Morgunblaðið - 23.12.1984, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1984
57
Jónas Gunnarsson
kaupmaður sextugur
Jónas Gunnarsson kaupmaður
er sextugur á morgun, þann 24.
desember. Jónas er maður ekki
hár í lofti, en frá honum stafar
hlýja og bjartsýni. Hann vex við
kynni, maður finnur hans innri
mann. Traustur með velvild til
manna og málefna.
Jónas er fæddur á Helluvaði á
Rangárvöllum, á sögustöðum
Njálu. Kannski rekur hann ættir
sínar til hins forna spekings, enda
er Jónas greindur, orðhagur og
fróður og kann vel að beita penna
á blað.
Lund hans er létt og lipur og oft
geislar frá augum hans, sem fylgir
eftir hnitmiðuðu skopskyni.
Jónas Gunnarsson er fæddur í
byrjun kreppunnar miklu. Hann
kynntist henni lítið af eigin raun,
nema það sem eyra hans og auga
man. En hugur Jónasar stóð til
mennta. Hann fann að þangað er
mátt að sækja. Jónas lauk námi úr
Verslunarskóla íslands með góð-
um vitnisburði.
Fljótlega að loknu námi lá leið
hans til afgreiðslustarfa hjá Síld
og fisk. Hugur Jónasar stefndi
hærra en að vera eilífur þjónn
annarra. Hann vildi verða sjálf-
stæður kaupmaður, eigin hús-
bóndi og þræll!
Árið 1956 stofnar Jónas mat-
vöruverslun sem hann hefir rekið
síðan undir nafninu Kjötborg. I
kringum Jónas er alltaf þrifalegt
og allt í reglu. Loftið er létt og
bjart og viðskiptavinirnir laðast
að honum.
Jónas er að eðlisfari félagslynd-
ur maður, það kom því af sjálfu
sér að slíkur kostamaður komst
ekki undan því að taka að sér
ábyrgðarstöður, bæði fyrir stétt
sína og fleiri og félagsstörfin hafa
hlaðist á Jónas. Hann hefur bæði
verið formaður Félags matvöru-
kaupmanna og kjötverslana og er
enn í ýmsum félagsstörfum. Jónas
er góður málafylgjumaður, bæði í
sókn og vörn. Jónas Gunnarsson
er giftur Sigríði Þórarinsdóttur
frá Þernuvík við ísafjarðardjúp.
Myndarkonu sem ekki fer mikið
fyrir, en er þeim kostum búin að
standa vel fyrir sínu, bæði í blíðu
og stríðu. Hún hefir staðið þétt við
hlið manns síns í gegnum árin.
Þau hjónin eiga 4 mannvænleg
börn.
60 ár er ekki hár aldur í dag,
enda Jónas eins og unglingur bæði
kvikur í spori og hress, og þannig
viljum við vinir Jónasar hafa
hann áfram.
Jónas! „Heill þér sextugum".
Guðlaugur Guðmundsson
Jónas tekur á móti gestum í félags-
heimili Víkings við Hæðargarð á
annan jóladag milli kl. 16.00 og
18.00.
Dr. Charles
Francis Potter
ÁRIN
ÞÖGLU
ÍÆVI
JESÚ
Dr. Charles Francis Potter
Árin þöglu
í ævi Jesú
Öldum saman hafa unnendur bibjíunnar velt fyrir sér þeirri spurningu hvar Jesús hafi veriö og hvaö
hann hafi haft fyrir stafni hin svonefndu „átján þöglu ár“ í œvi sinni, frá tólf ára aldri til þrítugs.
Hiö mikla handritasafn, bókasafn Essena, sem fannst í Kúmran hellunum viö Dauöahaf 1945 og
næstu ár á eftir, hefur loks gefiö svar viö þessari spumingu.
Þaö veröur æ Ijósara, eftir því sem rannsóknum handritanna miöar áfram, aö Jesús hefur á þessum
árum setiö viö hinn mikla menntabrunn sem bókasafn Essena var og haft náin kynni af háþróuöu
samfélagi þeirra. Glðggt má greina náinn skyldleika meö kenningum Jesú og Essena, jafnvel
oröalagiö i boðskap Jesú ber ótvíræöan essenskan svip.
Fágaö og fagurt verk.
Páfeaötgáfenjjóööaga
Flugeldar
Við höfum séö landsmönnum fyrir áramótaflugeldum og neyöarmerkjum frá 1916. Aöeins 1. flokks
vörur. Reynsla okkar tryggir gæöin. — Mjög góö kaup í fjölskyldupokum á kr. 600, kr. 1.000 og kr. 1.500.
Til skipa Pains Wessex línubyssur — Svifblys og handblys — vörur meö gæöastimpli.
\USQ2QJDa ÖaSQJiQaQðaQ SJÍ
ÁNANAUSTUM GRANDAGARÐI. SÍMAR 28855 — 13605.
OPIO 27.12. TIL KL. 18.30. 28.12. tll kl. 21.00. 30.12. til kl. 16.00.