Morgunblaðið - 23.12.1984, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 23.12.1984, Qupperneq 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1984 Það voru jólin 1944 á ít- alíu sem ég kem aldrei til með að gleyma þó ég hafi bara verið níu ára. Við vorum mjög fátæk og höfðum vart haft til hnífs og skeiðar i langan tíma. Allt í einu er bankað á dyrnar hjá okkur og það eru þá amerískir her- menn. Þeir voru með stóran kassa fullan af kræsingum og fleiru og spurðu hvort þeir mættu halda upp á jólin með okkur. Nú, þið getið bara ímyndað ykkur hvað við sögðum. „Voru med kassa fullan af kræsingum“ SIGMUNDUR MAGNÚSSON LÆKNIR „Okkar fyrstu jól og við vorum svo alsæl“ BRYNDÍS SCHRAM OG JÓN BALDVIN HANNIBALSSON „Stórkostlegustu jólin á þriðja flokks hóteli“ LISA MINELLI „Fann hvolp sem var aö dauða kominn“ estu jólin mín upplifði ég á hóteli í Puerto Rico. Það var um kvöld að ég fann hvolp sem var að dauða kominn. Eg tók hann með mér upp á hótel og reyndi að lífga hann við. Hann vildi því miður ekk- ert láta ofan í sig og það var með miklum kvíða að ég fór fram úr á jólamorgun til að lfta á vin minn. En viti menn, hann hafði allur kom- ið til og þetta var stærsta jólagjöf og gleði sem ég man eftir. Ég stóð bara og grét af gleði. Hundurinn fékk nafnið Ocho og býr enn þann dag í dag með mér. Eg á ekki nein eftirminnileg jól af „Frank Slaughter“- bókagerðinni sagði Sigmundur Magnússon læknir sposkur, er blm. spurði hann hvaða jól væru honum minnisstæðust, og hvernig hann héldi sín jól. „Þegar ég lít til baka hugsa ég að mér séu minnisstæðust fyrstu jólin okkar hjóna, er við komum til Bandaríkjanna. Við vorum nýgift og leigðum á fjórðu hæð í sambýlishúsi. Við áttum afskaplega lítið á þessum tíma og borðstofuborðið okkar var stórt koffort. í eldhúsið höfðum við keypt okkur litla plötu sem ég festi stálfætur á og á móti því í þessu litla eld- húsi var gaseldavélin. Ég minn- ist þess jólakvöldið, er við sát- um í tómlegri íbúðinni við koff- ortið og með Peking-öndina á miðju borði. Við fórum ekkert í kirkju þessi jól, nema bara í huganum, þegar við hugsuðum heim. Þetta voru ekkert merki- leg jól að því leyti að það ger- ðist ekkert sérstakt, þá var ekki þetta lífsgæðakapphlaup komið til sögunnar hjá okkur, en þetta voru okkar fyrstu jól saman og við vorum svo alsæl. Eftir að við komum heim, hafa jólin tek- ið á sig hefðbundinn blæ. Þó hafa jólin hér byrjað 22. des- ember, því þá á ég afmæli. Þá gerum við ráð fyrir því að jóla- undirbúningurinn sé um garð genginn og frændfólkið kemur í heimsókn í afmælis- og jólaboð. Þetta var áður fyrr, er börnin voru lítil, heilmikil „sere- monía“, því við settum jólatréð upp fyrir afmælisdaginn o.s.frv. Á aðfangadag höfum við alltaf farið fyrst í kirkjugarðinn, þá í kirkju og síðan heim. Við höf- um reynt að vera búin að borða og svoieiðis áður en messan i sjónvarpinu byrjar. Jólin ganga ósköp friðsamlega fyrir sig á þessu heimili og eru að ég hygg ósköp venjuleg. Það er allavega lítið dramatískt í kringum þau. Eftirminnilegustu jólin, segja þau hjón, er blm. ber að garði og brosa undurblítt hvort til annars. Jú, það voru eiginlega jól- in okkar eftir stúdentsprófið. Við vorum þá erlendis, segir Jón, ég í Edinborg, Skotlandi, og Bryndís i París. Við ákváðum að eyða jóla- leyfinu okkar saman í París og ég ætlaði að koma til hennar með lest. Bryndís ákvað að hitta mig á leiðinni og við ákváðum að hafa það á brautarstöðinni i St. Pacr- as tveimur dögum fyrir jól. Þetta voru jólin 1958. Ég hafði keypt mér frakka, stóran, þykkan, axla- breiðan og skósíðan, auk þess sem ég hafði freistast til að kaupa mér hatt. Þegar ég kem út úr lest- inni i allri múnderingunni og fer að svipast um eftir ástkonu minni frá París, sé ég enga kven- veru á stöðinni sem var nokkuð svipuð henni. Allt i einu verður mér þó litið á konu eina glæsilega sem mér fannst eitthvað kunnug- leg, en sé svo að ekki getur það verið Bryndís því þessi var ófrísk, langt komin á leið með magann út i loftið. Hún var klædd í stóra kósakkakápu með franska alpa- húfu. Eftir að hafa ráfað um allt og leitað að hvort öðru þekkti Bryndís mig þó á augunum er sáust aðeins i undan hattinum og frakkakraganum sem ég hafði auðvitað brettan upp. Bryndfs tekur nú við og segir: Ég var þá í raun komin sex mánuði á leið með fyrsta barnið okkar og hafði ekki sagt Jóni frá því. Ástæðan fyrir því var einfaldlega sú að ég vissi að hann hefði þá hætt við að fara út og skellt sér í órómantíska lögfræði hér heima og það vildi ég alls ekki. Það vill þó svo ein- kennilega til að dóttir okkar sem ég var ófrísk af þarna er nú í lög- fræði hér heima. Jón bætir við: Þetta var alveg frábær stund og við eyddum stórkostlegri nótt á hóteli við Russel Square. Daginn eftir héldum við til Parísar þar sem Bryndis bjó á hótelinu Nam- ur, hóruhúsi við Rue de Lambre. Þar eyddum við yndislegum jólum á þessu þriðja flokks hóteli. Nú síðastliðið vor er við fórum í opinbera heimsókn til Frakklands tókum við á okkur krók og athug- uðum hvort húsið væri nú enn á sínum stað, þ.e.a.s. hóruhúsið, og viti menn, allt annað var breytt í hverfinu nema hótelið, okkur til óblandinnar ánægju. fólk í fréttum GLEÐILEG JOL Hvaða jól eru þeim eftir- minnilegust? Hvað gera þau um jólin?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.