Morgunblaðið - 09.09.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984
85
Svein Ellingsen
Myndlíst
Bragi Ásgeirsson
Fjallið Mont SL Vktoríe f Provence (1982).
Það er ekki á hverjum degi, sem
maður sér jafn mikla einlægni í
meðhöndlan pentskúfsins og hjá
norska málaranum og sálmaskáld-
inu Svein Eliingsen. Listamaðurinn
(f. 1929) er staddur á íslandi í sinni
fyrstu heimsókn og kynnir myndlist
sína í formi 71 gvassmyndar í and-
dyri Norræna hússins fram til 16.
september.
— Þetta er mikill fjöldi mynda
en þó fer merkilega lítið fyrir sýn-
ingunni vegna þess að hér er um
smámyndir að ræða eða svonefnd-
ar „miniatúríur". Tæknin sem Ell-
ingsen notar á sér langa sögu og
viðhafði m.a. Hans Holbein yngri
hana í míniatúríur sínar á 15. öld.
Sá málaði raunar á pergament og
myndir hans og fleiri er aðhylltust
þessa tækni i míniatúríur sínar
hafa haldið sér ótrúlega vel.
Gouache-tæknin stendur þannig á
gömlum og traustum grunni.
I myndum Svein Ellingsen birt-
ist einhver upphafinn og trúarleg-
ur kraftur og þær eru málaðar af
mikilli natni og einlægni enda sit-
ur hann ósjaldan yfir sama mynd-
efninu í heil fimm ár.
Þetta eru allt mjög hreint mál-
aðar myndir og auðsjáanlega
gerðar af mikilli þekkingu á tækn-
inni enda er listamaðurinn vel
skólaður. Þá eru myndirnar al-
gjörlega lausar við þá trúarlegu
væmni, er stundum fylgir þessari
myndgerð því að hér koma fram
agaðar tilfinningar og upprunaleg
einlægni gerandans. Er hreint
furða hve hann nær miklu úr litlu
myndefni og hve blæbrigðarík-
dómurinn getur orðið mikill á litl-
um fleti. Og þótt listamaðurinn
staðsetji oft musteri, klaustur,
kirkjur og trúarlegar verur inn í
myndir sínar þá virka aðrar
myndir þar sem hann lætur sér
nægja eitt fjall ekki síður sem
málaðar af guðlegum innblæstri.
Hér eru sem sagt ekki á ferð
myndir umbrota og óheftrar tján-
ingar heldur fágunar og aga.
Svein hefur þannig lítið að sækja
til listhefðar aldarinnar og lætur
sér nægja að rækta sinn garð. Og
þó er ekki hægt að segja að þessar
myndir séu gamaldags því að yfir
þeim er fágun og þokki, sem verð-
ur að teljast til hins sígilda í tíma
og rúmi.
Lærdómsríkt er að skoða hér vel
myndir svo sem „Búdapest" (1),
„St. Victoriae-fjallið" (12), „I
fótspor Cézanne" (13), „Grenen við
Skagen“ (34) og „Hallingskarvet"
(71).
Þetta er óvenjuleg sýning, sem
ánægjulegt var að skoða.
L“J
r * Úr i úrvali.
Hér eru sýnishorn af
nokkrum gerðum. Hálsúr
í keðju. Stálúr með keðju.
Plastumgjörð.
Litir: Svart, rautt, bleikt.
Ritföng:
Pluto blýantar ............ 7,-
Bókaplast 3x33cm ..........39,-
Hringfarar (Sirklar) .... frá 36,-
Stílabækur/ reiknings-
bækur ................frá 9,-
Teikniblokkir A-4 .........49,-
Teikniblokkir A-3 .........55,-
Reglustikur með reiknivél, klukku og samanburðartöflu.
M. ^ «
Skólatöskumar
vinsælu
FJÁLLRÁVEN og önnur góð
vörumerki úr níðsterkum efnum.
JJJbod:
Skolavörumar '
ærdu hiá okkurn
st. 80-116 399,-
Barnaúlpur
m.hettu ....
Skólabuxur,
flauel .......st. 110-150 349,-
Skólabuxur, denim .. frá 445,-
Skólaúlpur ........frá 1.225,-
Gott úrval af allskonar fatnaði.
Skólabækur-kennslubækur
Við bjóðum allar skólakennslu-
bækurnar sem gefnar eru út af
Almenna bókafélaginu og Bókaút-
gáfunni Iðunni.
HBtPBkTffh
Margir stíga nú sin fyrstu skref á skólabrautinni, en aðrir
taka upp þráðinn þar sem frá var horfið s.l. vor.
Að mörgu þarf því að hyggja. Skólafatnaði, skólabókum,
skólatöskum, ritföngum og ýmsu fleiru.
Þessu fylgja oft mikil útgjöld fyrir heimilin og skólafólkið.
Það er því mikils um vert að beita hagsýninni. Kaupa
vandaða vöru á góðu verði, — fá mikið fyrir litið.
AHKLIG4RDUR
MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ