Morgunblaðið - 04.01.1997, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR A MORGUIM
Guðspjall dagsins:
Flóttinn til
Egyptalands.
(Matt. 2.)
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Árni Berg-
ur Sigurþjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Pálmi
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Organ-
leikari Bjarni Jónatansson. Kammer-
kór Dómkirkjunnar syngur. Guðs-
þjónusta kl. 14 á vegum Oddfellow-
stúkunnar Sigríður. Forsetafrú Guð-
rún Katrín Þorbergsdóttir prédikar.
Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 11. Messa kl. 11. Ferming, altaris-
ganga. Fermdur verður Helgi Guð-
jónsson. Prestursr. HalldórS. Grönd-
al. Organisti Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnasam-
koma og messa kl. 11. Anna S.
Pálsdóttir, guðfræðingur, prédikar.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
LANDSPÍTALINN: Guðsþjónusta
kl. 10. Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 14. Sr.
Tómas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Tómas Guðmunds-
son. Organisti Jón Stefánsson. Kór
Langholtskirkju (hópur III) syngur.
Fundur með fermingarbörnum og
foreldrum þeirra eftir guðsþjónustu.
Barnastarf kl. 13 í umsjá Lenu Rós
Matthíasdóttur.
LAUGARNESKIRKJA: Lesmessa kl.
11. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnastarf: Sameiginleg
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Messa
kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Hildur Sigurðar-
dóttir. Organisti Viera Manasek.
Barnastarf á sama tíma.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Kristín G. Jónsdótt-
ir. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfs-
son. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sam-
koma Ungs fólks með hlutverk kl
20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa fellur nið-
ur í dag vegna endurbóta á kirkjunni.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Hjörtur Hjartarson þjónar. Barna-
guðsþjónusta kl. 13 í umjsón (risar
Kristjánsdóttur. Organisti Oddný J.
Þorsteinsdóttir. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta
fellur niður vegna fríhelgi starfsfólks
kirkjunnar. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar.
Guðsþjónustunni verður útvarpað.
Kór Seljakirkju syngur. Organisti
Kjartan Sigurjónsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Laug-
ardag: Messa kl. 8 og kl. 14. Sunnu-
dag: Hámessa kl. 10.30, messa kl.
14, messa á ensku kl. 20. Mánu-
daga til föstudaga: messur kl. 8 og
kl. 18. Mánudaginn 6. janúar kl. 18
biskupsmessa.
MARIUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl.
20. Altarisganga öll sunnudags-
kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al-
menn samkoma kl. 11. Ræðumaður
Örn Leó Guðmundsson. Allir hjart-
anlega velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIM-
ILIÐ: Samkoma á morgun kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Jólafagn-
aður fyrir börn kl. 14 sunnudag í
umsjá Miriam Óskarsdóttur. Hjálp-
ræðissamkoma kl. 20. Sr. Örn Bárð-
ur Jónsson talar.
MOSFELLSPREST AKALL: Guðs-
þjónusta í Lágafellskirkju kl. 14. Sr.
Bjarni Þór Bjarnason, héraðsprest-
ur, messar. Jón Þorsteinsson.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Organisti Guðmundur Sigurðs-
son. Bragi Guðmundsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Greg-
orsk messa kl. 14. Altarisganga.
Organisti Natalía Chow. Prestur sr.
Þórhallur Heimisson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
Brúðhjón
Allur borðbiínaöur Glæsileij gjafavar a Bniðarlijdna lislar
VERSLUNIN
Langavegi 52, s. 562 4244.
Þjóðhátíðarsjóður
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 1997.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. september 1977 er
tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er
hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra
verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið
í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til
Friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum
Náttúruverndarráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til
varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra
menningarverðmæta á vegum Þjóðminjasafns.
Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé hverju sinni í
samræmi við megintilgang hans, og komi þar einnig til álita
viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er í liðum a) og b).
Við það skal miða, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlag til
þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka
önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra
við þau."
Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs. Umsóknarfrestur
ertilog með 28. febrúar 1997. Eldri umsóknir ber að endurnýja.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Seðlabanka (slands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur ritari
sjóðsstjórnar, Sveinbjörn Hafliðason, í síma 569 9600.
Reykjavík, 30. desember 1996.
Þjóðhátíðarsjóður.
I DAG
SKAK
Umsjón Margcir
Pctursson
STAÐAN kom upp á Guð-
mundar Arasonar mótinu
fyrir jólin. Arn-
ar E. Gunnars-
son (2.230) var
með hvítt, en
Kristján O.
Eðvarðsson
(2.200) hafði
svart og átti
leik. Hvítur lék
síðast 21. f3—
f4 sem reyndist
vanhugsað.
21. - Hxe2!
22. Rxe2 —
Re4 23. Df3 -
Rf2+ 24. Kgl
— Bg4 (Nú
verður hvítur að láta
drottninguna af hendi) 25.
Dxf2 - Bxf2+ 26. Kxf2
- Dh4+ 27. Kfl - Bxe2+
28. Kxe2 - Dxh2 29. Re3
— He8 og svartur vann
auðveldlega á liðsmun-
inum.
SVARTUR leikur og vinnur.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Tapað/fundið
Kuldajakki tapaðist
SVARTUR kuldajakki var tekinn í misgripum föstu-
dagskvöldið 27. desember sl. á skemmtistaðnum
Tunglinu. Sá sem kannast við þetta er vinsamlega
beðinn að hafa samband í síma 555-0053.
„Hall“ í Háskólabíói
SIGFÚS Gunnarsson hringdi í Velvakanda og var
óhress með að salir í Háskólabíói væru kallaðir „hall“
í staðinn fyrir salur, honum þætti gaman að heyra
hvaða skýringu forráðamenn Háskólabíós hefðu á
þessu.
Pennavinir
Með morgunkaffinu
ÞRÍTUGUR bandarískur
karlmaður með áhuga á
golfi, hestum, sundi, úti-
vist, ferðalögum, bók-
menntum, bréfaskriftum
og tungumálum:
Harald Martin,
265 South Avenue 51,
Los Angeles,
Califomia 90042-
4549,
U.S.A.
KANADÍSKUR háskóla-
stúdent vill eignast ís-
lenska pennavini til að
fræðast um land og þjóð:
T. Mack Petors,
321 University
Avenue,
Apartment 2,
Fredericton,
New Brunswick,
E3B 4H9,
Canada.
COSPER
ALLT stórkostlegt að frétta af mér, en hvernig
gengur hjá þér?
TM Reg U.S Pat. Otl — ail righls roserved
(c) 1996 Los Angeies Times Syndicate
ÞAÐ biðja allir á skrif-
stofunni að heilsaþér, en
alla langar líka að vita
hvað í ósköpunum þú
sagðir við nýja fram-
kvæmdastjórann.
ÉG vinn á barnaheimili og ef þú tekurþennan hörmu-
lega vasa ekki aftur, kem ég með 25 kolvitlausa krakka
og leyfi þeim að leika lausum hala í búðinni hjá þér.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI furðaði sig á því er
hann sótti guðsþjónustu í
einni af kirkjum borgarinnar á
gamlárskvöld að lítið barn fékk
að hlaupa um í kirkjunni og hafa
alla þá háreysti, sem því sýndist.
Víkverji er allra sízt að amast við
því að foreldrar taki börn sín með
í kirkju — það er einmitt um að
gera að venja þau snemma við
kirkjusókn. Mörgum er mikils
virði að geta haft börnin með í
kirkju og alls staðar er þeim vel
tekið. En þá verður líka að hafa
aga á smáfólkinu, þannig að það
trufli ekki aðra kirkjugesti og
spilli stemmningunni, sem skap-
ast í vel heppnaðri guðsþjónustu.
I þessu tilviki gerði kirkjugestur-
inn ungi heiðarlegar tilraunir til
að yfirgnæfa bæði prestinn og
kórinn, alla messuna út í gegn.
Víkveiji getur ekki ímyndað sér
að foreldrarnir hafi notið guðs-
þjónustunnar — og barnið var
greiniiega ekki með hugann við
guðsorðið heldur. Það hefði verið
þetra fyrir alla ef foreldrarnir
hefðu sussað á afkvæmið eða ein-
faldlega látið sig hverfa og mætt
aftur þegar barnið hefði komizt
í rólegra skap.
SKAMMSTAFANIR á heitum
alþjóðastofnana og -samn-
inga valda oft ruglingi, ekki sízt
þegar margar stofnanir nota sömu
skammstöfunina. Geimferðastofn-
un Evrópu og Eftirlitsstofnun
EFTA nota t.d. sömu skammstöf-
un, ESA. í ensku skammstafa
menn líka Evrópska efnahags-
svæðið og Umhverfisstofnun Evr-
ópu eins, EEA. Það er því ekki
alltaf nóg að nota skammstöfunina
eintóma, þótt slíkt færist í vöxt.
Við leit á alnetinu fyrir skemmstu
áttaði Víkveiji sig á því að Frí-
verzlunarsamtök Evrópu eru ekki
ein um skammstöfunina EFTA.
Til eru samtök, sem starfa í mörg-
um ríkjum Evrópu og kalla sig
EFTA (European Fair Trade
Association). Markmið samtak-
anna er að beijast fyrir „sann-
gjarnari" viðskiptum við þriðja-
heimslönd, þ.e. að verkafólk, sem
framleiðir t.d. kaffi og vefnaðar-
vöru, fái meira í sinn hlut af því
verði, sem hinn vestræni neytandi
greiðir fyrir vöruna. Þriðju sam-
tökin, sem kalla sig EFTA, eru
hins vegar af sérhæfðara tagi og
koma evrópsku samstarfi ekkert
við. Þetta er Eastern Fat Tyre
Association, sem eru samtök eig-
enda fjallahjóla á austurströnd
Bandaríkjanna!
xxx
EIR, sem vilja hafa heimilis-
bókhaldið á hreinu, yfirfara
greiðslukortakvittanirnar sínar og
yfirlitið frá bankanum til að ganga
úr skugga um að þeim beri sam-
an. Það vekur athygli þeirra, sem
stunda þessa iðju, hversu mislæsi-
legar greiðslukortakvittanir eru.
Strimlarnir, sem hefðbundnir
„posar“ prenta út, eru auðlæsileg-
ir; dagsetningin er í efstu línu og
upphæðin, sem verzlað var fyrir,
auðkennd með stærra letri. Þetta
eru þær upplýsingar, sem mestu
máli skipta á strimlinum. Hjá sum-
um fyrirtækjum eru hins vegar
allar tölurnar á strimlinum í einum
hrærigraut og með sama letri,
þannig að miklu erfiðara og tíma-
frekara er að lesa úr þeim. Um
leið og nöldrað er yfir þessu, vill
Víkveiji ekki láta hjá líða að ergja
sig yfir því hversu lítið pláss er
ætlað fyrir eiginhandaráritun
korthafa aftan á greiðslukortun-
um. Þetta er afar pirrandi fyrir
fólk með víðáttumikla undirskrift.