Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1991, Qupperneq 24
Heilagrar Maríufoss-
ar falla ofan í Gin
djöfulsins.
BRASILIA
eins og risastór „jólapakki” fullur af náttúruundrum,
krókódílum, apaköttum og frumskógarfólki
Að fljúga yfir hálfan hnöttinn og skilja sjálfan
sig eftir einhvers staðar á leiðinni, var tilfinn-
ingin sem gagntók mig, þegar lent var í Kefla-
vík eftir Brasilíuferð í september. Ég var enn-
þá inni frumskóginum í Amazon að sneiða
„Skógurinn sýnist líflaus
ef horft er til lands frá
ánni. En ég er ekki fyrr
komin upp á brúna, en
vælandi apakettir af
ýmsum stærðum og
gerðum, hoppa
forvitnislega á móti mér.
Og vinalegir litlir birnir
með loðið skott og
framandi þefdýr strjúka
sér upp við mig eins og
kettir.“
Eftir ODDNÝJU SV.
BJÖRGVINS
■hjá eiturslönguholum, á hlaupum undan
apaköttum sem vildu ná í myndavélina mína
og gleraugun, með sprelllifandi krókódíl í
fanginu sem grét krókódílatárum framan í
mig. Svipmyndir frá Suður- og Norður-Bras-
ilíu birtast eins og kvikmyndabrot ...
Syðst í Brasilíu geng ég inn í vorið, að
haustlagi á íslandi. Lauf og iitrík blóm að
opna sig. Og framandi körfuhreiður hanga
niður úr trjákrónum. Við erum stödd í þjóð-
garðinum, Iguassú á landamærum Brasilíu,
Argentínu og Paraguay. í bleiku kvöldskini
(sólarhringsferðalag að baki frá Kaup-
mannahöfn) er ekið upp að vinalegu, bleik-
hvítu hóteli í nýlendustíl, eina hóteli þjóð-
garðsins Brasilíumegin, „Hotel das Catar-
atas” eða hótelinu við árflúðirnar.
Tvö hótel í heiminum bera þetta nafn:
Annað við Aswanflúðir Nílarfljóts, rétt hjá
hinni frægu Aswanstíflu og raforkuveri sem
sér öllu Egyptalandi fyrir rafmagni. Hitt
er hér, við vatnsmestu fossa í heimi, Igu-
assúfossana, sem veita vatnsafii til stærsta
raforkuvers í heimi. Hið nýja Itaipúorkuver
(frá 1990) framleiðir rafmagn fyrir 300
milijónir manna í Argentínu, Paraguay og
Brasilíu. Bygging þessa risamannvirkis
kostaði litlar 18 milljarða Bandaríkadala.
Fossar Heilagrar MARÍU
falla í Gin Djöfulsins
Frá hótelinu sést til fossanna. En íslend-
ingur hefur litl.a löngun til að skoða fossa
í 'Brasilíu. Nóg'af fossum á íslandi. Hvílíkt
þjóðernisstolt og viðhorf sem á eftir að
breytast. ískalt, svalandi Pina Colada fyrir
svefnvana Norðurlandabúa. Tíu mínútur til
að skola af sér ferðaryk. Stuttbuxur út í
vorblæinn. Og hressandi gönguferð að
fyrsta náttúruundrinu.
„Heilög guðsmóðir. Hvað í veröldinni er
Litlu apakettirnir gera sér leik að því
að stríða páfagaukunum.
þetta?” varð Portúgalanum Vasco að orði,
þegar hann, fyrstur Evrópubúa, sá Iguassú-
fossana árið 1541. Þarna steypast þeir lóð-
rétt niður 90 m háa klettaveggi. Fossar,
fossar, 275 talsins, „Heilagrar Maríufossar”
sem falla ofan í „Gin djöfulsins” þriggja km
breitt gljúfur. Hvítur veggur vatnslöðurs og
froðu rís upp úr gljúfrinu, prýddur 180 gráðu
regnboga. Opnar trjárætur á hamrabrún.
Fallandi tré að láta undan þrýstingi vatns-
aflsins. Síðan óendanlegur frumskógur eins
langt og augað eygir. Er ég að horfa á
fæðingu heimsins?
í Landi Evítu Peron
Næsta morgun ber rútan okkur yfir Igu-
acúána, annað stærsta fljót heims, yfir til
Argentínu. „Falklandseyjar tilheyra Argent-
ínu,” er okkur tiikynnt á spjöldum við veg-
inn. Enn almenn reiði meðal íbúa, eftir óvíga
herinn hennar Thatcher. Engrar vegabréfsá-
ritunar þörf á sameiginlegri landamærastöð
Brasilíu og Argentínu. „Gott samband í
augnablikinu,” segir leiðsögumaðurinn, „en
þeir eru svo pólitískt ruglaðir eftir moldviðri'
síðustu áratuga, að þeir geta ekki stjórnað
sjálfum sér.”
Við erum stödd á sögusviði söngleikjarins
„Evíta” sem margir hafa eflaust séð í Lond-
on eða New York. Allt var slétt og fellt á
yfirborðinu, þegar Evíta dansaði „stjörnu-
dans” yfir allan hnöttinn með eiginmanni
sínum, valdamesta manni S-Ameríku á sín-
um tíma. En gífurleg spilling ólgaði undir.
Sagt er, að persónutöfrar hennar hafi ráðið
mestu, að Evíta hafi verið hinn raunveru-
legi stjórnandi. Og hin fræga kvenpersóna
varð tákn Argentínu um allan heim.
„í Argentínu eru allir milljónamæringar,”
segir leiðsögumaðurinn hlæjandi. „Fyrir
skömmu var verðbólgan 200% á mánuði,
en nú fara viðskipti fram í Bandaríkjadölum
og hún er komin niður í 2%. Hér nægja
ekki venjuleg seðlaveski, heldur þarf stórar
tuðrur undir seðlabúntin, þó að seðlarnir
sýni stórar upphæðir.” Hann dregur fram
500.000 A-dala seðil.
Skrítið að skipta nokkrum dollurum og
fá þúsundir í staðinn. Tíu bandarískir dalir
= 100.000 A-dalir. Sex póstkort fást í Bras-
ilíu fyrir andvirði tveggja í Argentínu. Og
miðinn inn í þjóðgarðinn hérna megin kost-
ar 20.000 dali. Omalbikaðir vegir um þjóð-
garðinn. „Þeir lofuðu að malbika fyrir 10
árum, en segja alltaf á morgun.” Fólk áber-
andi verr kiætt. Fjöldi ófullgerðra bygg-
inga. „Þeir byija að byggja, en verða að
hætta, þegar verðbólgan fer úr böndum.
Hætt við að mörg hótel verði úrelt, þegar
hægt er að ljúka við þau.”
Undarlegt ástand í einu ríkasta landi
heims. Landi fullu af gulli og siifri. Frá-
bæru landbúnaðarlandi sem sagt er fram-
leiða besta nautakjöt í heimi. Ahugaverðu
Og sohn teygir sig eins
og rauður bolti yfir
sjóndeildarhringinn.
Hann stígur út úr frumskógarríkinu
og hengir á sig vestrænt segulbands-
tæki.
Skyldi hann koma
stökkvandi út úr
þykkninu?
Hvernig er hægt að lýsa spegluninni,
þegar liðið er yfir lognkyrran
árflötinn inn á milli tijánna?
ferðamannalandi sem geymir frumskóg
nyrst og heimskautaís á syðsta odda. En
. ástandið er smám saman að batna. Nú er
talað um, að höfuðborgin Buenos Aires sé
';ein öruggasta og fegursta borg heims.
Fiðrildadans í Frumskóg-
ARRJÓÐRUM
Aldrei aftur mun ég lýsa áhugaleysi á
fossaskoðun. Aldrei fyrr hafa náttúruöflin
birst í svo hlýrri, litríkri umgjörð. í „Gini
djöfulsins” Argentínumegin er gengið svo
klukkutímum skiptir í ijölskrúðugu, fram-
andi lífríki, sem býr í frumskógi og tæru
árvatni. Sólargeislar endurkasta sterku lit-
rófi gegnum tijálauf og fossúða.
í þægiiegum morgunhita fetum við ,jap-
anska” trébrú yfir vatnasvæði árinnar. Á
steinum sitja iitlar skjaldbökur. Morgunlatir
krókódílar eru svo samvaxnir vatnseðju á
árbökkum, að erfitt er fyrir óvana að eygja
þá. Og árpollar senda „gimsteinaljósbrot”
frá örsmáum silfurfiskum. Jafnvel sam-
ferðamenn okkar, Danir, hætta að tala um
hrátt, argentínskt nautabuff með eggja-
hræru.
Á útsýnissvölum sýnast fossarnir falla í
iður jarðar með tilheyrandi drynjanda. 15
mínútna hvíld á bjórkrá undir bjálkaþaki,
þar sem náttúrufegurð er frábær, en allir
við sjónvarpsskjáinn að horfa á spennandi
knattspyrnuleik. Tveggja tíma ganga eftir
einstigi niður og upp úr Gini djöfulsins.
Fuglar með furðugogga. Fiðrildadans í
tjóðrum, svo einstætt náttúruspil, að ég
gleymi mér alveg. Og allt í einu er hópurinn
kominn langt á undan mér.
Síðdegis þræða gamlir, opnir heijeppar
frá Víetnam frumskógarstíga, með hálf-
Konan komin ífiskverkun um dagmál.
skelkaða Norðurlandabúa í framsætum.
Enginn veit hvað leynist í runnaþykkninu.
„Þarna sást hlébarði í gær,” segir leiðsögu-
maðurinn. „Hér eru allar dýrategundir nema
tígrisdýr, ljón og fílar.”
Við árbakkann hanga olíustakkar og
björgunarbelti. Hópurinn gallar sig og stíg-
ur upp í sterklega gúmmíbáta. Fosshljóðið
nálgast. Drynjandinn verður yfírþyrmandi.
Skipstjórinn gerir ítrekaðar tilraunir að
komast upp síðustu flúðina, en lendir alltaf
á steinum. Vantar tvo metra upp á. í jan-
úar og febrúar, getur áin hækkað um 28
metra. Þá sigla þeir með ferðamenn í foss-
ana. Ég hristi rennandi blautt hárið og
þurrka mér í framan. Hæstánægð með að
fá að stíga á land.
Á VitAmazon
Nóttin blundar enn í mér, þegar við erum
vakin kl. 4.00 að morgni. Stjörnubjart, þeg-
ar flugvélin hefur sig á loft kl. 6.00 og flýg-
ur inn í sólina sem er að teygja sig upp
yfir sjóndeildarhringinn. Fimmtíu mínútna
flug til Sao Paulo og menn í strípuðum föt-
um með bindi fylla vélina, líkt og allir við-
skiptamenn frá S-Brasilíu stefni þangað sem
púls atvinnulífsins slær. Og allir sökkva
þeir sér ofan í viðskiptablaðið „Viseo” sem
er í hveijum sætisvasa.
Hvað segir borgarnafnið Sao Paulo ykk-
ur? Þó að leiðabókin segi að í borginni búi
18 milljónir, 31 milljón í Sao Paulo-fylki,
hefði ég aldrei getað ímyndað mér slíka
stærð á borg. í 15-20 mínútur flýgur þotan
yfir endalausar háhýsaraðir. Sjálf New York
bliknar við samanburðinn. Sao Paulo er líka
drifhjól efnahagslífsins í Brasilíu. Við hætt-
um okkur ekki inn í borgarfrumskóginn.
Stefnum heldur út í hinn eina sanna frum-
skóg, á vit Amazon.
Gullkóngur Og Gyðjur
Amazon
Líkt og í draumi horfi ég niður á stærsta
gróðurhús veraldar, hitabeltisfrumskóg, svo
risastóran, að ekki er enn búið að kanna
hann til hlítar. Menn hafa getað falið sig í
honum um aldur og ævi, eða villst og aldr-
ei snúið aftur. „Græna vítið” hefur heillað
til sín, með gullvæntingum ogjafnvel sögum
um gyðjur. Ótrúlegar hrollvekjusögur hafa
sprottið út úr skóginum.
Ævintýrasaga Amazon þófst á 16. öld,
þegar fyrsti Evrópubúinn, de Orellana, fór
þvert yfír frumskógin'n í leit að gulli. Indíán-
ar töldu Portúgölum trú um, að í skóginum
byggi konungur sem ysi gulldufti yfir nak-
inn líkama sinn á hveijum morgni. Orellana
fann hvorki gull né kóng, en var hinsvegar
ofsóttur af herskáum konum sem hann lýsti
svo fjálglega, að landkönnuðir fóru að hóp-
ast inn í græna votlendið í von um að sjá
naktar konur með boga og ör. Leyndardóms-
fulla kvennaríkið í frumskóginum fannst
aldrei aftur. Herskáu frumskógarkonurnar
fóru að blandast við grísku bardagagyðjuna
Amazon og frá þeim er nafnið dregið.
Ég dotta í fjögurra tíma flugferð og flug-
vallastandi, drösla töskunum hálfsofandi
upp í ævaforna, skröltandi rútu, þaðan í
hótelgeymslu, aukaföt í handtösku og rakna
fyrst við mér úti á miðju fljóti. Hvar er ég
eiginlega stödd? Taktfast vélarhljóð í opnum
fljótabát, þéttriðnir fenjaskógar á báða
vegu. Er ég inni i kvikmyndinni „The Afric-
an Queen?”
„Hi guys,” hljómar dimmraddað og smá-
vaxin vera skýst upp á efra þilfar fljótabáts-
ins. Í fljótu bragði get ég ekki séð, hvort
þetta er karlmaður eða kvenmaður. Hrokk-
ið, dökkt hár og andlitsdrættir sem má rekja
til indíána og afrískra forfeðra. Já, leiðsögu-
maðurinn okkar, hún Bíbí, er engum lík.
Náttúrubarn beint út úr frumskóginum og
á eftir að koma okkur oft á óvart.
Bíbí vippar sér upp á handriðið og byijar
að messa yfir okkur. „Það er eins og við
íbúar Amazonsvæðisins séum á endimörkum
hins byggilega heims. Ég las nýlega í New
York Times, að ferðamenn væru varaðir við
að koma hingað, trén taki svo mikið súr-
efni. Hafið þið heyrt aðra eins vitleysu? Við
vonumst eftir ferðamannastraumi hingað.
Okkur vantar peninga, eftir að gúmmíævin-
týrinu lauk.”
Báturinn er hæggengur og mjakast um
endalausar bugður og beygjur. Hvenær
komum við að hótelinu? Bíbí brosir. „Bráð-
um,” segir hún. Tími og hraði eru óþekkt
hugtök hjá íbúum Amazon. Græna þykknið
sýnist svo dulúðugt og ógnvekjandi, að mér
hrýs hugur við því. Eru krókódílar á bökkun-
um, spyr ég? „Fjöldinn allur,” segir Bíbí
sannfærandi. „Við förum á krókódílaveiðar
í kvöld,” bætir hún við, eins og það sé til-
hlökkunarefni.
Þegar lagt er að landi kl. 17.00, er hópur-
inn búinn að vera á stanslausu ferðalagi
síðan kl. 5.00 um morguninn og afar lítið
tilbúinn undir furður frumskógarins.
„Haldið fast í gleraugu og myndavélar.
Lokið öllum vösum,” skipar Bíbí, þegar hóp-
urinn er um það bil að hætta sér út á um
þriggja metra háa stólpabrú með hrörlegu
handriði. Einstigi sem liggur yfir leirkennd-
an, gróinn árbakka að hóteli.
Tijáþykknið er svo þétt, að við sjáum
ekki hótelið. Sjáum það reyndar aldrei, að-
eins þéttriðna netið fyrir hurðaropinu. Ég
má ekki líta niður á fenjablöðin, svo sakleys-
islega hreyfingarlaus, en full af lífi ef ein-
hver félli niður. Verð að hætta mér út á
þessa ruggandi loftbrú inn í græna þykknið.
Já, skógurinn sýnist líflaus, ef horft er
til lands frá ánni. En ég er ekki fyrr komin
upp á brúna, en vælandi apakettir, af ýms-
um stærðum og gerðum, hoppa forvitnislega
á móti mér. Og vinalegir litlir birnir með
loðið skott og framandi þefdýr stijúka sér
upp við mig, eins og kettir.
„Veitið þeim ekki of mikla athygli,” skip-
ar Bíbí, „þá losnið þið ekki við þá.” I tiján-
um allt í kring sitja stærðar páfagaukar og
hrista litríka brúska. Litlu apakettirnir gera
sér leik að því að stríða þeim. Og skemmti-
legur bardagi blossar upp af og til með
miklu gargi og skrækjum.
Tqáþykknið heldur svo vel utan um mig,
að hræðslan hverfur. Ég á líka fullt í fangi
með að komast inn fyrir hótelnetið. Apakett-
ir og birnir hengja sig utan í mig. Bíbí reið-
ir kúst á loft og sópar öllum apaköttum,
þefdýrum og björnum út fyrir dyrpar. En
við losnum ekki við þá. Þéttriðin net eru
fyrir öllum gluggum þar sem þeir hanga,
leika sér og fylgjast með okkur.
Stórkostlegt náttúruríki. Og hvílíkt furðu-
hótel, kringlóttur, fimm hæða turn ris á
tijástólpum upp úr fenjaskógi, upp í gegnum
tijáþykknið. Á efstu hæð er opinn borðsalur
undir þaki, með þéttriðnu neti allt í kring.
En borðhald hér er ekki rólegt og eins gott
að halda vel utan um sitt. Því borðfélagar
eru virðulegir apakettir sem valda usla í
matsal, þegar þeir laumast inn og sópa af
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. DESEMBER 1991 25