Morgunblaðið - 20.03.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
66.tbl. 75. árg.
FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1987
Fyrsti blaðamannafundur Reagans í fjóra mánuði:
Búist við spurninga-
hríð um Iranmálið
Wales:
Tveggja
mínútna
ævintýri
Pontypridd, Wales. AP.
ALLT ætlaði um koll að keyra,
áhorfendur fögnuðu ákaflega og
Sharron Gardiner tók grátandi
af gleði við kórónunni sem
Ungfrú Wales árið 1987. Þessi
dýrðlega stund stóð í tvær mínút-
ur sléttar.
Þegar Gardiner, 23 ára gömul
ljóska, hafði notið sigursins þessa
stuttu stund þaggaði kynnirinn, Eric
Morley, niður í fólkinu og tilkynnti,
að því miður hefði stjómendunum
orðið alvarlega á í messunni. Þeir
hefðu farið nafnavillt, hin eiginlega
fegurðardrottning væri 18 ára göm-
ul stúlka að nafni Nicola Davies.
Dómnefndin hafði látið Morley fá
rangan miða.
Sharron Gardiner fór út úr húsinu
hágrátandi og að þessu sinni ekki
af gleði. „Þetta var alvarlegt áfall
fyrir Sharron," sagði faðir hennar.
„Það er ekki hægt að ímynda sér
hvemig henni leið. Aðra stundina
var hún drottning en hina hmndi
allt til grunna fyrir henni.“
Reuter.
Iranska sendiráðið i Beirút. Sovéskt vikurit segir, að Terry Waite,
sendimaður ensku biskupakirkjunnar, sé fangi þar. Iranir neita því.
Washington, AP, Reuter.
FYRSTI blaðamannafundur Ron-
alds Reagan, Bandaríkjaforseta,
eftir að upplýst var um íran-
málið fyrir fjórum mánuðum, var
haldinn klukkan eitt í nótt að
isl. tíma og var búist við að
fréttamennirnir gerðu að honum
harða hrið. Rannsóknarnefndir
þingsins hafa ákveðið að fresta
um sinn að Veita þeim Oliver
North og John Poindexter tak-
markaða uppgjöf hugsanlegra
saka.
Reagan bjó sig í gær af kost-
gæfni undir fréttamannafundinn,
sem var sjónvarpað um Bandaríkin,
en Marlin Fitzwater, talsmaður
Hvíta hússins, spáði því, að 90%
spurninganna myndu snúast um
vopnasölumálið og fjárstuðninginn
við skæruliða í Nicaragua. Erfið-
ustu spurningamar yrðu líklega um
það hve Reagan vissi mikið um
síðarnefnda málið og einnig mætti
búast við spumingum um Michael
Deaver, fyrrum starfsmann Hvíta
hússins og náinn vin Reagans, en
hann hefur verið ákærður fyrir
meinsæri. „Forsetinn býst við
spumingunum og mun svara þeim,“
sagði Fitzwater.
Rannsóknarnefndir heggja deilda
Bandaríkjaþings hafa náð um það
samkomulagi við Lawrence Walsh,
sem annast sérstaka rannsókn á
íranmálinu, að fresta því að veita
Oliver North og John Poindexter
takmarkaða uppgjöf hugsaniegra
saka. Walsh telur sig þurfa meiri
tíma til að afla gagna í málinu og
verða þeir North og Poindexter því
ekki yfirheyrðir fyrr en eftir miðjan
júní. North, fyrrum starfsmaður
þjóðaröryggisráðsins, var rekinn úr
starfi 25. nóvember sl. vegna ásak-
ana um að hann hefði skipulagt
ólöglegan fjárstuðning við skæru-
liða í Nicaragua og Poindexter,
formaður ráðsins, sagði af sér sama
dag.
Sjá „Deaver ákærður . . .“ á
bls. 26.
Sovéskur stj órnmálaf ræðingur:
Umbótastefn-
an mun sigra
Moskvu, AP.
ANDSTAÐA er við unibóta-
stefnu Mikhails Gorbechev,
leiðtoga Sovétríkjanna, á ýmsum
sviðum, en hún mun þó sigra að
lokum. Kom þetta fram í gær
þjá kunnum, sovéskum stjórn-
málafræðingi.
Fyodor Burlatsky, varaforseti í
samtökum sovéskra stjórnmála-
fræðinga, sagði á blaðamannafundi
í gær, að með Gorbachev væri kom-
in til ný kynslóð sovéskra leiðtoga,
sem væru betur menntaðir en fyrir-
rennarar þeirra, menn, sem þyrðu
að bera Sovétríkin saman við Vest-
urlönd. Umbótastefnan myndi því
sigra þrátt fyrir andstöðuna, sem
væri mest meðal þeirra, sem óttuð-
ust um forréttindi sín.
Valery Senderov, baráttumaður
fyrir óháðum verkalýðsfélögum, og
þrír aðrir andófsmenn í Georgíu
hafa verið látnir lausir úr fangelsi.
Hefur þá 90 andófsmönnum verið
sleppt frá því í febrúarbyijun.
Gustav Husak, forseti Tékkó-
slóvakíu, hefur fagnað umbóta-
stefnu Gorbachevs. Kom þetta fram
í ræðu, sem hann flutti í gær á
miðstjómarfundi tékkneska komm-
únistaflokksins.
Sjá „Husak heitir umbót-
um . . .“ á bls. 24.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Líbanon:
Sýrlendingar hóta
shítum afarkostum
- verði einhver gíslanna líflátinn
Beirút, AP, Reuter.
Sýrlendingar, sem hafa her
manns í Vestur-Beirút, hafa
hótað að bregðast hart við ef
einhver gíslanna 25, sem taldir
eru vera í höndum öfgamanna
af trúflokki shíta, verður líflát-
inn. Iranir hafa neitað fréttum
um, að Terry Waite, sendimað-
ur ensku biskupakirkjunnar, sé
hafður í haldi í íranska sendi-
ráðinu í Beirút.
„Sýrlendingar hafa komið þeim
orðum til shíta-klerkanna, að verði
einhver gíslanna drepinn muni þeir
grípa til hörkulegra refsiaðgerða,“
sagði líbanskur lögregluforingi,
sem ekki vildi láta nafns síns get-
ið. Sagði hann, að fyrstu viðbrögð
mannræningjanna við hótunum
Sýrlendinga hefðu verið að fresta
aftöku Frakkans Jean-Louis
Normandin.
Talsmaður breska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í gær, að
Bretar hefðu enga hugmynd um
hvar Terry Waite væri niðurkom-
inn en sovéska vikuritið Litera-
turnaya Gazeta sagði í fyrradag,
að hann væri fangi í íranska sendi-
ráðinu í Beirút. Sendiráðsskrifstof-
urnar voru nýlega fluttar í nýtt
háhýsi í borginni og gætir þeirra
fjöldi vopnaðra manna. íranir neit-
uðu því í gær, að Waite væri haldið
í sendiráðinu.
Frakkland:
Sex njósnar-
ar handteknir
París, AP, Reuter.
TVÆR konur af austur-evrópsk-
um ættum, franskir eiginmenn
þeirra og tveir aðrir Frakkar, öll
starfsmenn frönsku geimvísinda-
miðstöðvarinnar í Vernon, voru
handtekin í gær og sökuð um
njósnir fyrir erlent ríki. Er þetta
haft eftir heimildum innan ríkis-
stjórnarinnar.
Heimildarmennirnir segja, að kon-
umar séu frá Rúmeníu og Sovétríkj-
unum og að þau séu öll grunuð um
að vera í njósnahring, sem sækist
eftir upplýsingum um vestur-evr-
ópsk geimvísindi. Er sjöunda
mannsins enn leitað. Ekki var frá
því skýrt fyrir hvaða ríki var njósn-
að. I geimvísindamiðstöðinni í
Vernon vestur af París er verið að
þróa hreyfla í Ariane 4-eldflaugina.
Þar starfa um 1600 manns.