Morgunblaðið - 10.04.1987, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1987
46
Minning:
Martin Hansen
Fæddur 19. febrúar 1905
Dáinn 3. apríl 1987
Um þessar mundir eru liðin ein
40 ár síðan ég fyrst kynntist þeim
hjónum, Önnu Jónsdóttur og Martin
Hansen. Jón, sonur þeirra var skóla-
bróðir minn og vinur og það kom
af sjálfu sér, að ég kom á heimili
þeirra á Njarðargötu 35, hér í borg.
Má með sanni segja, að næstu árin
hafí hafí heimili þeirra Önnu og
Martins verið mitt annað heimili.
Myndaðist þá á milli okkar sú vin-
átta, sem enst hefír fram á þennan
dag og aldrei hefír borið skugga
á. Anna og Martin bjuggu á neðri
hæð hússins ásamt tveimur börnum
sínum, en á efri hæðinni bjó Svava
Jónsdóttir, systir Önnu, ásamt fímm
dætrum. Voru bömin öll á svipuðum
aldri og samgangur mikill milli
heimilanna. Var þama í þaun um
að ræða eina stóra, samhenta fyöl-
skyldu. Á þessum árum varð til
óvenju stór og samhentur hópur
skólafélaga, vina og kunningja okk-
ar Jóns. Hittumst við oft í viku á
heimili þeirra Önnu og Martins og
var þá ýmislegt brallað. Var þá oft
ærslast fram á nótt og vildi það
stundum gleymast, að húsráðendur
þurftu að mæta til vinnu að morgni.
En aldrei var kvartað og ávallt
mætti okkur sama ljúfa viðmótið
hjá þeim hjónum. Veit ég að marg-
ir okkar eiga sínar bestu minningar
unglingsáranna frá þessum tíma.
Martin Hansen var fæddur í
Noregi 19. febrúar 1905. Ekki kann
ég að rekja ættir hans, en í Noregi
mun hann eiga stóran frændgarð.
Útþráin leitaði á Martin eins og
frændur hans forðum og lá leið
hans til íslands. Má segja að þá
hafi örlög hans ráðist. Hann hittir
konuefni sitt, Önnu Jónsdóttur frá
Eskifirði, og gengu þau í hjónaband
á sumardaginn fyrsta 1932. Höfðu
þau lifað saman í ástríku hjóna-
bandi í 55 ár er Martin lést hinn
3. apríl sl. á 83. aldursári. Martin
og Ánna eignuðust tvö böm, Jón
og Gyðu. Hafa þau bæði stofnað
eigin heimili. Bamabömin em sex.
Martin var einstaklega ljúfur
maður. Hann var nokkuð dulur við
fyrstu kynni en var hrókur alls
fagnaðar í góðum hópi. Hann var
gæfumaður í lífinu, eignaðist góða
konu, góð böm og tengdaböm, og
sá bamabömin vaxa úr grasi og
þroskast. Hann var drengur góður
í orðsins fyllstu merkingu. Böm
hændust að honum og lýsir það
mannkostum hans betur en mörg
orð.
Eftir að ég varð einn af fjöl-
skyldunni á efri hæðinni má segja,
að ekki hafi liðið sú vika að við
hittumst ekki, ef því varð við kom-
ið. Er ég forsjóninni þakklátur fyrir
að hafa mátt eiga hann að vini og
samferðamanni í lífínu. Bömin okk-
ar Sísíar minnast hans með þakk-
læti og virðingu. Fjórða kynslóðin
var farin að heilsa upp á Önnu
frænku og Martin og þiggja í lófann
eða klapp á kollinn.
Martin var mikill áhugamaður
um laxveiði. í mínum huga var
hann listamaður á því sviði. Held
ég að fá sumur hafí liðið án þess
að hann kæmist í einhveija á til
að kasta flugu. Ég minnist sérstak-
lega einnar veiðiferðar í Hrútafjarð-
ará, þegar hann dró níu eða tíu
laxa á klukkutíma og að sjálfsögðu
alla á flugu. Þá var kátt í hópnum.
Fyrir drengskap veiðifélaga sinna
gat Martin stundað þessa eftirlætis-
iðju sína allt fram undir það síðasta.
Oft kom það fyrir, þegar gengið
var fram hjá stofuhurðinni á neðri
hæðinni, að fram á ganginn bámst
fíðlutónar. Var þar komin fíðlan
hans Martins, sem ég man eftir frá
fyrstu tíð. Hann spilaði fyrir sjálfan
sig. Ekki þekkti ég lögin, en gat
þess mér til að þar væri um að
ræða norska alþýðu- og sveitatón-
list. Fannst mér þá að hugur hans
væri heima í dölum Noregs.
Anna mín, við missi ástvinar eru
orð fánýt. Samúðarkveðjur og
þakkir fyrir áralanga samfylgd og
vináttu skulu þó sendar þér og fjöl-
skyldu þinni frá Svövu systur þinni,
dætrum hennar og fjölskyldum
L raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
X-D X-D
Hveragerði — Hveragerði
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er á Austurmörk 4, efri hæö,
sími 99-4870. Opið frá 17.00-22.00 virka daga og um helgar frá kl.
14.00-19.00. Stuðningsmenn vinsamlegast hafið samband við skrif-
stofuna.
Sjálfstæðisfélagið Ingólfur.
Norðurland vestra
Sameiginlegir framboðsfundir stjórnmálaflokkanna i Norðurlands-
kjördæmi vestra fyrir kosningarnar 25. apríl verða sem hér segir:
Á Hvammstanga, laugardag 11. apríl kl. 15.00.
Á Blönduósi, sunnudag 12. apríl kl. 20.00. (Útvarpsfundur).
Á Sauðárkróki, mánudag 13. apríl kl. 20.30.
f Siglufiröi, þriðjudag 14. april kl. 20.30.
Frambjóðendur.
Sjálfstæðismenn í Árbæ — Selási
— Ártúnsholti og Grafarvogi
Opið hús
laugardaginn 11. apríl nk. kl. 14.00-17.00 í Hraunbæ 102b. Við bjóð-
um upp á kaffi og meölæti og frambjóðendurnir verða á staðnum.
Hittumst öll i notalegu umhverfi og röbbum saman.
Stjórnirnar.
Akranes — Borgarfjörður
Sjálfstæðiskvenna-
félagið Báran,
Akranesi, heldur al-
mennan fund í Sjálf-
stæöishúsinu við
Heiðabraut, laugar-
daginn 11. apríl kl.
14.00.
Gestir fundarins
verða Sigríður Þórð-
ardóttir og Kristjana
Ágústsdóttir.
Konur eru hvattar til að mæta vel og taka með sér gesti.
Stjórnin.
Frá sjálfstæðis-
félögunum á
Eyrarbakka og
Stokkseyri
Þorsteinn, Eggert, Árni og Arndfs verða á
fundi á Eyrarbakka kl. 14.00 nk. sunnudag
og á Stokkseyri kl. 16.30 sama dag.
Stjórnirnar.
Hveragerði — Hveragerði
Stofnfundur Félags ungra sjálfstæðismanna verður haldinn á kosn-
ingaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins i Austurmörk 4, föstudaginn 10.
apríl kl. 20.30.
Undirbúningsnefnd.
Breiðhyltingar
Sjálfstæðismenn í Breiðholti
hafa opiö hús sunnudaginn 12. april á kosningaskrifstofu flokksins
að Þarabakka 3, 2. hæð, kl. 15.00-17.00. Við bjóðum uppá kaffi og
meðlæti.
Frambjóðendurnir Friðrik Sophusson, Geir H. Haarde og Sólveig
Pétursdóttir verða á staðnum.
Hittumst öll og ræðum málin.
Egilsstaðir — Austurland
Framtíð þín ífjórðungnum
Óðinn, félag ungra
sjálfstæðismanna á
Austurlandi, efnir tii
ráðstefnu um
byggðamál. Ráð-
stefnan veröur
haldin í Hótel Vala-
skjálf á Egilsstöðum
laugardaginn 11.
apríl nk. og hefst
hún kl. 14.00. Ráð-
stefnan er öllum
opin.
Dagskrá:
• Setning: Bóthildur Sveinsdóttir, formaður Óðins.
• Ávarp: Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra.
• Byggðastefna ungs fólks: Árni M. Mathiesen, dýralæknir, Hafn-
arfirði.
• Framtfðarmöguleikar f menntamálum: Inga Jóna Þórðardóttir,
aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra.
• Bættar samgöngur — forsenda byggðar: Theodór Blöndal, fram-
kvæmdastjóri, Seyöisfirði.
• Forsenda öflugs atvinnulffs: Kristinn Pétursson, framkvæmda-
stjóri, Bakkafirði.
• Almennar umræður.
• Ávarp og ráðstefnuslit: Egill Jónsson, alþingismaður.
• Ráðstefnustjóri: Gunnar Vignisson, skrifstofustjóri, Fellabæ.
Allir velkomnir.
Óðinn, FUS á Austurlandi.
Félag sjálfstæðismanna
í Langholtshverfi
— Opið hús —
Opið hús verður í félagsheimilinu, Langholtsvegi 124, laugardaginn
11. apríl kl. 14.00-17.00. Frambjóðendur koma við. Sjálfstæðismenn
og aðrir íbúar hverfisins eru hvattir til að líta inn, þiggja veitingar
og ræða málin.
Stjómin.
Hveragerði — Hveragerði
Almennur fundur um þjóðmál verður hald-
inn í Hótel Örk mánudaginn 13. apríl kl.
20.30. Frummælendur: Þorsteinn Pálsson,
Árni Johnsen, Eggert Haukdal og Arndís
Jónsdóttir. Allir velklomnir.
Sjálfstæðisfélagið Ingólfur.
Álftnesingar
Sjálfstæðisfélag
Bessastaöahrepps §s X
boöar til almenns ggÉÉ||yÖff|SBfc :
stjórnmálafundar
föstudaginn 10. f^QÉdP
apríl kl. 20.30 að .> ^ J* JBr
Bjarnarstöðum.
Ræöumenn: Matt-
hias Á. Mathiesen,
ÓlafurG. Einarssori, já
Gunnar G. Schram,
Ásthildur Pétursdóttir og Erla Sigurjónsdóttir.
Kvöldkaffi. Allt stuðningsfólk velkomið.
Stjórnin.