Morgunblaðið - 18.11.1980, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1980
GRANI GÖSLARI
Er þetta smitsjúkdómur, læknir?
... að gera fram-
tíöaráœtlanir
Þú þarft ekki að skríða, ég
borgaði reikninginn í gær!
Skákmótið á Möltu:
Fyrst verður maður að
hugsa um þjóð sína
Róbert Sigmundsson, áhug-
amaður um skák, skrifar 16.
nóv.:
„Kæri Velvakandi!
Það var fyrir 41 ári síðan
eða árið 1939, að fyrir íslands
hönd fóru til Buenos Aires í
Argentínu 5 skákmenn til að
taka þátt í alþjóðlegu skák-
móti. Þessir menn voru Baldur
Möller sem var á 1. borði,
Ásmundur Ásgeirsson á 2.
borði, Jón Guðmundsson á 3.
borði, Einar heitinn Þorvalds-
son á 4. borði og Guðmundur
Arnlaugsson var varamaður.
Guðmundur var þá við nám í
Danmörku og hafði verið boðið
að tefla fyrir Dani á 4. borði,
en þegar honum var boðið að
keppa fyrir sitt land, hvarflaði
ekki að honum annað en að
taka því boði, þótt það væri
einu borði lakara en Danir
buðu. Hann fór ekki fram á að
vera á 4. borði, en ég er viss um
að ef sú staða hefði komið upp
hefði Einar heitinn boðið Guð-
mundi að skipta um sæti.
Komust upp
fyrir stórveldi
Aliir biðu spenntir eftir því
að vita hvort okkar mönnum
tækist að vinna B-riðil og
þegar úrslit voru kunn höfðu
íslensku skákmennirnir kom-
ist upp fyrir stórveldið Kanada
og unnið stærsta og fallegasta
bikar sem þjóð okkar hefur
unnið, forsetabikarinn svo-
nefnda, og var mikill fögnuður
meðal Islendinga.
Jón 100%
Á þessum árum var ekki
farið að veita mönnum stig
fyrir árangur sinn, s.s. al-
þjóðameistara eða stórmeist-
ara. Ef svo hefði verið er ég
viss um að allir þessir menn
hefðu fengið stig, jafnvel titla
líka. En einn þessara mann,
Kenningar
Darwins eða
ævintýrið mikla
Þórhallur Már Sigmundsson
skrifar:
„Öldum saman hafa börn um
víða veröld hrifist af ævintýrum
er hinir fullorðnu hafa samið og
sagt þeim frá.
Fyrir börnum er heimur þess-
ara hugsmíða oft jafn raunveru-
legur og veruleikinn sjálfur. Einn-
ig hafa verið samin ævintýri fyrir
fullorðna, og geymir mörg þeirra
bók nokkur er oft hefur verið
nefnd „bók bókanna". Þótt oft sé
gaman í heimi ævintýranna þá
rennur sannleikurinn upp fyrir
þeim litlu með vaxandi þroska og
skilningi.
Oft virðist erfiðara fyrir hina
fullorðnu að gera greinarmun á
draumórum og veruleika.
Að vísu trúa fáir fullorðnir á
tilvist jólasveinanna eða Grýlu og
Leppalúða, en trúa samt á veru-
leika ævntýranna um Adam og
Evu og örkina hans Nóa.
Maðurinn er vansælasta
lííveran hér á jörðu
Ákaft hefur verið deilt um
kenningar Darwins um uppruna
mannsins og þá ekki síst af þeim
er trúa á sannleiksgildi sköpunar-
sögu biblíunnar.
Það má lengi deita um hvað sé
búið að sanna eða afsanna á
vísindalegan hátt af kenningum
Darwins, enda °ru allar kenningar
umdeilanlegar.
Þó svo færi að allir yrðu sam-
mála, um að kenningar Darwins
væru rangar, þá styður það ekki á
neinn vísindalegan hátt sannleiks-
gildi hókus-pókus kenningar biblí-
unnar.
Biblían skýrir svo frá, að guð
gyðinga hafi skapað okkur menn-
ina í sinni mynd. Ekki eru til
neinar áreiðanlegar heimildir um
hvernig guð þessi lítur út, svo
erfitt verður að fá vísindalega
niðurstöðu um hvort hann sé
líkari okkur en aparnir.
Þórhallur Már Sigmundsson
Hvað sem sköpun eða þróun
líður, þá er augljóst að maðurinn
er vansælasta og e.t.v. misheppn-
aðasta lífveran hér á jörðu.
Hinn viti borni maður eða
kóróna sköpunarverksins er
stundum nefnd sú lífvera sem
einna minnsta framtíðarmögu-
leika virðist eiga hér á jörðu. Það
er samt ekki fortíðin heldur fram-
tíðin er sker úr um það.
Virðingarfyllst."
Ég man ekki hetur en að þú hafir ekki þolað hana þegar hún
söng i útvarpiö!
Þá nálgumst við aft
ur kjarna málsins
Reynir Valdimarsson skrifar
12. nóv.:
„Kæri Velvakandi!
Aðeins fáein orð til Kristjáns
Jóhannessonar, Hafnarfirði, en
samtímis afsökun til annarra
lesenda þinna, sem skilið hafa
vafalasut strax hvað ég átti við.
Orðskýringar: 1) lítið heilabú =
takmarkaður skilningur á efn-
inu, 2) fulltrúi skólaæsku = gagn-
rýni á skólakerfið, 3) fjandmaður
Guðs = afneitari kristinnar trú-
ar, 4) ungæðislegt gaspur = tal,
sem lítið verður byggt á, vegna
reynsluleysis.
Hinum ungu er ég síður en svo
reiður eða finn þeim neitt til
foráttu. Það eru þín orð. Hins
vegar er ekki annað hægt en að
vorkenna þeim, og það geri ég
einlæglega.
Búinn að losa sig
við ok Darwins
Kæri Kristján. Darwin var
grafinn, sköpunarsagan mun
aldrei Hta neina gröf. Kristin trú
eflist hins vegar, sem árin líða.
Þú lifir í blekkingu en ekki í
þekkingu.
Hinn frægi Shapley (eða var
það annar) varpaði fram spurn-
ingum varðandi örlög þróunar-
kenningarinnar. Hann tekur
réttilega með í dæmið, að hlut-
verki hennar kunni að vera lokið,
en telur þó líklegra að örlögin
verði önnur. Læknirinn á Akur-
eyri verður að hryggja K.J. með
því að leyfa sér að vera á öðru
máli.
Ég hefi í mínu læknanámi
drukkið af lindum nútíma vís-
inda, eins og K.J. orðar það svo
skáldlega, og fyrir það er ég
þakklátur. En þau nútíma vís-
indi, sem átt er við, voru ham-
ingjusamlega búin að losa sig við
ok Darwins á afar mörgum
sviðum. Það bið ég K.J. að
hugleiða vel, því þá nálgumst við
aftur kjarna málsins, eftir þref
um smávægilegra efni.
Með þökk fyrir birtinguna."