Morgunblaðið - 23.12.1984, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1984
Svo virðist sem flestir hefðbundnir leikir séu nú á hröðu
undanhaldi fyrir sjónvarpi, myndböndum og tölvuspil-
um. Biðin eftir jólunum er oft löng, sérstaklega fyrir
óþreyjufull bö. n og þar sem Þorláksmessa er nú á
sunnudegi má gera ráð fyrir að jólaundirbúningi sé að
mestu lokið og börnin því enn óþreyjufyllri. Til gamans
tíndum við saman nokkra leiki sem gætu stytt biðina
eftir jólunum og vitaskuld er einnig hægt að bregða á
leik í komandi fjölskylduboðum. Slökkvið á sjónvarpinu
og góða skemmtun!
Flöskudans og súkkulaÖi
boröað meö hnífapörum!
Að taka upp
kartöflur
Kartöflum, bæði smáum og
stórum, er raðað lauslega um
stofugólfið endilangt, ef við verður
komið. Keppinautarnir, karlmað-
ur og kvenmaður, standa sitt við
hvorn enda kartöfluraðarinnar.
Hvort um sig hefur í vinstri hendi
flatan disk eða hlemm og skeið,
fremur litla, f hægri hendi. Þegar
merki er gefið byrja þau bæði að
taka upp kartöflurnar sitt frá
hvorum enda og mætast í miðj-
unni. Það vinnur sem tekið hefur
upp fleiri kartöflur, þegar þau
mætast. En bæði verða að haga
upptektinni eftir sömu reglum og
verður mörgum á að brosa við að
sjá þær handatiltektir. Þau mega
enga kartöflu snerta nema með
skeiðinni. Og þau verða sífellt að
gæta þess að þær kartöflur, sem
þau hafa náð í, velti ekki út af
diskinum eða pottlokinu, því við
þá kartöflu verða þau að eltast á
nýjan leik með skeiðinni sinni.
„Blikk“
Piltarnir sitja í stólum, en
stúlkurnar standa fyrir aftan þá.
Framan við eina stúlkuna er auð-
ur stóll. Hún gefur einhverjum
piitanna bendingu með augunum,
„blikkar", og hann reynir að kom-
ast á stólinn til hennar. En ef
stúlkan, sem stendur bak við stól
hans, getur slegið í hann um leið
og hann er að standa upp, má
hann gera svo vel og sitja kyrr. Ef
honum tekst að komast burt án
þess að stúlkan snerti hann, reyn-
ir sú hin sama að ná sér í dreng
næst, ella reynir hin fyrri áfram
þar til hún fær mann í sinn stól.
Auðvitað má skipta um, láta
stúlkurnar sitja í stólunum, en
piltana standa fyrir aftan þær og
„blikka".
Flöskudans
í hópnum verður að vera a.m.k.
einn karlmaður, sem ekki þekkir
þennan leik. Fólkið situr í hvirfing
og stjórnandi leiksins raðar 4—6
tómum flöskum á mitt gólfið, síð-
an velur hann einn, sem ekki
þekkir leikinn og segir við hann:
„Sjáðu flöskurnar hérna, við bind-
um fyrir augu þín og snúum þér
nokkra hringi. Þú átt svo að labba
yfir gólfið án þess að fella flösk-
urnar. Að launum færðu einn koss
frá hverri stúlku, sem hér er, fyrir
hverja flösku, sem stendur kyrr á
gólfinu á eftir."
Þetta finnst auðvitað öllum
kostaboð, og því er tekið með
þökkum. Þegar búið er að binda
fyrir augu mannsins og snúa hon-
um duglega, byrjar hann að staul-
ast eftir gólfinu af mikilli var-
færni, en flöskurnar getur hann
ekki snert, því að hinir taka þær
allar af gólfinu, án þess hann
verði þess var. Þegar leyst er frá
augum hans aftur, stendur engin
flaska kyrr á gólfinu, og verður
hann svo af kaupinu.
Blýantar
í flöskur
Þetta er skemmtilegur tækifær-
isleikur og veitir oft umtaisverða
ánægju og verður tilefni hnytt-
inna athugasemda. Tveir og tveir
leika í einu og allir geta verið með.
Skemmtilegast er ef þátttakendur
eru af gagnstæðum kynjum. Ekki
þarf önnur áhöld en tvo band-
spotta, tvo blýanta og tvær jafn
stórar flöskur.
Þátttakendurnir binda bandið
um mittið á sér og blýantana í
þann enda sem snýr niður. Þetta á
að vera fyrir aftan bak. Síðan eiga
þátttakendurnir að snúa baki í
flöskurnar og beygja hnén þannig
að blýanturinn komist ofan í
flöskuna. Sá sigrar vitaskuld sem
fyrst tekst að koma blýantinum
gegnum flöskustútinn og á hann
að keppa við einhvern annan.
Eins og fyrr segir er þessi leikur
mjög skemmtilegur og er óhætt að
mæla með honum við flest tæki-
færi og fyrir fólk á öllum aldri.
Töfraspegill
mikilli einbeitingu beygir hann sig
yfir spegilinn og starir lengi kröft-
ugt inn í hann. Auðvitað sér hann
ekkert annað en sjálfan sig, en
samt sem áður getur hann sagt
með fullri vissu hver leit í spegil-
inn meðan hann skrapp út úr
herberginu.
Það er einföld skýring á því
hvernig hann fer að því. Það er til
mikill fjöldi aðferða sem hægt er
að nota við að sitja. Hægt er að
sitja með fæturna beina niður,
með fætur í kross, haldandi hönd-
um undir höku og þannig væri
hægt að halda lengi áfram.
Þegar stjórnandinn kemur inn í
herbergið aftur á að vera hans
fyrsta verk að taka eftir því
hvernig aðstoðarmaðurinn situr,
af því að hann situr nákvæmlega
eins og sá sem kíkti í spegilinn. En
ef fólkið hefur ákveðið að það sé
aðstoðarmaðurinn sem eigi að líta
í spegilinn? Jú, þá verður hann að
sitja allt öðruvísi en allir hinir
sem eru í herberginu.
Þegar stjórnandinn kemur ir.n
er grafarþögn og allir eru spenntir
að vita hvort rétt verði giskað.
Þess vegna verður andrúmsloftið
mjög heppilegt og þegar í Ijós
kemur að svar hans er rétt þá seg-
ir einhver: „Þetta er bara tilviljun
og getur alls ekki gerst aftur." En
það getur gerst aftur. Sannið bara
til!
Lauma
Leikendur sitja í hring, svo þétt
saman, að öxl nemur við öxl. Þeir
halda höndunum fyrir aftan bak.
Einn stendur í miðjum hringnum.
Þeir, sem í hringnum sitja, hafa
einhvern hlut, sem þeir lauma á
milli sín aftan við bak, en reyna að
hreyfa sig sem minnst, þegar þeir
láta hlutinn ganga. Sá, sem inni í
hringnum er, reynir að benda á
þann, sem hefur hlutinn.
Til að leika þennan stutta og
hraða og jafnframt dularfulla leik
þarf aðstoðarmann sem þarf að
gera grein fyrir galdrinum í leikn-
um. Þegar viðstaddir eru allir
saman komnir er spegill lagður á
borð og þú segir fólkinu síðan að
velja einhvern úr sínum hópi til að
líta í spegilinn meðan hann fer út
úr herberginu. Þegar stjórnandinn
kemur aftur inn í herbergið geng-
ur hann mjög ákveðinn og jafn-
„Fljúgðu fjöður!“
Leikendur (sem ekki mega vera
fleiri en tíu) takast í hendur og
reyna að halda fjöður (eða blöðru)
svífandi í lausu lofti með því að
blása á hana, en fyrst fleygir einn
henni upp í loftið. Oft er hægt að
halda fjöðrinni lengi svífandi með
þessum hætti. Leikendur mega
Að raða
dagblaði
Þessi leikur er þannig vaxinn að
hann krefst töluverðs fyrirfram
undirbúnings. Það er alls ekki
hægt að gera allt sem gera þarf á
miðri samkomu eða í samkvæmi.
Til þarf dagblöð, jafn mörg og
þátttakendurnir, sem skulu vera
helst 4, 6 eða 8 talsins. Blöðin
skulu vera 12—16 síður og opnun-
um á að rugla eins hressilega og
nokkur kostur er.
Þátttakendurnir eiga að setjast
mjög þétt saman á stólum, bæði
með einhvern til hliðar og beint á
móti sér og það þétt að hnén á
þeim snertist.
Allir fá þeir sitt blað og þegar
merki er gefið eiga þeir að byrja
að raða saman blöðunum sínum.
Þeir mega ekki leggja síðurnar frá
sér á gólfið eða láta þær snerta
keppinautana.
Sá sigrar vitaskuld sem fyrstur
verður til að skila blaði sínu rétt
niðurröðuðu. Þetta líkist einna
helst því að sitja í troðfullum
strætó á morgnana eða milli kl. 5
og 6 á daginn og reyna að lesa
blaðið sitt án þess að það angri
aðra farþega í vagninum.
Að slá á hendur
Þetta er gamalkunnur leikur, en
virðist þó alltaf vera nýr og vel til
þess fallinn að vekja fjör og hlát-
ur. Þátttakendur fá sér sæti í stof-
unni þannig að þeir skipast í hring
og hver þeirra um sig leggur báðar
hendur á hnjákollana. Einn er
inni í miðjum hringnum og hann
er sá eini sem ekkert sæti hefur.
Nú er það hans að freista að ná sér
í sæti með því að reyna að slá á
hendur þeirra, sem sitja. Þeir
þurfa því allir að vera vel á verði
og nógu skjótir að kippa að sér
höndum, þegar sá, sem inni í
hringnum er, gerir sig líklegan til
að slá á hönd hans, því sá, sem
verður of seinn að forða hendi
sinni undan höggi, neyðist til þess
að standa upp og eftirláta þeim,
sem sló hann, sæti sitt. Nú er það
hans að freista hamingjunnar og
verða nógu snar í snúningum til
þess að slá á hönd einhvers, sem í
hringnum situr, og ná þannig sæti
hans.
f þessum leik geta allir tekið
þátt, bæði ungir og gamlir — og
börnin Iíka.
Spurningaleikur
Þetta er vinsæll leikur og auð-
veldur í framkvæmd, sem fólk á
öllum aldri getur haft gaman af.
Sá, sem leiknum stýrir, þarf að
hafa kver þetta í höndum. Hann
spyr einn af öðrum þessara spurn-
inga: 1. Hvernig ertu inni við bei-
nið? 2. Hvað finnst þér skemmti-
legast? 3. Hverju líkist þú mest? 4.
Hvað þykir þér vænst um? 5.
Hvernig ætti maðurinn þinn að
vera? 6. Hvernig ætti konan þín að
vera? Fimmtu spurningunni er að
sjálfsögðu aðeins beint til kven-
fólksins en sjöttu spurningunni til
karlmannanna. Sá, sem spurður
er, svarar aðeins með því að nefna
einhverja tölu frá 1—25, eða ef
hentugra þykir, er hann látinn
draga úr seðlum með þessum töl-
um á. Svarið við hverri spurningu
er síðan lesið úr skrám þeim, sem
hér fara á eftir samkvæmt þeirri
tölu, sem valin var eða dregin
hverju sinni.
Hvernig ertu inni við beinið?
1. Ánægður með sjálfan mig.
2. Matvandur.
3. Ágjarn.
4. Hneigður til ásta.
5. Söngvinn.
6. Öfundsjúkur.
7. Hreinskilinn.
8. Latur.
9. Framhleypinn.
10. Greiðvikinn.
11. Nískur.
12. Heimskur.
13. Meinleysingi.
14. Lausmáll.
15. Montinn.
16. Metorðagjarn.
17. Ósannsögull.
18. Orðheldinn.
19. Fljótfær.
20. Gefinn fyrir slúður.
21. Rólyndur
22. Ekki við eina fjölina felldur.
23. Uppstökkur.
24. Gáfaðri en ég sýnist.
25. Hrokafullur.
Hvað finnst þér skemmtilegast?
1. Dansa.
2. Fljúgast á.
3. Tefla.
4. Áka bíl.
5. Standa á haus.
6. Synda.
7. Vera á skíðum.
8. Syngja.
9. Skrópa úr skóla.
10. Halda ræður.
11. Sofa frameftir.
12. Lesa ljóð og sögur.
13. Þegja. ,
14. Kyssa kærustuna.
15. Gefa Iangt nef.
16. Leika á hljóðfæri.
17. Sinna krökkunum.
18. Græða peninga.
19. Láta hrósa mér.
20. Búa til góðan mat.
21. Hluta á prestinn.
22- Byggja skýjaborgir.
23. Eitt í dag og annað á morgun.
24. Standa á hleri.
25. Sitja á barnum.
Hverju líkist þú mest?
1. Grásleppu.
2. Draumsóley.
3. Hertum þorskhaus.
4. Þriðja flokks kartöflu.
5. Tómri flösku.
6. Kaffikvörn.
7. Ápaketti.
8. Sláttuvél.
9. Kerti.
10. Blóðmörskepp.
11. Hálfu tungli.
12. Jólasveini.
13. Fjölbýlishúsi.
14. Nýrúnum sauð.
15. Hurð á hjörum.
16. Svani í sárum.
17. Skellinöðru.
18. Barni í vöggu.
19. Rjómatertu.
20. Tappatogara.
21. Góðum vindli.
22. Ófullgerðu listaverki.
23. Ósprungnum kinverja.
24. Tómri tunnu.
25. Nýútsprunginni rós.
Hvað þykir þér vænzt um ?
1. Rúmið mitt.
2. Sjónvarpið.