Morgunblaðið - 18.11.1980, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1980
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1980
21
Valsmenn sterkari
á lokasprettinum
ÞRÁTT FYRIR góða baráttu lengst af gegn íslandsmeisturum Vals
mátti ÍR sætta sig við tap er liðin mættust i úrvalsdeildinni i
korfulxilta á sunnudagskvöld. Valur sigraöi 88—84 eftir að hafa
lengst af í leiknum verið undir en lukakaflan sótti lið Vals sig og seig
þá fram úr og sigraði.
ÍR hafði frum-
kvæðið í leiknum
Eftir jafna byrjun fyrstu mín-
útur leiksins tók ÍR forystu og
leiddi allan fyrri háifleikinn. Náði
liðið mest 10 stiga forystu í
leiknum. Þegar sjö mínútur voru
til loka fyrri hálfleiksins hafði ÍR
forystuna 38—30, en Valsmenn
létu ÍR-liðið ekki fara of langt á
undan sér og aðeins fjögur stig
skildi liðin að í hálfleik. IR hafði
skorað 46 stig en Vaiur 42.
Jón Jörundsson hafði leikið
mjög vel í fyrri hálfleiknum en
varð að fara útaf rétt fyrir lok
hálfleiksins með fimm villur. Var
það mjög bagalegt fyrir lið ÍR. Jón
hafði þá skorað 14 stig og var
greinilega í miklum ham. Svo
virtist á liði Vals í fyrri hálfleik að
alla stemmningu vantaði og leik-
menn virtust ekki hafa of mikinn
áhuga á því sem þeir voru að gera.
Vörn liðsins var frekar slök, og
leikmenn fóru sér um of rólega.
Valsmenn sækja sig
Leikur Valsmanna breyttist
mjög til batnaðar í síðari hálf-
leiknum. Smátt og smátt sigu þeir
á og náðu að komast yfir. ÍR-ingar
gáfu þó ekkert eftir og börðust
eins og ljón. Þegar fimm mínútur
voru til leiksloka var staðan jöfn.
Bæði liðin höfðu skorað 68 stig.
Eins og svo oft áður var lið Vals
sterkara á lokasprettinum. Þegar
tvær mínútur voru eftir hafði
Valur aðeins tveggja stiga forystu
76—74, en ÍR tókst ekki að jafna
metin eftir það. Mikil spénna var
síðustu mínúturnar, en í lokin
stóðu Valsmenn með pálmann í
höndunum, sigur og tvö stig.
Bandaríkjamaðurinn í iiði Vals,
Brad Miley, átti sinn stóra þátt í
sigrinum þar sem hann lék mjög
vel þessar síðustu mínútur. Hirti
þá hvert frákastið af öðru og
skoraði grimmt undir körfunni.
Liðin
Lið IR átti þokkalegan leik og
barðist vel. En það vantar herslu-
muninn hjá liðinu. Kristinn Jör-
undsson sem nú er kominn á fulla
ferð aftur lék vel. Skoraði Krist-
inn 20 stig og sýndi góða baráttu.
Andy Flemming átti og ágætis
leik. Jón Jörundsson var góður þar
ÍR — Valur
84—88
til hann þurfti að fara útaf.
Stefán, Guðmundur og Sigmar
áttu góða kafla bæði í vörn og
sókn, svo og Kolbeinn.
Lið Vals hefur oft gert betur.
Liðið var lengst af frekar stemmn-
ingslaust í leiknum og það var
eiginlega ekki fyrr en alveg í lok
leiksins að menn fóru að berjast.
Ríkharður átti mjög góðan leik.
Hitti vel og lék yfirvegað í vörn-
inni. Þá var Miley sterkur og er
greinilega að sækja sig verulega
og komast í æfingu. Kristján lék
allvel. Torfi lenti í villuvandræð-
um og naut sín ekki sem skyldi.
STIG VALS: Miley 28, Ríkharð 20,
Kristján 16, Torfi 10, Jóhannes 6,
Jón 4, Þórir 4.
STIG ÍR: Kristinn 20, Flemming
19, Jón Jörundsson 14, Kolbeinn 9,
Stefán 8, Guðmundur 8, Sigmar 4,
Jón Indriðason 2.
- þr.
j • Stefán Kristjánsson ÍR gætir Kristjáns Ágústssonar
I Val og er við öllu búinn. Báðir áttu þessir leikmenn
j ágætan leik er lið þeirra mættust í Hagaskóla á
| sunnudagskvöld.
Einkunnagjöfin
Lið ÍR:
Jón Jörundsson 7
Kristinn Jörundsson 8
Sigmar Karlsson 6
Guðmundur Guðmundsson 6
Kolbeinn Kristinsson 6
Stefán Kristjánsson 6
Jón Indriðason 5
Lið Vals:
Kristján Ágústsson 7
Rikharður Hrafnkelsson 8
Torfi Magnússon 6
Jóhannes Magnússon 6
Jón Steingrimsson 5
Þórir Magnússon 5
Gylfi Þorkelsson 4
Sigurður Hjörleifsson 3
STAÐAN
STAÐAN í úrvalsdeildinni
í körfubolta er nú þessi:
UMFN 5 5 0 501-406 10
KR 5 4 1 452-401 8
ÍR 6 3 3 509- 509 6
Valur 6 3 3 532-530 6
lfS 5 1 4 425-457 2
Ármann 5 0 5 388 — 500 0
• Línumaðurinn snjalli, Björgvin Björgvinsson, svífur inn í teiginn og skorar gegn Vestur-Þjóðverjum. Björgvin átti góðau
leik bæði á laugardag og eins í síðari leiknum á sunnudag.
Ljósir punktar í síðari leiknum
VESTUR-Þjóðverjar unnu öruggan sigur í síðari landsleik þjóðanna,
sem fram fór i Laugardalshöllinni á sunnudaginn. Lokatölurnar að
þessu sinni urðu 19—17, sem er mikil framför eftir 7 marka skellinn
sem heimsmeistararnir réttu íslendingum i fyrri leiknum. Um siðari
leikinn er það helst að segja, að jafnræði var lengst af mcð liðunum. en
Þjóðverjarnir nýttu sér vel ömurlegan leikkafla islenska liðsins í
upphafi siðari hálfleiks. Þá breytti liðið stöðunni á skömmum tima úr
8—7 sér i hag i 14—8. Má segja að þar með hafi björninn verið unninn
og íslendingar ógnuðu sigri liðsins i raun ekki alvarlega eftir það, þó
svo að með seiglu hafi tekist að minnka muninn mikið.
Vörnin í lagi
Það voru miklar þreifingar
framan af í leik þessum og
hraustlega var tekið á í varnar-
leiknum. Það var lítið skorað til að
byrja með, þannig var staðan eftir
13 mínútur 1—0 fyrir Þjóðverja.
En þetta lága markaskor átti
einnig rætur að rekja til vand-
ræðalegs sóknarleiks beggja liða.
Voru Þjóðverjarnir lengst af lítið
sterkari en landinn. Meðan barn-
ingur þessi stóð yfir, gekk hvorki
né rak hjá íslenska liðinu og má
fullyrða að íslenska liðið nýtti
mun verr dauðafæri sín. Þannig
fóru tvö víti forgörðum meðan
staðan var 1—0. Sigurður Sveins-
son skaut í stöng úr fyrra vítinu
og síðan varði þýski markvörður-
inn vítakast Stefáns Halldórsson-
ar.
Mistökin voru
matur Þjóðverja
íslendingar stóðu allan fyrri
hálfleik vel fyrir sínu og lítinn
getumun var að sjá á liðunum. En
mistök hljóta alltaf að skjóta upp
kollinum og Þjóðverjarnir refsuðu
íslendingum grimmilega fyrir sín
og notuðu þau óspart til að halda
forystu sinni. Viggó jafnaði leik-
inn á 13. mínútu, en Þjóðverjar
komust í 2—1. Þá komst Bjarni
Guðmundsson í dauðafæri, en lét
verja hjá sér. ! næstu sókn
Þjóðverja missti Bjarni síðan
Arno Ehret inn fyrir sig og Ehret
skoraði, 3—1. Björgvin minnkaði
muninn með fallegu marki, en
Þjóðverjar svöruðu með fjórða
marki sínu. ísland sótti og glæfra-
sending Atla Hilmarssonar hafn-
aði í höndum Ehret, sem þakkaði
fyrir sig með því að bruna upp ög
skora, 2—5.
Nú kom góður kafli hjá íslenska
liðinu. Björgvin og Viggó fiskuðu
vítaköst, sem Sigurður Sveinsson
sendi á réttan leiðarenda og síðan
jafnaði Viggó með góðu marki,
5—5. Glæsikafli, en hann hlaut að
enda. ísland náði knettinum í
næstu sókn Þjóðverja og fékk
tækifæri til að komast yfir. En
liðið freistaði þess að byggja upp
ótímabæra skyndisókn. Knöttur-
inn rataði í lúkurnar á Seehase,
sem óáreittur skoraði sjötta mark
gestanna. Viggó jafnaði, en Freisl-
er skoraði fljótlega sjöunda mark
Þjóðverja. Enn fékk ísland tæki-
færi, er Þjóðverja var vísað af
leikvelli og ísland fékk víti. En
Sigurður Sveinsson skaut aftur í
stöng og þriðja vítið var farið í
vaskinn. Upp úr því skoraði
Þýskaland og staðan í hálfleik var
8—7 fyrir liðið.
Dauður kafli
Fyrstu 10 mínútur síðari hálf-
leiks voru ömulegar á að horfa.
Hver dellan rak aðra hjá íslenska
liðinu. Sóknin brást, vörnin brást
og Kristján Sigmundsson, sem
stóð sig svo vel á föstudaginn,
varði ekki eitt einasta skot. Stað-
an breyttist snarlega úr 7—8 í
8—14. Sigur Þjóðverja var í höfn
þó enn væri drjúgur tími til
stefnu. En þegar staðan var hvað
ljótust kom Sigurður Sveinsson
inn á, en hann hafði nánast verið
sveltur. Koma hans kveikti neista
hjá íslenska liðinu, það náði ágæt-
um leikkafla og skoraði fjögur af
næstu fimm mörkum og fimm af
næstu sjö. Sigurður fékk óblíðar
viðtökur hjá þýsku vörninni, en
við það losnaði um félaga hans og
læddist að sá grunur, að sterkari
leikur hefði verið að nota Sigurð
meira. En Þjóðverjarnir svöruðu
nægilega fyrir sig til þess að halda
íslendingum frá sér. Lokatölur því
17-19.
ísland — V-Þýskaland
17—19
íslenska liðið
Þetta var köflóttur leikur hjá
íslenska liðinu og það ekki í fyrsta
skiptið. Varnarleikurinn var oft
stórgóður, en öðru hvoru opnaðist
allt upp á gátt. Markvarslan var
þokkaleg. Pétur Hjálmarsson stóð
í markinu þrjá fjórðu hluta leiks-
ins og varði 10 skot, en Kristján
varði ekki nokkurn skapaðan hlut.
Markvarslan gat verið betri, en
Pétur brást þó engum. Viggó
Sigurðsson átti stórleik með ís-
lenska liðinu, var besti maður
liðsins. Hann er vinstri handar
maður og því var minna pláss
fyrir Sigurð Sveinsson að því er
virtist. En þó Sigurður hafi leikið
betur á föstudaginn, gekk betur
hjá íslenska liðinu, er þeir voru
báðir inn á, þeir Viggó og Sigurð-
ur. Fannst manni furðulegt að
nota Sigurð ekki nema um það bil
30 mínútur af 60.
Það er alltaf talað um að
íslenska liðið nýti ekki dauðafærin
og svo var einnig nú, þó oft hafi
það verið verra. Það er rætt um
skort leikmanna á yfirvegun undir
slíkum kringumstæðum. En hvað
er til ráða er sumir af leikreynd-
ustu leikmönnum liðsins gera sig
seka um að kasta beint í mark-
vörðinn er í dauðafæri er komið?
Margt þarf greinilega að laga áður
en að B-keppninni kemur, svo
mikið er víst, þó svo að síðari
leikurinn hafi verið mun betri en
sá fyrri. Björgvin Björgvinsson
átti góðan leik með liðinu og tókst
merkilega vel að rífa sig lausan á
línunni. En vinstra hornið er
mikill höfuðverkur. Hilmar
Björnsson þjálfari setti Ólaf
Jónsson út úr liðinu og reyndi
Valsmanninn Stefán Halldórsson.
Stefán var einn af betri mönnum
liðsins, en ekkert kom þó út úr
honum sem hornamanni. Hann
skoraði þrjú mörk í leiknum, en
tvö þeirra voru eftir skyndiupp-
hlaup og það þriðja er hann lék
fram með vörninni, úr horninu,
lyfti sér upp og skoraði. Sem
hornamaður gerði hann hins veg-
ar engar rósir, reyndi tvisvar en
lét verja frá sér, ógnaði lítið þar
fyrir utan.
Hægra hornið er einnig erfitt.
Bjarni átti ekki sérlega góðan dag
á sunnudaginn og þegar slíkt
kemur upp, er ekki að sjá að um
annað sé að ræða en að stilla
leikmönnum þar upp sem að öllu
jöfnu leika ekki þessa stöðu með
liðum sínum. Þannig voru Sigurð-
ur Sveinsson og Viggó að skiptast
á er Bjarni var utan vallar. Slíkt
getur varla gengið. Loks má geta
þess, að nánast ekkert kom út úr
drjúgum hóp leikmanna, sem lék
þó töluvert með. Má þar nefna
Þorberg Aðalsteinsson, Pál Björg-
vinsson, Atla Hilmarsson og Al-
freð Gíslason. Með þá tvo síðast
nefndu er þó líklega um reynslu-
leysi að ræða. Það er þó einkum í
sóknarleiknum sem þessir kappar
komu lítið við sögu, sem fyrr segir
stóðu flestir fyrir sínu í vörninni.
Þýska or sænska liðið
Þýska liðið er sterkt, á því er
ekki hinn minnsti vafi. Þó ekki
sterkara en svo að vel mætti sigra
það með „toppleik". Leikmenn
liðsins eru líkamleg heljarmenni
og koma mótherjum sínum í
skilning um það í varnarleiknum.
En það var ekki fyrr en síðari
hluta leiksins, að liðið fór að sýna
tilþrif í sóknarleiknum, eða þegar
draga tók af íslensku leikmönnun-
um. Sænska dómaraliðið var ekki
eins gott og af var látið. Hvorugt
liðanna hagnaðist sjáanlega á
gæslunni, en það var eitt atriði
sem þó sveið Islendingum í aug-
um. Það var er Þjóðverjar brutu
hvað eftir annað af sér fyrir innan
eigin vítateigslínu, án þess að fá
vítakastsdóma í höfuðið. Þá voru
þeir sænsku mjög bráðir með
flauturnar og högnuðust Þjóðverj-
arnir oftar en einu sinni á eigin
brotum.
MÖRK íslands: Viggó Sigurðsson
7, 3 víti, Sigurður Sveinsson 3, 2
víti, Stefán Halldórsson 3, Björg-
vin Björgvinsson, Bjarni Guð-
mundsson, Atli Hilmarsson og
Alfreð Gíslason eitt mark hver.
Keisarinn lék sinn fyrsta
leik með Hamborg SV
BÆÐI toppliðin i vestur-þýsku
deildarkeppninni, Bayern
Múnchen og Hamburger SV, töp-
uðu stigum um helgina. Tapaði
HSV báðum stigunum á útivelli
gegn Stuttgart, en Bayern sá af
stigi á heimavelli gegn Köln. Atli
Eðvaldsson og félagar hans hjá
Dortmund máttu gera sér að
góðu jafntefli á heimavelli gegn
Kaiserslautern. Atli skoraði ekki
i leiknum, Mirko Votava skoraði
bæði mörk Dortmund, en Riedle
og Melzer skoruðu mörk Kais-
erslautern. Úrslit leikja urðu
annars sem hér segir:
Armenia Bielef. — Bochum 3—3
Mönch.gladb. — Karlsruhe 3—3
B. Uerdingen — Frankfurt 4—1
Dortmund — Kaiserslautern 2—2
Dússeldorf — Núrnberg 2—2
Bayern — Köln 1—1
B. Leverkus. — 1860 Múnchen 1—1
Schalke 04 — Duisburg 2—2
Stuttgart — Hamburger 3—2
Franz Beckenbauer lék sinn
fyrsta leik fyrir Hamburger, er
hann kom inn á fyrir Memering í
síðari hálfleik. Keisarinn þótti
sýna afbragðsleik, þó ekki nægði
það til sigurs gegn sterku liði
Stuttgart. Og HSV tapaði öðrum
Engin óvant úrslit urðu i 2.
umferð hollensku hikarkeppn-
innar i knattspyrnu, en þar féllu
flest 2. deildar liðin úr fyrir 1.
deildar liðunum.
Siðasta áhuga-
mannaliðið i keppninni. Rondha.
tapaði 3—9 fyrir Go Ahead Eagl-
es Deventer og var það stærsti
sigur umferðarinnar. Efsta lið 1.
deildarinnar, AZ ’67 Alkmaar.
vann Heerenveen úr 2. deild
örugglega og skoraði Kees Kist 3
mörk i þeim leik. Kristian Ny-
gaard fjórða markið. Úrslit
leikja urðu annars sem hér segir:
leik sínum á þessu keppnistíma-
bili. Ivan Buljan náði forystunni
fyrir HSV á 10. mínútu, en fimm
mínútum síðar jafnaði Hans Mull-
er. Walter Kelsch náði forystunni
fyrir Stuttgart í upphafi síðari
hálfleiks, en Manfred Kaltz jafn-
aði skömmu síðar. Jurgen Allgow-
er skoraði síðan sigurmarkið á 70.
mínútu. Bayern átti möguleika að
ná tveggja stiga forystu í þýsku
deildarkeppninni, en náði aðeins
jafntefli gegn Köln. Durnberger
skoraði fyrir Bayern strax á 3.
mínútu. Sex mínútum síðar jafn-
aði Gerd Strack með lúmsku skoti
af 25 metra færi. Eftir það buldu
sóknarloturnar á marki Kölnar-
búa, en markvörðurinn Schu-
macher varði hvað eftir annað
snilldarlega og tryggði liði sínu
annað stigið.
Frankfurt hangir í fimmta sæti
deildarinnar, þrátt fyrir mikinn
rassskell gegn Uerdingen, sem er
meðal neðstu liða deildarinnar.
Hofman, Rascheid (2) og Zimmer
skoruðu mörk Uerdingen, en Neu-
berger svaraði fyrir Frankfurt.
Hin botnliðin fengu öll stig.
Neðsta liðið Bielefeldt tryggði sér
stig á elleftu stundu gegn Bochum,
Geils skoraði jöfnunarmark liðs-
Den Bosch — FC Utrecht 2—4
Alkmaar — Heerenveen 4—1
Fort. Sittard — Roda JC 1—2
Deventer — Rondha 9—3
Nec Nijmegen — Groningen 0—1
Maastricht — FC Amsterd. 3—0
Dordrecht — PSV Eindhoven 0—1
FC Tvente — Volendam 1—0
Feyenoord — SC Veendam 5—1
Ajax — SVV Schiendam 3—0
Telstar — Willem 2. 2—2
Amersfoort —VVV Venlo 2—2
Wageningen — Den Haag 4—1
Haarlem — Nac Breda 2—2
Sparta — Pec Zwolle 2—2
Excelsior — Vlaardingen 2—2
ins gegn Bochum á 89. mínútu
leiksins. Áður höfðu Angele og
Schok skorað fyrir Bielefeldt, en
Abel og Pinkall (2) fyrir Bochum.
Schalke náði aðeins öðru stiginu
gegn Duisburg. Elgert og Bitt-
chers skoruðu mörk Schalke, en
Bussers skoraði bæði mörk Duis-
burg. 1860 Múnchen og Núrnberg
kræktu einnig í stig, bæði á
útivöllum. 1860 tók stig af Lever-
kusen með marki Sidka, en Norð-
maðurinn Oekland svaraði fyrir
heimaliðið. Núrnberg mætti Dúss-
eldorf og þeir Brunner og Ober-
acher skoruðu mörk liðsins. Seel
skoraði bæði mörk Dússeldorf.
Loks má geta leiks Mönchen-
gladbach og Karlsruhe. Heimalið-
ið komst í 3—0 með mörkum Kulik
(2) og Hennes, en gestirnir jöfn-
uðu með mörkum Gunther og
Bold. Sá fyrrnefndi skoraði tvíveg-
is, síðara markið á 89. mínútu,
Bold skoraði á 90 mínútu! Staðan
er nú þessi:
STAÐAN
Bayern 11 1 2 36- -19 23
Hamburg 10 2 2 35- -17 22
Kaisersl. 8 3 3 29- -16 19
Dortmund 7 3 4 33- -24 17
Frankfurt 8 1 5 28- -28 17
Stuttgart 6 4 4 29- -23 16
Köln 5 4 5 29- -26 14
Bochum 3 8 3 22- -19 14
Leverkusen 4 5 5 23- -20 13
Mönchenblb. 5 3 6 23- -28 13
Karlsruhe 3 7 4 18- -26 13
Duisburg 3 5 5 19- -22 11
Dússeldorf 4 3 6 24- -29 11
Núrnberg 4 3 7 25- -28 11
1860 4 3 7 21- -26 11
Uerdingen 3 4 7 20- -27 10
Schalke 3 3 8 22- -43 9
Bielefeld 1 4 9 19- -33 6
Enn sigrar AZ ’67
Engin óvænt úrslit
í Islandsmótinu í blaki
MARGIR leiklr fóru fram i ís-
landsmótinu i blaki um síðustu
helgi. Svo til ekkert varð um
óvænt úrslit. Greinilegt er að lið
Þróttar f meistaraflokki karla
verður erfitt viðfangs i vetur. Og
má mikið vera ef liðið sigrar ekki
í 1. deild með nokkrum yfirburð-
um. Um helgina sigruðu Þróttar-
ar lið Vikinga og Fram örugg-
lega. Lið Fram er bráðefnilegt og
með meiri reynslu á liðið að geta
náð langt. Lið Laugdæla hefur
misst mikið af góðum leik-
mönnum og er nú ekki nema
svipur hjá sjón miðað við liðið i
fyrravetur. Laugdælir urðu að
Rafn endurkjörinn formaður
ÁrsþinK Badminton-
samhands íslands
Ársþing BSÍ var haldið á Hótel
Esju laugardaginn 1. nóvember.
47. fulltrúar sátu þingið.
Þingforsetar voru Þórður Þor-
kelsson og Kristján Benjamíns-
son. Þingritarar Steinar Pedersen
og Lovísa Sigurðardóttir.
Rafn Viggósson, formaður BSÍ,
flutti skýrslu stjórnar, og reikn-
ingar sambandsins voru lagðir
fram endurskoðaðir. Helstu mál
þingsins voru, að stofnaður var
nýr keppnisflokkur fyrir 50 ára og
sætta sig við tap gegn ÍS sem
sigraði örugglega í öllum hrinun-
um þremur. Lítum á úrslit leikja
um helgina.
Meistaraflokkur karla 1. deild.
UMFL gegn Víkingi. Leiknar voru
fjórar hrinur. Laugdælir sigruðu í
fyrstu 15—3, en næstu þrjár
enduðu allar með sigri Víkings,
15—9. Þróttur sigraði síðan Vík-
inga örugglega, 3—0, 15—8, 15—6
og 15—13. ÍS hafði yfirburði gegn
Fram, sigraði 3—0, hrinurnar
enduðu 15—5, 16—14 og 15—2.
Þróttur sigraði Fram 3—1. Hrin-
urnar enduðu 15—3, Fram sigraði
í næstu hrinu óvænt 16—14, og
eldri, Æðsti flokkur, og að reglum
styrkleikanefndar var breytt.
í stjórn og varastjórn BSÍ voru
kjörnir:
Rafn Viggósson, formaður,
Magnús Elíasson, varaformaður,
Adolf Guðmundsson, ritari,
Steindór Ólafsson, erl. bréfaviðsk.,
Bjarni Lúðvíksson, gjaldkeri,
Vildís Kristmannsd., blaða-
fulltrúi, Hörður Ragnarsson og
Hörður Benediktsson.
Úr stjórn gengu:
Walter Lentz, sem gaf ekki kost
á sér til endurkjörs, Ásbjörn
Jónsson og Hjalti Sigurðsson.
var lengi yfir í fjórðu hrinunni,
komst í 10—3 og 12—6, en þá
skipti Þróttur öllum sínum bestu
leikmönnum inná og sigraði 15—
12 og í síðustu hrinunni 15—4. ÍS
sigraði svo Laugdæli örugglega
3— 0,15—11,15—4, og 15—10.
IJrslit í meistaraflokki kvenna
urðu þessi: UBK — ÍMA 0—3,
hrinurnar fóru 7—15, 12—15 og
4— 15. Þá sigraði Þróttur lið ÍMA
3-0,15-13,15-10 og 15-13.
- þr.
Þjálfaranámskeið
í alpagreinum
og skíðagöngu
Þjálfaranámskeið A-stigs í
alpagreinum og skíðagongu
verða um helgina á Akureyri.
Egilsstöðum og Reykjavík, en um
næstu helgi á ísafirði. Þá verða
þjálfaranámskeið á B-stigi i
framhaldi af þessum námskeið-
um haldin. í skiðagongu verður
B-namskeið á ólafsfirði og hefst
það laugardaginn 22. nóvemher
nk. Kennarar á því verða Björn
Þór Ólafsson og Per Axel Knud-
sen, sem cr þekktur skiðamaður
og leiðbeinandi i Noregi. I alpa-
greinum verður B-stigið haldið á
Akureyri í janúar nk.