Morgunblaðið - 18.11.1980, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1980
25
Júhann Konráðsson oK Fanney Oddxoirs
dóttir.
Heil fjölskylda
á hljómplötu:
„Hin ljúfa
sönglist“
ÚT ER komin ný hljómplata ok
bor hún nafió „Hin ljúfa sönK-
list“, en útKefandi er Mifa-tón-
bond á Akureyri. Platan er hljóð-
rituð í Studio Bimbó á Akureyri.
ok fór hljóðupptakan að mestu
fram i septembermánuði siðast-
liðnum.
Hljómplata þessi er allsérstæð
að því leyti, að á henni koma fram
sex meðlimir úr sömu fjölskyldu,
en það eru hjónin Jóhann Kon-
ráðsson og Fanney Oddgeirsdóttir
og fjögur börn þeirra, Kristján
Jóhannsson, Anna María Jó-
hannsdóttir, Jóhann Már Jó-
Kristján Anna Marta
Júhannsson Júhannsdúttir
Júhann Már Svavar llákon
Júhannsson Júhannsson
hannsson og Svavar Hákon Jó-
hannsson. Líklega eru þeir feðgar
Jóhann og Kristján kunnastir, en
þeir hafa lengi getið sér gott orð
fyrir söng sinn, og Kristján er nú í
söngnámi í sunnanverðri Evrópu.
Fullyrða má að hljómplata af
þessu tagi hafi aldrei áður komið
út hér á landi, þó trúlega þekkist
það úti í hinum stóra heimi að
fjölskyldur komi saman fram á
hljómplötum. A plötunni eru 16
lög, ýmist einsöngs- eða tvísöngs-
lög, innlend og erlend, flest við
ljóð þekktra íslenskra skálda.
Undirleikarar á plötunni eru
þau Guðrún Kristinsdóttir, Dýr-
leif Bjarnadóttir og Kári Gests-
son. Ljósmyndir á kápuopu eru frá
Norðurmynd á Akureyri, en plötu-
slíður er prentað hjá Prentverki
Odds Björnssonar.
Tilraunaútsend-
ingar í stereo
í næsta mánuði
AÐ SÖGN Harðar Vilhjálmssonar
fjármálstjóra Ríkisútvarpsins
munu tilraunaútsendingar í stereo
hefjast í byrjun næsta mánaðar.
Tilheyrandi tæki hafa þegar verið
keypt og eru væntanleg hingað til
lands frá Noregi á fimmtudag.
Vegna hraðs gengissigs hefur verð
útbúnaðarins hækkað nokkuð frá
því sem áætlað var og mun hann
nú kosta um 80 til 90 milljónir.
Tillaga á Alþingi:
Hraðað verði fram-
kvæmdum í Helg'uvík
Mengunarhætta fyrir vatnsból og höf nina
Ólafur Björnsson, þing-
maður Alþýðuflokks, legg-
ur fram á Alþingi svo-
hljóðandi tillögu: „Alþingi
ályktar að fcla utanríkis-
ráðherra að hraða svo sem
verða má byggingu olíu-
hafnar í Helguvík á
grundvelli þess samkomu-
lags, sem undirritað var af
Þannig hljóðar frumvarp til
breytinga á lögum um Húsnæð-
ismálastofnun ríkisins, sem Sigur-
geir Sigurðsson (S) lagði fram á
Alþingi í gær. í greinargerð segir:
Mikil hreyfing er nú um land
allt í þá átt að leysa húsnæðismál
aldraðra. Sú staðreynd, að íbúða-
eign landsmanna er mjög almenn,
á að geta létt verulega undir við
lausn þessara mála.
Athugun hefur sýnt að aldraðir
vilja gjarnan eiga sitt eigið hús-
næði, en brúa þarf bilið meðan á
byggingu stendur, þar til væntan-
legur notandi getur selt sitt eldra
húsnæði og þá fyrst greitt (keypt)
íbúð í vernduðu elliumhverfi. Öt-
borgun í fyrra húsnæði, sem
nefnd skipaðri af utanrík-
isráðherra og fulltrúum
varnarliðsins í umboði
NATO, þann 23. maí sl.
I greinargerð er vikið að
skyndiframkvæmd, er leiðsla
var lögð frá höfninni við
Vatnsnes upp að olíutönkum
upp af Njarðvíkum, sunnan
landamerkja Keflavíkur,
yfirleitt er verulega stærra, nægir
í flestum tilfellum til fullnaðar-
greiðslu nýrrar smáíbúðar.
Samþykkt þessarar breytingar
hefði margþættan tilgang. Með
byggingu verndaðra elliíbúða
dregur að sama skapi úr bygg-
ingaþörf á almennum markaði og
kostnaði sveitarfélagsins við
framboð lóða. Eignir ellilífeyris-
þega halda verðgildi sínu þar sem
endurkaupaskylda (réttur) hvílir á
sveitarfélagi/féiagasamtökum,
kostnaðarverð auk verðbóta.
Framkvæmdafé sveitarfélaga yrði
ekki eins bundið í byggingum, og
síðast en ekki síst yrðu hinir
öldruðu þátttakendur í uppbygg-
ingu eigin umhverfis.
snemma á sjötta áratugnum.
Ekkert tillit var þá tekið til
skipulags né mengunarvarna.
Þessi bráðabirgðamannvirki
hafa nú staðið í nærri 30 ár, á
sama tíma og byggð hefur
þanist út, bæði í Njarðvík og
Keflavík. Tankarnir standa nú
í vegi fyrir skipulagi, auk þess
sem „þetta löngu úrelta tanka-
safn“, í næsta nágrenni við
vatnsból beggja byggðarlag-
anna, veldur yfirvofandi
mengunarhættu. Báðar sveit-
arstjórnirnar hafa lengi kraf-
ist úrbóta, enda myndi skap-
ast vandræðaástand, ef olía
rynni í stórum stíl í höfnina,
sem oftar en einu sinni hefur
legið við. Þá eru næstu tankar
innan við 200 metra frá hús-
um, en olíuleiðslan liggur
óvarin ofanjarðar þegar kem-
ur upp fyrir Reykjanesbraut.
Þá er vitnað til þeirrar hættu,
sem stafar af því að flytja
flugvélabensín frá olíubirgða-
stöðvum í Reykjavík um þétta
HMna
Verndaðar íbúðir aldraðra:
75% byggingarlán
Heimilt er að veita sveitarfélögum eða félagasamtökum einstakl-
inga framkvamdalán til byggingar verndaðra sölu/leiguíhúða
aldraðra er nemi 75% byggingarkostnaðar.
Framkvæmdalánið endurgreiðist við sölu ibúða til notenda. Gert er
ráð fyrir að 25% íbúða í hverjum áfanga verði í eigu sveitarfélags eða
félagasamtaka og haldi þeir aðilar lánum samkvæmt 2. tl.
í reglugerð verði sett ákvæði um endursölu og/eða erfðarétt slíkra
söluibúða svo og skilgreiningu á vernduðum íbúðum.
Tólf ára framkvæmdaáætlun:
Bundið slitlag á hring
veg og þéttbýlisvegi
Tillaga 19 sjálfstæðismanna
„ALÞINGI ályktar að fella að
nýrri vegaáætlun sérstaka 12
ára áætlun um lagningu
hringvegar og vega til allra
þéttbýlisstaða í landinu með
bundnu slitlagi, svo og fjölförn-
ustu dreifbýlisvega.“ Þannig
hljóðar upphaf þingsályktun-
artillögu sem Sverrir Her-
mannsson og 18 aðrir þing-
menn Sjálfstæðisflokks hafa
lagt fram á Alþingi.
Samkvæmt tillögunni skal
skipta þessu 12 ára fram-
kvæmdatímabili í 3 áfanga:
1981-1984, 1985-1988 og
1989—1992. í fyrsta áfanga er
gert ráð fyrir að setja varanlegt
slitlag á 1200 km., í öðrum
áfanga á 1150 km. og í þriðja
áfanga á 1075 km.
í fyrsta áfanga eru þessi
verkefni tilgreind (ekki for-
gangsröðun); a) Reykjavík —
Akureyri — Húsavík (um Vík-
urskarð og Leirur), b) Mosfells-
dalur — Þingvellir, c) Stykkis-
hólmur — Olafsvík — Hellis-
sandur, d) Patreksfjörður —
flugvöllur — Tálknafjörður —
Bíldudalur, e) ísafjörður —
Sverrir Hermannsson
Þingeyri, f) Súðavík — Isafjörð-
ur — Bolungarvík, g) Egilsstaðir
— Eskifjörður — Fáskrúðsfjörð-
ur, h) Egilsstaðir — Seyðisfjörð-
ur, i) Höfn Hornafirði — Mána-
garður — Almannaskarð, k)
Fljótshlíðarvegur, 1) Skeiðarveg-
ur frá Suðurlandsvegi að Þjór-
sárdalsvegi, m) Biskupstungna-
braut frá Suðurlandsyegi að
Laugarvatnsvegi, n) Þykkvabæj-
arvegur og loks o) Tenging við
Akranes, Flateyri, Suðureyri,
Hvammstanga, Skagaströnd,
Sauðárkrók, Dalvík, Ólafsfjörð,
Hauganes, Litla-Árskógssand og
Þorlákshöfn (bæði um Ölfus og
Þrengsli). Alls 1201 km.
Áætlaður heildarkostnaður
við 1. áfanga er rúmlega 24
milljarðar króna á ári, á verðlagi
eins og það er áætlað í ágúst
1981.
Árlegar framkvæmdir verði
fjármagnaðar þannig: Úr vega-
sjóði 10 milljarðar króna, úr
byggðasjóði 3 milljarðar, happ-
drættislán 5 milljarðar, af inn-
flutningsgjaldi af bifreiðum 5
milljarðar, eða samtals 23 millj-
arðar króna. Allar framan-
greindar fjárhæðir haldi raun-
gildi frá ári til árs, en erlend lán
skulu tekin, ef þurfa þykir, til
sérstakra verkefna, innan
ramma lánsfjáráætlana hverju
sinni.
byggð og fjölfarna leið til
Keflavíkurflugvallar.
Þessi framkvæmd í Helgu-
vík yrði íslendingum að kostn-
aðarlausu, segir í greinargerð,
en framkvæmdatími sex ár. —
Það er glæfraspil að ætla
þessum tönkum að endast
lengur en sem nemur þessum
framkvæmdatíma. Þess vegna
verður að vænta þess að Al-
þingi bægi þessari hættu frá
íbúum Keflavíkur og Njarð-
víkur, en þjark út af málum
þessum hefur staðið allar göt-
ur síðan 1963.
Alþingi:
Þéttsetinn
varamanna-
bekkur
(•uómundur Ilaraldur
(■íslason Olafsson
Olafur
Hjornsson
Markús
Einarsson
VIkíús B. Raxnhildur
Jónsson Helicadóttir
Níu varaþingmenn á Alþingi. —
I dag sitja níu varaþingmenn á
Alþingi í fjarveru aðalmanna:
Guðmundur Gíslason.í fjarveru
Tómasar Árnasonar, Haraldur
Ólafsson í fjarveru Guðmundar G.
Þórarinssonar, Ólafur Björnsson í
fjarveru Kjartans Jóhannssonar,
Gunnar R. Pétursson í fjarveru
Sighvatar Björgvinssonar, Markús
Einarsson í fjarveru Jóhanns Ein-
varðssonar, Vigfús B. Jónsson í
fjarveru Lárusar Jónssonar,
Ragnhildur Helgadóttir í fjarveru
Birgis ísl. Gunnarssonar, Sigur-
geir Sigurðsson í fjarveru Ólafs G.
Einarssonar og Valdimar Indriða-
son í fjarveru Friðjóns Þórðarson-
ar.