Morgunblaðið - 10.04.1987, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1987
Kristín S. Kvaran
„Árangnrinn sem náð-
ist í efnahagsmálum á
kjörtímabilinu undir
styrkri stjórn Sjálf-
stæðisflokksins hafði
áhrif á lífskjör almenn-
ings m.a. með því að
ýmis höft voru afnumin
og toilar og skattar ein-
faldaðir og lækkaðir.“
fremst haft í för með sér að fólki
er gert auðveldara að fylgjast með
stöðunni og gera langtíma áætlun
um líf sitt og störf. Þá hefur við-
skiptahallinn nú verið jafnaður út,
en það er höfuðskilyrði þess að
framfarir og uppbygging alhliða
atvinnulífs geti átt sér stað. Auk
þess hafa stór spor verið tekin til
raunverulegs frelsis t.d. í fjölmiðl-
um og á sviði gjaldeyrismála.
Árangurinn sem náðist í efna-
hagsmálum á kjörtímabilinu undir
styrkri stjórn Sjálfstæðisflokksins
hafði áhrif á lífskjör almennings
m.a. með því að ýmis höft voru
afnumin og tollar og skattar ein-
faldaðir og lækkaðir.
Framtíðin
Ef unnt á að reynast að halda
áfram á þessari braut er vissulega
nauðsynlegt að hér komist ekki til
valda flokkar sem hafa hvað eftir
annað valdið þjóðinni þeirri ógæfu
að glutra niður árangri sem náðst
hefur fyrr en hönd á festir.
Þess vegna er bráðnauðsynlegt
að Sjálfstæðisflokkurinn fái fylgi í
komandi kosningum sem nægja
mun til að varðveita þennan árang-
ur. Með því veitum við Sjálfstæðis-
flokknum tækifæri til að leiða
þjóðina áfram út úr þeim ógöngum
sem hún áður var læst í undir stjórn
vinstri flokkanna fyrir kosningarn-
ar árið 1983.
Höfundur er alþingismaður.
■
<<5
oo
.
,
■
2í000T000hvm
L\ ,i i.ii,i ■-1 i i i é fi.
(to®7
600T000
station
uDBS7
SUBA’RUJIJUSWi
350T000
APRÍL
DREGIÐ
14
1987
—
Islands
Slysavamaf
91
27600
27600
91
Rautt og
svart
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓHÚSIÐ
RAUÐA SONJA —RED
SONJA ★
Leikstjóri Richard Fleischer.
Aðalhlutverk Arnold
Schwartzenegger, Birgitte
Nielsen, Sandalah Bergman,
Paul Smith. Bandarísk. DEG
1985. 90 mín.
í þessari afleitu sverða- og
særingamynd er öll ógæfa jarð-
arbúa samankomin í grængló-
andi, egglaga töfragrip. Er
hann orðinn svo kyngimagnað-
ur að það verður að mélbijóta
hann hið fyrsta, annars er
mannkyninu voðinn vís. Er
gripurinn í umsjá Guðrúnar
drottningar, hinnar grimmu.
Þá koma til sögunnar Sonja
hin rauða, illræmdur kvendjöf-
ull, og Arnaldur svartinaggur
og fá þau í sameiningu brotið
ógnarveldi drottningarfálunnar
á bak aftur og tortímt örlaga-
gripnum græna.
Lesendur Morgunblaðsins
kannast sjálfsagt margir hvetj-
ir við heljarmennisígildið Rauðu
Sonju sem kryddaði gjaman
myndasöguna af Conan villi-
manni. Kvikmyndin er keimlík
þeim um villimanninn, en þó
að Amaldur vinur vor komist
að líkindum seint á verðlauna-
pall sökum leikhæfileika virkar
hann eins og prófessor í leiklist-
arfræðum við hliðina á kven-
peningi myndarinnar. Ef
einhver hefði sagt mér að Birg-
itte Nielsen ætti framtíð fyrir
sér á hvíta tjaldinu eftir þessa
útreið hefði ég hiklaust fullyrt
að kraftaverk þyrfti til. Og það
er orðin staðreynd, holdi klaedd
og nefnist Sylvester Stallone.
Ef nú ólíkt komið með þeim
hjónakomum frá því þessi
mynd var gerð því nú nennir
enginn orðið að sjá „ítalska
folann“, sbr. afleita aðsókn að
nýjustu mynd hans, Over the
Top, en hið spengilega, dansk-
ættaða kyntröll hefur rétt
nýlokið við að leika í þeirri
mynd sem álitin er að verði sú
vinsælasta í ár — Beverly Hills
Cop II!
Að öðru leyti er þetta mið-
alda særinga- og sverðaglam-
ur hvorki verra né betra en
þessar myndir yfir höfuð og
sjálfsagt þolanleg afþreying
fyrir ákaflega nægjusama
áhorfendur.
Þitt er valið
eftir Kristínu S.
Kvaran
Það er góð regla þegar horft er
til framtíðar að líta til liðinna ára.
Það hressir upp á minnið og ýtir
oft á tíðum hastarlega við ýmsum
þáttum sem hafa á þægilegan hátt
horfið í undirmeðvitundina en mega
auðvitað alls ekki gleymast.
Efnahagsmál 1983
Það er til dæmis gott að hafa
það hugfast að fyrir fjórum árum
ríkti hér óðaverðbólga í orðsins
fyllstu merkingu. Þá var svo komið
að hún var orðin 130% og augljóst
að aðalatvinnuvegir landsmanna
myndu stöðvast innan tíðar, vegna
hins gífurlega tjóns sem þeir þurftu
að bera. Viðskiptahallinn var ógn-
vekjandi og stöðug aukning er-
lendra skulda virtist vera
óhjákvæmilegur fylgifiskur íslensks
efnahagslífs.
Þessir þættir nllir voru veruleg
ógnun við efnahagslegt sjálfstæði
þjóðarmnar og við blasti kreppa og
atvinnuleysi.
Efnahagsmál árið 1987
Verðbólgan er komin niður í um
það bil 13%. Það hefur fyrst og