Morgunblaðið - 31.08.1997, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 24/8 - 30/8
A«%
WímMZŒEm
► Kári Stefánsson og sam-
starfsmenn hans hjá Is-
lenskri erfðagreiningu
hafa greint frá því að rann-
sóknir fyrirtækisins hafi
leitt til þess að erfðavísir-
inn sem leiðir til fjölskyldu-
lægs handskjálfta sé fund-
inn.
► HLAUP hófst að nýju í
Skaftá aðfaranótt mánu-
dags þegar innan við tvær
vikur voru frá hlaupi úr
stærri Skaftárkatli Vatna-
jökuls. Hlaupið rénaði
fljótlega.
► Samheiji hf. á Akureyri
hefur yfir að ráða lang-
mestum aflaheimildum
allra útgerðarfélaga, rúm-
lega 25.000 þorskigildis-
tonnum eða 5,7% heildar-
kvótans. Þormóður rammi
- Sæberg hefur 16.300
tonn og Utgerðarfélag
Akureyringa 15.300 tonn.
► Knattspymulið ÍBV
komst í aðra umferð Evr-
ópukeppni bikarhafa með
því að vinna Hibernians frá
Möltu samtals 4:0. Eyja-
menn duttu í lukkupottinn
þegar dregið var í aðra
umferð því þar verða mót-
heijar þeirra þýska liðið
Stuttgart.
► Tíu skip, japönsk og
tævönsk, eru nú að tún-
fiskveiðum á Reykjanes-
hrygg, rétt utan íslensku
efnahagslögsögunnar.
Þetta eru 900-1.000 tonna
línuskip. Að auki stunda
tvö japönsk skip með is-
lenskum eftirlitsmönnum
tilraunaveiðar innan lög-
sögunnar. Túnfiskur er
verðmætur fiskur, en veið-
inni er stjórnað með al-
þjóðlegum kvótum, byggð-
um á veiðireynslu.
VSÍ vill sporna
við þenslu
VINNUVEITENDASAMBAND ís-
lands hvetur ríkisstjómina til aukins
aðhalds í ríkisfjármálum til að sporna
við þenslu. Vinnuveitendur telja að
ríkisútgjöld þurfi að dragast saman
um 1% sem hlutfall af landsfram-
leiðslu. VSÍ vill að dregið verði úr
vægi vaxta við efnahagsstjóm. Davíð
Oddsson forsætisráðherra segir stefnt
að því við gerð fjárlaga að ríkissjóður
verði rekinn með afgangi upp á á
þriðja milljarð króna.
Sex sjúkrahús
í eina sæng
SEX sjúkrahús verða sameinuð í stórt
háskólasjúkrahús þar sem komið
verður á sérhæfíngu og verkaskipt-
ingu, verði farið að tillögum ráðgjaf-
anna VSÓ ráðgjöf og Emest and
Young, sem gert hafa skipulagsat-
hugun á sjúkrahúsunum.
Um er að ræða Landsspítalann,
Sjúkrahús Reykjavíkur, Sjúkrahús
Suðurnesja, Sjúkrahús Akraness, St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði og Sjúkra-
hús Suðurlands.
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis-
ráðherra, segir skýrsluna mikilvægt
vinnuplagg og forráðamenn sjúkrahús-
anna sex, nema talsmaður Sjúkrahúss
Reykjavíkur, telja tillögurnar vænlegar
og ástæðu til að skoða þær nánar.
Fjöldauppsagnir
framundan?
FJÓRTÁN kennarar af sautján við
Álftanesskóla í Bessastaðahreppi hafa
afhent sveitarstjórn hreppsins upp-
sagnarbréf sín. Eiríkur Jónsspn, for-
maður Kennarasambands íslands,
segist hafa haft fregnir af því að
kennarar í einstökum skólum séu að
velta fyrir sér að segja upp störfum
en stéttarfélagið komi þar hvergi
nærri. Hann segir ekki koma sér á
óvart að hrina uppsagna fari af stað
í kjölfar þessa. La'tið hefur miðað á
sáttafundum í kjaradeilu kennarafé-
laga og launanefnda sveitarfélaga
þrátt fyrir langa sáttafundi. Kennarar
hafa jafnframt rætt möguleika á stað-
bundnum verkföllum í einstökum
sveitarfélögum.
De Klerk hættir
FREDERIK Willem de Klerk, fyrrver-
andi forseti Suður-Afríku, tilkynnti á
þriðjudag að hann ætlaði að láta af
forystu í Þjóðarflokknum og hætta
afskiptum af stjómmálum. Ætlar
hann að setjast við skriftir og setja
saman æfíminningar sínar. De Klerk
var síðasti hvíti forseti Suður-Afríku
og afnam aðskilnaðarstefnuna sem
hafði verið við lýði landinu. Ásamt
Nelson Mandela, núverandi forseta,
kom de Klerk á lýðræði.
Aflýsa viðræðum
um eldflaugavopn
STJÓRN Norður-Kóreu ákvað á mið-
vikudag að aflýsa fyrirhuguðum tví-
hliða viðræðum við stjórnvöld í
Bandaríkjunum um dreifingu stýri-
flauga. Er ástæða afboðunarinnar sú,
að tveimur landflótta embættismönn-
um úr norður-kóresku utanríkisþjón-
ustunni hefur verið veitt hæli í Banda-
ríkjunum. Stjóm Norður-Kóreu
krafðist framsals mannanna, sem hún
sagði vera „glæpamenn." Hælisveit-
ingin væri gróf móðgun af hálfu
Bandaríkjamanna.
Ráðist á
friðargæsluliða
REIÐUR múgur réðst að friðar-
gæsluliði Atlantshafsbandalagsins í
bænum Brcko á landsvæði Bosníu-
Serba í Bosníu á fímmtudag. Kastaði
mannfjöldinn grjóti og særðust tveir
bandarfskir gæsluliðar. Bandaríkja-
stjóm sagði að árásir á gæsluliða
yrðu ekki látnar viðgangast. Biijana
Plavsic, forseti Bosníu-Serba, stofn-
aði nýjan stjómmálaflokk á fímmtu-
dag og hét því að brúa bilið milli
þjóðarbrota og binda enda á spillingu.
► ÍSRAELAR afléttu á
miðvikudag ferðabanni til
og frá Betlehem, á heima-
stjórnarsvæði Palestínu-
manna á Vesturbakkanum.
Bannið hafði staðið í tæpan
mánuð. Utanríkisráðherra
ísraels sagði að áframhald
refsiaðgerða gegn Palest-
ínumönnum yki ekki lík-
urnar á að friður næðist.
► EGON Krenz, síðasti
leiðtogi kommúnistastjórn-
arinnar í Austur-Þýska-
landi fyrir fall Berlínar-
múrsins, var dæmdur í sex
og hálfs árs fangelsi á
mánudag. Var hann dreg-
inn til ábyrgðar fyrir dauða
austur-þýskra borgara sem
voru skotnir við flóttatil-
raunir til vesturs á tímum
kalda striðsins.
GREINT var frá því á
mánudag að náðst hefði
dómssátt í máli Flórídaríkis
gegn bandarískum tóbaks-
fyrirtækjum, sem hefðu
sæst á að greiða rúma ell-
efu milljarða Bandríkja-
dala gegn því að ríkið félli
frá kröfum sínum um
skaðabætur vegna kostnað-
ar við umönnun þeirra er
hafa veikst af völdum reyk-
inga. Upphæðin jafngildir
um 770 milljörðum ís-
lenskra króna, og er hæsta
bótagreiðsla sem tóbaks-
fyrirtæki hafa reitt af
hendi.
FRÉTTIR
26 hjúkrunarrúm fyr-
ír aldraða í næstu viku
í NÆSTU viku verða tekin í notk-
un 26 ný hjúkrunarrými í Skóg-
arbæ í Mjódd. Fyrr á árinu voru
22 rými tekin þar í notkun og
gert er ráð fyrir að Skógarbær
verði kominn í fullan rekstur í febr-
úar á næsta ári með samtals 79
hjúkrunarrýmum, þar af 11 fyrir
yngri einstalinga með alvarlega
fötlun.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu bíða nú á þriðja
hundrað sjúk gamalmenni eftir
hjúkrunarvistun. Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðisráðherra hefur
sent blaðinu upplýsingar um öldr-
unarmál og segir þar að með skipu-
lagsbreytingu sé verið að taka í
notkun fyrsta öldrunarsjúkrahúsið
á íslandi, á Landakoti, sem hún
segir að hafi í för með sér betri
og skilvirkari þjónustu fyrir aldr-
aða.
Á árunum 1995 og 1996 var
32 dvalarfymum á Droplaugar-
stöðum breytt í hjúkrunarfymi og
á síðasta ári var tekin í notkun
ný dagvistun á Lindargötu með
18 fymum fyrir aldraða einstakl-
inga með heilabilun. Þá var á þessu
ári tekið í notkun nýtt hjúkrunar-
heimili, Skógarbær í Mjódd. Nú
þegar eru þar 22 hjúkrunarfymi í
notkun og verða til viðbótar 26
hjúkrunarfymi tekin í notkun í
næstu viku. í febrúar á næsta ári
verður heimilið komið í fullan
rekstur með samtals 79 hjúkrunar-
fymum, þar af 11 hjúkrunarfymi
fyrir yngri einstaklinga með alvar-
lega fötlun.
Þá segir Ingibjörg Pálmadóttir
að í Skjóli hafi verið fyölgað um 6
ný hjúkrunarfymi um síðustu ára-
mót. Þessu til viðbótar var framlag
til öldrunarmála aukið vegna
bættrar nýtingar á hjúkrunarfym-
um á daggjaldastofnunum. Nýting
hjúkrunarfyma hefur fram á síð-
asta ár verið að meðaltali 98%, en
á síðasta ári var nýtingin 100%.
Hjúkrunarfymum hefur því fjölgað
sem þessu nemur vegna aukinnar
nýtingar og voru fjárveitingar
hækkaðar um 100 milíjónir króna
á ári vegna þessa í landinu í heild.
Loks segir heilbrigðisráðherra
að ákveðið hafi verið að breyta 15
dvalarfymum í hjúkrunarfymi í
Seljahlíð frá næstu áramótum og
að á næsta ári verði tekin í notkun
24 ný hjúkrunarfymi í Víðinesi. I
Ási/Asbyrgi í Hveragerði verður
tekið í notkun nýtt 26 fyma hjúkr-
unrheimili á næsta ári. Grund tek-
ur nú við hjúkrunarsjúklingum frá
Ási/Ásbyrgi og mun nýja heimilið
í Hveragerði því losa um 26 hjúkr-
unarfymi í Reykjavík.
|s§ %mu\
i i
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hráolía lak niður
FIMMTÍU til hundrað lítrar af hráolíu gusuð-
ust upp úr yfirfalli á tankbíl frá Olíudreifingu
þar sem honum var ekið austur Tryggvagötu
skömmu eftir hádegið á föstudag. Menn frá
Slökkviliðinu í Reykjavík komu á staðinn og
hreinsuðu olíuna upp. Síðan voru fengnar
þvottavélar frá Reylg" avíkurborg til að þrífa
götuna. Tafir urðu á umferð í stutta stund
vegna óhappsins.
Peysur úr íslenskri ull á Bandaríkjamarkað á ný
Hafa selt 1.200 peysur
ÚTLIT er fyrir að Víkurpijón í
Vík í Mýrdal selji allt að þrjú þús-
und peysur til Bandaríkjanna á
þessu ári eftir að bandarískur fata-
hönnuður, sem starfaði hjá fyrir-
tækinu í fyrrasumar, kynnti peysur
á sýningum þar í landi síðasta
vetur. Þórir Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri Víkurpijóns, segist
bjartsýnn á að framhald verði á
sölunni á Bandaríkjamarkað og að
verðið sé gott.
Bandarískur fatahönnuður sem
starfaði hjá Víkurpijóni um
mánaðarskeið á síðasta sumri
hreifst svo af íslensku ullinni, að
sögn Þóris, að hún kom aftur um
haustið til að vinna frekari sýnis-
hom í samstarfí við starfsmenn
Víkurpijóns. Tók hún síðan að sér
að koma þeim á framfæri á sýning-
um í nokkrum fylkjum Bandaríkj-
anna og telur hana eiga mikla
möguleika. Leiddi það m.a. til þess
að bandarískt fyrirtæki, sem selur
gegnum vörulista, keypti 1.200
peysur. Eru þær allar af sömu
gerð og í fjórum stærðum.
Slqót viðbrögð
„Þetta fékk svona skjót og góð
viðbrögð að ég er að senda út
núna fyrstu sendinguna, þessar
1.200 peysur, og við höfum þegar
fengið pöntun á 1.400 peysum til
viðbótar sem þó á eftir að stað-
festa,“ sagði framkvæmdastjórinn.
Hann segir að einnig sé verið að
framleiða upp í smápantanir sem
eigi að afgreiða í haust. Verði
næsta stóra pöntun staðfest segir
hann ljóst að bæta þurfí við starfs-
fólki en útflutningur íslenskra ull-
arvara til Bandaríkjanna hefur svo
gott sem legið niðri mörg undanf-
arin ár.
Þórir Kjartansson segir að ekki
sé um hefðbundnar islenskar lopa-
peysur að ræða, nema litir séu að
mestu náttúrulegir, peysumar séu
mynstraðar, með stuttum rennilás
í hálsinn og með nokkuð ólíku sniði
en því sem framleitt hafí verið eft-
ir hérlendis. Fatahönnuðurinn kom
hingað gegnum kunningsskap, er
nágranni frænda Þóris og býr í
Aspen í Colorado fylki, og segir
Þórir hana hafa mikinn áhuga á
öllu því sem norrænt er og víking-
um._
„Ég er mjög bjartsýnn á fram-
hald á útflutningi til Bandaríkj-
anna því við höfum fengið þessa
óformlegu pöntun upp á um 1.400
peysur til viðbótar sem þarf að
afgreiða í haust, svo þetta hefur
farið mjög vel af stað,“ segir Þór-
ir. Hann segir að halda þurfi vel
á spöðunum ef takast eigi að fram-
leiða það magn á 4-6 vikum.
Hjá Víkurpijóni, sem stofnað var
1980, starfa nú um 28 manns en
framleiðslan hefur aukist jafnt og
þétt, sérstaklega síðustu fjögur ár-
in. Fyrirtækið framleiðir bæði mik-
inn vaming fyrir ferðamenn og
sokka og selur í verslunum sínum
í Vík og Hafnarstræti í Reykjavík.