Morgunblaðið - 18.11.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1980
33
fclk í
fréttum
+ „Listin er löng en lífið er stutt,"
sögðu Rómverjar á sínum tíma. Þó
þetta sé vissulega satt vill listin nú
stundum hrörna sem líkamshulstur
manna. Munurinn er hins vegar sá,
að hægt er að „hressa upp á listina"
en við skrokkinn er ekkert hægt að
gera. Nú stendur yfir viðgerð á einu
frægasta málverki allra tíma. Það er
„Síðasta kvöldmáltíðin" eftir Leon-
ardo da Vinci. Þetta er fresco-mynd,
og er hún í Mílanó á Ítalíu. Fresco-
myndir nefnast myndir sem lista-
menn mála beint á vegg eða loft.
Þessi vinnuaðferð naut mikilla vin-
sælda fyrr á öldum. Listamennirnir
notuðu kalkliti og skreyttu steininn
oft á undursamlegan hátt. „Síðasta
kvöldmáltíðin" lá undir skemmdum
vegna þess að litirnir höfðu dofnað
og sprungur voru komnar í vegginn,
sem hún er máluð á. — Þessi mynd
sýnir hóp ferðamanna dást . að
verkinu í Mílanó. Ef myndin prent-
ast vel, má sjá á hve sérstakan hátt
Leonardo hefur málað verkið. Þá
horft er á myndina virðist hún vera
áframhald á byggingunni sjálfri, en
ekki gafl hennar.
„Síðasta kvöldmáltíðin “
Bensínhákurinn
„negldur44
+ Listamanninn Austin Shuler lang-
aði að koma því skýrt og greinilega á
framfæri, að dagar stóru bensín-
freku bílanna í Ameríku, væru
taldir. Því keypti hann sér gamlan
Cadillac fyrir 150 dollara og fyrir þó
nokkuð meiri pening bjó hann til
tveggja tonna nagla. Síðan lyfti
krani naglanum 40 metra upp í loftið
og lét hann falla í gegnum bílinn.
Bílnum hafði verið komið fyrir á
(auðvitað) olíutunnum. Þannig varð
þetta sérstæða listaverk til, sem er
staðsett í Carson í Californíu.
Nýskip-
aður sendi-
herra
+ Nýskipaður sendiherra
Tyrklands, Haluk Özgul,
hefur afhent forseta ís-
lands trúnaðarbréf sitt, við
athöfn að Bessastöðum.
Viðstaddur var Ólafur Jó-
hannesson utanríkisráð-
herra. Forseti íslands hafði
boð síðdegis fyrir sendi-
herrann.
ELDAVÉLAR ■■iiiii 1 HELLUBORD
VIFTUR k: ' OFNAR
°9 hér er % eldavélin
nýja danska lT ein með öllu
100 ára ferill og yfirgnæf-
andi markaðshlutur í matar-
gerðarlandinu Danmörku
eru til marks um gæðin.
Breidd 59,8 cm. Stillanleg
hæð: 85-92 cm.
Fæst einnig án klukku
og grillmótors.
LJós í öllum rofum ^ |
veitlr öruggt yfirlit
og eykur enn glæsibrag
hlnnar vönduðu vólar.
Barnalæsing á ofnhurð
og hitaskúffu.
Emaiiering í sérflokki
og fjórir litir:
hvítt, guibrúnt, grænt
og brúnt.
Voss eldhúsviftur í
sömu litum: súper-sog.
stiglaus sogstilling,
varanleg fitusía og |
gott Ijós.
Hagstætt verð og góðir
greiðsluskilmálar.
GRAM kæli- og frystiskápar
f sömu litum.
Ný|a grillelementið
griliar út á jaðra
stóru ristarinnar.
t.d. 8 stór T-bone
í einu.
25% orkusparnaður
með nýju ofnelementi,
hurð og einangrun.
Samt tryggir aukin
hitageta fullkomna
sjálfhreinsun.
Hitaskúffan hefur m.a.
sérstaka lágstillingu
til snöggrar lyftingar
á gerdeigi.
FJórar hraðhellur, ein
með snertiskynjara og
fínstillingu.
Stór sjálfhreinsandi ofn
með Ijósi, grillelementi,
innbyggðum grillmótor og
fullkomnum girllbúnaði.
Útdregin hitaskúffa með
eigin hitastilli.
Stafaklukka. sem kveikir,
slekkur og minnir ó.
HATUNI 6A
/FOnix
SÍMI 24420
SEIKO
TÆKNILEGA
FULLKOMNARI
Einhvern tímann
veröa þau öll fram-
leidd á þennan hátl
SEIKO armbandsúrin ganga rétt árum saman án
stillingar og verðiö á íslandi skákar allri Evrópu.
Seiko mest seldu armbandsúrin.
VALDIMAR ENGIMARSSON
ÚRSMIÐUR
Austuistræti 22 simi 17650