Morgunblaðið - 03.07.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.07.1977, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR 144. tbl. 64. árg. SUNNUDAGUR 3. JULl 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 2. jflll. Reuter. NÍTJÁN menn biðu bana og sex særðust þegar deila um iandskika í smáþorpi I Austur-Tyrklandi breyttist í blóðugan bardaga, þar sem barizt var með byssum, bar- eflum, grjóti og öðru sem hönd varð ð fest. Það voru tvær fjölskyldur sem deildu um yfirráð yfir blettinum og tóku alls 30—40 meðlimir fjöl- skyldnanna þátt i átökunum, sem lyktaði ekki fyrr en herlögregla kom til þorpsins og skarst í leik- inn. Kavalek efstur á IBM-skákmótinu Amsterdam, 2. júlf. AP. BANDARtSKI stórmeistarinn Lubomir Kavalek er nú efstur á IBM-skákmótinu f Amsterdam með þrjá og hálfan vinning eftir fjórar umferðir. Hann lagði síðast að velli Hollendingana Donner og van Wijgerden. Næstur á eftir Kavalek er tsraelsmaðurinn Liberzon með þrjá vinninga, en þar næst koma Hulak, Miles, Adorjan og Piinteros. Aðrir kepp- endur á mótinu eru auk ofan- nefndar Panno, Timman, Reshevsky, Ree, Sosonko, Böhm, Torre og Tatai. Dag er tekið að stytta á ný og skuggi nætur lengist örlftið með hverjum sólarhring sem líður. Sumarnóttin f Reykjavfk er þó enn björt en þessi mynd var tekin um eitt leytið í fyrri- nótt við Gróttu eftir að sól var setzt. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.) Tyrkland: Stjórn Ecevits í hættu Ankara, Tyrklandi 2. júlf. Reuter. MIKILVÆG atkvæðagreiðsla um traustsyfirlýsingu á minnihluta- sjórn Bulent Ecevits fer fram i tyrkneska þinginu á morgun, en aðeins mánuður er liðinn frá þvl að stjórn hans tók við völdum að loknum kosningum. Ecevit hefur 19 drepnir í deilu um landskika Mus, Tyrklandi, lagt fyrir þingið áætlanir sinar um lausn á efnahagsvanda lands- ins og ráðagerðir um að koma á lögum og reglu í landinu eftir óróa undanfarinna mánaða. Andstæðingar Ecevits hafa meirihluta i þingi Tyrkja og gætu fellt stjórnina ef allir þingmenn þeirra greiddu atkvæði gegn áformum stjórnarinnar. Talið er þó, að margir f röðum stjórnar- andstæðinga vilji binda enda á það óvissuástand sem rikt hefur í landinu og koma á festu i stjórn landsins og mun þvi ekki reyna að fella stjórnina að svo komnu máli. Bretar taka annan hollenzkan togara London, 2. júlf. Reuter, AP. ANNAR hollenzkur síld- veiðitogari var í dag tekinn I brezkri fiskveiðilögsögu fyrir að brjðta bann það sem Bretar hafa sett á all- ar sídveiðar á yfirráða- svæði sínu í Norðursjó. Togarinn María var tekinn innan við sólarhring eftir að togarinn Jóhanna var tekinn og færður til hafnar á Hjaltlandi. María var færð til Aberdeen þar sem mál skipstjórans verður tekið fyrir. Utgerðir hollenzku sildveiði- skipanna ákváðu i fyrradag að virða sildveiðibann Breta en talið er að einstakir skipstjórar kunni að haida áfram að virða bannið að BARDAGAR voru i Líbanon i gær og segir fréttastofa Palestinu- manna að hersveitir ísraels og hægri sinna í Líbanon hafi gert árásir á þorpið Yarin í suðurhluta Libanon nálægt landamærum ísraels. Segir að árásarmennirnir hafi notað skriðdreka og stór- Ívettugi. Stærsti hluti þess flota sem að veiðunum var kom þó til hafnar i Hollandi i dag og eru skipstjórar og útgerðarmenn þar mjög reiðir Bretum fyrir bannið. skotalið i árásinni. Ekkert hefur verið látið uppi af opinberri hálfu I Libanon eða ísrael um frétt þessa. í gær biðu tveir menn bana i bardögum milli tveggja hópa hægri sinna, en aó öðru leyti var tiltölulega rólegt I landinu. Barizt í Líbanon Beirut, Lfbanon. 2. júlf, AP. Búrhvalveiði Rússa og Japana í Kyrra- hafi 763ístað 7200? Canberra — 2. júli — Reuter. TALIÐ er a8 nýjar kvótatakmarkanir sem ákveBnar voru á ráðstefnu AlþjóSa hvalveiSi- nefndarinnar i Canberra. verði til þess að bjarga lifi þúsunda hvala. Ráðstefnan ákvaS að draga úr hvalveiðum sem nemur 36 af hundraði, þannig að á næsta ári verði ekki veiddir nema 1 7.839 hvalir i veróldinni, en á þessu ári er ráð fyrir gert, að veiddir verðí 27.850 hvalir. Hinar nýju kvótareglur koma harðast niður á Sovétmönnum og Japönum, sem veiða 75% þeirra hvala. sem koma á land Nefndin ákvað vlðtækar friðunaraðgerðir I Norður-Kyrrahafi. þar sem Japanir og Sovétmenn hafa undanfarið veitt 7.200 búrhvali árlega, en á næsta ári verður óheimilt að veiða þar nema 763 búrhveli. í þessari hvalategund er að finna afar verðmæta vaxkennda kvoðu — ambur — sem meðal annars er notuð við framleiðslu á smyrslum og ilmvötn- um Ákvörðun um þessar friðunaraðgerðir í Kyrra- hafi er þó ekki endanleg, en ráðgert er að nefndin haldi sérstakan fund I nóvember n k. þar sem hún verður endurskoðuð með tilliti til upplýsinga sem ekki liggja fyrir á þessu stigi. 16 þjóðir eiga aðild að Alþjóða hvalveiðinefnd inni. Þar af eru 7 þjóðir, sem stunda hvalveiðar að því marki, að um raunverulega hagsmuni er að ræða, þ.e. Japanir, Sovétmenn, íslendingar. Norðmenn. Danir, Ástrallumenn og Brazillumenn. og eru þær þvl I minnihluta I nefndinni. Japanir og Sovétmenn hafa látið að þvl liggja. að þeir kunni að hætta þátttöku I störfum nefndarinnar. þar eð sjónarmið minnihlutans séu hunzuð og annarlegar ástæður ráði mestu um ákvarðanir oefndarinnar Óllklegt er þó talið að Japanir og Sovétmenn taki sllka afstöðu. fyrst og fremst af þeirri ástæðu að þá muni aðrar þjóðir grlpa til innflutningsbanns á fiskafurðum þeirra, og verði Bandarlkjamenn þar fremstir I flokki. Carter forseti hefur gefið til kynna að fylgzt verði náið með hvalveiðum og þá sérstaklega þeim. sem brjóti I bága við ákvarðanir Alþjóða hvalveiðinefndarinn- ar. Japanir líggja undir ámæli I þessu sambandi, og innan Alþjóða hvalveiðinefndarinnar hefur þeim verið borið á brýn að vera eignaraðilar að hvalveiðistöðvum I Perú, Chile. Sómallu og Suð- ur-Kóreu, en allt eru þetta rtki. sem hingað til hafa ekki viljað gerast aðilar að nefndinni. Áhugahópar um friðun hvala hafa komið með sams konar ásakanir, en ýmsir sllkir hópar fylgdust náið með ráðstefnunni I Canberra. Friðunarmenn gerðu aðsúg að ýmsum ráð- stefnufulltrúum, og varð til dæmis nauðsynlegt að kalla út fjölmennt lögreglulið til að bjarga 20 manna sendinefnd Japana úr klóm þeirra I gisti- Framhald á bls. 47 Mikið mann- tjón í flóðum í Pakistan Karachi, Pakistan, 2. júlí. Reuter. 200 MANNS hafa látið lífið í mesta monsúnregni sem komið hefur i 40 ár í Pakistan, að því er skýrt var frá í Karachi í dag. Margra er enn saknað, en mest rigndi á fimmtudag og flæddu þá árnar Lyari og Malir yfir bakka sina. Var allt aö 2,5 metra djúpt vatn á götum i Karachi, sem liggur við árnar,- en alls féllu 200 millimetr- ar regns úr lofti á fimmtutag. Gifurlegt eignatjón hefur orðið af völdum þessara rigninga og rúm- lega 10 þúsund manns hafa orðið heimilislaus og búa nú I búðum sem komið hefur verið upp til bráðabirgða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.