Morgunblaðið - 04.01.1997, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 43
FRÉTTIR
STARFSMENN Sjúkrahúss Reykjavíkur sem hlutu styrki að þessu sinni.
Styrkveitingar til rannsókna
á Sjókrahúsi Reykjavíkur
NÝLEGA voru veittir styrkir úr
Vísindasjóði Borgarspítalans og
Styrktarsjóði St. Jósefsspítala til
rannsóknarverkefna á vegum
starfsfólks Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Alls voru veittir styrkir að upphæð
kr. 3,7 milljónir til 18 rannsóknar-
verkefna á ýmsum sviðum heil-
brigðisvísinda.
Verkefni þessi verða unnin af
ýmsum starfsstéttum mismunandi
deilda Sjúkrahúss Reykjavíkur og
má þar nefna rannsókn á hálstognun
eftir bifreiðaslys, rannsókn á færni
í kjölfar mænuskaða, erfðafræðileg-
ar rannsóknir á geðklofa, árstíða-
bundnar sveiflur í D-vítamín- þéttni
í blóði íslenskra stúlkna, könnun á
notagildi úrræða sem mælt er með
fyrir útskrift af öldrunarlækinga-
deild, svo fátt eitt sé nefnt.
„Slíkar árlegar styrkveitingar til
rannsóknarverkefna hafa reynst
mikil örvun og hvatning til starfs-
fólks að kanna nýja þætti ýmissa
sjúkdóma og meðferð þeirra til hags-
bóta fyrir sjúklinga spítalans. Borg-
arstjórn Reykjavíkur hefur sýnt mik-
inn skilninig á mikilvægi þessa vís-
indastarfs með auknu framlagi til
móts við framlag starfsmanna spít-
aians en auk þess fær sjóðurinn arð
af stofnframlagi sjóðsins og rekstri
verslunar RKÍ á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur,“ segir í frétt frá Sjúkrahúsi
Reykjavíkur.
Morgunblaðið/RAX
Styrkti Mæðra-
styrksnefnd
FYRIR jólin kom Ólafur Sig-
mundsson til Mæðrastyrks-
nefndar færandi hendi með 300
falleg kerti og ýmsar aðrar
gjafir til bágstaddra. Myndin
var tekin við það tækifæri, frá
vinstri: Særún Siguijónsdóttir,
Ólafur Sigmundsson, Unnur
Jónasdóttir, Guðlaug K. Run-
ólfsdóttir, Bryndís Guðmunds-
dóttir og Guðrún Magnúsdóttir.
Námskeið í
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir tveimur námskeiðum í
almennri skyndihjálp. Það fyrra
hefst mánudaginn 6. janúar kl. 19.
Það síðara verður helgina 25.-26.
janúar.
Bæði námskeiðin teljast vera 16
kennslustundir. Öllum 15 ára og
eldri er heimil þátttaka. Sérstaklega
er vænst þátttöku ungra ökumanna
sem hafa í höndum ávísun á nám-
skeið í skyndihjálp gefna út af
Rauða krossi íslands. Námskeiðs-
gjald er kr. 4.000, skuldlausir félag-
ar í RKÍ fá 50% afslátt. Hægt verð-
ur að ganga í félagið á staðnum.
Einnig fá nemendur í framhalds-
skólum og háskólum sama afslátt
gegn framvísun skólaskírteinis.
Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu er blástursmeðferðin,
endurlífgun með hjartahnoði, hjálp
við bruna og blæðingum úr sárum.
Einnig verður fjallað um helstu
heimaslys þ.m.t. slys á börnum og
forvarnir almennt. Að námskeiðun-
um loknum fá nemendur skírteini
sem er hægt að fá metið í ýmsum
skólum.
Önnur námskeið sem haldin eru
hjá Reykjavíkurdeild RKÍ eru um
áfallahjálp, slys á börnum og það
hvernig á að taka á móti þyrlu á
slysstað.
Athugasemd
frá Jafningja-
fræðslunni
AÐ GEFNU tilefni vill Jafningja-
fræðsla framhaldsskólanema koma
á framfæri eftirfarandi athuga-
semd:
„Ungt fólk gegn vímuefnum hef-
ur nú um hátíðirnar gengið í hús
og boðið fólki að styrkja félagið-
með fjárframlögum. Misskilningur
hefur verið uppi um það hjá sölu-
fólki að Jafningjafræðsla fram-
haldsskólanema sé á einhvern hátt
tengd félaginu og fái hlut í styrkn-
um.
Jafningjafræðsla framhalds-
skólanema vill taka fram að engin
tengsl eru á milli þessara tveggja
félaga. Jafningjafræðslan hefur
aldrei stundað sölu af neinu tagi,
starfsemi okkar er eingöngu rekin
á styrkjum frá fyrirtækjum og hinu
opinberá.“
Fyrir hönd Jafningjafræðslu
framhaldsskólanema,
Víkingur Viðarsson,
starfsmaður JF.
Sól hf. fær nýtt íslenskt
gerilsneyðingartæki
NÝTT íslenskt gerilsneyðingar-
tæki hefur verið tekið í notkun í
ávaxtasafaverksmiðju Sólar. Þetta
er í fyrsta skipti sem svo flókið
tæki er smíðað hérlendis fyrir
safaframleiðendur. Við hönnun
þess er tekið sérstakt tillit til ís-
lenskra aðstæðna og nýtist orkan
a.m.k. 20% betur en með sambæri-
legum erlendum búnaði, segir í
frétt frá Sól. Gerilsneyðingartæki
(e. Pasteurizer) er notað til þess
að snögghita ávaxtasafa og drepa
örverur sem ella stytta geymslu-
þol. Tækið tekur ávaxtasafa inn á
sig við um 1-3°C. Hann er hitað-
ur upp í um 90°C. Tækið kælir
hann svo í 5°C og er honum loks
pakkað í neytendaumbúðir.
Tækið er smíðað hjá Strand-
smíði sf. í Hafnarfirði, en aðal-
hönnuður þess er Þorgeir Gunn-
laugsson. Hugmyndina að gerð
þess fékk hann er hann starfaði
sumarið 1989 í verksmiðju Sólar.
Blöskraði honum mjög sóun á
heitu vatni og var sannfærður um
að hann gæti gert betur.
Lykillinn að góðri orkunýtingu
felst í því að heitur safi er notaður
til að hita kaldan safa og kaldur
safi er notaður til að kæla heitan
safa. Hönnunin er á þá lund að
inn í rörum með heitum safa eru
rör með köldum safa og er því um
mikla nákvæmnissmíð að ræða.
Tækið tekur um tveggja fermetra
gólfpláss, og er um 1,5 metri að
hæð, en samanlögð lengd röra er
hálfur kílómetri!
Rafstýringu tækisins hannaði
Einar Hallfreðsson hjá Straumbæ
sf. í Reykjavík. Straumbær sá um
raffræðilega uppsetningu tækis-
ins. Núvirði tækisins er um 12
milljónir kr.
Heimasíða
Sjóvá-Almennra
Hægtað
reikna ót
tryggingar
SJÓVÁ-ALMENNAR tryggingar
bjóða nú upp á þá nýju þjónustu
að þeir sem eru með heimilistölvur
og tengdir alnetinu geta farið inn
á heimasíðu félagsins og reiknað
út tryggingaiðgjöld sín og greiðslu-
byrði bílalána.
í fréttatilkynningu frá Sjóvá-
Almennum segir að notendur ver-
aldarvefsins geti nú notað tölvurn-
ar sínar til þess að velja hentugar
tryggingar fyrir heimilið og bílinn,
reikna út tryggingaiðgjöldin og
greiðslubyrði bílalána Sjóvá-
Almennra. Einnig sé hægt að fá
upplýsingar um hvort nauðsynleg-
ur öryggisútbúnaður sé á reiðhjól-
inu, fá upplýsingar um bílpróf og
námskeið fyrir unga ökumenn og
fræðast um fjölþætta starfsemi fé-
lagsins og tryggingavernd sem það
býður.
Slóð til að komast á heimasíðu
tryggingafélagsins er www.sjal.is.
Útsölur á Löng-
um laugardegi
FYRSTI Langi laugardagurinn er
í dag, 4. janúar. Á löngum laugar-
dögum eru verslanir á svæðinu
opnar til kl. 17.
Nú er vetrarútsölutíminn að
ganga í garð og sumar útsölur
þegar bytjaðar. Margir kaupmenn
við Laugaveg og nágrenni hyggj-
ast bytja sínar útsölur á Löngum
laugardegi. Það má því búast við
að líf verði í tuskunum og því tilval-
ið að kíkja í bæinn og freista þess
að gera góð kaup, segir í frétt frá
kaupmönnum.
Við Laugaveg og nágrenni eru
rúmlega 300 verslanir sem gera
miðbæinn að langstærsta verslun-
arsvæði landsins.
Frítt er í öll bílastæðahús á laug-
ardögum og frítt í stöðumæla eftir
kl. 14.
Nýr píanóleik-
ari á Romanee
NÝR píanóleikari hefur tekið til
starfa á Café Romance. Heitir hann
Neal Fullerton og kemur frá Eng-
landi.
Fullerton er 45
ára gamall og hef-
ur leikið á píanó-
börum víða um
heim í meira en 20
ár. Þar á meðal
hefur hann leikið á
hinum fræga bar
Maxims í Amsterd-
am. Hann hefur á
efnisskránni öll
þekktustu dægurlög heimsins.
Hann mun skemmta í janúar alla
daga nema mánudag frá klukkan
20 á Café Óperu og frá kl. 22 á
Café Romance.
LEIÐRÉTT
\
4
i
■
Undir en ekki yfir
lágmarksverði tóbaks
ÞAÐ meginefni fréttar um sam-
keppni í tóbakssölu á bls. 2 í blað-
inu í gær, að kaupmönnum er nú
fijálst að selja tóbak við því verði
sem þeir kjósa svo framarlega sem
það fer ekki undir lágmarksverð
sem ÁTVR gefur út, komst ekki
rétt til skila því að í inngangi frétt-
arinnar stóð „ekki yfir lágmarks-
verðið“ í stað „ekki undir lág-
marksverðið“. Beðist er velvirðing-
ar á þeim mistökum.
Kraftaverkamyndir Lulu Yee
SÝNING á kraftaverkamyndum
Lulu Yee í galleríi Horninu verður j
opnuð í dag laugardag kl. 17 en
ekki kl. 14 eins og misritaðist í
blaðinu í gær. Er beðist velvirðing-
ar á þessum mistökum.
Rangar tölur um TR
í FRÉTT um bætur Trygginga- í
stofnunar ríkisins, sem birtist í ■
Morgunblaðinu 29. desember, var
farið rangt með tölur um fjölda
örorkubótaþega. í desember 1996
voru þeir 7.834 en ekki 8.108 eins '
og sagði í fréttinni. Ennfremur var
rangt farið með tölur um örorkulíf-
eyri. Árið 1993 greiddi TR 1.106
milljónir í örorkulífeyri og örorku-
styrk og árið 1995 voru þessar
greiðslur 1.319 milljónir. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Árétting vegna viðtals
SIGURÐUR Þórðarson, formað-
ur Tannlæknafélags íslands, vill
árétta vegna viðtals við hann í
gær, að það er ákveðin meðferð,
sem verður greidd af Trygginga-
stofnun, að því er varðar for-
varnastarf, 1-2 skoðanir, 1-2
röntgenmyndatökur og 1-2 flúor-
lakkanir. Því sem fram yfir er má
sækja um endurgreiðslu á til
Tryggingastofnunar eða fólk
greiðir sjálft. Endurgreiðsla fyrir
allar almennar aðgerðir er meira. 1
og minna óbreytt. I