Morgunblaðið - 09.09.1984, Síða 7

Morgunblaðið - 09.09.1984, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984 87 Sagan segir að Railly hafi staðiö aö baki tilrasöis viö Lsnin i Astralski isikarinn Sam Neill Isik ur Rsilly f sjönvarpsþáttunum kerfi andstæöinga bolsévika, sem þekktu hann ekki undir ööru nafni en „Konstantín, grískur kaupmað- ur“. ÞaÖ rann fljótlega upp fyrir Reilly að á meðan Trotsky væri f óöa önn að reyna að koma saman nýjum Rauða her yrðu bolsévikar að treysta á tvo aðalheri, upp- runalegu Rauðu varðliðana og .lettnesku herdeildina, sem bolsév- ikar höfðu fengið meira eða minna til að þjóna sem lífvarðasveit. Hugmynd Reillys var að ef tækist að múta þessum málaliðum til að snúast gegn yfirboðurum sinum yrðu Lenin og Trotsky teknir höndum og fyrrum foringjar keis- arans tækju stjórn landsins f sin- ar hendur og færu aftur f strið við Þýskaland. Þetta mistókst hrap- allega. Öryggislögreglan Cheka fékk veður af ráðagerð Reillys, en áður en hún gat látið til skarar skríða hafði foringi Cheka f Petro- grad verið skotinn f höfuðið fyrir framan aðalstöðvar sínar og að kvöldi sama dags, eftir fund f verksmiðju í Moskvu, var Lenin skotinn niður af Dora Kaplan, fé- laga i Byltingarflokki sósíalista, og var honum vart hugað lif. Hve mikinn þátt Reilly átti f til- Forsaetísráöberra Bretlands Lloyd George sendi Reilly til Rússlands. ræðinu við Lenin er ekki vitað til fulls. Leyniþjónusta Breta viður- kenndi að hann hefði átt þátt í þvi og reyndi að hylma yfir með hon- um i bresku stjórninni. Bolsévikar hófu mikla herferð gegn fyrrum herforingjum og „gagnbyltingar- mönnum" og Rauðir varðliðar um- kringdu breska sendiráðið f Petro- grad. Reilly flúði á æfintýralegan hátt til London. Þegar hann kom þangað var hann sæmdur herkrossinum fyrir «törf sín í Rússlandi og hann reit nokkur skjöl fyrir utanrikisráðu- neytið um hvernig ætti að bregð- ast við bolsévikahættunni. Skjöl þessi eru enn til og í þeim stendur m.a.: „Hverjar svo sem skoðanir manna eru á eflingu hers og fjár- hagslegri aðstoð til Rússlands, getur aðeins verið til ein skoðun á nauðsyn þess að stunda áróður um heim allan gegn bolsévikum sem almestu hættu sem menningar- samfélög hafa nokkurn tíma stað- ið andspænis." Reilly hélt áfram að vinna gegn bolsévikastjórninni í Rússlandi þar til hann hvarf árið 1925. Eng- inn veit hver urðu afdrif þessa meistaranjósnara bresku leyni- þjónustunnar. Vist er að hann var ginntur aftur til Moskvu af „Hringnum", gagnnjósnafram- kvæmd OGPU, sem komið var á fót i þeim tilgangi að gera óvirka alla andspyrnu gegn bolsévika- stjórninni, en „Hringurinn" átti að vera hópur konungssinna í Mið-Rússlandi og áhrifamikil undirheimahreyfing innan Sovét- ríkjanna. Hún var dyggilega studd af útlagasamtökum um alla Evr- ópu og Reilly hafði helgað „Hringnum“ starf sitt, enda komst hann ekki að raunverulegu hlut- verki samtakanna fyrr en hann hélt i síðasta sinn til Rússlands. Ef hann hefur þá nokkru sinni komist að þvf. Ein sagan segir að Reilly hafi verið fluttur í Lubyanka-fangelsið og skotinn í bakið á Lenin-hæðum. Önnur segir að hann hafi i raun- inni verið útsendari Rússa og að hann hefði verið enn á lífi og haft það gott f Moskvu árið 1945. Samantekt: — ai. Nú er þaö svart 4 En það birtir yfir öllu, ef þú notar Ijósu tízkulitina LÁTIÐ HÖRPU GEFA TÓNINN frá Hörpu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.