Morgunblaðið - 18.11.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1980
29
/ STUTTU MÁLI
• Skólar og tölvur
• Stóraukin nýting
sil ungastofnana
• Orlof
• Gjaldskrár
• Alkalískemmdir
Meðal þinKmála sem IökO vóru
fram í vikunni, eru þessi:
Breytt grunnskólalöf?
Ragnhildur Helgadóttir (S),
Halldór Rlöndal (S) og Friðrik
Sophusson (S) flytja frumvarp til
breytinga á urunnskólalögum, þ.e.
2. gr., 57. gr. og 64. gr. þeirra laga.
I greinargerð með frumvarpinu
segir m.a.:
„Frumvarp þetta er flutt í eftir-
greindum tilgangi:
1. Að vernda friðhelgi einkalífs;
2. að sporna gegn pólitiskum
áróðri í skólum;
3. að styrkja samband foreldra
og barna annars vegar og
samstarf heimila og skóla
með því að virða rétt foreldra
til að tryggja að fræðslan
gangi ekki gegn trúar- og
lífsskoðunum þeirra.
Frv. er samið í því skyni að
settar séu lagareglur um fræði-
legar rannsóknir í grunnskólanum,
þar sem bæði sé fekið tillit til
einstaklingshagsmuna og þjóðfé-
lagshagsmuna af því, að í grunn-
skólum séu nemendur ótruflaðir af
öðru en því, sem skólinn skal vinna
að eftir grunnskólalögum, og til
hagsmuna af því, að fram fari
fræðirannsóknir, er ekki séu að-
eins frjálsar, heldur megi og fram
fara í grunnskólum, ef sérstaklega
brýn þörf er á.
Áhrif tölvuvæðingar
á skóiakerfið
Birgir ísl. Gunnarsson (S) og
Ragnhildur Helgadóttir (S) flytja
svohljóðandi þingsályktunartil-
lögu um áhrif tölvuvæðingar á
skólakerfi landsins:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að skipa nefnd til að
kanna líkleg áhrif tölvuvæðingar á
skólakerfi landsins. Bæði verði
kannað, hver áhrifin muni verða á
skólahaldið sjálft með aukinni
tölvunotkun í skólum svo og hvaða
kröfur tölvuvæðing í öllu athafna-
og atvinnulífi gerir til skólakerfis-
ins.
Nefndin reyni að meta í grófum
dráttum, á hvaða sviðum þjóðlífs-
ins tölvuvæðingin komi til með að
Tiafa áhrif og í hvaða tímaröð þau
áhrif muni koma fram. Bæði verði
tekið tillit til þeirra, sem starfa
munu með tölvum eða í tengslum
við þær, og einnig til allra hinna,
sem verða neytendur tölvuefnis.
Á grundvelli þessara athugana
verði gerðar tillögur um, hvernig
skólakerfið bregðist við þessum
áhrifum og þeim kröfum, sem af
þeim munu hljótast. Þess verði
sérstaklega gætt, hver verði áhrif
tölvuvæðingarinnar á almenna
grunnmenntun."
Aukin nýtinj;
silungastofna
Vigfús B. Jónsson flytur ásamt 4
öðrum sjálfstæðisþingmönnum,
þingsályktunartillögu um aukna
nýtingu silungastofna. Tillagan
gerir ráð fyrir könnun á ástandi
íslenzku silungastofnanna og stór-
aukinni nýtingu þeirra í öllum
þeim vötnum, sem hæf þykja til
slíks, hvort heldur er í byggð eða
óbyggð.
í greinargerð segir að velflest
stöðuvötn á íslandi séu sáralítið
eða ekkert nýtt. Silungastofnar
hafi fallið í skuggann af „árang-
ursríkri laxarækt". Til þess að efla
byggð í sveitum og auka á mögu-
leika í sportveiði, að ekki sé talað
um aukna verðmætasköpun og
fjölbreytni í matvælaframleiðslu,
beri að hefjast handa um aukna
nýtingu silungastofna. Lokaorð
greinargerðarinnar eru þessi:
„Hvað viðkemur sjálfum
silungastofnunum þarf að kanna
ástand þeirra og bæta það sam-
kvæmt því sem við á, t.d. með
fækkunum, kynbótum og stofn-
skiptum í vötnum. Þá má og
trúlega víða bæta lífsskilyrði í
vötnum með litlum tilkostnaði og
e.t.v. flytja silunga í fiskilaus vötn.
Varðandi sportveiði í vötnum þarf
að stórauka kynningarstarfsemi og
leiðbeiningaþjónustu, einnig bæta
aðstöðu í sambandi við vötnin með
lagningu vega, byggingu sumar-
húsa og fjölgun báta með full-
komnum öryggisútbúnaði.
Eðlilegt má teljast að sú rann-
sókna- og leiðbeiningaþjónusta,
sem hér þarf til að koma, nái
einnig til sjógöngusilunga, þótt
þessi tillaga beinist fyrst og fremst
að nýtingu vatnasilungs."
Tveir orlofsdaiíar
fyrir unninn mánuð
Gunnar Már Kristófersson (A)
og Karl Steinar Guðnason (A)
flytja frumvarp til laga um breyt-
ingu á orlofslögum. Samkvæmt
frumvarpinu skulu 2 orlofsdagar
vera fyrir hvern unninn mánuð á
síðasta orlofsári og reiknast hálfur
mánuður eða meira sem heill
mánuður, en skemmri tími telst
ekki með. Það telst vera vinnutími,
skv. þessari grein, þótt maður sé
frá vinnu vegna veikinda eða slysa,
meðan hann fær kaup greitt eða
hann er í orlofi. Laugardagar,
sunnudagar eða helgidagar teljast
ekki orlofsdagar. Orlofsárið er frá
1. maí til 30. apríl.
Gjaldskrár
þjónustustofnana
Friðrik Sophusson (S) flytur
tillögu þess efnis, að þjónustu-
stofnunum ríkisins verði gert skylt
að senda allar tillögur um efnis-
legar breytingar á gjaldskrám til
umsagnar Neytendasamtakanna
og Verzlunarráðs íslands.
Viðgorðarkostnaður
vc}jna alkalískcmmda
á stcinsteypu
Birgir ísl. Gunnarsson (S) flytur
þingsályktunartillögu þess efnis,
að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því,
að þeir húseigendur, sem leggja
þurfi í mikinn viðgerðarkostnað
vegna alkalískemmda á stein-
steypu í húsum sínum, fái fjár-
hagsaðstoð til þeirra viðgerða,
annaðhvort í formi bóta eða lána
eða hvors tveggja. Ef nauðsyn ber
til sérstakrar lagasetningar í þessu
efni skal ríkisstjórnin undirbúa
slíka löggjöf og leggja fyrir Al-
þingi, segir í tillögugreininni.
Aðalfundur SIÍ:
Verklegt og bóklegt nám skal
metið fullkomlega að jöfnu
AÐALFUNDUR Sambands iðn-
fræðsluskóla á íslandi var hald-1
inn í Iðnskólanum i Reykjavík
laugardaginn 8. nóvember 1980.
Fundinn sátu 27 fulltrúar frá 9
skólum.
Halldór Arnórsson, fráfarandi
formaður, setti fundinn og bauð
fulltrúa velkomna.
Fundarstjóri var kjörinn Jón
Böðvarsson, fundarritari Ágúst B.
Karlsson og Halldór Arnórsson
flutti skýrslu stjórnar. Kom þar
fram að aðalverkefni hennar síð-
astliðið starfsár var umfjöllun um
frumvarp að nýrri reglugerð um
iðnfræðslu. Þórarinn B. Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri lagði
fram og skýrði reikninga sam-
bandsins og Iðnskólaútgáfunnar.
Umræður urðu nokkrar en
reikningarnir voru samþykktir
samhljóða. Hallgrímur Guð-
mundsson formaður ritnefndar
MYNDAMÓT HF.
PfUNTM YNOAGCRÐ
AÐALfTRjKTI • - SlMAR: 171SX-173SS
í Kaupmannahöfii
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
flutti skýrslu. Þar kom fram að
Fréttabréf SIÍ kom út einu sinni á
starfsárinu og annað tölublað er
tilbúið til útgáfu.
Formaður var kjörinn Ingvar
Ásmundsson, skólastjóri Iðnskól-
ans í Reykjavík, en aðrir í aðal-
stjórn Jón Böðvarsson, skóla-
meistari Fjölbrautaskóla Suður-
nesja og Pálmar Ólason, aðstoðar-
skólameistari Fjölbrautaskólans í
Breiðholti.
Samþykkt var áskorun á Al-
þingi og menntamálaráðherra um
„að afgreiða nú þegar sem lög frá
Alþingi frumvarp um fram-
haldsskóla sem nú hefur legið
fyrir þinginu um fjögurra ára
skeið.“
Einnig var samþykkt áskorun á
iðnfræðsluráð þess efnis að gerð
verði samræmd námsskrá er
trygg* að nám til iðnréttinda verði
samræmt við alla skólana.
Aðalfundurinn samþykkti
ályktun þess efnis „að það sé
stefna SII að verknám og bóknám
skuli metið fullkomlega að jöfnu".
Einnig samþykkti aðalfundurinn
ályktun varðandi námsbókakynn-
ingu.
Cr frrttatilkynningu.
Ný bók:
Salómon svarti kominn aftur
Salómon svarti eftir Hjört
Gislason kom fyrst út árið 19fi0,
hefur verið ófáanleg um nokkurt
árabii, en hefur nú verið endur-
prentuð. „Bókina má hiklaust
telja i hópi með sigildum barna-
bókum fyrir islensk börn. hún er
skrifuð á kjarngóðu máli og efni
hennar höfðar til allra aldurs-
hópa, segir í frétt forlagsins.
Salómon svarti er lambhrútur
sem Skúli í Smiðjubæ á. Hann
fann móður lambsins dauða út í
móa, en lambið lifði og varð
heimalningur í Smiðjubæ. Þeir Fíi
og Fói, tvíburabræður sem búa
hjá afa sínum og ömmu í Smiðju-
bæ, taka miklu ástfóstri við Saló-
mon svarta og saman lenda félag-
arnir þrír í mörgum skemmtileg-
um ævintýrum.
Bókin er 117 blaðsíður með
stóru og skýru letri, og hana
prýðir fjöldi teikninga eftir Hall-
dór Pétursson. Útgefandi er Bóka-
forlag Odds Björnssonar.
HELO Sauna
Höfum ávalt fyrirliggjandi Saunaofna og klefa
á mjög hagstæöu veröi.
Benco,
Bolholti 4, sími 21945.
GRAIVI
FRYSTIKISTUR
FYRSTA FLOKKS FRÁ
FÖNIX
HÁTÚNI 6A.SÍMI 24420
Einstakur dekurbíll. Margvíslegir aukahlutir, m.a.
hlíföargrind, litaö gler, hálfsjálfskipting o.fl.
Hafiö samband viö sölumann.
Sérstaklega fallegur og vel með farinn bíll. Lítið
keyrður.