Morgunblaðið - 03.07.1977, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.07.1977, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JULÍ 1977 ÞESSI stórkostiegi Pontiac Grand Prix árgerð 1973 er til sölu. Bifreiðin er í sér flokki með öllum aukahlutum sem fáanlegir eru frá GM verksmiðjunum. Lítið ekinn og vel með farinn. Nánari uppl. veittar hjá Bilasölu Guðfinns, simi 81588. URSUS 40 ha. á kr URSUS 65 ha. á kr URSUS 85 ha. á kr (áætlað) 700.000,- 978.000- 1.950.000,- Pólskir jarðtætarar, mjög góð reynsla. Verð 155.000 - Fyrirliggjandi ámoksturstæki fyrir 40 ha., 60 ha. og 85 ha. URSUS. Vélaborg Sundaborg sími 86655 og 86680. BANDARIKINI Nú á dauða- refsingin að heita allra meina bót - í nærfellt 10 ár var enginn dauðadæmdur maður líflátinn í Bandaríkjunum. En nú er slátrun nýhafin aftur í einu ríki. Það virð- ist af ýmsu, að dauðarefsing njóti sívaxandi vinsælda, ef svo i- skyggilega má komast að orði, og ef svo heldur áfram sem nú horfir kann hún að verða aftur upp tek- in um gjörvöll Bandarikin. Um þessar mundir liggur fyrir ríkisstjóra Kaliforniu frumvarp til laga um dauðarefsingu. Dauða- refsing var i lögum i Kaliforníu hér áður fyrr, en var afnumin. Rikisstjórinn, Jerry Brown, hefur margsinnis sagzt mundu beita neitunarvaldi gegn frumvarpinu um dauðarefsingu — en ef meiri hluti Kaliforníuþings vill, að það nái fram að ganga, mun hann ekki fá rönd við reist. Það lítur út fyrir það, að flestir aðrir Kaliforníumenn en rikis- stjórinn séu fylgjandi dauðarefs- ingu. Aimenningur vill, að hún verði tekin upp aftur. Stjórnmála- menn vilja það líka. Lögreglan vill það. Og síðast, en ekki sízt, keppinautar Browns um rikis- stjóraembættið, og það kann að verða honum afdrifaríkt. Það verður nefnilega kosið til em- bættissins á næsta ári. 1 maí siðast liðnum samþykkti neðri deild Kaliforníuþings nýja dauðarefsingarfrumvarpið. At- kvæði féllu þannig, að 54 voru meðmæltir, en 23 á móti og dugði þetta nákvæmlega til samþykkt- ar, hvorki meira né minna. Nú á efri deildin einungis eftir að sam- þykkja fáein ákvæði; því næst fær Brown rfkisstjóri frumvarpið til undirskriftar. Verður hann þá i meinlegri klípu. Eins og fyrr var sagt hefur hann margsinnis lýst sig andvígan dauðarefsingu og heitið að beita neitunarvaldi við henni. En það gæti orðið honum dýrt að standa við hugsjónina. Ef hann neitaði að undirrita frum- varpið breytti hann nefnilega gegn vilja kjósenda; og minna keppinautar hans hann nú á þetta dögum oftar. Þess hefur orðið vart upp á siðkastið, að æ fleiri viija láta gjalda afbrotamönnum í þeirra eigin mynt og hafa það að reglu, að tönn skuli fyrir tönn og auga fyrir auga. Ekki alls fyrir löngu urðu íhugunarverð bréfaskipti í Los Angeles Times. Charles Mee, blaðamaður, var að rita um þessi efni og stakk upp á því að saka- menn yrðu ekki liflátnir — heldur yrðu höggnar af þeim hendur eða fætur, ellegar þeir yrðu blindaðir. Limirnir mundu koma að góðum notum við kennslu í iæknaskólum, en aug- unum mætti safna í augnabanka og græða þau svo I heiðarlegt fólk, sem þyrfti á þeim að halda. Það skipti engum togum, að blað- inu barst haugur bréfa frá fólki, sem allt kvaðst blaðamanni hjartanlega sammála. Einn bréf- ritari kvaðst hafa það eitt við greinina að attuga „sem kona og móðir", að Mee hefði gleymt að geta þess, hvernig ætti að aflima nauðgara. . . Annar kvaðst alla tið hafa verið fylgjandi dauðarefs- ingu. Sér fyndist þó nú orðið að það ætti að láta pyntingar duga. . . Enn annar kallaði uppástungu Mees „frábærlega skynsamlega“. Loks má nefna bréf frá manni, sem benti á það, að margir alsak- lausir menn væru handar- og fótarvana og yrði einhvern veg- inn að koma i veg fyrir það, að þeir yrðu að ósekju taldir dæmdir glæpamenn. Hann hafði lausnina á reiðum höndum: Það var ekki nóg að aflima bófana — það varð að brennimerkja þá líka. Þar með átti að vera tryggt, að enginn villt- ist á sekum og saklausum. „Vinsældir" dauðarefsingar GASKLEFINN í San Quentin í Kaliforniu: Kemst hann í gagnið aftur? upp á siðkastið stafa, eins og nærri má geta, af því að glæpum hefur fjölgað mjög og ofbeldi auk- izt. Að sögn ríkissaksóknarans í Kaliforniu (hann er reyndar í framboði til rikisstjóraembættis- ins) er þrefalt meira um morð að yfirlögðu ráði nú en var árið 1963, þegar aftökur voru aflagðar. Ann- ar frambjóðandi til ríkisstjóraem- bættisins, Ed Davis, lögreglu- stjóri I Los Angeles, er einn helzt- ur málsvari dauðarefsingar. Hann er formaður „starfshóps“, er hef- ur það eitt baráttumál að gasklef- inn verði aftur i lög leiddur í Kaliforníu. Er starfshópurinn i herferð og eys óspart fé á báðar hendur, ef það mætti verða til framdráttar hugsjóninni. Að sjálfsögðu er allur stuðningur vel þeginn. Fyrir skömmu fékk Davis bréf frá konu nokkurri, sem kvaðst fylgjandi því að dauðarefs- ing yrði aftur lögleidd — og ætti hún þó son i dauðadeildinni. Davis ritaði konunni aftur um hæl og kvaðst hafa fengið „nýjan innblástur" til baráttunnar er hann las bréf hennar. En þrátt fyrir þessar háværu kröfur er nú ekki einsýnt, hvern- ig dauðarefsingarmálinu lyktar. Vel kann að vera, að dauðarefs- ingaræðið undan farið sé bóla ein- og hjaðni áður langt liður. Nokk- uð er það, að aftökum hefur farið fækkandi jafnt og þétt siðast liðna hálfa öld, og hefur dauða- refsing þó verið í lögum lengst af þeim tima. Það er sem sé ekki vist, að Bandarikjamenn séu jafn- blóðþyrstir i rauninni og þeir virðast i svipinn. CHARLESFOLEY ELLIN Listin að ,,lifa fram í andlátið” reyna að verSa fyrri meö fréttirnar eftirleiðis. Ég er nefnilega orSinn nfræSur." Alex Comfort heitir læknir og hef- ur veriS aS rannsaka öldrun f meira en aldarfjórSung. Hann gaf nýlega út bók um öldrun. Nú munu flestir hugsa þannig til ellinnar, aS henni fylgi óhjákvæmleg hnignun. hún sé aSeins biStfmi til dauSans; um leiS og menn taki aS eldast fari um leiS aS halla undan fæti f flestum eSa öllum greinum. Þeir, sem eru þessar- ar skoSunar, fmynda sér væntanlega Ifka. aS bók um ellina hljóti aS vera heldur dapurleg lesning. En þaS verSur ekki sagt um bók Comforts. ÞaS fólk, sem hann færir til sögu sinnar, er hreint ekkert dapurlegt I lund. Er þaS þó flest á nfræSis- og tfræSisaldri. Alex Comfort býr f Kalifornfu, vinnur þar aS öldrunarrannsóknum sfnum, og „rekur áróSur fyrir ell- inni". Ég hitti Comfort aS máli, þeg- ar hann átti leiS um London fyrir stuttu. Eg hafSi orS á þvf. aS mér fyndist hann skilja gamalt fólk ótrú- lega vel. þótt hann væri sjálfur ung- ur aS árum. Comfort er 57 ára aS aldri. Hann svaraSi þvl til. aS hann væri búinn aB rannsaka gamlingja lengi — „einkum þó aldraSar mýs. Ekki veit ég þó. hvort skilningur minn á ellinni hefur aukizt nokkuS viS þaS. Aftur á móti lærSi ég margt og mikiS af föSur mfnum. Hann var aS deyja núna eftir áramótin. Hann varS 94 ára — og hann var ekki gamall nema tvo sfSustu mánuSina. Hann var meS alhressustu mönnum. Ekki löngu áSur en hann dó var bariS aS dyrum hjá honum og hann fór fram. StóS þá tatari fyrir utan og sagSi aS bragSi: Ég hef gleSifregnir aS færa þér; þú getur hæglega orSiS áttræSur, ef þú kærir þig um." „Jæja. góSi," sagSi pabbi, „þaS er nú gaman aS heyra. En þú ættir aS GEORGE BURNS Fæddur 1896 og áttræður þegar hann fór í fyrsta skipti með aðal- hlutverk I kvikmynd, hreppti Óskarsverðlaunin fyrir frammi- stöðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.