Morgunblaðið - 09.09.1984, Síða 51
Gluggatjöldin
í hreinsun
og peningarn-
ir glataðir
South Bend, Indinnn, 6. september. AP.
ÖLDRUÐ ekkja situr nú eftir með
sárt ennið og er 10.000 dölum fát®k-
ari, þar sem hún hafði nælt féð í
gluggatjöld sín, gleymt því og sent
síðan gluggatjöldin í hreinsun þar
sem féð hvarf. Lögreglan segist þó
hafa tvo menn grunaða um stuld á
fénu.
„Ég vildi að einhver hefði varað
mig við,“ sagði ekkjan, „en ég setti
peningana í umslag með innleggs-
nótu og nældi í gluggatjöldin fyrir
fimm árum og svo steingleymdi ég
því.“
Ekkjan uppgötvaði hvarf pen-
inganna þegar hún fékk glugga-
tjöldin aftur úr hreinsun, með
tómu umslaginu og innleggsnót-
unni. Hún var niðurbrotin og
sagðist hafa sett peningana á
þennan undarlega stað, ef ske
kynni að hún þyrfti einhvern tíma
á þeim að halda. „Það voru mistök
og ég skammast mín mikið," sagði
gamla konan. Lögreglan vonast til
að geta hjálpað konunni að fá aft-
ur féð, en enginn hefur þó verið
handtekinn vegna málsins enn.
Dalai Lama
vill heim-
sækja Kína
Pekiog, 6. september. AP.
YFIRVÖLD í Kína hafa greint frá
því, að innan skamms muni þangað
koma sendinefnd á vegum Dalai
Lama, leiðtoga búddhatrúarmanna í
Tíbet, sem verið hefur í útlegð frá
því kínverskir kommúnistar réðust
inn í Tíbet árið 1959 og innlimuðu
það í ríki sitt. Verkefni nefndarinnar
cr að undirbúa komu Dalai Lama
sjálfs til Kína á næsta ári.
Dalai Lama, sem er fimmtugur
að aldri, er dýrkaður af búddha-
trúarmönnum í Tíbet, sem telja
hann son guðs. Hann hefur lengi
barist fyrir því að Tíbetbúar
endurheimtu sjálfstæði sitt, en á
undanförnum árum hefur hann
hins vegar látið að þvi liggja að
hann muni hætta að berjast fyrir
sjálfstæði landsins ef hann verði
sannfærður um að þjóð sín sé
hamingjusöm undir stjórn Kín-
verja. Hefur hann óskað eftir að
fá að heimsækja Tíbet á ný, en af
því hefur ekki orðið.
MORGUNBLAÐIÐ, SÚNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984
X3i r
^-Æ/Stöóugt fjölgar bókunum
V/ ' n. /r a • i i_ _l.iy.UU* A n
Matreiðslubókaklúbbi AB
H JALPARKOK KAR
komnir í safnið
girnilega
- og þeir verða orðnir átta fyrir jól!
Matreiðslubækurnar
FISKUR OG SKELFISKUR,
GERBAKSTUR, ALIFUGLAKJÖT,
EFTIRRÉTTIR, NAUTA- OG KÁLFAKJÖT
og POTTRÉTTIR eru komnar út.
Og von er á bókunum
SVÍNAKJÖT og EGG OG OSTAR fyrir jól.
- Allt sérlega sællegir hjálparkokkar.
RÚMLEGA 30 HJÁLPARKOKKAR
Matreiðslubókaklúbbur AB býður einn flokk
matreiðslubóka, Hjálparkokkinn. Ætlunin er að
hann verði safn rúmlega 30 bóka.
Bækurnar geta félagar í MAB einir keypt.
Þær verða ekki til sölu í verslunum.
AUÐVELT,
AÐEINS AÐ HRINGJA . . .
Það er auðvelt að gerast félagi í MAB.
Nægir að hringjaQ-.^ ri ^íC
í síma klúbbsins sl £ JlZ-0 og æskja inngöngu.
Þú getur hringt allan sólarhringinn. Sjálfvirkur
símsvari tekur við beiðnum utan skrifstofutíma.
Gæta skal þess að lesa inn á símsvarann allar
upplýsingarnar sem gert er ráð fyrir á umsóknar-
spjaldinu og í sömu röð og þar.
Pá nægir einnig að fylla út umsóknarspjaldið hér á
síðunni og koma því í póst. Utanáskriftin er:
Matreiðslubókaklúbbur AB, pósthólf 340 -
Austurstræti 18, 121 Reykjavík.
ENGIN FÉLAGSGJÖLD -
14 DAGA SKILAFRESTUR
Inngöngugjald í MAB er ekkert. Ekki þarf heldur
að greiða félagsgjald, árgjald né nein önnur gjöld.
Félagi fær hverja bók senda heim. Hann getur kynnt
sér hana næstu fjórtán daga og ákveðið hvort hann
heldur henni og greiðir gíróseðilinn sem fylgir, eða
endursendir á kostnað klúbbsins.
VERÐ HVERRAR BÓKAR:
AÐEINS 190 KRÓNUR Burðargjald innifalið.
Sigurður Sumarliðason og Úlfar Eysteinsson,
matreiðslumeistarar þess virta matstaðar Potturinn^
og pannan eru ritstjórar þessa bókaflokks.4
JmKkW
Ég æski inngöngu í Matreiðslubókaklúbb AB og áskil mér rétt
til að fá hverja bók klúbbsins senda án skuldbindingar til að kaupa
hana, sbr. það sem segir í reglum klúbbsins um endursendingar.
8 Póstnr.
I I I I I
Nafn
Nafnnúmer 18 '9 20 Fæöingardagur
I I I I- I I I I I I 1 I L
I 1 1 I I
I 1 I I I I I I I
Heimilisfang
75
Staður
87
Sími
Undirskrift
rJT
■r
i •.
jiujiAo