Morgunblaðið - 09.09.1984, Page 2
82
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984
NeU vid matargerö í eldhúsi sínu í Marbella þegar verið var að undirbúa útgáfu matreiðslubókarinnar.
„Loksins gerði
ég eitthvað
fyrir sjálfa mig“
Arthur Rubinstein var heimsfræg-
ur píanóleikari eins og kunnugt er,
hann lést irið 1983, 95 ára að
aldri.
Það hefur verið hljóðara um
konu bans, Nela, sem kornung
kynntist mannsefni sínu, lifði með
honum súrt og sætt — konan á
bak við manninn eins og hluLskipti
margra kynsystra hennar hefur
verið, bæði fyrr og síðar.
Rubinstein hóf að nema píanó-
leik í bernsku, en sjálfur sagði
hann að hann hefði fyrst farið að
taka þetta alvarlega eftir að
hann kynntist konu sinni.
Sú er þetta ritar minnist enn
með ánægju hljómleika í Chi-
cago, á sjötta áratugnum, þar
sem Rubinstein lék einleik.
Hann hafði fremur litlar hendur
og stutta fingur en það hélt is-
lensk stúlka, í fáfræði sinni, að
útilokaði snilldarleik á pianó.
Raunin var að sjálfsögðu önnur.
Eftir meira en 50 ára hjóna-
band skildi Arthur Rubinstein
við konu sina, Nela, og gekk að
eiga einkaritara sinn, Annabella
Whitestone, sem var 50 árum
yngri en hann. Rubinstein var þá
á 93. aldursári, meira og minna
rúmliggjandi og nær blindur.
Hann lýsti þvi yfir um það leiti,
— sagði Nela
Rubinstein
að til að ná eins háum aldri og
hann ættu menn að drekka einn
whiskey-sjúss á dag, reykja stór-
an vindil og eltast við fallegar
stúlkur. Hann sagðist hafa verið
búinn að fá nóg af Nela, sem
stöðugt hafi verið að segja hon-
um að borða ekki þetta og hitt,
hann ætti ekki að reykja og
s.frv.
Rubinstein lést eftir rúm tvö
ár í nýju hjónabandi, eiginkonan
unga erfði vænan hlut af auðæf-
um hans að honum látnum.
Nela Rubinstein
Nela, sem hét fullu nafni Ani-
ela Mlynarski, fæddist 1 Ugovo í
Litháen, ein af fimm börnum
stjórnanda Sinfóníuhljómsveit-
arinnar í Varsjá og konu hans.
Hún var því fædd og uppalin við
tónlist, kynntist mörgum þekkt-
um tónlistarmönnum strax i
bernsku og var vön að vera inn-
an um þjóðhöfðingja og fyrir-
fólk.
Nela kynntist Rubinstein þeg-
ar hún var 18 ára gömul og hann
kom til að leika með hljómsveit-
inni, sem faðir hennar stjórnaði.
Hún segir sjálf, að það hafi verið
ást við fyrstu sýn, en Rubinstein
var 21 ári eldri en hún, einhleyp-
ur og annálaður kvennamaður.
En þegar Rubinstein fór að
fara í fjörurnar við ítalska
prinsessu venti Nela kvæði sinu í
kross og giftist öðrum þekktum
píanóleikara, Mieczyslaw Munz,
og flutti með honum til borgar-
innar Cinncinati, í Ohio-fylki í
Bandaríkjunum.
Eftir þriggja ára hjónband
var Nela komin aftur heim í föð-
urhús, skilin, og hóf ballettnám.
Það leið ekki á löngu þar til
Rubinstein var aftur kominn til
sögunnar, hún fór með honum f
hljómleikaferðalög til ýmissa
borga í Evrópu þar sem hann
lék. Systir Nela fór með til að
gæta alls velsæmis eins og tiðk-
aðist á þeim tíma.
Þau gengu svo i hjónaband sex
árum eftir að þau kynntust fyrst
og eignuðust fjögur bðrn. Þau
eru: Eva ljósmyndari og Paul
verðbréfasali, bæði fædd í Paris,
og Aline geðlæknir og John leik-
ari fædd í Bandaríkjunum. Eftir
að börnin fæddust gat Nela ekki
haldið áfram að fylgja manni
sínum eftir á ferðalögum og
þurfti að gæta þeirra heima á
meðan þau voru ung.
Nela hóf fljótt að fikra sig
áfram í matargerð, fyrst í litlu
íbúðinni í París, þar sem hún
hafði tvær gashellur til að elda
á, og síðar í glæsilegum heimil-
um, sem þau áttu samtímis í
París, Hollywood, New York,
Genf og á Marbella á Spáni.
Nela varð fljótt þekkt sem
frábær matreiðslukona, meðal
gesta þeirra við matarborðið
voru þekktir listamenn og sam-
kvæmisfólk. Heimilisvinir í
Hollywood voru leikararnir
Katharine Hepburn, Gregory
Peck, Clark Gable, Joan Craw-
ford, Charlie Chaplin og Edward
G. Robinson, svo einhverjir séu
nefndir.
Það varð fastur siður eftir
tónleika, sem Rubinstein lék á,
að þau hjón byðu til kvöldverðar
heima hjá sér. Matargerð hús-
freyjunnar var sambland af
pólskum, frönskum og banda-
rískum mat, sem hún á einkar
skemmtilegan máta töfraði fram
eftir eigin hugviti.
Það er sagt að Rubinstein hafi
þótt nóg um allt hrósið, sem hún
fékk, hann kvartaði undan þvi að
menn gleymdu um leið leik hans
að blanda geði við hinn mikla
fjölda útlendinga, sem býr i
Marbella.
En svo kom að því að Rubin-
stein hugðist skrifa endurminn-
ingar sínar, eins og margra er
siður, og þá tóku þau hjón inn á
heimili sitt í Marbella stúlku,
sem hjálpa átti til við skriftirn-
ar. Sú ráðning átti eftir að verða
afdrifarík, því þegar ritarinn yf-
irgaf húsið tók hún húsbóndann,
sem var 50 árum eldri eins og
áður segir, með sér.
Matreiöslubókin
Matreiðslubókin „Nela’s Cook-
book“ kom út á síðasta ári, þegar
höfundur var 75 ára að aldri.
Fyrir meira en 40 árum var
hún óspart hvött til að koma
uppskriftum sínum á framfæri,
helsti hvatamaður var eiginkona
útgefandans, Alfreds A. Knopf,
en hún er nú látin.
Það var heilmikið verk að
koma réttunum í útgáfuform,
Nela þurfti að búa til alla réttina
og láta mæla allt og vega. Hún
hafði aldrei farið eftir fyrirfram
ákveðinni forskrift við matar-
gerð. Um eiginmann sinn og við-
skilnaðinn hefur Nela engin orð,
hún kýs að muna aðeins góðu ár-
in þeirra. Um seinni konuna seg-
ir hún að enginn fái sig til að
Nela og Arthur Rubiustein meðan allt lék í lyndi. Myndin tekin á heimili
þeirra í París árið 1959.
á tónleikunum þegar þeir færu
að dást að matnum.
Þessi ár hefur Nela kallað
góðu árin þeirra.
Þegar Rubinstein var orðinn
75 ára gamall varð hann að
hætta að mestu hljómleikaferð-
um vegna dvínandi sjónar. Eftir
það eyddu þau hjón mestum
tima sínum í húsinu sinu i Mar-
bella og þar héldu þau upptekn-
um hætti með að halda matar-
boð og sækja önnur. Milli þess
spiluðu þau á spil, sín á milli
töluðu hjónin 7 tungumál, svo
þau voru ekki í vandræðum með
segja orð, hvorki gott né illt, og
um hluta hennar f arfinu segir
hún aðeins, að þetta hafi bara
verið peningar.
Um leið og Nela kýa að minn-
ast aðeins góðu áranna er hún að
undirbúa flutning á ösku Rub-
instein, sem geymd er í Genf, til
ísrael, þar sem má að strá henni
yfir skóglendi, sem skírt var upp
og nefnt eftir honum í virð-
ingarskyni.
Um útkomu bókarinnar hafði
Nela það eitt að segja „að loksins
gerði hún eitthvað fyrir sjálfa
sig“. B.I.
„Lukkudagar“
Vinningsnúmer 1.-31. .ágúst1984
1. 28593 11. 42383 21. 36735
2. 56859 12. 46450 22. 6578
3. 2378 13. 23735 23. 11233
4. 33703 14. 52197 24. 34642
5. 40761 15. 17148 25. 4036
6. 18359 16. 34032 26. 56900
7. 35702 17. 23190 27. 47624
8. 34295 18. 917 28. 27211
9. 3848 19. 50901 29. 5281
10. 6698 20. 55018 30. 572
31. 44880
Vinningshaffar hringi í síma 20068.
Terylene herrabuxur
á 700 kr., kokka- og bakarabuxur á 600 kr.
Saumastofan Barmahlíö 34, sími 14616, inngang-
ur frá Lönguhlíö.
Minnisstækkun — 64KB í IBM PC og aðrar einkatölvur Bjóöum nú 64KB minni, eöa 9 stk. 4164-15 á aöeins kr. 1.980.- Kúlulegasalan hff., Stýritæknideild, Suöurlandsbraut 20. Sími 84500.
XJöföar til A -K fólks í öllum starfsgreinum!