Morgunblaðið - 03.07.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 03.07.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JCLI 1977 7 „Hvilíkt djúp ríkdóms og speki og þekkingar Guðs. Hversu órannsakandi dómar hans og órekjandi vegir hans". Róm. 1 1.33. Að baki þessara orða Páls postula liggur stórbrotin og ævintýraleg reynsla. Hanner orðinn viðaldur, þegar hann les skrifara sínum fyrir þessi orð. Á síðari hluta ævi hans er tekið að halla, og meðan hann semur bréf sitt til krist- inna manna i Rómaborg svífa honum fyrir hugarsjónum myndir, myndamergð frá liðnum, litauðugum árum. Sem barn hafði hann lifað áhyggjulaus í heimili efnaðra og velmetinna foreldra í borginni Tarsus. Ungur hafði hann verið sendur að heiman og til Jerúsalem, og náms- dvöl hafði honum verið valin hjá einhverjum bezta kennara í fræðum Gyðinga, sem völ vará. Þennan gáfaða dreng vildu efnaðir foreldrar búa, sem bezt var kosturá, undirlífið. Hann átti að verða sómi þjóðar sinnar, feðra sinna og feðra- trúar. Og allt gengurað óskum. Aðforeldraráði hefur hann valiðveg, hinn beina veg. Sál, eins og hann hét frá bernsku, verður gagntekinn hugsjón Fariseanna og þegar á unga aldri er hann í miklu áliti fyrir afburðagáfur og gyðinglegan rétttrúnað Hann tekur eindreginn þátt í að ofsækja áhangendur krossfesta villutrúarmannsins frá Nasaret Og á því er ekkert hálfverk fremur en öðru því sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann gekk aldrei hálfur maður að leik, svo var hann heilsteyptur og sterkur. Hér voru vegir Guðs ekki órekjandi. Krókalaust leiðir hann þennan unga mann að marki. En þá verða hin miklu vegaskil og leiðin liggur inn á óvænta vegi, vegi sem engum hafði komiðtil hugar að ungi Fariseinn frá Tarsus ætti eftir að ganga: Uppris- inn Kristur birtist honum á óvæntri stund, óvæntum stað, og sigrar hann. Þá verða vegir Drottins vinum Páls óskiljanlegir og dómar hans órannsakandi. Áður hafði verið auðvelt að rekja vegi Drottins með hinn unga mann, en nú var það erfitt Og það átti eftir að verða enn erfiðara vinum Páls. Mörgum árum, áratugum, síðar situr hann aldraður maður og virðir fyrir sér myndiraf baráttunni, þeirri voðalegu baráttu sem hann hfði orðið að heyja við sjálfan sig meðan hann stóð á mót- um hins óvænta nýja vegar og hins gamla áður en sinna- skipti hans urðu alger. Lifandi stíga fram myndir frá ægilegum andvökunóttum og brennandi kvöl, þegar morguninn reis. Eftir öll þessi ár finnur hinn aldni postuli sem enn brenni hann hatrið, fyrirlitningin, sem hann varð að þola frá fyrri samherjum, ættmennum og vinum, þegar hann varð knúinn inn á hinn óvænta veg og gerðist máttugur boðberi þess máls, sem hann hafði áður svarið að berjast til sigurs gegn Hann sér fyrir sér hverja myndina af annarri frá bar- áttuárunum og það jafnvel sterkum átökum við kristna menn. Jafnvel postulana sjálfa. Aldraður horfir hann á þessargömlu minninga- myndir, en hann sér einnig aðrar myndir, meiri, stærri. Hann minnist sæluþrung- inna, heilagra stunda í heimi bæna og vitrana, þegar sú náð veittist honum að eiga samfélagslíf við borgara yfir- jarðneskrar veraldar. Þar gnæfir hvað hæst minninqin um þá stóru stund, þegar hann kveðst hafa verið hrif- inn úr líkamanum „allt upp til þriðja himins" og séð þar og heyrt það, sem hann segirað mannleg tunga geti hvorki túlkað né tjáð. Hinn aldni postuli gerir málhvíld frá að lesa skrifara sínum bréfið fyrir, svo yfir- þyrmandi eru minningarnar sem vitja hans nú. Og þá fölna allar hinar, líkt og hörfi þær burt, þegar upp úr þagnardjúpinu stiga minningar um þær stundir, er hinn upprisni Kristur vitraðist honum sjálfur, talaði við hann og altók hann svo, að loks gat hann með sann- færingarþunga sagt: „Sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér"! Yfirallt þetta lif, þennan ævintýralega feril, sem skipazt hafði á gersamlega annan veg en sjálfur hann, ættingjar hans og vinir höfðu búizt við á fyrri árum horfir hann, og þá streyma fram af vörum hans orðin, sem skrif- ari hans festirá pergamentið: „Hvilíkt djúp ríkdóms og speki og þekkingar Guðs Hversu órannsakandi dómar hans og órekjandi vegir hans"! Nú hugleiðum við þessi miklu orð Hvernig orka þau á þig? Vekja þau verðugan gagnóm í hjarta þínu? Hafa þau nokkuð það við þig að segja, að hjarta þitt brenni? Minna þau þig á nokkuð það úr lífsreynslu þinni, sem mæli sínu máli um hand- leiðslu heilaga á þér, þegar þú varst knúinn inn á óvænta vegi? Hugsaðu um það, sem á daga þina hefur drifið og á að vera þér órækur vitnis- burður þess, þótt þú sæir það ekki ævinlega í byrjun, að yfir þér var vakað af dásamlegri speki með undur- samlegri og vísdómsfullri handleiðslu. Um það langar mig að mega ræða við þig örlítið nánara, skrifi ég gréin fyrir næsta sunnudag. Óvœntir vegir FIMLEIKASÝNING Danski fimleikaflokkurinn frá THISTED sýnir í íþróttahúsinu Ásgarði, Garðabæ, mánudaginn 4. júlí n.k. kl. 21.00. Það er engin tilviljun, að fimleikar njóta sívaxandi vinsælda. Mætið stundvíslega. GERPLA. Snyrtistofan Q HótelLoftieiðum, sími 253202? & & Andlitsböð, húðhreinsun, fótaaðgerð, handsnyrt- ing, litun, fjarlægi óæskileg hár af fótleggjum og andliti. Líkamsnudd — partanudd. 1. flokks aðstaða Helga Þóra Jónsdóttir, fótaaðgerða- og snyrtisérf ræðingur Heimasimi 36361 Létt sem fis ....og endist og endist Við sjáum yfirteitt bara ristina í frárennsliskerfinu. Undirhenni eru ótalmargir hlutar, sem hjálpast að við að koma vatninu á leiöarenda. VATNSVIRKINN hefur allt, sem til þarf í þessu sambandi. VATNSVIRKINN hefur starfað í 25 ár sem sérverzlun með efnivörur til pipulagna. VATNSVIRKINN býður viðskiptamönnum sínum einungis úrvals vörur, sem eru þekktar að gæðum. VATNSVIRKINN kynnti árið 1966 frárennsliskerfi, sem er unnið úr plastefninu polypropylene. Þetta efni hefur augljósa kosti: • Það þolir sjóðandi vatn og sýrur. • Það er létt sem fis. • Það endist.....og endist. Ármúla 21 - Sérverzlun með efnivörur til pípulagna Höfum fyrirliggjandi farangursgrini og bindingar áallarstærðir fólksbfla, Broncojeppa og fleiri bfla. Einnig skíðaboga Bílavörubúðin Fjöðrin h.f. Skeifan 2. simi 82944.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.