Morgunblaðið - 03.07.1977, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.07.1977, Blaðsíða 4
4 ■ p% SIMAR |U 28810 car rental 24480 bílaleigan GEYSIR BORGARTÚNI 24 LOFTLEIBIR -n- 2 1190 2 11 38 Bifreiðasala Notaðir bílartil söiu Wagoneer 8 cyl. sjálfskíptur *71. '73. '74 Wagoneer 6 cyl. beinsklptur '71, '73, '74, '75 Cherokee 6 cyl. beinskiptur '74 Jeepster '67, '68, '71, "72 Willys Jeep '42. '47, '62. '64. '65, '66, '72. '73, '74, '75 Hunter '70, til '76 Sunbeam '71, '72, '73, '74, '76 Lancer 1 200 og 1 400 '74, '75 Galant 2ja og 4ra dyra '74, '75 Skipper '74 Mmica station '74 Hornet '73, '74, '75 Hornet '73, '74, '75 Matador '71, '74 Fiat 128 '74, '75 Fiat 127 '74 Vauxhall Viva '65 Opel Record 4ra dyra '70, '71 Rambler Classic '64 Peuegot 404 einkabill '74 Peugeot 404 bensín, mjög góður bíll, '70 Bronco '66, "73, '74 Blazer '73, '74 Cortina '70, '71, '72, '74 Opel Record 1 700 '68 Saab 96 '72. '73 Toyota Carina ‘74 Volvo '70, '71, '74, '76 Volkswagen Fastback "66 Volkswagen 1302 '71 Citren DS 5 gira einkabill i sérflokki '75 Nýir bílar Galant Sigma 1600 '77 Matador 4ra dyra sjálfksiptur '77 Hornet 4ra dyra sjálfskiptur '77 Hornet 4ra dyra siálfskiptur '77 Sunbeam 1 600 super 4ra dyra. '77 Getum bætt við bílum á söluskrá vegna mikillar sölu undanfarna daga. Opið í hádeginu. Allt á sama stað EGILL, VILH JALMSSON HF Laugavegi 118-Simi 15700 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JULt 1977 . Útvarp Reykjavík SUNNUQ4GUR 3. júlf MORGUNNINN 8.00 Morgunandakt. Herra Sigurbjörn Einarsson biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregn- ir. Útdráttur úr forustugr. dagbl. 8.30 Létt morgunlög 9.00 Fréttir. Vinsælustu popp- lögin. Vignir Sveinsson kynnir. 10.10 Veðurfregnir 10.25 Morgunténleikar. Píanókonsert 1 a-moll op. 16 eftir Edvard Grieg. Géza Anda og Fílharmonfusveitin f Berlfn leika; Rafael Kubelik stj. 11.00 Messa f Egilsstaðakirkju (hljóðr. á þriðjud. var f tengslum við prestastefnu. Séra Eric H. Sigmar predikar. Séra Kristján Valur Ingólfsson, séra Bjarni Guðjónsson og séra Vigfús Ingvar Ingvarsson þjóna fyr- ir altari. Organleikari: Jón Ólafur Sigurðsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. SÍÐDEGIÐ 13.30 í liðinni viku. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. 15.00 Sónata fyrir píanó eftir Alberto Ginasera. Ronald Turini leikur. 15.15 islandsmótið f knatt- spyrnu: Útvarp frá Akranesi. Hermann Gunnarsson lýsir keppni Íþróttabandalags Akraness og Vals. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 Mér datt það f hug. Kristján skáld frá Djúpalæk spjallar við hlustendur. 16.45 tslenzk einsöngslög. Erlingur Vigfússon syngur lög eftir Emil Thoroddsen, Þórarinn Jónsson og Karl O. Runólfsson. ’ Fritz Weisshappel leikur á pfanó. 17.00 Staldrað við f Stykkis- hólmi. Jónas Jónasson spjall- ar við fólk þar; — f jórði þátt- ur. 17.50 Stundarkorn með Rawicz og Landauer, sem leika þekkta sfgilda dansa á pfanó. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDIÐ 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.25 Lffið fyrir austan; — fjórði og sfðasti þáttur. Birg- ir Stefánsson kennari segir frá. 20.00 Sinfónfuhljómsveit Islands leikur f útvarpssal. Christyne Tryk og Sinfónfu- hljómsveit Islands leika Konsert nr. 2 f D-dúr fyrir horn og hljómsveit eftir Joseph Haydn; Páll P. Pálsson stj. 20.20 Sjálfstætt fólk f Jökul- dalsheiði og grennd. Örlftill samanburður á „Sjálfstæðu fólki“ eftir Halldór Laxness og samtfma heimildum. Fyrsti þáttur: Jörðin og fólk- ið. Gunnar Valdimarsson tók saman efnið. Lesarar með honum: Iljörtur Pálsson, Klemenz Jónsson og Guðrún Birna Ilannesdóttir. 21.15 Sinfónfa í C-dúr eftir Georges Bizet. Hljómsveit franska rfkisútvarpsins leik- ur; Sir Thomas Beecham stj. 21.45 „Brölt f myrkri“, Gfsli Alfreðsson leikari les. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. Sigvaldi Þorgilsson dans- kennari velur lögin og kynn- ir. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok. A1NMUD4GUR 4. júlf MORGUNNINN 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. landsmálabl.), 9.00 og 10.00. Mogurnbæn kl. 7.50: Séra Þórhallur Höskuldsson (a.v.d.v.). Morgunstund barnanna kl. 8.00: Árni Blandon heldur áfram að lesa söguna „Stað- fastan strák“ eftir Kormák Sigurðsson (7).Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Morgunpopp kl. 10.25. Morguntónleikar kl. 11.00: Tékkneska fflharmonfusveit- in leikur „Othello"—forleik op. 93 eftir Antonfn Dvorák; Karel Ancerl stj. Hljómsveit- in Fflharmonfa leikur Sin- fóníu nr. 3 f a-moll op. 56 „skozku hljómkviðuna" eftir Felix Mendelssohn; Otto Klemperer stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. SÍÐDEGIÐ 14.30 Miðdegissagan: „Elenóra drottning" eftir Noru Lofts. Kolbrún Friðþjófsdóttir les þýðingu sfna (13). 15.00 Miðdegisónleikar: Js- lenzk tónlist. a. Sönglög eftir Bjarna Böðvarsson o.fl. Inga Marfa Eyjólfsdóttir syngur; Ólafur Vignir Albertsson leikur á pfanó. b. Strengja- kvartett op 64 nr. III „El Greco“ eftir Jón Leifs. Kvart- ett Tónlistarskólans f Reykjavík leikur. c. „Lang- nætti“ hljómsveitarverk eft- ir Jón Nordal. Sinfónfu- hljómsveit tslands leikur; Karsten Andersen stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn. Þorgeir Ást- valdsson kynnir. 17.30 Sagan: „Úllabella" eftir Mariku Stiernstedt. Stein- unn Bjarman les þýðingu sfna (3). KVÖLDIO 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mál. Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn. 19.40 Um daginn og veginn. Þorsteinn Matthfasson kenn- ari talar. 20.00 Mánudagslögin. 20.30 Afrfka — álfa andstæðn- anna. Jón Þ. Þór sagnfræð- ingur fjallar um Djfbútf- lýðveldið og Sómalfu. 21.00 Kammertónleikar Pro Arte kvartettinn leikur Pfanókvartett f Es-dúr op. 47 eftir Robert Schumann. 21.30 Útvarpssagan: „Ditta mannsbarn" eftir Martin Andersen-Nexö. Sfðara bindi. Þýðandinn, Einar Bragi, les (4). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Búnaðar- þáttur: 22.35 Kvöldtónleikar. Leontyne Price, William Warfield, RCA—Victor hljómsveitin og kórinn flytja triði úr óperunni „Porgy og Bess“ eftir George Gershwin; Skitch Henderson stjórnar. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok. „í liðinni viku” - Kl. 13.30: Nýr rabb- þáttur f DAG hefur göngu slna nýr út- varpsþáttur I umsjð Páls Heitfars Jónssonar. Hann nefnist I liBinni viku og er I raun beint framhald þeirra þátta sem Páll hefur stjórn- a8 á liðnum sumrum. I þessum þáttum, sem verSa á dagskrá viku- lega I sumar. hyggst Páll fá þrjá menn til a8 spjalla við sig um þau mál. sem eru efst á baugi vikuna á undan. Tvær nýjungar verða I þessum þáttum, sem hafa ekki verið I hlið- stæðum þáttum áður Páll mun I hverjum þætti leika tónlist eftir „tón- skáld vikunnar", þ e. það eða þau tónskáld sem fædd eru I liðinni viku. Sami háttur verður hafður á í sam- bandi við „Skáld vikunnar". í þættinum I dag verður leikin tónlist eftir þýzka tónskáldið Gluck. en hann samdi m a óperuna Orfeus og Evridisi og vonandi reynist unnt að hafa slmaviðtal við Jón Helgason skáld og fræðimann I Kaupmanna- höfn Aðalmál liðinnar viku að þessu sinni er náttúrulega hið ógnþrungna stafsetningarmál. Þeir munu ræða þetta viðkvæma mál, auk Páls Heið- ars eru Bergsteinn Jónsson prófess- or. Björn Friðfinnsson lögfræðingur og Markús Á. Einarsson veðurfræð- ingur Þátturinn hefst kl. 13 30. Afríka — álfa andstæðnanna — Kl. 20.30, mánudag: Hvað er Djíbúti? Á dagskrá útvarpsins á mánu- dagskvöld er þriðji þátturinn I flokki þátta um Afrfku. Það er Jón Þ. Þór sagnfræSingur sem hefur umsjón með öltum þáttunum og munu þeir verða á dagskrá allt til vetumátta. í fyrri þáttunum tveim- ur var fjallað ann- ars vegar um ■ Trnyeni Afrfku sem heild ■ ' CKL 1111 og hins vegar um Eþfópfu. f þessum þætti er það Djibútflýðveldið og Sómalfa, sem eru til umræðu Jón fjallar um þessi rfki á sögulegum. mann- fræðilegum, efnahagslegum og pólitfskum grundvelli og leikur tónlist frá þessum löndum á milli atriSa. Djibútí-lýðveldið hefur verið mikið i fréttum að undanförnu vegna þess að Frakkar hafa nýlega gefið þvi sjálfstæði að nafninu til. Þetta riki hefur annars verið kallað Franska- Sómalia og er það við Rauðahaf mitt á milli Eþiópiu og Sómaliu Djibútí er nú i mikilli hættu vegna þess að bæði Eþtópar og Sómalir Iíta landið hýru auga. en Rússar hafa lengi verið með fingur- inn I málefnum Sómaliu og hafa þar flotastöð. Rússar hafa nýlega uppgötvað Eþíóplu og eru eitthvað farnir að krafsa þar og klóra Það er einkum höfnin í Djibúti. sem er eftirsóknarverð, og er hún ein af fáum höfnum. sem Eþíópar hafa getað notað á þessu svæði Hafa u.þ b. 85% útflutnings þeirra á undanförnum árum farið um höfn- ina i Djibúti Má þvl nærri geta að til nokkurs er að vinna. Sjálfstætt fólk á Jökuldalsheiði — Kl. 20.20: Biartur í Veturhúsum í útvarpinu í kvöld er á dagskrá þáttur, sem Gunnar Valdimarsson stjórnar, um samanburð á sögu Laxness um sjálf- stætt fólk og háttum fólks, sem bjó á Jökul- dalsheiði fyrrum Gunn- ar leiðir að því rök að bók Laxness fjalli um fólk á þessum slóðum og dregur fram í dagsljósið ýmsar heimildir um líf þess fólks, sem bjó þar á þeim tíma er sagan gerist og ber þær saman við sög- una. Gunnar er sjálfur ættaður af Austurlandi og átti lengi heima f grend við Jökuldalsheiði. Þekkir hann því vel til sögu þessa héraðs. í þessum fyrsta þætti af fimm verður m.a. Iesið úr æviminningum Björns nokk- urs, sem bjó á bæ á Jökuldals- heiði, sem hét V'eturhús. Þykir Gunnari að gerla megi sjá nokk- urn skyldleika meó þessum Birni og Bjarti þeim er i sögu Laxness býr I Sumarhúsum. Lesendumr með Gunnari eru Hjörtur Pálsson, Klemenz Jóns- son og Guðrún Birna Hannesdóttir. Þátturinn er á dagskrá kl. 20.20. Halldór Laxness; Hvar bjó Bjartur?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.