Morgunblaðið - 04.01.1997, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 41
Morgunblaðið/Arnór
JÓNAS P. Erlingsson og Steinar Jónsson færa sig norður yfir heið-
ar og spila með Akureyringum um rétt til þátttöku í íslandsmóti.
Uppstokkun á
sterkustu brids-
sveitunum
BRIPS
Þönglabakki 1
REYKJAVÍKURMÓTIÐ
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni fer
fram dagana 4.-19. janúar í Brids-
höllinni við Þönglabakka. Aðgangur
er ókeypis.
ÞAÐ má segja að bridskeppnis-
tímabilið byiji fyrir alvöru nú um
helgina þegar reykvískir brids-
spilarar hefja keppni um Reykja-
víkurmeistaratitilinn í sveita-
keppni. Þá kemur einnig í ljós
hvernig helstu sveitir verða skipað-
ar í keppnum vetrarins og hægt
er að byija að spá í spilin um
væntanlega sigurvegara á stór-
mótum.
Að þessu sinni hefur orðið nokk-
ur uppstokkun á þekktustu brids-
sveitunum. Tvær þær sigursælustu
á síðasta ári, sveitir Landsbréfa
og Samvinnuferða-Landsýnar,
hafa til dæmis skipst á mannskap.
Guðmundur Páll Arnarson og Þor-
lákur Jónsson, sem áður voru í
Landsbréfum, spila í vetur í sveit
Samvinnuferða en Björn Eysteins-
son og Ragnar Hermannsson, sem
áður voru í sveit Samvinnuferða,
hafa gengið til liðs við Landsbréf.
í þeirri sveit verða áfram Jón Bald-
ursson, Sævar Þorbjörnsson og
Sverrir Ármannsson. í sveit Sam-
vinnuferða verða, auk Guðmundar
og Þorláks, Helgi Jóhannsson,
Guðmundur Sv. Hermannsson og
Karl Sigurhjartarson.
Sveit VÍB hefur fengið liðsauka
frá síðasta keppnisári, Sigurð
Sverrisson sem spilar við Ásmund
Pálsson. Áfram verða í sveitinni
Aðalsteinn Jörgensen, Matthías
Þorvaldsson, Guðlaugur R. Jó-
hannsson og Örn Arnþórsson.
Talsverðar breytingar hafa orðið
á sveit Hjólbarðahallarinnar sem
Hjalti Elíasson fer fyrir. Með hon-
um verða Eiríkur Hjaltason, Páll
Hjaltason, Einar Jónsson, sem áður
var í sveit Samvinnuferða, og
Ragnar Magnússon og Páll Valdi-
marsson sem áður voru í sveit
Búlka.
Sveit Búlka verður skipuð Sig-
tryggi Sigurðssyni, Braga Hauks-
syni, Sigurði Vilhjálmssyni, Er-
lendi Jónssyni og Ljósbrá Baldurs-
dóttur.
Sveit Roche verður skipuð Hauki
Ingasyni, Jóni Þorvarðarsyni, Oddi
Hjaltasyni, ísak Erni Sigurðssyni
og Þresti Ingimarssyni. Þá spila
þeir Kristján og Valgarð Blöndal,
Guðmundur Sveinsson, Valur Sig-
urðsson, Björn Theódórsson og
Rúnar Magnússon saman undir
nafni Eurocard. Sveit Símonar
Símonarsonar verður skipuð hon-
um og Páli Bergssyni, Guðmundi
Péturssynij Stefáni Guðjohnsen og
Kjartani Ásmundssyni. Þá spila
Hermann og Ólafur Lárussynir
með Hrannari Erlingssyni, Stefáni
Jóhannssyni, Jakob Kristinssyni og
Júlíusi Siguijónssyni.
Loks má geta þess að Jónas P.
Erlingsson og Steinar Jónsson,
sem spiluðu í sveit Hjólbarðahallar-
innar síðasta vetur, hafa gengið
til liðs við Akureyringana Magnús
Magnússon, Pétur Guðjónsson,
Sigurbjörn Haraldsson og Anton
Haraldsson og þessi sveit spilar
um íslandsmótsrétt á Norðurlandi.
Gott útspil
Landsbréf unnu Samvinnuferðir
í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins
fyrir ári. Landsbréfamenn áttu
heldur náðuga daga í úrslitakeppn-
inni þá, enda í góðu formi eins og
þetta spil úr fjórðungsúrslitum
mótsins ber með sér. Jón Baldurs-
son þurfti að spila út með þessi
spil í vestur:
Norður
♦ KG10642
¥D105
♦ 97
+ ÁD
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta
1 spaði 3 spaðar pass 3 grönd//
3 spaðar báðu suður um að segja
3 grönd með spaðafyrirstöðu. Jón
sá í hendi sér að fyrst norður hafði
aðeins áhuga á spaðafyrirstöðu
væri hann væntanlega með renn-
andi láglit en lítið annað. Suður
átti háspil í spaða og hjarta og því
gat laufið verið opið. Jón spilaði
því út laufaás og laufadrottningu
þegar Sævar Þorbjörnsson í austur
kallaði.
Norður
♦ D7
y 93
♦ ÁKDG106
♦ 432
Vestur
♦ KG10642
VD105
♦ 97
♦ ÁD
Austur
♦ 93
VG64
♦ 53
♦ KG10986
Suður
♦ Á85
V ÁK872
♦ 842
♦ 75
Eins og sést átti vörnin sex slagi
á lauf og Landsbréfamenn unnu
leikinn léttilega.
Guðm. Sv. Hermannsson
- kjarni málsins!
A
Hannes Hlífar og Helgi Ass
töpuðu klaufalega í 6. umferð
SKAK
Norræna VISA
bikarkcppnin
RILTON MÓTIÐ í
STOKKHÓLMI 27.12.-
5.1.
Þrír islenskir stórmeistarar keppa
á mótinu, sem er það fjórða af fimm
undanrásamótum.
ÞRÁTT fyrir spá völvunnar á
Stöð 2 um að 1997 verði gott ár
fyrir íslenska skákmenn byijuðu
þeir árið illa í Stokkhólmi. Þeir
Hannes Hlífar Stefánsson og
Helgi Áss Grétarsson töpuðu báð-
ir klaufalega fyrir sænskum al-
þjóðameisturum í sjöttu umferð,
en Jóhann Hjartarson vann sína
skák.
Staðan að þremur umferðum
óloknum:
1.—3. Gausel, Noregi, Benjamin,
Bandaríkjunum og Degerman, Svfþjóð
5 v. af 6 mögulegum.
4.—12. Ulibin, Agrest, Gleizerov og
Jakovitsj, allir Rússlandi, Curt Hansen
og Lare Schandorff, Danmörku, Sjúl-
man, Úkraínu, deFirmian, Bandaríkj-
unum og Áström, Svíþjóð 4 'A v.
Helgi Áss og Jóhann eru í
13.—34. sæti með fjóra vinninga,
en Hannes Hlífar hefur þijá og
hálfan vinning. í gær átti Jóhann
að hafa hvítt gegn sænska al-
þjóðameistaranum Brynell, en
Helgi Áss svart á Eistann Ehlvest,
sem er stigahæsti keppandinn.
Jóhann vann sænskan nafna
sinn, alþjóðlega meistarann Johan
Furhoff snaggaralega í fyrstu
skák sinni á nýja árinu:
Hvítt: Furhoff, Svíþjóð
Svart: Jóhann Hjartarson
Kóngsbragð
I. e4 - e5 2. f4 - exf4 3. Nf3
- d6 4. d4 - g5 5. Rc3 - Bg7
6. g3 — h6 7. gxf4 — g4 8. Be3
- gxf3 9. Dxf3 — h5 10. Hgl -
Bg4 11. Dg2 - Rc6 12. h3 -
Bxd4 13. Bxd4 — Rxd4 14. hxg4
- Dh4+ 15. Kd2 — hxg4 16.
Dxg4 - Df2+ 17. Be2 - Rf6 18.
Dg3 — Rxe4+ og Furhoff gafst
upp.
Heildarstaðan í
VISA—bikarkeppninni
Fyrir mótið í Stokkhólmi
standa íslenskir skákmenn nokk-
uð vel að vígi. Tólf efstu komast
í úrslitamótið. Þijú bestu mót
hvers skákmanns eru reiknuð.
Þeir sem hlotið hafa stig í mótun-
um í Reykjavík, Kaupmannahöfn
og minningarmótinu um Eikrem
í Gausdal í Noregi eru þessir:
1. Hillarp—Persson, Svíþj. 43
2. Margeir Pétursson 42,5
3. Curt Hansen, Danm. 37,5
4. S. Agdestein, Nor. 35,5
5. Jóhann Hjartarson 34,17
6. Tisdall, Noregi 29
7. Hector, Svíþjóð 24,17
8. Djurhuus, Noregi 24
9. Gausel, Noregi 23,67
10. Helgi Ass Grétarsson 22
II. Helgi Ólafsson 22
12. Hannes H. Stefánsson 21,5
13. Þröstur Þórhallsson 19
14. Borge, Danmörku 17
15. Heine—Nielsen,
Danm. 15,67
16. Mortensen,
Danm. 13,17
17. L.B. Hansen,
Danm. 12,17
18. Ákesson, Svíþjóð 7
19. Westerinen, Finnl. 7
20. Schandorff, Danm. 6
21. Furhoff, Svíþjóð 4
22. St. Pedersen,
Danm. 4
23. Lejlic, Svíþjóð 4
24. Östenstad, Nor. 3,5
25. Gabrieisen, Nor. 2,5
26. Gundersen, Nor. 2,5
27. Bragi Halldórs-
son 1,5
28. Lyrberg, Svíþjóð 1,5
29. Magnús Öm Úlfars-
son 1,5
Það hafa orðið heil-
mikil skrif um heppni
Tigers Hillarps Perssons á fýrstu
þremur mótunum. En í Stokk-
hólmi gengur allt á afturfótunum
hjá honum, hann hefur aðeins
þijá vinninga úr fyrstu sex skák-
unum og bætir varla stöðuna mik-
ið. Það er því líklegt að Daninn
Curt Hansen komist upp í efsta
sætið.
Miklar breytingar í
Taflfélagi Reykjavíkur
Það hefur ekki gengið vel hjá
TR undanfarin ár. Virkum félög-
um hefur fækkað jafnt og þétt
og fjárhagserfiðleikar sett svip
sinn á starfsemina. Reglulegum
kvöldæfingum var hætt í fyrra
eftir að hafa verið haldnar sam-
fleytt um áratugaskeið. Á meðan
hafa ný taflfélög á höfuðborgar-
svæðinu blómstrað.
Nú stendur aukaaðalfundur í
félaginu fyrir dyrum fimmtudag-
inn 9. janúar kl. 20. Ólafur H.
Ólafsson, formaður, hefur undir-
ritað skriflegt samkomulag við
aðra stjórnarmenn um að hann
hætti nú í stjórninni. Ólafur mun
þó áfram sinna afmörkuðum verk-
efnum fyrir félagið. Eins og allir
skákáhugamenn vita hefur hann
unnið af mikilli fómfýsi fyrir fé-
lagið í meira en aldarfjórðung.
Svipað samkomulag var gert
fyrir ári síðan og átti þá Daði Örn
Jónsson að taka við stjórnartaum-
unum á aðalfundi í vor. En það
gekk ekki eftir, Ólafur sigraði í
formannskjöri og í framhaldi af
því hættu Daði Örn og fleiri
stjórnarmenn í TR og gengu til
liðs við taflfélagið Helli. Það
mættu margir á þann sögulega
aðalfund og kusu, miðað við
minnkandi starfsemi TR.
Þá hefur verið gert samkomu-
lag um sölu á hluta af félagsheim-
ili TR, sem hefur reynst óþarflega
stórt. Með því næst að greiða
skuldir félagsins. Þeir Ingimar
Jóhannsson, fiskifræðingur og
Wilhelm Steindórsson, verkfræð-
ingur hafa átt fmmkvæði að þess-
um breytingum. Fylgi mun vera
fyrir því að Þröstur Þórhallsson,
nýbakaður stórmeistari, taki við
formennsku fram að reglulegum
aðalfundi í vor.
Vonandi er þarna
komin lausn á þeirri
forystukreppu sem
hrjáð hefur TR. Fé-
lagið á glæsta sögu
og fagnar aldaraf-
mæli sínu árið 2000.
Með heilbrigðri
samkeppni tveggja
öflugra taflfélaga,
TR og Hellis, ætti
framgangur skák-
listarinnar í Reykja-
vík að vera tryggð-
ur.
Atkvöld Hellis
Taflfélagið Hellir
flutti í nýtt húsnæði
um áramótin. Nú er
starfsemin að hefj-
ast af fullum krafti eftir flutning-
ana og fyrsta mótið á nýju ári
verður haldið mánudaginn 6. jan-
úar. Þá verður haldið atkvöld, sem
er stutt og fjörugt skákmót. Fyrst
eru tefldar þijár hraðskákir þar
sem hvor keppandi hefur 5 mínút-
ur til að ljúka skákinni og síðan
þijár atskákir, með hálftíma um-
hugsunartíma. Taflfélagið Hellir
heldur atkvöld einu sinni í mánuði
og hafa þau notið mikilla vin-
sælda.
Mótið fer fram í hinu nýja fé-
lagsheimili Hellis í Þönglabakka
1 í Mjóddinni, efstu hæð. Sami
inngangur og hjá Bridgesam-
bandinu og Keilu í Mjódd. Rétt
er að vekja athygli á að nýja fé-
lagsheimilið er mjög vel staðsett
með tilliti til strætisvagnaferða,
en það er rétt hjá skiptistöðinni í
Mjódd. Teflt verður með Fischer-
FIDE klukkum. Mótið hefst kl.
20:00. Þátttökugjald er kr. 200
fyrir félagsmenn (kr. 100 fyrir
15 ára og yngri), en kr. 300 fyrir
aðra (kr. 200 fyrir 15 ára og
yngri).
Unglingaæfingar Hellis
Eftir jólafrí eru æfingarnar að
hefjast aftur og fara nú fram í
Þönglabakka 1. Þær eru haldnar
alla mánudaga kl. 17:15. Æfing-
arnar taka um það bil eina og
hálfa klukkustund. Eina skilyrðið
til að vera með er að kunna að
tefla.
Æfingar sem þessar hafa verið
haldnar undanfarin ár hjá Helli
og aðsókn verið góð og farið vax-
andi. Verðlaun eru veitt fyrir best-
an árangur á hverri æfingu. Auk
þess eru veitt sérstök verðlaun
fyrir bestan heildarárangur og
besta mætingu. í fyrra fengu þau
Egill Guðmundsson, Ingibjörg
Edda Birgisdóttir og Davíð
Guðnason verðlaun fyrir bestan
árangur. Eiríkur Garðar Einars-
son, Haraldur Óli Ólafsson og
Egill Guðmundsson fengu verð-
laun fyrir besta mætingu. Um-
sjónarmaður unglingastarfsins er
Davíð Ólafsson. Óll verðlaun
vegna unglingastarfsemi Hellis
eru gefin af íslandsbanka, Breið-
holti. Margeir Pétursson
Jóhann Hjartarson
vann nafna sinn
Furhoff í 18 leikj-
um í 6 umferðinni.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Suðurlandsmót
í tvímenningi 1996
Suðurlandsmótið í tvímenningi
var spilað á Hvolsvelli þ. 30. nóvem-
ber sl. með þátttöku 24 para. Spilað
var um nýjan farandverðlaunagrip,
sem Glerverksmiðjan Samverk hf.
á Hellu gaf.
Fyrir síðustu umferðina voru tvö
pör jöfn í efsta sæti, en í mótslok
stóðu Ólafur Steinason og Ríkharð-
ur Sverrisson uppi sem sigurvegar-
ar með 129 stig. í öðru sæti urðu
Runólfur Jónsson og Sigfinnur
Snorrason með 122 stig, en í þriðja
sæti höfnuðu Óskar Pálsson og
Kjartan Aðalbjörnsson með 81 stig.
Fjórðu urðu síðan Þórður Sigurðs-
son og Gísli Þórarinsson með 70
stig.
Suðurlandsmót
í sveitakeppni 1996
Mótið verður spilað á Hótel Flúð-
um föstudaginn 17. janúar og laug-
ardaginn 18. janúar. Er stefnt að
því að mótið hefjist kl. 18 á föstu-
dagskvöldið, en mótslok ráðast af
fjölda þátttökusveita. Mótið er jafn-
framt undankeppni íslandsmóts í
sveitakeppni og öðlast þijár efstu
sveitirnar þátttökurétt á Islands-
móti. Þátttaka tilkynnist til Guðjóns
Bragasonar í hs. 487 5812 eða vs.
487 8164, eða Karls Gunnlaugsson-
ar í hs. 486 6621, í síðasta lagi
þann 15. janúar nk. Bent er á að
hægt er að panta gistingu ásamt
mat á Hótel Flúðum.
Bridsdeild Barðstrendinga og
Bridsfélag kvenna
Mánudaginn 30. desember sl. var
spilaður tvímenningur 16 pör
mættu, 30 spil spiluð. Meðalskor
210.
Bestu skor:
Vilhjálmur Sigurðss. - ísak Sigurðss. 240
Guðlaugur Sveinss. - Magnús Sveinss. 239
Halldór Þorvaldsson - Baldur Bjartmarss. 236
Nk. mánudagskvöld verður spil-
aður eins kvölds tvímenningur, Mitc-
hell, forgefin spil. Skráning á spila-
stað Þönglabakka 1 ef mætt er fyrir
kl. 19.30.
Mánudaginn 13. janúar 1997 hefst
sveitakeppni. Aðstoð veitt við að
mynda sveitir. Upplýsingar og skrán-
ing í síma 587-9360, BSÍ, 5532968,
Ólína og 557-1374, Ólafur. Spila-
stóri er Isak Öm Sigurðsson.
Gleðilegt nýtt ár.