Morgunblaðið - 18.11.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1980
3
íslendingar vestan hafs
mótmæla flugvallargjaldi
— VEGNA þess að flug-
vallargjaldið gerir ekkert
nema koma illu orði á
ísland hefur sú leið verið
farin að hefja undir-
skriftasöfnun í Banda-
ríkjunum og Kanada með-
al íslendinga og Vestur-
íslendinga, þar sem sú ósk
er sett fram, að þetta
gjald verði lagt niður,
sagði Þorsteinn Þor-
steinsson verkfræðingur í
Boston í samtali við
Morgunblaðið mánudag-
inn 17. nóvember. Þann
sama dag afhenti Þor-
steinn Halldóri Ásgríms-
syni, formanni fjárhags-
og viðskiptanefndar neðri
deildar Alþingis mót-
mælaundirskriftir 507
manna í Norður-Ameríku
vegna skattsins.
— Þegar þessi skattur eða
brottfarargjald frá Islandi var
lagt á nam það 5000 krónum eða
20 dollurum. Um gjaldið gilda
þær reglur, að farþegar, sem
koma gagngert til Islands þurfa
að greiða það en hins vegar ekki
svonefndir „stop over“ farþegar,
það er fólk, sem hefur hér
Þorsteinn Þorsteinsson
viðdvöl í einn sólarhring eða svo,
til dæmis á leið sinni frá New
York til Luxemborgar. Þetta
hefur verið hæsta brottfarar-
gjald hjá öllum vestrænum þjóð-
um. Starfsmönnum flugfélaga
hafa verið gefin um það fyrir-
mæli af ríkisvaldinu að inn-
heimta gjaldið. Þeir fá ekki að
fara úr landi, sem greiða það
ekki, sagði Þorsteinn Þorsteins-
son.
— Gjaldið bætist þannig ofan
á farseðil erlendra ferðamanna
og Islendinga búsettra erlendis.
Reynslan í flugmálum undanfar-
ið sýnir afleiðingar þess, ef
ferðamenn hætta að koma
hingað. Allir hljóta að vera
sammála um að Islendingum
erlendis sé ekki gert óeðlilega
erfitt og kostnaðarsamt að
heimsækja fjölskyldur sínar hér
á landi, sagði Þorsteinn og bætti
því við, að barnmargar fjöl-
skyldur yrðu að sjálfsögðu einna
verst fyrir barðinu á þessari
skattheimtu. Hann minnti á, að
26. mars sl. hefði birst um það
frétt hér í blaðinu, að flugvall-
argjald hefði verið hækkað um
60% og ráðgert væri, að fram-
vegis fylgdi það verðbólgunni.
Þorsteinn Þorsteinsson sagð-
ist hafa beitt sér fyrir söfnun
mótmælanna í Norður-Ameríku
og hefðu undirtektir verið góðar.
Aður en til söfnunarinnar kom
hefði árangurslaust verið vakið
máls á því erlendis við íslenska
embættismenn, að gjald þetta
yrði fellt niður. Sagðist hann
ætla að halda áfram að safna
nöfnum og senda þau til Alþing-
is, til þess að þingmönnum yrði
ljóst, að stór kjarni Islendinga
vestan hafs teldi nauðsynlegt að
fella gjaldið niður. Vitnaði hann
meðal annars til orða Þóris
Gröndals, sem búsettur er í
Flórída, í bréfi til sín, þar sem
Þórir hefði talið, að þessi skatt-
heimta spillti rekstri íslenskra
flugfélaga vegna áhrifanna á
flugfargjaldið og af því leiddi
svartsýni um að unnt yrði að
auka ferðir útlendinga til Is-
lands.
Sjálfstæðismenn á Austurlandi:
Nauðsynlegt er að ein-
angra Alþýðubandalagið
MORGUNBLAÐINU hefur borist svohljóðandi ályktun frá sjálfstæðis-
mönnum á Austurlandi, en hún var samþykkt á aðalfundi kjördæmis-
ráðs Sjálfstæðisflokksins i Austurlandskjordæmi á Höfn í Ilornafirði
hinn 25. október siðastliðinn:
„Aðalfundur kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Austur-
landskjördæmi, haldinn á Höfn í
Hornafirði 25. október 1980, lýsir
yfir andstöðu sinni við ríkisstjórn
þá, sem nú situr við völd á Islandi.
Fundurinn treystir því, að Sjálf-
stæðisflokkurinn nái sínum fyrra
styrk undir merki frjálslyndrar
lýðræðisstefnu með hagsmuni
allra stétta og byggðarlaga fyrir
augum.
Fundinum er ljós nauðsyn þess
að Alþýðubandalagið verði ein-
angrað og hvetur til samstöðu
lýðræðisflokkanna um stjórn í
landinu, sem bægir frá þeim
háska, sem að steðjar í efnahags-
málum og engin tilraun er nú gerð
til að ráða bót á.“
Ríkisútvarpið:
Milljarðs rekstr-
artap á þessu ári
„ÞAÐ ER rétt að nú stefnir í verulegan halla á rekstri
Ríkisútvarpsins og verður hann kannski nálægt einum
milljarði á þessu ári, sagði Hörður Vilhjálmsson
fjármáiastjóri Ríkisútvarpsins í samtali við Mhl.
„Þetta stafar aðallega af því að
verðbólgan og gengissig rýra veru-
lega tekjur Ríkisútvarpsins, en
megin orsökin er þó su, að tap,
sem fram hefur komið á stofnsjóði
sjónvarpsins, hefur verið fært yfir
á rekstrarsjóð. Þá hefur orðið
tilfinnanlegur halli vegna þess, að
tolltekjur af innflutningi sjón-
varpstækja hafa verið teknar af
okkur.“
Hvernig er ætlunin að fjár-
magna þennan hallarekstur?
„Það hefur verið gert ráð fyrir
þessu í fjárlagatillögum okkar.
Síðan 1979 hefur Ríkisútvarpið
verð rekið með sívaxandi halla og
þetta er nú orðið svo mikið, að
erfitt verður að kippa því í liðinn á
stuttum tíma. Fjárlagatillögur
okkar hafa verið sniðgengnar í
fjárlagafrumvarpinu og sú upp-
hæð sem við töldum okkur þurfa
verið lækkuð nokkuð. Við höfum
gert athugasemd við þessa af-
greiðslu og vonumst til að hún
verði tekin til greina."
Bankamenn boða
verkfall 3. des.
SAMBAND íslenzkra hankamanna hefur boðað til verkfalls hanka-
manna frá og með 3. desemher næstkomandi. hafi samningar ekki
tekizt fyrir þann tíma. Þessi ákvörðun var tekin á sameiginlegum
fundi aðal- og varastjórnar SÍB í gær og var samþykkt einróma. Lýsir
SÍB jafnframt fullri ábyrgð á hendur bönkunum vegna þeirrar
alvarlegu stöðu sem nú er komin upp i samningamálum bankamanna.
Bankamenn felldu nýlega í alls-
herjaratkvæöagreiðslu kjara-
samning, sem samninganefnd SÍB
og samninganefnd bankanna hafði
gert. Síðan hefur samninganefnd
bankamanna gert kröfur um nýjar
viðræður. í fréttatilkynningu frá
SIB segir: „Akvörðun þessi er
tekin í ljósi þess, að þrátt fyrir
ítrekaðar kröfur Sambands ís-
lenzkra bankamanna til samn-
inganefndar bankanna um nýjar
viðræður, hefur nefndin ekki orðið
við þeim. Deilan er í höndum
ríkissáttanefndar og á fundi, sem
nefndin hélt með deiluaðilum á
föstudaginn var, 14. nóvember
kom ekkert það fram af hálfu
samninganefndar bankanna, sem
bent gæti til samningsvilja."
Um samningamál bankamanna
gilda svipuð ákvæði og eru í lögum
um kjarasamning BSRB. Sátta-
semjari ríkisins hefur 15 daga
frestunarvald, ef til boðaðs verk-
fallsdags kemur án þess að sam-
komulag náist. Hann getur því
frestað bankamannaverkfalli til
18. desember, en á þeim tíma skal
hann hafa lagt fyrir samningsað-
ila sáttatillögu, sem greidd verði
atkvæði um í öllum aðildarfélög-
um SIB. Verði þátttaka atkvæðis-
bærra bankamanna undir 50%,
skoðast tillagan samþykkt og
verður að samningi. Ef þátttakan
er hins vegar meiri ræður einfald-
ur meirihluti því, hvort verkfall
kemur til framkvæmda hinn 18.
desember eða sáttatillagan verður
að nýjum kjarasamningi banka-
manna og bankanna.
TOYOTA-
SAUMAVÉLAFJÖLSKYLDAN
Toyota 4500 EL með saumaarmi
Örugglega ein fullkomnasta saumavélin á markaðnum. 4
hraöa rafeindasaumavél með tölvuhnappaboröi, sem
gerir allan saum leikandi létt verk.
Verö kr. 289.800.-
4500
Toyota
sauma-
vélar
fyrir alla
A verði
fyrir alla
A greiðslu-
kjörum
fyrir alla
2ja ára ábyrgð og sauma-
námskeið innifalið í verði.
Fullkomin viðgeröar- og
varahlutaþjónusta.
T oyota
Varahlutaumboðið
Armúla, 23, sími 81733.