Morgunblaðið - 14.05.1988, Side 38

Morgunblaðið - 14.05.1988, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Rafvirkjar - raffræðingar Við óskum að ráða duglegan og áhugasaman starfskraft til sölustarfa. Leitað er að aðila með góða almenna þekk- ingu á rafmagnsvörum, sem vill læra meira og fylgjast með nýjungum. Um er að ræða lifandi framtíðarstarf fyrir hugmyndaríkan og drífandi aðila. nfelLYr Skipholti 35. Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarheimilið Garðvang í Garði bráð- vantar hjúkrunarfræðinga til starfa strax. Við bjóðum: Stöðu deildarstjóra (100% stáða). Sveigjanlegan vinnutíma fyrir almennan hjúkrunarfræðing. Einbýlishús. Góða vinnuaðstöðu. Tækjakostur er góður. Góðan starfsanda. Þeir ykkar, sem áhuga hafa, vinsamlegast hafið samband sem fyrst. Nánari upplýsingar veita hjúkrunarforstjóri í síma 92-27151 og framkvæmdastjóri í síma 92-27351. Verslunarstjórn Kaupfélag A-Skaftfellinga óskar að ráða verslunarstjóra í vefnaðardeild og bóka- og búsáhaldadeild félagsins á Höfn. Menntun á verslunar- eða viðskiptasviði æskileg, auk starfsreynslu úr atvinnulífinu. Umsóknir sendist til Einars H. Björnssonar eða Eiríks Sigurðssonar fyrir 20. maí nk. sem veita nánari upplýsingar í síma 97-81200. Kaupféiag Austur-Skaftfellinga, Höfn, Hornafiröi. Verslunarstörf Gjafavöruverslun í miðbænum óskar að ráða starfskraft til starfa. Vinnutími frá kl. 1 -6. Upplýsingar um aldur og fyrri störf óskast sendar til auglýsingadeild Mbl. fyrir 17. maí merktar: „Verslunarstörf - 2759“. Sumarstarf óskast Ung og hress kona óskar eftir sumarstarfi. Stundar nám við fjármálabraut Ritaraskól- ans. Margt kemur til greina. Upplýsingar í síma 46894 fyrir hádegi. Fiskiðnaðarmaður óskar eftir matsstarfi á Stór-Reykjavíkur- svæðinu. Upplýsingar í síma 79190 á daginn. ) - Á liðnum árum hefur HONDA CIVIC tekið breytingum og sífellt orðin betri og glæsilegri. - Enn á ný hefur HONDA tekið forustuna í hönnun bíls hvað varðar tækni og útlit, sann- kölluð fyrirmynd annarra. - í CIVIC er lagt til grundvallar að fá sem mest rými og þægindi fyrir ökumann og far- þega. Því er náð með hinni nýju tvíbeinsfjöðrun (Double wishbone) að framan og aftan og um leið frábærum aksturseiginleikum, er gefa stóru bílunum ekkert eftir. - Nú eru allir CIVIC bílarnir með 16-ventla vélum og þú hefur valkost um 1,3L 75 hest- öfl, 1,4L 90 hestöfl, 1,6Li 116 hestöfl eða 1,6i DOHC 130 hestöfl. Kynntu þér Honda Civic, valkost vandlátra. HONDA/WILLIAK heimsmeistari í Formúlu 1 .. \ '86 og '87 (j A ISLANDI, VATNAGORÐUM 24 Háteigskirkja Kaffisala Kvenfélags Hateigskirkju Kvenfélag Háteigssóknar stend- ur fyrir kaffísölu í Domus Medica sunnudaginn 15. maí og hefst hún kl. 15.00. Allur ágóði rennur til kaupa á altaristöflu í kirkjuna. Nú stendur yfir lokaátak kvenfé- lagsins vegna kaupa á altaristöfl- unni. Mikið hefur safnast, en herslumuninn vantar til þess að kvenfélagið geti staðið við allar skuldbindingar sínar, en það kostar kaup, gerð og uppsetningu myndar- innar, sem er eftir Benedikt Gunn- arsson, listmálara. Öll gögn eru nú komin til Þýskalands og mun lista- maðurinn fara bráðlega út þangað til að velja eftii í myndina í sam- ráði við mósaikgerðarmenn í Munchen, sem setja munu myndina upp hér í október, ef allt fer eftir sem ætlað er. Þetta er líklega stærsta verkefti- ið, sem kvenfélagið hefur ráðist í. Margt hafa konumar vel gert og staðið stórmannlega að öllu, sem þær hafa komið nálægt. Eru þeim færðar hugheilar þakkir fyrir allt þeirra starf, sem þær hafa unnið á þeim þijátíu og fímm árum, sem félagið hefur verið við lýði, ekki síst fyrir það sem hvergi sést en yljar hjörtum og gleður. Til ham- ingju og haldið ótrauðar áfram. I þetta skipti sem öll önnur leggja konumar sig allar fram við að búa út og bjóða fjölbreytt og gimilegt veislukaffi. Hvet ég því Háteigs- söftiuð og velunnara Háteigskirkju að fjölmenna í Domus Medica á sunnudaginn með gesti sína og njóta veislunnar og samfélagsins og stuðla að því, að altaristafla prýði Háteigskirlqu á þessu ári. Tómas Sveinsson sóknarprestur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.