Morgunblaðið - 18.11.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1980
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
Jón Guðmundsson, fékk viður-
nefnið Jón 100% vegna þess að
hann vann allar sínar 10 skák-
ir í keppninni.
Oft er deilt
um aukaatriði
Nú stendur til að senda
skáksveitir til Möltu eins og
alþjóð veit og auðvitað skiptir
miklu máli að við getum sent
okkar sterkasta lið, en því
miður eru forföll bæði í
kvenna- og karlaflokki. Guð-
mundur Sigurjónsson hefur
ekki tök á því að fara og er það
að sjálfsögðu miður, en vanda-
málið með Margeir Pétursson
er annars eðlis. Ef til vill hefur
Margeir rök fyrir því að hon-
um beri að vera á 3. borði í
þessari væntanlegu keppni, en
oft er það svo, að verið er að
deila um aukaatriði og að mínu
viti er svo nú.
Svona einfalt er það
Eg lít svo á, að þegar menn
eru valdir í landslið, hafi þeir
vissum skyldum að gegna
gagnvart þjóð sinni og við
ungu skákmennina vil ég
segja, að Jón L. Árnason hefði
getað leyst þessa deilu með því
að bjóða vini sínum, Margeiri,
að skipta um sæti. Og Margeir,
fyrst verður maður að hugsa
um þjóð sína, síðan kemur
röðin að okkur sjálfum. Já,
svona einfalt er það.
Og að lokum vona ég að
fyrirliðinn, Ingi vinur minn
Jóhannsson, verði það hepp-
inn, að sami andi verði á Möltu
og forðum í Argentínu, þegar
Baldur var fyrirliði.
Með þökk fyrir birtinguna."
Kemur í
Málþingi
Kjartan Ottósson, ritstjóri
Málþings, tímarits handa jafn-
aðarmönnum um þjóðfélags- og
menningarmál, hringdi vegna
áskorunar í Velvakanda-dálkum
um endurflutning eða birtingu á
erindi Vilmundar Gylfasonar er
hann flutti í hljóðvarp á páska-
dag: — Ég get upplýst það, að
tímaritið Málþing hefur fengið
erindið til birtingar í næsta
tölublaði sem kemur út í des-
ember og faest í söluturnum og
bókabúðum.
fyrir 50 árum
„Ef við höldum út á þá
hraut, að við eyðum mciru en
við öflum, þá erum við á
glötunarvegi.“
bessi orð eru tekin úr
fjármálara*ðu Einars Árna-
sonar ráðherra, er hann flutti
í byrjun síðasta þings. Og
Einar hjelt áfram:
„ÍJt á við er þjóðin nú ver
stödd fjárhagslega en í árslok
1928. Ef árið 1930 verður
ekki betra en meðalár i fram-
leiðslu og verslun, getur hún
ekki að minu áliti greitt
úttekt sina, nema hún sýni
meiri sparnað og sjálfsafneit-
un en siðastliðið ár. Jeg vildi
því mega bera þjóðinni þá
nýársósk, að hún beri ga fu til
þess að gæta vel fjárhags síns
á þessu nýbyrjaða ári..
„Nýjársboðskapur fjár-
málaráðherrans til þjóðar-
innar var sparsemi og sjálfs-
afneitun. Skyldu það vera
þessar ágætu dygðir. sem
mest hafa prýtt núverandi
stjórn og hennar verk. Hvað
segja efndir loforðanna um
það?...“
R.K. skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Mig langar að skrifa hér fáein
orð um hinn svokallaða Moon-
söfnuð. Þegar ég var staddur úti í
Aberdeen í Skotlandi 1978 kynnt-
ist ég þessum söfnuði svolítið. Ég
er nú trúaður og held því fram að
hægt sé að nálgast Guð á ýmsa
vegu, þó aðallega með því að
viðurkenna og trúa því í einlægni
að Jesús Kristur sé frelsari vor og
vegstýrir og einnig að hann hafi
dáið fyrir syndir vorar.
Ég álít Moon
vera einn slíkan
Það er hvergi getið um það í
Biblíunni að einhver umboðsmað-
ur, líkt og Moon segist vera, komi
til þess að undirbúa himnaríki á
jörð, þar sem Kristur er ekki
holdlega eða andlega dauður nema
þá í huga trúleysingjans. En það
er getið um and-krist í Biblíunni.
Séra Moon minnir mig einna helst
á hann, en sá hefur talnagildið 666
eða 616. Þori'ég ekki að fullyrða að
Moon hafi talnagildi þetta. (At-
hugasemd: Hitler hafði talnagild-
ið 666). En þó munu koma margir
falskristar og álít ég Moon vera
einn siíkan.
Það átti að breyta
Kranít í eðalmálm.
Ekki lét Kristur búa sér hallir
eða skreytti sig djásnum, er fyigj-
endur hans gáfu, líkt og Moon
gerir. Þegar ég var staddur þarna
úti ræddi ég við nokkra fylgjendur
Moons um trúna. Á meðan sátu
aðrir og töldu peninga, ræddu um
peninga eins og þeir væru að
tilbiðja Mammon en ekki Guð.
Ekkert sögðu þeir árangursríkara
til undirbúnings 1000 ára ríkisins
en peninga og gnægð auðæfa.
Húsið sem „þeir“ bjuggu í þarna
úti var sæmilegt. En áætlunin um
framtíð þess að mínu mati var
ókristileg. Allt átti að verða gulli
skreytt og gersemum, það átti að
breyta granít í eðalmálm.
Satan notar ýmis brögð
Einnig var mér tjáð þarna að
Kristur sjálfur kæmi ekki aftur til
þess að stofna 1000 ára ríkið,
heldur einhver umboðsmaður
Guðs (Moon?), því að verk Krists
hefði víst ekki verið fullkomnað að
þeirra mati, Kristur hefði fallið á
prófinu, er Guð setti fyrir hann.
Ég vona því að þeir, er sjá
þáttinn um Moon, hrífist ekki af
kenningum hans, heldur skynji
það, að Satan notar ýmis brögð til
þess að bægja saklausum sálum
frá hinum eina sanna Kristi.
Guð veri með ykkur öllum.
P.S. Þeir eru svo uppáþrengj-
andi, að það tók mig rúma 6
mánuði að losna við þá, því að þeir
eru hér líka undir nafninu „sam-
tök heimsfriðar og sameiningar“.“
Gervasoni:
Sjálfsagt að veita
honum landvistarleyfi
Torfi skrifar 13. nóv.:
„Kæri Velvakandi!
Mér finnst hryllilegt að Patrick
Gervasoni þurfi að bíða svona
lengi eftir svari frá dómsmálaráð-
herra. Það er sjálfsagt að veita
honum landvistarleyfi. Viijum við
íslendingar bera ábyrgð á því að
maðurinn lendi í þriggja ára
fangelsi? Vegna lögbrots sem ekki
er einu sinni hægt að fremja á
Islandi? Nei.
Ég hvet dómsmálaráðherra til
að veita honum landvistarleyfi
strax. Gervasoni bíður nú milli
vonar og ótta. Hann hefur þjáðst
nógu lengi fyrir sinn málstað."
litasjónvörp
|GtC^með 14”-20”-50”
„Linytron Plus“
myndlampa er
japönsk tækni
í hámarki.
HLJÓMTÆKJADFII O
^KARNABÆR
. LAUGAVEGI SIMI 2fi
LAUGAVEGI 66 SIMI 25999 ~ v*s'.oa.y.umj
Pantiö tíma, viö þvoum — þrífum og gljáfægjum
bílinn meö Mjallarbóni eöa úrvalsbóninu B 2000 hja
Grandabónstööinni Grandagaröi 5.
Viö tjöruþvoum bílinn meðan þiö bíöiö.
Færiö bílinn í vetrarfrakkann meö góöri bónhúö.
Opið alla daga nema sunnudaga.
GRANDABÓNSTÖÐIN
GRANDAGARÐI 5