Morgunblaðið - 18.11.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1980
23
Gunnar Martcinsson bendir á staðinn. þar sem brot úr þyrluspaðanum þeyttist inn
matsalinn.
í
Brot úr þyrluspað-
anum þeyttist þvert í
gegn um matsalinn
ÞYRLA LandhelKÍsKseslunnar
TF-GRÓ rakst á raflinu og féll
til jarðar skömmu eftir fluntak
hjá Búrfelli rétt eftir hádcgið í
Kær. Þyrlan er mjöB mikið
skemmd ok jafnvel talið. að hún
sé ónýt. Skúli Jón SÍBurðarson
hjá Loftferðaeftirlitinu sajfði.
að orsakir slyssins væru ekki
kunnar en ekkert hefði komið
fram, sem benti til þess að um
bilun hafi verið að raeða. Þyrlan
cr af Kerðinni IIuKhcs 500C ok
var keypt hinKað 1974 ok saKði
Skúli. að hún hefði reynzt mjöK
vel og enKÍn óhöpp átt sér stað
fyrr.
„Þyrlan var að koma úr eftir-
litsferð á veKum Landsvirkjunar
og kom hér við til þess að taka
eldsneyti. Þegar hún var nýfarin
í loftið aftur, flæktist stél hennar
í raflínu, sem liggur í átt að
gömlum íbúðarskálum með áð-
urgreindum afleiðingum. Mjög er
misvindasamt á þessu svæði og
hefur það ef til vill orsakað
slysið. Sól var einnig lágt á lofti
og mikið ryk þyrlaðist upp við
flugtakið og kann það að-hafa
byrgt flugmanninum sýn. Fund-
ur verður haldinn á morgun, þar
sem reynt verður að komast að
orsökum slyssins, en á þessu stigi
málsins er raunverulega ekkert
hægt um það að segja," sagði
Skúli.
Talsverður fjöldi fólks varð
sjónarvottur að því er þyrlan
hrapaði til jarðar, þ.á m. Gunnar
Marteinsson, gröfumaður hjá
Landsvirkjun: „Ég var að koma
út úr sjoppunni og ætlaði að sjá
þyrluna taka sig á loft. Rétt eftir
flugtakið rakst hún á símalínuna
og slengdist í jörðina. Þegar
þyrlan rakst á línuna, þeyttust
brot úr henni í ailar áttir og ég
varð að hlaupa bak við skúr til
þess að verða ekki fyrir stórum
járnbút sem þaut í átt að mér.
Mér datt ekki annað í hug en að
þeir, sem voru í þyrlunni væru
báðir látnir og einnig var ég
hræddur um að kvikna myndi í
flakinu, því það rauk mikið úr
vélinni. Flugmaðurinn kom þó
strax út og farþeginn var óbrot-
inn.“
Hluti úr þyrluspaðanum lenti
á mötuneytisskálanum, sem er í
um það bil fimmtíu metra fjar-
lægð, rauf gat á báða veggi og
þaut svo aðra fimmtíu metra út
hinum megin. Elías ívarsson
mötuneytisstjóri og Ásólfur
Pálsson á Ásólfsstöðum voru í
herbergi inn af matsalnum þegar
slysið varð og horfðu á þyrluna
út um gluggann. „Við heyrðum
mikinn hvin og svo bresti í
húsveggjunum þegar stálbitinn
flaug í gegnum húsið. Klukkan
var þá rúmlega kortér yfir eitt og
allir farnir úr matsalnum, en
hefði slysið orðið á matmálstima
er nær víst, að slys hefðu orðið á
mönnum. Það er einnig mesta
mildi, að enginn varð fyrir brot-
unum úti, en þau liggja hér á víð
og dreif um sandinn."
Starfsmenn Landhelgisgæsl-
unnar komu að Búrfelli og athug-
uðu flakið og átti vörubíll að
flytja það til Reykjavíkur síðar
um daginn.
Þyrluflakið. Á myndinni sést rafmagnslínan sem stél þyrlunnar fór í. Ljósm. Mbi. Kristján
Smjörútsölunni lokið:
Skipulagning og fjár-
mögnun mjólkurvöru-
flutninga ræddar
„KOSTNAÐURINN við þessa smjörútsölu varð 970 milljónir
króna og bar ríkissjóður annan helminginn og bamdur hinn. Við
getum nú ekki tekið á okkur meiri f járútlát ok því er ha>tt.“ sagði
Gunnar Guðhjartsson. formaður Stéttarsambands bamda. í
samtali við Mbl. í gærkvöldi. en í gær tilkynnti landbúnaðarráðu-
neytið. að smjörútsölunni væri lokið og seldust um 550 tonn. en
upphaflega var ráðgert að selja 300 tonn. Að sögn Gunnars voru
smjörbirgðirnar 1. nóvember sl. 1100 tonn «k hefur því
helmingurinn verið seldur á útsölunni, en það magn samsvarar
4—5 mánaða venjulegri neyzlu.
Gunnar sagði, að salan hefði
orðið svo mikil strax í upphafi, að
legið hefði við að öllum 300
tonnunum hefði verið lofað fyrsta
daginn. „Okkur fannst ekki hægt
að láta þetta fara þannig, að stór
hluti fólks ætti þess ekki kost að
fá neitt og því var haldið áfram og
meira smjör sett á útsöluna,"
sagði Gunnar.
Mbl. spurði Gunnar, hvaða áhrif
svona útsala hefði á söluna á eftir
og sagði hann reynsluna þá, að
útsala yki smjörneyzluna um
40—50%, þótt ekki væri við mik-
illi sölu að búast fyrst á eftir. En
þar sem mjólkurframleiðsla væri
nú minni en dæmi væru um lengi,
væri ekki ástæða til að ætla að
smjörbirgðir ykjust jafnhratt nú
og áður.
Gunnar sagði, að vegna lítillar
mjólkurframleiðslu að undan-
förnu, sæju menn fram á flutning
á rjóma milli landshluta; að norð-
an og suður, en vart væri við
mjólkurflutningum að búast fyrr
en eftir áramót, ef til þeirra kæmi.
Gunnar sagði sérstakan flutn-
ingasjóð hafa verið til til að grípa
til í slíkum tilfellum, en hann væri
nú tómur. Gunnar sagðist ekki
vilja spá neinu um kostnað af
mjólkur- og mjólkurvöruflutning-
um í vetur, en sagði þar um stórar
upphæðir að ræða: „nokkra millj-
ónatugi". Mbl. spurði Gunnar,
hvaðan það fé ætti að koma og
sagði hann menn setjast á rök-
stóla í dag til að ræða og skipu-
leggja flutninga og fjármögnun
þeirra.
Tvær síldarsöl-
ur í Danmörku
TVÖ skip seldu síld í
Danmörku í gær; HelRa
Guðmundsdóttir og Börk-
ur, en hvoruR salan náði 5
krónum dönskum í meðal-
verði á kíló.
Helga Guðmundsdóttir seldi í
Skagen 110 tonn fyrir 46,4 millj-
ónir króna og var meðalverð 4,34
Patreksfjörður:
danskar krónur, eða 422 krónur
íslenzkar hvert kíló.
Börkur seldi í Hirtshals 98,5
tonn fyrir 46,3 milljónir króna;
meðalverð 4,91 króna dönsk eða
470 íslenzkar krónur hvert kíló.
Ein síldarsala í Danmörku er
ákveðin; Kap frá Vestmannaeyj-
um, sem selur 24. eða 25. nóvem-
ber nk.
Fjölsóttur fundur
sjálfstæðismanna
Patreksfirði, 17. novemix'r.
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé-
lagsins Skjaldar var haldinn í
félagsheimili Patreksfjarðar í
gær. Á fundinn mætti formaður
Sjálfstæðisflokksins, Geir Hall-
grtmsson, og alþingismennirnir
Matthías Bjarnason og Þorvaldur
Garðar Kristjánsson. Fundurinn
var ágætlega sóttur frá Patreks-
firði og nærsveitum. Miklar og
góðar umræður urðu á fundinum
um landsmál almennt.
Sjálfstæðisfélagið hefur leigt
Patreksfjarðarbíói bt' gamla sam-
komuhúsið Skjaldborg til kvik-
myndasýninga næs1 15 ár. Búið
er að kaupa ný sa l i í húsið og
fyrirhugaðar eru gagngerðar
brevtingar á því.
- Páll
Flugleiöamálið í Neðri deifd:
Verður frumvarp-
ið að lögum í dag?
FJÁRHAGS- og viðskiptanefnd
Neðri dcildar afgreiddi nefndar-
álit frá deildinni i gær. þar sem
meirihluti nefndarinnar var sam-
mála um afgreiðslu málsins i
sambandi við þau skilyrði, sem
sama nefnd Efri deildar sam-
þykkti. Matthías Bjarnason
sagði, að i áliti nefndar Neðri
deildar væru meiri skýringar og
mildara sjónarmið en hjá Efri
deild. og kvað hann ágæta sam-
vinnu hafa verið innan nefndar-
innar. Þó kvað hann sig og
Matthías Á. Mathiesen hafa verið
andviga aukinni aðild rikissjóðs
að Flugleiðum.
Vilmundur Gylfason skilaði sér-
áliti í nefndinni þar sem hann
vildi láta lögfesta skilyrðin sem
um er rætt.
Matthías Bjarnason sagði, að 2.
umræða yrði um máliö í Neðri
deild í dag og væri í rauninni
ekkert að vanbúnaði að ljúka
afgreiðslu málsins samdægurs.