Morgunblaðið - 18.11.1980, Page 40
F
Síminn á afgreiðslunni er
83033
FUrflunblfl&ib
^SÍminn á afgreiðslunni er
83033
2<l«retinblflbtb
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1980
Flugleiðir ræða stofnun nýs
flugfélags með Nígeríumönnum
Stefnt að áætlunarf lugi
milli Afríku og Evrópu
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF
GRÓ er talin ónýt eftir að hún
hrapaói til jarðar, þegar stél
hennar fór í raflínu hjá Búrfelli
í gær. Tveir menn voru í
þyrlunni og slapp flugmaður-
inn ómeiddur en farþeginn
marðist á fæti. Þessa mynd tók
Kristján af þyrluflakinu við
Búrfell í gær. Sjá bls. 23.
AÐ UNDANFÖRNU hafa staðið yfir viðræður fulltrúa Flugleiða og
Nígeríumanna um hugsanlega stofnun nýs flugfélags þessara aðila til
þess að stunda leiguflug og áatlunarflug milli Evrópu og Nígeríu.
Hefur verið rætt um að Nígeríumenn eigi 60% í slíku flugfélagi en
Flugleiðir 10% og sjái um allan rekstur og stjórnun auk þess að leggja
til flugvélar og flugliða.
Fyrst var farið að ræða þessa
hugmynd sl. vor þegar Baldur
Maríusson, starfsmaður F’lugleiða,
var á ferð í Nígeríu í erindum
Flugleiða vegna pílagrímaflugs.
Leigutaki véla Flugleiða í nýaf-
stöðnu pílagrímaflugi milli Níg-
eríu og Saudi-Arabíu er athafna-
maður í Nígeríu, Adamu að nafni,
og er hann forgöngumaður í Níg-
eríu um framkvæmd þessarar
hugmyndar.
Hefur Adamu þegar sótt um
leyfi til áætlunar- og leiguflugs
innan og út úr Nígeríu og hafa
fulltrúar Flugleiða m.a. rætt þetta
mál við menn úr flugmálastjórn
Nígeríu.
Hugmyndin er að byrja þetta
fiug með Boeing 727-100-þotum
Flugleiða sem eins konar prófraun
á þennan rekstur, en rætt hefur
verið um að áætlunin frá Evrópu,
Ivondon eða Luxemborg, yrði til
Maiduguri austast í Nígeríu og
Kaduna sem er vestast í Nígeríu,
skammt norður af höfuðborginni
Lagos. Þá hefur einnig verið rætt
um Sokoto í norðurhluta Nígeríu
sem áætlunarstað, en ráðgert er
að flogið verði frá Evrópu til
Maiduguri og til Kaduna sem
endastöðvar, en síðan aftur með
viðkomu í Maiduguri í bakaleið-
inni.
Viðræður þessar eru á algjöru
byrjunarstigi, en þarna er talið að
sé um opinn markað að ræða og
talsvert mikla flutninga frá þess-
um heimshluta sem hefur fram til
þessa verið mjög afskiptur í ferða-
möguleikum flugleiðis, en Níger-
íumenn eiga mikil viðskipti við
Evrópubúa.
Byggingarsjóður ríkisins:
45% hækkun
dollars frá
áramótum
VERÐ á hverjum Bandarikja-
dollar hefur hækkað um 44,90%
frá síðustu áramótum. eða úr
394.40 krónum i 571,50 krónur.
Sé hækkunin hins vegar at-
huguð frá 31. mars sl. í kjölfar
gengisfellingar ríkisstjórnar-
innar kemur í Ijós, að hækkunin
er 33% á því tímabili, eða úr
429,70 krónum í 571,50 krónur.
Yfir sumartímann var gengi
Bandaríkjadollars mjög stöðugt,
en það var síðan 21. ágúst, sem
ríkisstjórnin heimilaði sig á
genginu. Frá þeim tíma hefur
verð á hverjum Bandaríkjadoll-
ar hækkað um 15,08% eða úr
496,60 krónum í 571,50 krónur,
en það er tæplega 3ja mánaða
tímabil.
Breytingin á gengi vestur-
þýzka marksins hefur verið
mjög svipuð, eða frá 31. marz sl.
hefur verð á hverju vestur-
þýzku marki hækkað um 33,61%
og frá 21. ágúst sl. um 15,06%>.
1138 miUj. kr. vantar
til venjubundimia lána
ELLEFU hundruð þrjátíu og
átta milljónir króna vantar
upp á það mark. sem sett var í
lánsfjáráætlun ríkisstjórnar-
innar fyrir Byggingarsjóð
ríkisins um skuldabréfakaup
iífeyrissjóðanna af bygg-
ingarsjóðnum. Sigurður E.
Guðmundsson. framkva'mda-
stjóri Ilúsna'ðismálastofnunar
ríkisins. hefur skrifað lífeyris-
sjóðunum dreifibréf vegna
þessa og kemur þar fram. að
aðrir tekjustofnar sjóðsins
hafa einnig skilað minna fé en
reiknað var með. og leiði þetta
til þess, að ógerlegt verði fyrir
Ilúsnæðismálastofnun rikis-
ins að veita venjubundin lán á
þessu ári. nema tekjur bygg-
ingarsjóðs aukist verulega.
Segir Sigurður aukin skulda-
bréfakaup lífeyrissjóðanna
einu tekjuvon sjóðsins nú.
í bréfinu segir, að allir lífeyris-
sjóðir á samningasviði Alþýðu-
sambands Islands, séu beðnir að
kaupa nú þegar eða sem allra
fyrst skuldabréf af Byggingarsjóði
ríkisins og er beiðninni beint jafnt
til þeirra sjóða, sem þegar hafa
keypt skuldabréf af byggingar-
sjóði fyrir upphæð, sem nemur
20% eða meira af ráðstöfunarfé
þeirra á þessu ári, sem og hinna,
sem ekki hafa náð því marki.
í bréfinu er „þeim eindregnu
tilmælum komið á framfæri við
lífeyrissjóðina, að þeir geri nú öll
þau kaup á skuldabréfum af Bygg-
ingarsjóði ríkisins, sem þeir frek-
ast geta".
Verkfall við Hrauneyja-
foss hófst á miðnætti
í gærkveldi náðust samningar við hljómlistarmenn
SAMNINGAR tókust í gærkveldi
rétt fyrir 22.30 í kjaradeilu Fé-
lags islenzkra hljómlistarmanna
og Sambands veitinga- og gisti-
húsaeigenda. en þeir munu hafa
verið í hurðarliðnum nú um
helgina. Þá var allt útlit fyrir að
boðað verkfall verkalýðsfélags-
ins Rangægings við Ilrauneyja-
foss ka*mi til framkvæmda á
miðnætti síðastliðnu. en sátta-
nefnd ríkisins mun hafa ætlað
Verður ASÍ-þingi frestað
eða aukaþing haldið í marz?
VERÐI ekki komnar fram upp-
lýsingar um fyrirætlanir ríkis-
stjórnarinnar um efnahagsráð-
stafanir íyrir ASÍ-þing, sem hefst
á mánudag, verður lögð fyrir
þingið tillaga um að fresta því
eða efna til aukaþings í marzm-
ánuði. Þetta kom fram í ræðu,
sem Pétur Sigurðsson flutti á
Alþingi í gær.
Pétur Sigurðsson kvað útilokað
annað en þessar ráðstafanir væru
að einhverju leyti farnar að
mótast. Stefnuræða forsætisráð-
herra hafi verið send þingmönn-
um í byrjun Alþingis og hún hafi
verið flutt 24. október og þar væru
boðaðar ráðstafanir í efnahags-
málum sámfara myntbreyting-
unni. Pétur sagði, að fengjust ekki
svör frá forsætisráðherra áður en
að Alþýðusambandsþingi kæmi,
myndi þá verða lögð fram þar
tillaga, annað hvort um það að
þinginu yrði frestað t.d. fram í
marzbyrjun, eða þá að kallað yrði
saman aukaþing til þess að fjalla
um þessar ráðstafanir.
Pétur sagði í þingræðu sinni, að
forsætisráðherra hlyti að geta
gefið fulltrúum þeirra 40 þúsund
launþega, sem sætu ASI-þing,
einhverjar upplýsingar, svo langt
væri liðið, að útilokað væri annað
en fyrir lægju tillögurnar um
efnahagsráðstafanir.
sér að reyna til þrautar að ná
fram samningum í nótt.
Vegna kjaradeilu Rangæings og
verktakanna við Hrauneyjafoss
hefur raforkuverð spilað talsvert
inn í umræður. Ekki mun hafa
verið fundin lausn á því máli í
gærkveldi, en fulltrúar verkalýðs-
félagsins munu hafa átt viðræður
við stjórnvöld vegna þess máls.
Þá voru farmenn á fundum í
gærdag, en fundinum lauk í
gærkveldi og hefur nýr fundur
verið boðaður á miðvikudag klukk-
an 09. Klukkan 21 í gærkveldi
komu blaðamenn á sáttafund og
var búizt við því að fundurinn
stæði í nótt. Voru þá liðnir 24
tímar frá því er síðasta sáttafundi
blaðamanna og viðsemjenda
þeirra lauk, en hann stóð í 30
klukkustundir. Verkbann Vinnu-
veitendasambands íslands gagn-
vart Blaðamannafélagi íslands
kemur til framkvæmda 19. nóvem-
ber og sólarhring síðar kemur
verkfall félagsins til fram-
kvæmda.
L