Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1958, Síða 48
696
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
VerðlaurLamynclgáta Lesbókar
Þessi myndgáta þarf ekki margra skýringa, en geta má þess, að enginn grein-
armunur er gerður á a—á, o—ó, og u—ú. Ráðningar þurfa að berast blaðinu
fyrir 3. janúar. Fyrir réttar ráðningar verða veitt þrenn verðlaun að vanda:
1. verðlaun kr. 400.00, 2. verðlaun kr. 100.00 og 3. verðlaun kr. 100.00. Berist
margar réttar ráðningar verður dregið um hverjir verðlaunin skuli hljóta.
Molar
ÍÞRÓTTAKONUNGAR
Gústaf V. Svíakonungur hafði mjög
gaman að tennis og keppti mörgum
sinnum, en þá gekk hann alltaf undir
nafninu Mr. G. Nú er kominn annar
íþróttakóngur, sem kallar sig Mr. B.
Það er Baudoin Belgíukonungur. Hann
er leikinn golfmaður, og fyrir
skemmstu tók hann þátt í landsleik
milli Belgíu og Hollands. Hann sigraði
mótstöðumann sinn með 4:3.
PÁFINN
Pius XII páfi var lengi vanheill
og þjáður af ólæknandi hiksta. En
hann gekk að skyldustörfum sínum
fyrir því. Þegar menn sögðu að hann
yrði að hvíla sig, svaraði hann:
— Eg fæ hvíld einni sekúndu eftir
andlátið!
Og svo dó hann. Læknarnir, sem
voru við sjúkrabeð hans tilkynntu,
að nú væri hann skilinr við. Svo liðu
nokkrar mínútur. Þá gekk háttsettur
embættismaður Vatikansins að dánar-
beði hans og kallaði þrisvar sinnum:
„Eugenio"! en það var skírnarnafn
páfa. Þegar páfinn svaraði ekki, sló
embættismaðurinn þrjú létt högg með
silfurhamri á enni hans og mælti svo:
„Páfinn er látinn“. Þar með var páfinn
opinberlega skilinn við, og gekk þá
i
fram kardínáli og veitti honum ná-
bjargirnar.
Þetta er forn venja.
Samkvæmt gömlum spádómi um páf-
ana, er Pius páfi XII. kallaður „hinn
engillíki hirðir". Þótti það sannast á
honum. I sama spádómi er eftirmað-
ur hans kallaður „hirðir og sjómaður".
Svartsýnismenn ráða það nafn svo, að
hinn nýi páfi kunni að verða land-
flótta frá Evrópu.