að dregið skyldi stór- lega úr yfirvinnu. „Það hafa verið erfiðleikar í rekstri stofnunarinnar og þessum tilmælum var beint til allra deilda til að reyna að láta enda ná saman," sagði Ágúst Geirs- son símstjóri. Starfsmenn jarðsímadeildar telja að þeir séu færri en eðlilegt geti talist miðað við fyrirliggjandi verk- efni. Yfírvinna mun á liðnum ámm hafa vegið þungt í launakjömm þeirra. Þeir tóku því fyrirmæli yfír- stjómarinnar óstinnt upp, neituðu að vinna að viðgerðum við strenginn í Hlíðunum að lokinni dagvinnu á miðvikudag og boðuðu veikindi allir sem einn í gærmorgun. Forsetakjör: Sigrún Þorsteinsdótt- ir hyggur á framboð LISTAR með undirskriftum með- mælenda Sigrúnar Þorsteinsdótt- ur til forsetakjörs voru I gær lagð- ir fram i Reykjavík og að sögn blaðafulltrúa hennar hafa slikir listar þá veríð lagðir fram til yfir- kjörstjóma i öllum kjördæmum landsins. Vigdis Finnbogadóttir forseti íslands gaf út þá yfirlýs- ingu 20. nóvember siðastUðinn, að hún yrði við þeim tílmælum, sem til hennar hafí veríð beint um að hún gefi kost á sér við forsetakjör fyrir næsta kjörtímabil. Umboð8menn Vigdísar Finnboga- dóttur forseta íslands eru Svanhildur Halldórsdóttir fulltrúi, Háaleitisbraut 30, og Þór Magnússon þjóðminja- vörður, Bauganesi 26, bæði f Reykjavík. Að sögn Áshildar Jónsdóttur blaðafulltrúa Sigrúnar Þorsteins- dóttur er búið að safna nægum með- mælendum í öllum kjördæmum. Framboðsfrestur rennur út næst- komandi föstudag, 20. maí. Seyðisfírði mótmælti því með skeyti nú í vikunni að aukaþingið væri fært um að breyta lögum sam- bandsins og áskildi sér rétt til þess að kæra niðurstöðuna ef af yrði. Því kom fram tillaga frá fram- kvæmdastjóm um að einungis ein umræða færi fram á þinginu um lagabreytingamar og stjómir deilda yrðu kjömar, en málið yrði endan- lega afgreitt á næsta reglulega sambandsþingi, sem verður haldið haustið 1989. Hallsteinn Friðþjófsson, formað- ur Fram á Seyðisfirði, skýrði af- stöðu félags sfns á þinginu. Hann sagðist ekki telja rétt að breyta skipulagi VMSÍ f þessa vem, breyt- ingar á skipulagi sambandsins ætti að afgreiða í framhaldi af breyting- um á heildarskipulagi Alþýðusam- bands íslands. Skipulag ætti að stuðla að einingu í verkalýðshreyf- ingunni, en þessi tillaga gengi í öfuga átt. Verkalýðshreyfingin hefði lært það af kjarasamningun- um í vetur að sundmng skilaði ekki árangri. í máli annarra þingfulltrúa kom fram að deildaskiptingin væri skref í áttina að atvinnugreinaskiptingu stéttarfélagana, sem væri löngu orðin tímabær. Núverandi skipulag væri arfur fortíðarinnar og tíma- skekkja miðað við þá sérhæfíngu sem sífellt færi vaxandi. Steftia bæri að því að faglærðir og ófag- lærðir í sömu starfsgrein væru í einu og sama félaginu og að vinnu- staðurinn yrði grunneining í upp- bypgjngru verkalýðsfélaganna. Þinginu verður framhaldið í dag. Þá fer fram kosning fimm manna sljómar fyrir hveija deild og þriggja manna varastjómar. Búist er við að nokkur átök verði um kjör for- manns og stjómar deildar físk- vinnslufólks. Þá má einnig gera ráð fyrir því að þingið álykti um vænt- anlegar efnahagsráðstafanir rfkis- stjómarinnar. Skartgrip- um stolið ÞJÓFUR lét greipar sópa um sýningarglugga Jóhannesar Leifssonar gullsmiðs í fyrrínótt. Talið er að verðmæti skartgríp- anna sem stolið var sé hátt í tvö hundruð þúsund krónur. Lögreglan í Reykjavík varð vör við það um kl. 7 í gærmorgun að rúða í verslun Jóhannesar að Laugavegi 30 var brotin. í samtali við Morgunblaðið sagði Jóhannes að sér virtist sem 18 gullkeðjum hefði verið stolið úr glugganum og væri verðmæti þeirra hátt á annað hundrað þúsundir króna. Rannsóknarlögregla rfkisins vinnur nú að rannsókn á þessum þjóftiað’ Landsvirkjun: Enginn búnaður í Búrfelli með PCB Skipt um níu litla spenna 1 Sigöldu og Kröflu MORGUNBLAÐINU barit i gœr eftírfarandi í Morgunblaðinu fímmtudaginn 12. þ.m. er á baksíðu birt frétt um skaðlegt eiturefni í spennubreytum, er nefnist PCB Askarel. í frétt þess- arri er fullyrt að tækjabúnaður Búr- fellsvirlq'unar innihaldi þetta efni og að vatn sem knýr hverfla virkjunar- innar sé síðan notað sem neysluvatn fjölda fólks. Hér er um staðlausa stafí að ræða, sem Landsvirkjun vísar algjörlega á bug sem tilhæfu- lausum fullyrðingum. Staðreyndin er sú að enginn búnaður í Búrfells- stöð, hvorki spennar, þéttar né ann- ar búnaður inniheldur einangrunar- vökvann PCB Askarel. Við Búrfell er því engin hætta á mengun vegna efnis þessa og því af og frá að gefa í skyn eins og gert er í frétt Morgun- blaðsins að neysluvatni Qölda fólks sé hætta búin vegna notkunar um- rædds efnis. Á hinn bóginn er efnið, sem hér athugasemd frá Landsvirkjun: um ræðir, notað sem einangrunar- efni í fimm litlum spennum í inntaks- mannvirkjum Sigöldustöðvar og Qórum litlum stöðvamotkunar- spennum Kröflustöðvar. Hverfandi hætta er á að einangrunarvökvi frá þessum spennum geti borist út í árvatn eða drykkjarvatn. Starfs- mönnum Sigöldustöðvar og Kröflu- stöðvar getur þó stafað hætta af efni þessu í eldsvoða. Var því á síðastliðnu ári ákveðið að skipta um hlutaðeigandj spenna og verður það gert á þessu ári. Þess skal. að lokum getið að sú stefíia vaf tekín upp af Landsvirkjun fyrir um 10 árum síðan að hafna í eitt skipti fyrir öll notkun efnisins PCB Askarel í nýjum rafbúnaði hjá Landsvirkjun.' F.h. Landsvirkjunar, Halldór Jónatansson, forstjóri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.