Morgunblaðið - 18.11.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1980
17
Bjarni Þór Jónsson
bæjarstjóri Kópavogs
BÆJARSTJÓRN Kópavogs
rcði á föstudajíinn Bjarna
Þór Jónsson, bæjarritara. til
að Rcgna störfum bæjarstjóra
út kjörtímabilió. Illaut
Bjarni ÍHir átta atkvæði, en
þrír seðlar voru auðir.
Bjarni Þór Jónsson varð
lögfræðingur frá Háskóla ís-
lands 1974 og var ráðinn
bæjarstjóri í Siglufirði í júlí
það ár. Hann gegndi þeim
starfa til júlíloka í fyrra, að
hann var ráðinn bæjarritari í
Kópavogi.
Eiginkona Bjarna Þórs er
Margrét Sigríður Jörgensen og
eiga þau tvö börn.
Bjarni Þór Jónsson
Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri RUV:
Má búast við því að verkfall leikara
valdi ófyrirsjáanlegum erfiðleikum
„ÞEGAR formaður Félags ís-
lenzkra lcikara nefnir þá kröfu
cina i fjölmiðium. að einungis sé
farið fram á 600 minútna frum-
flutninK islenzks leikefnis þykir
mér málflutningurinn einkenni-
legur,“ sagði Hörður Vilhjálms-
son fjármálastjóri Rikisútvarps-
ins i samtali við Mbl. um verkfali
leikara.
„Hann nefnir ekki, að þeir fara
fram á að einn fjórði hluti af öllu
leiknu efni, sem flutt er í sjón-
varpinu, þar með taldar kvik-
myndir, verði innlent efni, gamalt
og nýtt. Þetta þýðir það, að ekki er
verið að tala um 600 mínútur,
heldur 18 til 20 þúsund mínútur af
íslenzku efni.
Auk þessa hefur verið tekizt á
um kröfur um, að teknir verði um
10 einsöngsþættir með óperu-
söngvurum auk einnar óperu og 10
uppfærslum listdansara:
Meginástæða fyrir því að við
viijum ekki ganga að þessum
kröfum er sú, að við viljum ekki
fara inn á þá braut að semja við
einstök félög eða binda megin-
hluta dagskrárinnar þannig. Við
teljum okkur heldur ekki hafa
heimild til þess. Við höfum hins
vegar lýst vilja okkar til að semja
um alla þætti kröfugerðar Félags
íslen’zkra leikara, aðra en þá, sem
fjallar um magnákvæði.
Það má búast við því að þetta
valdi ófyrirsjáanlegum erfiðleik-
um, en ég vona að menn sjái að sér
og um þessi mál semjist. Þáttur
innlendra leikinna þátta hefur
alltaf verið talsverður í Ríkisút-
varpinu og það er fullur vilji fyrir
því að svo verði áfram, en erfið
fjárhagsstaða ræður auðvitað
miklu um það.“
Hvað með áramótaskaupið?
„Ég býst við því, að reynt verði
að flytja áramótaskaupið eins og
verið hefur, þrátt fyrir þessi
vandamál."
IJósm. Mhl.: Sigurgoir
Margeir Pétursson virðir fyrir sér stöðuna hjá Jóni L. Árnasyni í
einni umferð helgarskákmótsins í Vestmannaeyjum um helgina.
Margeir teflir á
Ólympíuskákmótinu
„VEGNA þess að stjórn Skáksambands íslands hefur ekki fengið
varamann í minn stað i Ólympiusvcitina. sé ég mér ekki annað
fært en að verða við tilmælum ýmissa aðila, þar á meðal
Taflfélags Reykjavíkur. sem ég er féiagi í, um að tefla i
Ólympíuskákmótinu á Möltu.“ sagði Margeir Pétursson. alþjéið-
legur skákmeistari. í samtali við Mbl. í gær.
„Það væri ófært, ef íslenzka
sveitin yrði, vegna vanrækslu
skáksambandsstjórnarinnar, að-
eins skipuð fimm mönnum,"
sagði Margeir. „Hitt er svo
annað mál, að það var ekki fyrr
en nú um helgina, að ég frétti, að
stjórnin myndi ekki fá mann í
minn stað, þannig að fyrirvari er
stuttur og undirbúningur af
minni hálfu af skornum
skammti. Auðvitað breytir þessi
ákvörðun mín í engu afstöðu
minni til vinnubragða stjórnar
Skáksambandsins í þessu máli,
enda hefur staðan ekkert breytzt
frá því ég sendi henni bréf mitt
fyrir þremur mánuðum síðan."
íslenzka karlasveitin á Möltu
verður þá þannig skipuð: Friðrik
Ólafsson, Helgi Ólafsson, Jón L.
Arnason og Margeir Pétursson.
Varamenn verða Jóhann Hjart-
arson og Ingi R. Jóhannsson,
sem jafnframt verður liðsstjóri.
40 ára afmælis Akur-
eyrarkirkju minnst
með hátíðarguðsþjónustu
Akurcyri. 17. núvembrr.
FJÖRUTlU ára afmadis Akureyr-
arkirkju var minnzt við hátíðar-
Gisli Alfreðsson, formaður Félags islenzkra leikara:
Tilgangur verkf allsins er að auka þátt
íslenzkra leikþátta í Ríkisútvarpinu
EINS og fram hefur komið í
fréttum. hefur Félag islenzkra
leikara boðað til verkfalls hjá
Ríkisútvarpinu. í þvi sambandi
hafði Mhl. tal af Gísla Alfreðssyni,
formanni félagsins. og bað hann
skýra sjónarmið þess.
„Ástæðan fyrir þessari verkfalls-
boðun er aðallega sú, að frá því um
1973 hefur mikill samdráttur orðið
á flutningi innlends efnis í Ríkis-
útvarpinu og nú er það komið svo,
að innlend leikrit eru aðeins um
0,3% af myndefni Sjónvarpsins.
Frá 1968 til ’72 var hlutfallið hins
vegar 3 til 4%. Við erum þó ekki að
fara fram á svo hátt hlutfall. Við
teljum, að 1,4% sé nokkuð nóg til
að tryggja þátt íslenzkra leikrita
og förum ekki fram á meira, en að
þau fái 10 klukkustundir af þeim
700, sem um er að ræða.
Við teljum, að Ríkisútvarpinu sé
skylt samkvæmt lögum að styðja
og flytja íslenzk leikrit, en það
hefur ekki verið til viðtals um
þessa samninga til þessa. Það er
einnig rétt að geta þess, að svipuð
staða ríkir í flestum litlu Evrópu-
löndunum, þau standa ýmist í
svipuðum samningum eða hafa
lokið þeim. Litlu löndin eiga yfir-
leitt mjög í vök að verjast hvað
snertir leikþátta- og myndaflóðið
frá Bandaríkjunum og Bretlandi og
er innlend leikritun í talsverðri
hættu vegna þess.
Það er mjög erfitt að segja til um
hvenær áhrifa verkfallsins fer að
gæta, Ríkisútvarpið á þegar tals-
vert af efni, sem þegar hefur verið
greitt fyrir, en við höfum þó
bannað allar endursýningar. Auk
þess höfum við óskað eftir sam-
stöðu erlendis og það er ljóst, að
Ríkisútvarpið mun ekki fá efni frá
hinum Norðurlöndunum, Bretlandi
og sennilega ekki írlandi heldur, og
kemur það til aðhafa nokkur áhrif
þegar fram í sækir.
Öll okkar kröfugerð miðast sem
sé við að tryggja þátt íslenzkra
leikþátta í Ríkisútvarpinu, við för-
um ekki fram á kauphækkun, og til
að koma til móts við það, höfum við
boðizt til að lækka nokkuð endur-
sýningargjaldið, en það hefur kom-
ið fyrir ekki. Við teljum þessa
kröfu okkar alls ekki óraunhæfa,
við förum ekki fram á að hlutfall
íslenzkra þátta verði eins og það
var mest, og teljum því kröfur
okkar fyllilega raunhæfar miðað
við allar aðstæður," sagði Gísli
Alfreðsson að lokum.
guðsþjónustu í gær. en herra
Sigurgeir Sigurðsson biskup vígði
kirkjuna 17. nóvember 1940.
Við messuna í gær þjónaði séra
Pétur Sigurgeirsson vígslubiskup
fyrir altari, en séra Birgir Snæ-
björnsson predikaði. Strengjasveit
Tónlistarskóla Akureyrar undir
stjórn Michael Clarkes lék í upphafi
messunnar, Jakob Tryggvason lék á
orgel kirkjunnar, kirkjukórinn söng
og Gunnfríður Hreiðarsdóttir söng
einsong.
I tilefni af afmæli kirkjunnar
barst henni 100 þúsund króna
peningagjöf til minningar um
llelgu Jónsdóttur söngkonu, sem er
nýlátin. Gefendur voru synir henn-
ar. Ingvi Jón Einarsson og Haukur
Einarsson, Guðrún Kristjánsdóttir,
kona Hauks, og hjónin Sigríður
Pálína Jónsdóttír, systir Helgu, og
Haraldur Sigurgeirsson. Þær syst-
ur sungu lengi í kirkjukór Akureyr-
ar, m.a. við vígslu kirkjunnar.
Eftir messu efndi kvenfélag Ak-
ureyrarkirkju til basars og kaffi-
sölu á Hótel KEA. Þar var mikið
fjölmenni þrátt fyrir erfiða færð á
götum bæjarins.
- Sv.P.
Árni Grétar Finnsson, bæjarfulltrúi Hafnarfírði:
Verksmiðja Lýsis
og Mjöls verði flutt
- reynist það óframkvæmanlegt verði rekstri hennar hætt
„ÉG TEL að það sé fullreynt, að
það sé ekki ha'gt að skapa öryggi
gegn mengun og því sé ekki hægt
að ætlast til þess. að fólkið þoli
þetta lengur. Þess vegna lagði ég
fram i bæjarráði á fimmtudag
tillögu um að verksmiðja Lýsis
og Mjöls hf. verði flutt. en reynist
það ekki framkvæmanlegt, þá
verði starfsemi fyrirtækisins við
Hvaleyrarbraut lögð niður,“
sagði Árni Grétar Finnsson, bæj-
arfulltrúi i Ilafnarfirði, i samtali
við Mbl. í gær. en þessi tillaga
Árna er á dagskrá fundar ba'jar-
stjórnar Iiafnarfjarðar í dag.
„Tillagan gengur út á það að
fela fulltrúum bæjarins í stjórn
Lýsis og Mjöls, sem eru 3 af 5, að
beita sér fyrir því að hefja undir-
búning að flutningi verksmiðjunn-
ar, þannig að ákvörðun verði tekin
ekki seinna en fyrir lok ársins
1981,“ sagði Árni Grétar. „Ef
flutningur fyrirtækisins reynist
ekki framkvæmanlegur, þá verði
starfsemi fyrirtækisins á þessum
stað, sem það er nú, lögð niður.
í langan tíma hafa íbúar í
nágrenni verksmiðjunnar kvartað
undan henni. Fyrirtækið hefur
verið að setja upp hreinsitæki, en
rekstur þeirra er ekki öruggari en
það, að nýlega kvartaði fólk undan
lykt frá verksmiðjunni, sem þá
var rekin án hreinsitækjanna, og
svo varð bilun, þannig að mjöl fór
út og olli skaða. Eg tel að
fyrirtækið sé búið að fá svo langan
aðlögunartíma til að koma í veg
fyrir mengunina, að lengur verði
ekki búizt við því að fullnægjandi
árangur náist. Fyrirtækið hefur
reynt sitt, en árangurinn er bara
ekki meiri og við verðum að
horfast í augu við það. Við getum
ekki lengur horft fram hjá hags-
munum fólksins í byggðinni, sem
þegar er komin þarna, og þeirra,
sem eru að byggja yfir sig á
þessum slóðum."
Árni Grétar sagði, að rætt hefði
verið áður urri flutning fyrirtækis-
ins og þá m.a. til Krísuvíkur.
Sagði Árni að jafnvel þótt um
nokkrar fjarlægðir væri að ræða í
því tilviki, mætti vera að ódýr
orka á staðnum gæti vegið þar á
móti. Hins vegar hefðu fyrri
hugmyndir um staðsetningu í
Krísuvík strandað á vandkvæðum
við losun frárennslis. Einnig benti
Árni á, að verksmiðjuna mætti
setja niður einhvers staðar á
svæðinu sunnan Straumsvíkur.