Morgunblaðið - 04.01.1997, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Ljóska
Ferdinand
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylgavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Sannleikurínn er
sagna bestur
Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur
Ásdísi Frímannsdóttur og
Ester Sveinbjarnardóttur:
SAMTÖKIN Lífsvog hafa nú í tæp
tvö ár stutt við bakið á fólki er
telur sig hafa orðið fyrir mistökum
í læknismeðferð. Þessi tími hefur
svo sannarlega orðið starfsfólki
Lífsvogar lærdómsríkur, þ.e. við
höfum komist að raun um aðferða-
fræði við rannsókn mála á sér vart
hliðstæðu á öðrum sviðum samfé-
lagsins.
Því miður virðist nokkurn veginn
sama hvað miður fer, af hálfu lækna
eða heilbrigðisþjónustunnar í heild.
I mjög mörgum tilvikum finna rann-
sóknaraðilar ekki neitt aðfínnslu-
vert varðandi hin ýmsu atvik og
ferliverk er sjúklingur undirgengst
af hálfu og á ábyrgð þeirra hinna
sömu aðila, er einnig standa að
rannsókn mála.
Landlæknisembættið lætur síðan
í ljós undrun sína yfir dómum
Hæstaréttar varðandi læknamistök,
en virðist ekki eygja sýn í þá veru,
að það er þeirra, embættismann-
anna, að skapa fordæmi, varðandi
faglega viðurkenningu þeirra hinna
sömu mistaka.
Á sama tíma rembast menn eins
og rjúpan við staurinn að láta í það
skína hversu óskaplega mikinn tíma
það taki fyrir embættið að sinna
fólki er óskar eftir aðstoð gegnum
Samtökin Lífsvog.
Við vitum það hjá Samtökunum
Lífsvog að það tekur tíma að skrifa
bréf, þar sem almenn kurteisi og
virðing þarf alltaf að fylgja erindum
sem slíkum. Ef menn hafa ekki van-
ist því að sinna erindum bréflega
er eins gott að halda einhver endur-
menntunamámskeið því nú eru að
taka gildi lög er skylda menn til
þess að skrá öll erindi við hið opin-
bera, hvetju nafni sem þau nefnast.
Formaður og varaformaður Lífs-
vogar eru kvenkyns, því hefur emb-
ætti Landlæknis m.a. reynt að
draga upp persónugeringu í mál-
fiutningi, þ.e. til þess að vita hvort
konur detti ekki alveg ofan í tilfinn-
ingapyttinn. í raun hafa Samtökin
Lífsvog verið vel uppi á bakka þess
pytts. Það væri hins vegar ef til
vill athugunarefni, hvort embættis-
menn Landlæknisembættisins, ættu
ekki að hoppa út í tilfínningapytt-
inn, þó ekki væri nema til þess að
geta sett sig í spor þess fólks er
gengur og hefur gengið þrauta-
göngu varðandi viðurkenningu al-
gjörlega ófullnægjandi meðferðar í
„besta heilbrigðiskerfi í heimi“, þar
sem almenn skynsemi, ásamt þekk-
ingu á læknisfræði getur sagt loka-
orð um niðurstöðu mála, svo fremi
að menn séu ekki að veija markaðs-
lega hagsmuni stéttarinnar í heild.
Til allrar hamingju höfum við er
störfum í Lífsvog, merkt viðhorfs-
breytingu hvað varðar málefni
þessi. Almennt er fólk nú upplýst-
ara um hvað einföld aðgerð á líkam-
anum getur haft í för með sér,
enda læknar nú ögn duglegri að
upplýsa um slíkt fyrir aðgerðir.
Samt sem áður virðist ekki enn sjá
fyrir endann á hamagangi þeim er
tilkominn virðist vegna „sparnaðar-
hugmynda ýmiskonar". Biðlistar
eru óþarfir hér á landi og auka
ekki hagkvæmni til lengri tíma lit-
ið. Við hjá Lífsvog fáum til okkar
fólk er hefur undirgengist slíkan
Ijölda aðgerða að með ólíkindum er.
Ef aðgerð misheppnast í fyrsta
skiptið virðist svarið bara að gera
aðgerð aftur og aftur og aftur. Á
meðan bíða aðrir er þurfa einnig á
slíku að halda og lifa af á verkjalyfj-
um er kosta skildinginn.
Við höfum ítrekað bent á ýmsa
endurskoðun mála innan heilbrigð-
isgeirans, s.s. fjárhagslega ábyrgð
lækna á rekstri sinna deilda. Við
teljum að það þurfi að greina á
milli hvort læknar séu starfsmenn
íslenska ríkisins eða sínir eigin herr-
ar með rekstur á einkastofum. Sam-
bland af hvoru tveggja teljum vð
til dæmis ekki geta samræmst hin-
um siðfræðilegu og læknisfræðilegu
forsendum er byggja fyrst og
fremst á því að hagsmunum sjúkl-
inganna sé best borgið. Það kom
fram á málþingi Siðfræðistofnunar
Háskólans, varðandi réttindi sjúkl-
inga, að heilbrigðisráðuneytið hefur
nú rannsóknarþátt Landlæknis-
embættisins til skoðunar í ráðu-
neytinu. Skrifstofustjóri svaraði
þingmanni Alþýðuflokksins, Össuri
Skarphéðinssyni, varðandi fyrir-
spurn þess efnis, hvort landlæknir
gæti setið beggja vegna borðsins.
Við fögnum því að heilbrigðisráð-
herra hafi mál þessi til skoðunar
og væntum aðgerða í kjölfarið, en
orð eru til alls fyrst og umræða og
upplýsing er af hinu góða og til
þess fallin að vekja almenning til
umhugsunar um líf og heilsu á tutt-
ugustu öldinni, öld tækninnar sem
hver ætti svo sannarlega að vega
og meta á vogarskálum eigin lífs.
F.h. Samtakanna Lífsvogar,
GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR,
ÁSDÍS FRÍMANNSDÓTTIR,
ESTER SVEINBJARNARDÓTTIR.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Glæsilegur samkvæmisfatnaður
fyrir öll tækifæri.
Fataleiga Garðabæjar,
Garðatorgi 3, ^565 6680.
Opiö frá kl. 9 - 18 og 10 - 14 á laugardögum.