Morgunblaðið - 23.12.1984, Side 37
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1984
fHwgtu Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst ingi Jónsson.
Augiýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjaid 330 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö.
Heimilið og
boðskapur jólanna
Móðir Teresa sem hlotið
hefur friðarverðlaun
Nóbels fyrir mannúðarstörf og
kærleika í garð fátækra í Kalk-
útta á Indlandi hefur sagt: „Um
jólin kemur Kristur til okkar
sem ungbarn, lítill og hjálpar-
vana, og þarfnast alls sem kær-
leikurinn getur veitt. Erum við
tilbúin til að taka á móti hon-
um? Áður en Jesús fæddist
báðu foreldrar hans um húsa-
skjól, en það fannst ekki. Væru
María og Jósep að leita að
heimili fyrir Jesúm, myndu þau
leita til þín og þinna?"
Eftir að hafa varpað þessari
spurningu fram minnir móðir
Teresa á þann vanda, sem tek-
ist er á við í veröldinni, en seg-
ir, að orsaka hans sé mjög að
leita heima hjá hverjum og ein-
um. Veröldin þjáist af því að
það sé enginn friður í fjölskyld-
unni. Þúsundir heimila hafi
tvístrast. Þau eiga að vera
miðstöð ástríkis og fyrirgefn-
ingar, og stuðla þannig að friði.
Upptök kærleikans sé heima
hjá hverjum og einum. „Heim-
ilið er þar sem móðirin er,“ seg-
ir hin lífsreynda kærleiksskona
í jólaboðskap sínum.
Þetta er einfaldur en heil-
brigður boðskapur, byggður á
djúpstæðri reynslu mikil-
hæfrar konu sem kynnst hefur
mannlegri eymd eins og hún
getur orðið hvað mest í sam-
tímanum.
Á þessum jólum eiga mörg
heimili við erfiðleika að glíma
bæði hér og annars staðar. Á
tímum efnis- og peningahyggju
beinist hugurinn jafnan fyrst
að fjárhagslegri stöðu, þegar
rætt er um heimilin og afkomu
þeirra. Þau þrífast þó ekki án
kærleika og ástríkis. Af ríki-
dæmi getur hlotist meiri óham-
ingja en hinu að hlú að því litla
sem til er og nýta það til hins
ýtrasta öllum til gagns og
ánægju.
Um þessi jól eins og svo oft
áður leitar hugurinn til þeirra
sem eiga við erfiðleika að
stríða, hvort heldur þeir eru
nær eða fjær. Undanfarnar
skammdegis-vikur hefur
drungi vegna dapurlegs útlits í
þjóðarbúskapnum ekki orðið til
þess að létta á okkur Islending-
um brúnina. I þeim efnum bein-
um við þó athyglinni um of að
efnislegum verðmætum. Hætt-
an er sú, að þrasið um þau taki
svo mikinn tíma að okkur
gleymist það sem mestu skiptir,
að vernda þann þátt er eflir
mátt okkar sem þjóðar. Heimil-
isfriður í þjóðarfjölskyldunni
er forsenda þess að hún tvístr-
ist ekki öllum til tjóns og
óhamingju.
Rangsleitnin í veröldinni er
mikil. 1 samanburði við hana er
vandinn á hinu íslenska þjóðar-
heimili hreinir smámunir. Við
búum við ytra öryggi. Landa-
mæri okkar eru varin og vel-
ferðarsjónarmið ráða í stjórn
landsmála. Enginn stjórnmála-
flokkur hefur það á stefnuskrá
sinni að yfirgefa þá sem minnst
mega sín.
„Á þessum jólum horfir
uggvænlega í heimi okkar,"
segir herra Pétur Sigurgeirs-
son, biskup íslands, í jólabréfi
til presta og heldur áfram:
„Milljónir saklausra manna
búa við hungur og örvæntingu,
sem í flestum tilfellum má
rekja til valdníðslu og styrjald-
arátaka. — Á þriðja í jólum eru
fimm ár liðin síðan styrjöldin í
Afganistan hófst með þeim af-
leiðingum, að rösklega ein
milljón Afgana hefur fallið. Á
fimmtu milljón manna hefur
flúið til nágrannaríkjanna.
Paul Hartling framkvæmda-
stjóri Flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna hefir kall-
að þetta mesta flóttamanna-
vandamál vorra daga, enda
þjáningar fólksins ólýsanlegar.
Hungurvofuna í Eþíópíu þekkja
landsmenn af upplýsingum, er
þaðan koma. Um þessi jól er
hjálparstarfi kirkjunnar sér-
staklega beint þangað. Þar tor-
veldar grimmileg borgarastyrj-
öld hjálpina og eykur stórum
neyðina."
Hér víkur biskup að þeim
tveimur samtímaatburðum sem
krefjast hvað flestra mannslífa
nú um stundir. Allsleysi þess
fólks sem stendur annars vegar
andspænis miskunnarlausum
innrásarher og horfir hins veg-
ar í augu hungurvofunnar gerir
þann vanda sem við okkur blas-
ir að smámunum. Sumir líta að
vísu á vanda Afgana og íbúa
Eþíópíu sem smámuni. Kemur
þetta fram í ýmsu; til dæmis
nýlega á allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna þar sem menn
töldu brýnast að verja þremur
milljörðum króna til að byggja
glæsihöll yfir alþjóðlega skrif-
finna í höfuðborg Eþíópíu.
Jólin útrýma ekki rang-
sleitni. Þau eru ekki heilög
nema hjá hluta mannkyns,
þeim hluta sem býr við best
kjör og mestan frið, að vísu.
Hin kristna kærleikshugsjón er
byggist á ástúðinni sem móðir
Teresa lýsir og þeirri bæn er
herra Pétur Sigurgeirsson
ítrekar: „Send oss frið“ nær til
alltof fárra. En jólin minna
okkur á upphafið og setja okkur
í þá stöðu, að við verðum, hvert
og eitt, að svara spurningunni:
„Væru María og Jósep að leita
að heimili fyrir Jesúm, myndu
þau leita til þín og þinna?“
Könnunin á gildismati
Islendinga hefur vak-
ið verðuga athygli síð-
an niðurstöður henn-
ar voru birtar í nóv-
ember. I samantekt
Hagvangs sem könn-
unina framkvæmdi segir svo um íslend-
inga:
„íslendingar segjast vera mjög trú-
hneigðir og svipar um það til kaþólskra
þjóða Evrópu og Bandaríkjamanna.
Þeir segjast í ríkum mæli sækja huggun
og styrk í trúna og Guð skiptir miklu
máli í lífi þeirra. Um allt þetta greina
íslendingar sig mjög frá öðrum Norður-
landaþjóðum.
Allt annað er uppi á teningnum þegar
spurt er um trúariðkanir. Kirkjusókn
íslendinga er lítil eins og á hinum Norð-
urlöndunum þegar hún er borin saman
við kirkjusóknina í Norður- og Suður-
Evrópu. Og innan við helmingur íslend-
inga segist taka sér tíma til að biðjast
fyrir, til hugleiðslu, eða einhverrar and-
legrar iðkunar. Þetta hlutfa.ll er einung-
is lægra meðal Svía og Frakka, en Danir
og Finnar eru svipaðir Islendingum í
þessu efni.
Þegar nánar er hugað að því í hverju
hin mikla trúhneigð Islendinga felst,
kemur í ljós að trú þeirra er fjölbreyti-
leg og um margt á skjön við trúfræði
kirkjunnar. Meirihluti íslendinga telur
fullyrðingar um að til sé einhverskonar
alheimsandi eða lífskraftur komast nær
trú sinni og um þetta skera þeir sig úr,
engin önnur þjóð í könnuninni trúir í
jafn ríkum mæli á þennan þátt. Á hinn
bóginn trúir engin þjóðanna í jafn litl-
um mæli á persónulegan Guð og íslend-
ingar, þó Svíar séu þeim svipaðir um
þetta. Islendingar trúa í ríkari mæli en
flestar þjóðir á líf eftir dauðann og sál-
ina, en um þetta eru þeir mjög ólíkir
öðrum Norðurlandabúum. Fáar þjóðir
trúa i ríkara mæli á tilvist Himnaríkis
en íslendingar, en engin þjóð neitar því
jafn ákveðið og þeir að Helvíti og Djöf-
ullinn séu til. Þá telja fjórir af hverjum
tíu íslendingum sig hafa orðið vara við
náiægð látins manns, og er sú reynsla
ekki jafn algeng í neinu hinna Evrópu-
landanna og miklu sjaldgæfari á hinum
Norðurlöndunum.
Loks er afar athyglisvert í ljósi mik-
illar trúhneigðar Islendinga, að þeir eru
mestir afstæðishyggjumenn í Evrópu
þegar spurt er um hvort til séu einhlítar
skilgreiningar á því hvað sé gott og hvað
sé illt, eða hvort þetta sé algjörlega háð
aðstæðum hverju sinni."
„Persónulegur Gud"
Nú þegar fæðingarhátíð frelsarans
gengur í garð er ekki úr vegi að velta
þessum niðurstöðum um trú íslendinga
dálítið fyrir sér. Það hefur þegar verið
gert hér á síðum blaðsins. Meðal annars
varpaði ungur maður, Sigurbjörn Þor-
kelsson, því fram, hvort Islendingar
gætu yfirleitt haldið jól með réttu hug-
arfari úr því að þeir væru jafn lítið
sannfærðir um tilvist „persónulegs
Guðs“ og könnunin leiðir í ljós. Til hvers
eru íslendingar að halda upp á fæðingu
Jesú Krists, ef þeir trúa ekki á hann
heldur á einhverskonar „alheimsanda"?
Spurningin sem hér um ræðir var
þannig í könnuninni, innan sviga eru
hlutfallstölur er sýna svör aðspurðra:
Hver af þessum fullyrðingum kemst
næst trú þinni?
a) Það er til persónulegur Guð (18%)
b) Það er til einhverskonar alheimsandi
eða lífskraftur (58%)
c) Ég veit í rauninni ekki hverju trúa
skal (15%).
d) I raun og veru held ég ekki, að það sé
til neins konar alheimsandi, Guð eða
lífskraftur (7%).
e) Veit ekki (1%).
Það eru gömul og ný sannindi að
menn fá ekki önnur svör en vænta má af
þeim spurningum sem fram eru lagðar.
Könnunin sem hér um ræðir er erlend
að uppruna. Spurningarnar eru þýddar
og allt kapp lagt á það, að sem best
samræmi sé á milli einstakra landa til
að samanburður sé framkvæmanlegur.
Hér skal eindregið efast um að íslend-
ingar almennt átti sig á því, við hvað er
átt, þegar þeir eru spurðir um „persónu-
legan Guð“. Gera þeir sér í hugarlund
virðulegan, gráskeggjaðan öldung sem
vakir yfir velferð þeirra og annarra?
Eða leiða þeir hugann að Jesú Kristi?
Svari hver fyrir sig. Hitt skal fullyrt að
svörin hefðu orðið á annan veg, ef bein-
línis hefði verið spurt: Trúir þú á Jesúm
Krist?
Færa má rök fyrir þessari fullyrðingu
með því að vísa til þess, að 78% íslend-
inga segjast trúa því að Guð sé til og eru
í því efni trúaðri en nokkur önnur þjóð
fyrir utan Bandaríkjamenn, en 87%
þeirra segjast trúa á tilvist Guðs. Þá
segjast 55% íslendinga trúa á tilvist
Himnaríkis, en 50% Bandaríkjamanna
og aðeins 17% Dana, og 82% íslendinga
hafna tilvist Helvítis.
Kirkjan og
friðarmálin
Kirkjan hefur verið mjög til umræðu
hér á landi undanfarin misseri. Athygl-
in hefur ekki beinst að kirkjulegum
boðskap í hefðbundnum skilningi þess
orðs heldur að afskiptum kirkjunnar
manna af friðarmálunum svonefndu,
það er skilgreiningum þeirra á vígbún-
aðarkapphlaupinu og leiðum til að
stemma stigu við því. Umræður um
þetta mál hafa verið svo miklar hér á
síðum Morgunblaðsins, að óþarft ætti
að vera að skýra efni þeirra nánar, næg-
ir til dæmis að vísa til þriggja greina
eftir dr. Arnór Hannibalsson í byrjun
september og svargreinar dr. Gunnars
Kristjánssonar, prests á Reynivöllum,
14. nóvember sl. Einnig ritaði herra Pét-
ur Sigurgeirsson, biskup, grein um frið-
armál hér í blaðið 25. október síðastlið-
inn.
Vaxandi ágreinings gætir innan
kirkjudeilda á Vesturíöndum vegna af-
skipta kirkjunnar manna af friðarmál-
unum. Upphaflega beindist athyglin að
vestur-þýsku kirkjunni vegna þessara
mála, en þar í landi vilja menn í vaxandi
mæli, að kirkjan láti af beinum afskipt-
um af þessum málaflokki.
Innan kaþólsku kirkjunnar hefur
áhuginn meðal annars beinst að ágrein-
ingi milli biskupa í Bandaríkjunum
annars vegar og Frakklandi hins vegar
um afstöðuna til kjarnorkuvopna og
fælingarmáttar þeirra. Gérard Defois,
fyrrum aðalritari franska biskupa-
þingsins, lektor við Kaþólsku stofnun-
ina í París, hefur ritað grein um kirkj-
una og fælingarkenninguna í tímarit
Atlantshafsbandalagsins NATO-fréttir
og er hún væntanleg í íslenskri þýðingu
í tímaritinu snemma á næsta ári. Þar
segir meðal annars:
„Frönsku biskuparnir gripu því til
þess ráðs að gera skýran greinarmun í
því skyni að enginn misskildi, hvað felst
í fælingarkenningunni: Að hóta er ekki
sama sem að nota. Sé rætt um notkun
kjarnorkuvopna, eru ummæli banda-
rísku biskupanna um árásir á borgir í
samræmi við hefðbundna kenningu
kirkjunnar. En byggist fælingarkenn-
ingin á þeim rökum, að hótað sé til að
draga úr hættunni á árás, snýst málið
ekki beint um hermál heldur stjórnmál.
Fjandvinsamlegt samband andstæðra
ríkja er til umræðu. Heimilar ekki
gæsla lögmætra varnarhagsmuna, að
notuð sé Iögmæt hótun til að gæta ör-
yggis þjóðar? Siðferðilega hugmyndin,
sem hér kemur til álita, snýst ekki um
að takmarka hörmungar styrjalda í
skilningi „réttláts stríðs" heldur að
koma á réttlátum friði. Af þessum sök-
um fjallar franska yfirlýsingin að veru-
legu leyti um friðarstefnu."
í frægri yfirlýsingu sinni segja
frönsku biskuparnir: „í því skyni að
þurfa ekki að heyja stríð viljum við
sýna, að við getum háð það. Þegar við
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1984
37
REYKJAVÍKURBRÉF
laugardagur 22. desember
MorKunblaöið/Olafur K. Magnúsaon
höldum aftur af árásaraðilanum með
því að neyða hann til að sýna ofurlitla
varkárni venga ótta við afleiðingar eig-
in gerða, erum við að vinna í þágu frið-
ar.“
Grein sinni lýkur Gérard Defois með
þessum orðum:
„Kristni byggist á öflugri og samein-
andi trú. Kristnar hefðir gefa fyrirheit
um frið: hinn eina frið, sem sæmir
mönnum. En í heimi ofbeldis og spennu
er aðeins unnt að feta sig fram til slíks
friðar, höfða verður til pólitísks vilja og
breyttra viðhorfa. Það er hvorki ætlun
biskupanna að réttlæta né útiloka fæl-
ingarkenninguna, þeim er alltof vel
ljóst, hve hún er margflókin, heldur
vildu þeir gera hana að takmörkuðum
hluta af stærra átaki, sem miðar að því
að nota frelsi til að tengja fólk saman í
friðarsöfnuði."
Kirkjusóknin
Ef að líkum lætur á kirkjusókn eftir
að verða mikil nú um jólin eins og jafn-
an um stórhátíðir. I könnuninni á gild-
ismati íslendinga kom hins vegar fram
að aðeins 12% Islendinga sögðust sækja
kirkju einu sinni í mánuði eða oftar.
Þetta er svipað hlutfall og á Norður-
löndunum í heild, þar sem það er 14%.
Kirkjusókn í þessum mæli er hins vegar
miklu algengari í Norður-Evrópu (34%)
og Suður-Evrópu (40%). Þrátt fyrir
dræma kirkjusókn bera Islendingar
mikið traust til kirkjunnar sem stofn-
unar. 71% sögðust bera „mjög“ eða
„nokkuð mikið“ traust til kirkjunnar,
aðeins lögreglan naut meira trausts sem
stofnun, 74%.
Því hefur verið haldið fram, að áhugi
ýmissa presta á friðarmálum eins og
þau hafa verið skilgreind í umræðum
síðustu ár, það er að segja sem andóf
gegn þeim sjónarmiðum, sem hafa verið
efst á baugi við framkvæmd varnar-
stefnu Vesturlanda, stafi af vilja þeirra
til að vera „með í umræðunni". Með því
að kirkjan láti friðarmálin til sín taka
með þeim hætti að skipa sér í sæti gagn-
rýnandans gagnvart stjórnvöldum, nái
hún til fleiri og jafnvel nýrri hópa í
þjóðfélaginu.
Ekkert bendir til að sú hafi orðið
raunin hér á landi. Hins vegar má færa
fyrir því nokkur rök að umræður um
friðarmálin í þeim skilningi sem hér er
á ferðinni hafi stuðlað að ófriði innan
íslensku þjóðkirkjunnar. Gegn öllu slíku
verður að sporna. Kirkjan á ávallt að
vera sú stofnun sem íslendingar
treysta.
I bókinni Marteinn Lúther sem bóka-
útgáfan Skálholt gaf út á þessu ári í
prýðilegri þýðingu séra Guðmundar óla
Ólafssonar er á það minnt að siðbót-
armenn lögðu mesta áherslu á predik-
unina. Predikunarstóllinn stóð ofar alt-
arinu, vegna þess að Lúther taldi, að
hjálpræðið bærist í orðinu og kvöld-
máltíðarefnin hefðu ekki sakramentis-
gildi án orðsins, en orðið gæti hins veg-
ar ekki borið ávöxt, nema það væri borið
af munni fram. Lúther gaf predikara í
vanda meðal annars þetta ráð:
„Reynið aðeins að verða Guði til dýrð-
ar, en leitið ekki lofstírs manna. Biðjið
Guð að gefa yður visku að mæla, en
áheyrendum betri heyrn. Þér megið
trúa mér, að predikunin er ekkert
mannaverk. Verið ekki of djarfur, en
predikið í guðsótta."
Öflug og
sameinandi trú
„Kristni byggir á öflugri og samein-
andi trú. Kristnar hefðir gefa fyrirheit
um frið: hinn eina frið, sem sæmir
mönnum,“ segir hér að ofan. I bókinni
um Lúther segir, að honum hafi verið
fullljóst, að agavald yrði aldrei unnt að
afnema, vegna þess að allt þjóðfélagið
yrði aldrei kristnað. Hið sama á við nú á
tímum. Agavald á alþjóðavettvangi
verður ekki unnt að afnema. Vaxandi
viðleitni gætir meðal kirkjuleiðtoga á
Vesturlöndum að teygja sig til sam-
komulags austur yfir járntjaldið í þeirri
von, að þeim takist að efla kristni í ríkj-
um kommúnismans. Til dæmis hefur
maður sem sat sem fulltrúi kommún-
istaflokks Ungverjalands á þingi lands
síns nú verið kjörinn forseti Lútherska
heimssambandsins. Þetta kjör hefur að
sjálfsögðu sætt töluverðri gagnrýni.
Tæplega er við því að búast að það
breyti hið minnsta afstöðu ráðamanna í
ríkjum kommúnismans til kristninnar,
þeir líta á boðskap Krists sem ógn við
alræði sitt. Lúther sagði á sínum tíma:
„Heimurinn og allur þorri manna er
fjarri kristnum dómi og verða það ætíð,
þótt fjöldinn sé skírður og eigi að heita
kristinn. Ef einhver hygðist því reyna
að stjórna ríki eða heiminum með fagn-
aðarerindinu, þá væri hann eins og hirð-
ir, sem setti úlfa, ljón, erni og sauði í
eina kví. Sauðirnir mundu að vísu halda
friðinn, en þeim gæfist ekki mikið tóm
til þess. Veröldinni verður ekki haldið í
skefjum með talnabandi."
Og síðan segir Roland H. Baiton, höf-
undur þessarar bókar, um Martein
Lúther: „Sverðið, sem Lúther nefnir svo,
var sá agi, sem þurfti til varðveislu frið-
arins, bæði innan ríkis og utan. Lög-
regluvald og hervald voru eitt og hið
sama á hans dögum, og hermaðurinn
átti tveimur skyldum að gegna." Er það
ekki einmitt þessi sama skoðun sem
frönsku biskuparnir eru að lýsa þegar
þeir skilgreina fælingarmáttinn á
kjarnorkuöld?
Trúin á Krist
Fátt er mikilvægara meðal þjóðar
okkar og allra þjóða en að efla trúna á
Krist. Hann er hin mikla von mann-
kynsins. Til hans er unnt að leita bæði í
gleði og sorg. Með því að útbreiða orð
hans er sköpuð lifandi von, hafi menn
það í huga, öðlast jólaljósin nýjan mátt.
Nú sem fyrr er hvatt til þess að menn
kveiki friðarljós á jólanótt með bæn um
frið meðal allra þjóða. Nú um jólin verð-
ur þess minnst að í fimm ár hafa Afgan-
ir barist við sovéskan innrásarher. Þar
eigast ekki við kristnar þjóðir, en hugur
kristinna manna um allan hinn lýð-
frjálsa heim leitar engu að síður til þess
vígvallar um hátíðirnar. Og einnig til
Eþíópíu þar sem islenskir trúboðar hafa
um langt árabil gengið á Krists vegum,
og þar sem nú er tekist á við hungurvof-
una sem sækir fram í miskunnarleysi.
Megi jólin vera þeim tslendingum heilög
sem þar dveljast nú við fórnfúst hjálp-
arstarf og megi sú hjálp nýtast svelt-
andi fólki sem best er héðan berst og frá
öðrum aflögufærum þjóðum.
I predikun í Dómkirkjunni síðasta
sunnudag benti séra Þórir Stephensen
kirkjugestum á þessi tvö erindi eftir
séra Matthías Jochumsson og skulu þau
höfð hér sem lokaorð með jólaóskum.
Ég vil með þér, Jesús, fæðast,
ég vil þiggja líf og sátt,
ég vil feginn fátækt klæðast,
frelsari minn, og eiga bágt.
Ég vil með þér, Jesús, fæðast,
ég er barn og kann svo fátt.
Ég vil með þér, Jesús, deyja.
Ég? Ó, hvað er allt mitt hrós?
Æ, ég vil mig bljúgur beygja,
breysk og kalin vetrarrós.
Ég vil með þér, Jesús, þreyja,
ég er strá, en þú ert ljós.
„Ef einhver
hygðist því
reyna að stjórna
ríki eða heimin-
um með fagnað-
arerindinu, þá
væri hann eins
og hirðir, sem
setti úlfa, ljón,
erni og sauði í
eina kví.
(Mmrteion Lútber)